Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1997 ffi*^nersand ‘Democratíc Vafi ■njamin DeMwt 3,1 ;wto©í* MAXBEE Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Frá og með 15. janúar 1997 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: bækur Hinsta andvarp márans Salman Rushdie Þýöandi: Árni Óskarsson Mál og menning 1996 ★★★ 1/2 Iér er á ferðinni bók sem ekki verður lesin í flýti, hún þarf íhygli við og gaumgæfni svo er hún þéttfléttuð og margbrotin. Saga nokkurra kynslóða, hundrað ára saga fólks og lands, ef ekki líka landa, þó að meginstraumar liggi um Bombay. Frásögnin, sem er þrungin táknum og til- vísunum, er um Gama Zogoiby- fjölskylduna sögð af Moraes, eða Máranum og eins og getið er á kápusíðu: „Saga um mikla glæpi og stórkostlega glópsku, ótrúlega útsmogin launráð haldast í hendur við takmarka- lausa skammsýni og öll er frá- sögnin mettuð þungum pipar- ilmi ódauðlegrar ástar...“ Það er óhætt að fullyrða að þessi mikla örlagasaga er gríp- andi, magnþrungið verk, tryll- ingsleg og illþefjandi á köflum en líka grátbrosleg og hrífandi í senn. Þýðing Áma Oskarsson- ar á þessu mikla bókmennta- verki hlýtur að teljast hreint þrekvirki, miðað við margbrot- ið og margslungið efnið, sem skilar sér á íslenskunni í lipur- legu máli og óþvinguðu. Þórleif Ólafsson Ritskoðun, og marmrétttndi klámkón stjórum Morgunblaðsins í fjöl- miðladálki blaðsins og nokkru síðar var Ásgeir ekki lengur reglulegur skríbent blaðs allra landsmanna. Alexander Cock- bum vílar ekki fyrir sér að uppnefna ritstjóra og út- gefendur vikuritsins The Nation þar sem hann skrif- ar dálkinn „Beat the De- vil“. Tilefnið er viðbrögð sem Cockburn fékk við niðursöllun á grein Pauls Berman í New Yorker um morð contra-skæruliða í Nicaragua á Bandaríkja- manninum Ben Linder. Berman er eins og Cock- burn og The Nation hluti af bandaríska vinstrinu. í les- endabréfum var Cockburn spurður hvers vegna hann væri að bendla jafnágætan mann og Berman við Oli- ver North og aðra hægri- hauka. Hvað með sam- stöðuna, Cockburn, og hvers vegna í ósköpunum er Nation að birta svona ásakanir? Cockburn svarar: Þótt ritstjóri og útgefendur séu þekktir fyrir sauðalegt frjálslyndi og samúð með tittum eins og Berman þá kalla ég hlutina réttum nöfnum. Daginn sem reynt verður að ritskoða mig er ég hættur. í greininni í New Yorker sleikti Berman hægrigamma og contra- liða sem ataðir eru blóði saklauss fólks. Skoðanaskiptin gefa áhugaverða innsýn í heim bandarískra vinstrimanna þar sem takast á húma- nískir pragmatistar sem styðja Clinton og vilja gera gott úr slæmu ástandi og harðlínumenn eins og Cockburn (raunar fæddur Breti) og Ken Silverstein (sem gefur út pólitíska fréttablaðið CounterPunch í félagi við Cockburn). Hreintrúarmennirnir fall- ast ekki á málamiðlunina milli vinstrimanna og Clin- tons og telja hann hafa svikið málstaðinn svo rækilega að enginn munur sé á Clinton og repúblikön- um. Róttæklingurinn og neytendafrömuðurinn Ralph Nader fékk stuðn- ing hreintrúarmanna í for- setakosningunum í haust. Munnhoggeríið var í tölublaði Nation frá 9. des- ember en aðalefni þess tölublaðs er breiðsíða gegn elítunni sem smættar stærstu þjóðfélagsvanda- mál Bandaríkjanna niður í borgaralegan siðbrest, un- civility. Frá Clinton og nið- ur í kennarann í dreifbýlis- háskólanum (en ekki neð- ar en það) er sú þjóðfé- lagsgreining í tísku að ef aðeins Bandaríkjamenn til- einkuðu sér borgaralega dyggð myndu glæpir, upp- lausn fjölskyldunnar og önnur óáran réna. Höfundur breiðsíðunnar, Benjamin De- Mott, ásakar þá sem bera uppi þessa umræðu, þ.e. mennta- menn, um algjöran skort á sjálfsgagnrýni og að tala niður til almennings sem á að taka sér dyggðir hinna efnameiri og betur settu'sér til fyrirmyndar. Tekjuskiptingin og þjóðfélags- legt ranglæti er ekki á dagskrá menntamannanna. Ekki verður skilið við Nation án þess að minnast á merki- lega bók sem nýkomin er út og skrifað er um í blaðið 16. des- ember. Carolyn Eisenberg sagnfræðingur hefur varið rúmum áratug í að rannsaka upphaf kalda stríðsins. Skipt- ing Þýskalands eftir seinna stríð var jafnframt tvískipting heimsins alls, í austur og vest- ur. Winston Churc- hill hélt magnaða ræðu árið 1949 í smábænum Fulton í Bandaríkjunum þar sem „járntjaldið" var fyrst nefnt. Ræð- an lagði drög að þeirri söguskoðun að Stalín og Sovét- ríkin væru aðalsöku- dólgurinn. En það er hæpið, svo ekki sé meira sagt. Bók Ei- senbergs, Drawing the Line: The Amer- ican Decision to Divide Germany, 1944-1949, dregur upp þá mynd að rík- isstjórn Trumans hafi kalt og yfirveg- að ákveðið að skipta Þýska- landi milli Vesturveldanna og Sovétríkjanna. Roosevelt, for- veri