Helgarpósturinn - 16.01.1997, Side 2
2
FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1997
v
Hallgrímur Thorsteins-
son falar þjónustufyrir-
tækin til kaups í umboði
Jóns Ólafssonar
Hallgrímur Thorsteinsson
býður netfyrirtækjum að
sameinast undir forystu
Jóns Ólafssonar og
Stöðvar 2. Menn eru ekki
spenntir fyrír hugmyndum
þeirra félaga.
Stöð 2 vill á
netmarkaðinn
Jón Ólafsson hefur að und-
anförnu verið að bera ví-
urnar í fyrirtæki sem veita að-
gang að Internetinu. Hug-
myndir hans eru sagðar ganga
út á að sameina einhver þess-
ara tiltölulega smáu fyrirtækja
undir einn hatt, ná þannig
vænni markaðshlutdeild og
geta boðið þjónustu nýja net-
miðlarans sem hluta af heild-
arpakka sem einnig fæli í sér
áskrift að Stöð 2. Hallgrímur
Thorsteinsson, fjölmiðlafræð-
ingur og fyrrverandi útvarps-
maður, hefur að undanförnu
gengið erinda Jóns Ólafssonar
og spurst fyrir um möguleika á
kaupum. Hjá Stöð 3 munu
menn einnig vera farnir að
hugleiða aðild að netþjónustu.
Netmiðlarar, eða fyrirtæki
sem sjá um tengingar við Int-
ernetið og þjónusta netnot-
endur, eru nú sennilega orðnir
á annan tug talsins á landinu.
Einna elst og þekktast er Mið-
heimar og samkvæmt heimild-
um Helgarpóstsins mun Jón Ól-
afsson einmitt hafa reynt að
kaupa hlut í Miðheimum en
fengið neitun.
HP hefur staðfestar heimild-
ir fyrir því að þeir félagar Hall-
grímur og Jón hafi spurst fyrir
um a.m.k. tvö slík fyrirtæki til
viðbótar. Viðmælendur blaðs-
ins hafa sagt þetta mál á við-
kvæmu stigi en líka hefur mátt
skilja á þeim að hlé hafi orðið
á framvindunni síðustu daga.
„Ég geri ráð fyrir að Jón hafi
um annað að hugsa þessa dag-
ana,“ sagði framkvæmdastjóri
eins þeirra netmiðlunarfyrir-
tækja sem fengið hafa fyrir-
spurn frá Hallgrími, og vísaði
þar til deilna Stöðvar 2 við þá
starfsmenn sem fluttu sig yfir
til Stöðvar 3.
Samkvæmt heimildum HP
eru stjórnendur Stöðvar 3
einnig að velta fyrir sér aðild
að netþjónustu enda þykjast
menn þar á bæ, líkt og annars
staðar, sjá fram á vaxandi
þýðingu Netsins. Þegar tekið
er tillit til þeirrar útbreiddu
skoðunar að samkeppni á
sjónvarpsmarkaði næstu ára
muni einkum verða milli
þeirra sjónvarpsstöðva sem
númera sig 2 og 3 telja menn
ekki fráleitt að einmitt hin fyr-
irsjáanlega samkeppni um
netþjónustumarkaðinn sé
ekki veigaminnsta ástæðan
fyrir harkalegum viðbrögðum
Stöðvar 2 gagnvart þeim
starfsmönnum sem fluttu sig
yfir.
Framundan virðast vera
verulegar sviptingar á Inter-
netmarkaðnum. Breytingar og
þróun, sem vissulega hafa
komið til umræðu en fremur
verið á vísindaskáldsögustigi,
gætu orðið mögulegar innan
mánaða og að almennum veru-
Ieika innan fárra ára. „Sá mað-
ur sem stendur í sjónvarps-
rekstri og ekki er að velta fyrir
sér yfirráðum eða a.m.k. ríf-
legri markaðshlutdeild í net-
tengingum og þjónustu við sí-
stækkandi hóp netnotenda
ætti að snúa sér að einhverju
öðru,“ sagði annar viðmælandi
blaðsins, sem einnig kannaðist
við að það væri ekki „alveg úr
lausu lofti gripið" að falast
hefði verið eftir kaupum eða
samstarfi við hans fyrirtæki.
Þeir sem starfa í þessum
geira virðast nokkuð almennt
þeirrar skoðunar að „sjónvarp
færist inn á Netið eða Netið inn
í sjónvarpið, eftir því hvernig á
það er litið", eins og einn við-
mælenda blaðsins komst að
orði. Annar viðmælandi, mað-
ur sem vel þekkir til þessara
mála, kveðst þess fullviss að á
næstu mánuðum muni línur
fara að skýrast varðandi það
hvaða netþjónustufyrirtæki lifi
og hver deyi. „í þessum geira
eins og öðrum verður samein-
ing eða þá að samkeppninni
lýkur með sigri einhverra.
Þessi fyrirtæki verða í framtíð-
inni færri og stærri.“
Kanadískur rekstrarráðgjafi
Vegas á mála hjá Vítisenglum
Vítisenglar ásælast Island
Rekstrarráðgjafi nektar-
klúbbsins Vegas, Alan
Blanchard, hafði sama aðsetur
og mótorhjóla- og glæpasam-
tökin Vítisenglar eða Hell’s
Angels í Kanada áður en hann
kom hingað til lands. Lögreglu-
yfirvöid fylgjast með þessu
máli, enda þykir ásælni slíkra
glæpasamtaka í að koma sér
fyrir með starfsemi sína hér á
landi áhyggjuefni. Glæpasam-
tök eins og Vítisenglar stunda
nú í auknum mæli hvers kyns
fjárplógsstarfsemi eins og
vændi og eiturlyfja- og vopna-
sölu víða um heim. Þá nota
þeir nektardansara sem burð-
ardýr fyrir eiturlyf — en slík
mál munu ekki hafa komið upp
hér á landi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni er það
venja meðal þessara glæpa-
samtaka að senda á undan sér
menn til að kanna hvaða jarð-
vegur er fyrir starfsemi þeirra í
nýju landi. Um hríð var Alan
Blanchard rekstrarráðgjafi á
Vegas en mun hafa lent upp á
kant við eigendur staðarins og
var að lokum vikið úr starfi.
Ástæðan fyrir brottvikning-
unni er talin vera tengsl Alans
við Vítisengla. Það hefði sjálf-
sagt verið bagalegt fyrir einn
eigenda fyrirtækisins, Harald
Böðvarsson, sem er sonur lög-
reglustjórans í Reykjavík,
Böðvars Bragasonar.
Kötturinn í sekknum
Erlendir nektardansarar
sem stunda atvinnu sína hér á
landi hafa einkum komið frá
Kanada og því var það vel til
fundið hjá eigendum nektar-
staðarins Vegas að ráða til sín
kanadískan mann sem væri
þessum bransa vel kunnugur.
Þegar HP hafði samband við
Vegas var blaðamanni tjáð að
Alan Blanchard hefði aldrei
verið á launaskrá hjá
skemmtistaðnum. Það hefði
staðið til að hann starfaði fyr-
ir eigendur staðarins en ekki
orðið neitt úr því og væri
hann farinn úr landi. Þegar
blaðamaður spurði hvaða
Kanadamaður hefði verið í
forsvari fyrir skemmtistaðinn
í umfjöllun fréttastofu RÚV í
Kastljósi um nektarstaði varð
fátt um svör hjá viðmælanda
blaðamanns og sagðist hann
ekki þekkja málið. Á frétta-
stofu RÚV fengust þær upp-
lýsingar að Alan Blanchard
hefði verið í forsvari fyrir
staðinn þegar þátturinn var
tekinn upp. Sagði hann við
fréttamann RÚV að hann ræki
staðinn auk þess sem hann
réði alla dansara.
Hin nýja Cosa Nostra
Vítisenglar hafa tekið mikl-
um stakkaskiptum á liðnum ár-
um. Þeir eru ekki lengur húð-
flúraðir og síðhærðir mótor-
hjólaribbaldar heldur tekur
starfsemi þeirra æ meira mið
af skipulagðri starfsemi glæpa-
samtaka sem gefa mafíusam-
tökum hvers konar ekkert eft-
ir. Samtökin voru stofnuð í
Bandaríkjunum en hafa meðal
annars komið sér fyrir á Norð-
urlöndunum — þar sem þau
eru þekkt fyrir allt annnað en
fagra mótorfáka en öilu heldur
fyrir eiturlyfja- og vopnasölu
auk vændis. Sterkt bræðralag
einkennir samtök eins og Vítis-
engla og eru félagar þeirra til-
búnir að gera hvað sem er fyrir
félaga sína — jafnvel drepa.
Þessi samtök hafa að undan-
förnu verið að leita eftir nýjum
mörkuðum í Evrópu og sam-
kvæmt upplýsingum innan úr
lögreglunni var talin ástæða til
að fylgjast með slíkum þreif-
ingum hér, einkum vegna
komu Alans Blanchard, rekstr-
araðila Vegasar, til landsins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Útlendingaeftirlitinu er hann
ekki farinn úr landi.
Fram að þessu hafa Vítis-
englar verið nær einráðir í
starfsemi sinni en nú bregður
svo við að samtökin Bandidos
hafa látið á sér kræla og ógna
veldi Englanna á Norðurlönd-
um. Það er ekki talið tilviljun
að skærur Vitisengla og Band-
idos áttu sér stað á sama tíma í
þremur löndum; Svíþjóð, Nor-
egi og Danmörku. Þetta er
dæmi um útbreiðslu og breytt-
ar starfsaðferðir Vítisengla og
baráttu þeirra við Bandidos
um yfirráð í undirheimum
þessara landa. Vítisenglar hafa
verið í sambandi við mótor-
hjólasamtök hér á landi en
ekki haft erindi sem erfiði.
Eftirmálar forsetaframboðsins eru
Pétri Hafstein erfiðir.
Sindri Sindrason: Eg ber ábyrgð á
mistökunum.