Trumans, hafði komist að samkomulagi við Stalín um framtíð Þýskalands. Áhrifa- miklir ráðgjafar Trumans, t.d. John Foster Dulles og George Marshall, töldu Sovétríkin efnahags- og hernaðarlega vanmáttug eftir stríð og sann- færðu forsetann, sem hafði litla reynslu í utanríkismálum, um að óþarfi væri að hafa Sov- étríkin með í ráðagerðum um framtíð Þýskalands. Bandarík- in töldu sig ekki þurfa að taka tillit til sovéskra hagsmuna og tortryggnin sem alið var á með ýmsum ráðstöfunum af hálfu Vesturveldanna endaði með fjandskap á milli sigurvegara seinna stríðs. Engar öfgar er að finna í breska mánaðarritinu Prospect sem fyrrverandi blaðamaður Financial Times, David Good- hart, stofnaði fyrir tveimur ár- um. Alla jafna eru áhugaverðar greinar í hverju hefti. Greinar um efnahagsmál og stjórnmál eru skrifaðar fyrir upplýsta les- endur sem búa að almennu menningarlæsi en ekki sér- þekkingu. í janúarútgáfunni er m.a. fjallað um iðnvæðingu há- skólanáms í Bretlandi. A.C. Greyling, kennari við Birkbeck og Oxford, harmar það að við- Myndi íslenskur dálkahöf- undur komast upp með að kalla ritstjóra sinn sauða- legan frjálslyndismann? Tæp- lega. Ásgeir Friðgeirsson and- aði einu sinni gagnrýni að rit- 1. flokki 1991 3. flokki 1991 1. flokki 1992 2. flokki 1992 1. flokki 1993 3. flokki 1993 1. flokki 1994 1. flokki 1995 1. flokki 1996 2. flokki 1996 3. flokki 1996 20. útdráttur ■ 17. útdráttur 16. útdráttur 15. útdráttur 11. útdráttur 9. útdráttur 8. útdráttur 5. útdráttur 2. útdráttur 2. útdráttur 2. útdráttur Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu, miðvikudaginn 15. janúar. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis- skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS I 1 HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlMI 569 6900 sem tröllríður listum og m e n n i n g u . Þjóð án lista, skrifar Tusa, er hætt að ræða við sjálfa sig, týnir draumn- um, skoðar ekki fortíð sína og er áhugalaus um framtíðina. Um áramótin var frumsýnd kvik- mynd Milos For- man, The People vs. Larry Flynt (Ákæruvaldið gegn Larry Flynt), um baráttu klámhunds- ins útgefanda Hustl- er fyrir málfrelsi. Eins og fæstir vita er Hustler gróf útgáfa af Playboy og Larry Flynt ekki merkilegur pappír. En hann, líkt og aðrir banda- rískir þegnar, á stjórnarskrár- varið málfrelsi. Framleiðendur myndarinnar birta heilsíðu- auglýsingu í tímaritinu New Yorker þar sem endurprentað- ur er dálkur Franks Rich í New York Times. Rich freistar þess að sýna fram á að almennt mál- frelsi fær ekki staðist án þess að ná einnig til einstaklinga sem annars ættu ekki skilið að njóta slíkrar verndar. Slíkur maður er Larry Flynt. Á íslandi höfum við Hrafn Jökulsson, hraðlyginn blaðamann (sbr. leiðara HP 19. des. sl) og gífuryrtan (sbr. „glæpamannaframleiðandi rík- isins“ um fangelsismálastjóra), sem við þurfum að taka upp hanskann fyrir jafnvel þótt maður fái óbragð í munninn. Heldur tekur maður málstað aumkunarverðs einstaklings, til að verja almenn réttindi, fremur en leyfa niðursöllun á meginreglu til að viðkomandi fái makleg málagjöld. Húsbréf Utdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 4. flokki 1992 - 13. útdráttur 4. flokki 1994 - 6. útdráttur 2. flokki 1995 - 4. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 1997. Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði. Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis- stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa- fyrirtækjum. [S] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS || HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900 GERMANVS EASTKRX EMPIRE skipta- og hagkvæmis- sjónarmið séu orðin ráðandi í háskólasam- félaginu. Páll Skúla- son heimspekipró- fessor hefur túlkað áþekkt viðhorf hér- lendis. Samkvæmt Prospect er líka kreppa í breskri menningu og hún er af sömu rótum. John Tusa, for- stöðumaður Barb- ican-menningar- miðstöðvarinnar, ræðir fjársvelti menningarlífsins en jafnframt var- ar hann við pen- ingahyggjunni m\n- MTitvi TBE DULI.EST STATESAfcVN MALTUUSIAN MYTHS MKHDLU K*SltITADT„> JOINIXG THEAA CI.LS * TtAT lIÍ IKAVÍ.TX •JOHVTLS* ■ n*Vtt>ursEv ■ OffTÍIUSMO tiTKtK'IJI • HMnaDinvttg TÍIE STORY WHOSE ftMEHASOOMEw Bandarískir vinstrímenn munn- höggvast á síðum The Nation: Húmanískir pragmatistar fá það óþvegið frá hreintrúarmönnum og menntamenn liggja undir ámæli fyrír að tala niður til almennings. í Prospect er skrífað um kreppuna í bresku háskólasamfélagi. Ástandið er litlu skárra í menningu og listum. Til varnar klámhundinum Larry Flynt og málstað Hrafns Jökuls- sonar

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.