Samtök til
stuðnings
Pétri Hafetein
brutu lög
Samtök til stuðnings forsetaframboði Péturs
Hafstein hlýddu ekki lagaskyldu um að til-
kynna lögreglustjóra um umdeilda fjársöfnun á
vegum samtakanna. - Mér varð á í messunni,
segir Sindri Sindrason, forsvarsmaður Sam-
taka um stuðning við Pétur Hafstein.
kveðst bera fulla ábyrgð á mis-
tökunum og að forsetafram-
bjóðandinn fyrrverandi kæmi
Fjársöfnunin stóð í nokkra
mánuði á síðasta ári en var
skyndilega hætt eftir umfjöll-
ún Helgarpðstsins í desember.
Eftir að Pétur Hafstein tapaði
forsetakosningunum í vor var
hann stórskuldugur og sam-
skotin áttu að létta honum
róðurinn. Pétur mun persónu-
lega ábyrgur_fyrir 14 milljóna
króna skuld en áður hafði
hann lagt fram 8,5 milljónir
króna í stofnframlag.
Samkvæmt lögum nr. 5 frá
1977 um opinberar fjársafnan-
ir ber að tilkynna þær til lög-
reglustjóra áður en þær hefj-
ast. Samtökin um stuðning við
Pétur Hafstein eru til heimilis í
Reykjavík og opnuðu reikning
í Landsbanka íslands. Þau
hefðu átt að tilkynna fjársöfn-
unina til Iögreglustjórans í
Reykjavík.
„Mér varð á í messunni,"
segir Sindri Sindrason, fram-
kvæmdastjóri Pharmaco, en
hann er forsvarsmaður sam-
takanna. Áður en Sindri svar-
aði fyrirspurn HP ráðfærði
hann sig við lögfræðing — þó
ekki Pétur Hafstein — sem
staðfesti við hann að Samtökin
hefðu átt að tilkynna lögreglu-
stjóra um fjársöfnunina. Sindri
þar hvergi nærri.
Embætti lögreglustjóra legg-
ur ríka áherslu á að tilkynnt sé
um fjársafnanir og sendi m.a.
út fréttatilkynningu sem birt-
ist í Morgunblaðinu seint á síð-
asta ári þar sem ítrekað var að
aðilar sem standa að fjársöfn-
unura tilkynni þær. Brot gegn
lögum um opinberar fjársafn-
anir varða sektum.
í sumar fengu Samtök um
stuðning við Pétur Hafstein
leyfi dómsmálaráðuneytisins
til happdrættis. Það dróst að
birta vinningsnúmer og sími
sem gefinn var upp á happ-
drættismiðanum reyndist lok-
aður. Sigurður Arnórsson tók
á sig sökina í fréttum Bylgjunn-
ar 6. september sl. og kvaðst
einn bera ábyrgðina.
Dregist hefur að birta reikn-
ingsskil fjársöfnunarinnar til
stuðnings Pétri Hafstein, líkt
og annarra framboða. Að sögn
Sindra er gert ráð fyrir að end-
urskoðunarskrifstofa Eyjólfs
K. Siguijónssonar muni á
næstunni skila frá sér endur-
skoðuðum reikningum for-
setaframboðs Péturs Hafstein.
Leynireikningur falinn
í Húsnæðisstofiiun
Húseigendafélagið vill spilin á borðið
Söfnunarreikningur var félagsins hefur lagt
stofnaður hjá Húsnæðis-
stofnun þar sem inn fóru
skyldusparnaðarframlög ein-
staklinga sem meðal annars
voru erlendis eða fluttir af
landi brott. Einnig fóru
greiðslur krafna vegna inn-
heimtu skyldusparnaðar lög-
fræðinga Húsnæðisstofnunar
inn á ávísanareikning yfir-
manns lögfræðideildar, Ein-
ars Jónssonar. Þá mun öll inn-
heimtuþóknun, sem heimt var
í nafni stofnunarinnar, hafa
runnið til lögfræðinga.
Lögfræðingur Húseigenda-
fram
greinargerð vegna máishöfð-
unar Húsnæðisstofnunar í
héraðsdómi Reykjavíkur
vegna ummæla Sigurðar H.
Guðjónssonar, framkvæmda-
stjóra félagsins, sem hann lét
falla í sjónvarpsviðtali í frétta-
tíma Stöðvar 2 og í morgun-
þætti Bylgjunnar. í greinar-
gerðinni er því haldið fram að
sérstakur söfnunarreikningur
kunni að vera til innan stofn-
unarinnar og er óskað eftir
upplýsingum um með hvaða
heimild hann hafi verið notað-
ur. Þá er farið fram á að ferill
innheimtra krafna og meðferð
fjár og þóknunar sé skoðuð og
hvort farið hafi verið eftir
skriflegum reglum stofnunar-
innar. Er skorað á Húsnæðis-
stofnun að upplýsa það og
leggja fram reglurnar, ef til
eru. Jafnframt að leggja fram
yfirlit yfir ávísanareikning Ein-
ars Jónssonar auk skilagrein-
ar og bókhalds um innheimtu
— þar á meðal hvernig þókn-
un hafi skipst á milli einstakra
lögfræðinga og hvernig færslu
vaxta vegna höfuðstóls inn-
heimtra krafna hafi verið hag-
að.