Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 24
HELGARPÓSTURINN 16. JANÚAR 1997 2. TBL. 4. ÁRG. VERÐ 250 KR. Ifréttum Bylgjunnar og Stöðvar 2 hefur komiö fram aö hátt- settur embættismaöur hafi fengið óeðlilega fyrirgreiöslu hjá Húsnæðisstofnun. Ekki var maðurinn nafngreindur en sam- kvæmt upplýsingum HP er hér um Gunnar Gunnarsson, sendiherra t Moskvu, að ræða... Lesendur danska blaðsins Politiken hafa valið kvikmyndina Á köldum klaka eftir Friðrik Þór Friðriksson fimmtu bestu mynd ársins 1996 í flokki mynda framleiddra utan Bandarikj- anna. í umsögn blaðsins um kvikmyndina segir meðal annars að Friðrik þór sanni enn og sýni með þessari mynd hvers hann sé megnugur. Myndin sýni vel hin nánu tengsl við náttúru og forfeöur sem séu íslendingum og Japönum eðlileg. í fyrsta sæti varð skoska myndin Trainspotting... Mikið hefur verið fjallað um umsókn um skot- vopnaleyfi þar sem Björn Halldórsson, yfir- maður fíkniefnadeildar lögreglunnar, gerðist með- mælandi fyrir kunnan fíkniefnasala, Franklin Steiner. Steiner hefur verið lengi í þessum bransa og þekkir hvern krók og kima í undirheim- um landsins, hefur meðal annars verið dópsali „fína fólksins". Hann þótti því feitur þiti fyrir fíkniefnalögregl- una. Hann mun hafa aflað henni upplýsinga og komið á tengsl- um viö hópa sem hafa verið viðriönir fíkniefnaviöskipti. Taliö er að fíkniefnalögreglan hafi í staöinn T einhver skipti litið undan þegar Steiner stundaði sín viðskipti... Jóhann A. Jónsson, oddviti á Þórshöfn á Langanesi, þykir með afbrigðum ráðríkur í plássinu og er sagður vilja ráða flestu sem þar gerist. Eftir að Kaupfélagiö fór á hausinn og tré- smiöjan með stofnuðu tveir starfsmenn hennar nýja trésmiðju. Þeir munu hafa ætlað að byrja smátt og hafa vaöið fyrir neðan sig. Sagan segir að Jóhanni hafi ekki þótt þeir nægilega stór- huga. Svo mikið er víst aö hreppsnefndin lagði fram fé til stofnunar annars verktakafyrirtækis í greininni, ÞH-verktaka. Það fyrirtæki hefur síðan setiö að verkefnum á vegum hrepps- ins og Hraöfrystistöðvar Þórshafnar. Á vegum ÞH-verktaka vinna aðkomumenn en smiðirnir tveir, sem á sínum tíma unnu hjá Kaupfélaginu, eru fluttirfrá Þórshöfn... Leikskólana í Reykjavík vantar starfsfólk þrátt fyrir allt at- vinnuleysiö. Um næstsíðustu helgi voru auglýstar stöður við þrettán leikskóla. Á langflestum stöðum vantaði bæöi leik- skólakennara og minna menntað starfsfólk. Ástæðan fyrir nokkuð reglubundnum auglýsingum leikskólanna mun vera veruleg hreyfing á starfsfólki... Bókasafnsmál Hafnfirðinga eru til umræðu t bæjarstjórnarmeirihlutanum. Þrir möguleikar eru sagðir vera á framtíöarhúsnæði fyrir safniö. Bærinn á húsnæði í Miðbæ Hafnarfjarðar en þarf helst að selja það undir virðisaukaskatt- skylda starfsemi til að fá endurgreiddan 14 milljóna vask. Til álita kemur aö kaupa Lands- bankahúsið þar sem Penninn er einnig. Þriðji möguleikinn og sá sem Jóhann Bergþórsson er sagður fýlgja hart fram er að kaupa Dverg, gamla trésmiðju á mótum Suður- götu og Lækjargötu. Þetta hús hefur verið til sölu í nokkur ár en ekki selst. Það fylgir sögunni að Trausti Ó. Lárusson í Dverg og Jóhann Berg- þórsson séu ágætir kunningjar. Sá galli er þó á þessari lausn aö við þetta hús vantar bílastæði. Þann vanda hyggjast menn leysa með því að kaupa um aldargamalt hús við hliöina og nota lóðina fyrir óílastæði. Þetta hús er í eigu Sigurðar T. Sigurðs- sonar, formanns Hlífar, en hann hefur kvartaö undan þvt að húsiö sé aö síga og er sagður vilja selja... Hrafn Jökulsson slapp ekki jafn auðveldlega undan Haraldi Johannessen og horfur virt- ust á um tíma. Hæstiréttur sendi málið til óaka til Héraðsdóms Reykjavíkur og skipaði svo fyrir að það skyldi tekið til efnislegrar meðferðar. Hrafn kallaði Harald „glæpamannaframleiöanda ríkisins" og Haraldur fól ríkissaksóknara aö höfða opinbert meiðyrðamál. Héraðsdómur vís- aði málinu frá á þeim forsendum að opinbert meiðyrðamál brjóti í bága viö jafnréttisákvæði stjómarskrárinnar. Hæstaréttardómararnir Garð- ar Gíslason, Amljótur Björasson og Markús Sigurbjörnsson kváðu upp þennan úrskurð. Sagan tengir þá þó alla við hina umdeildu laga- http://this.is/net I i"f o H i x/d-fi\r nm IntQi'notiA ■fAllxiA r+oaly i r-» r\rf fro m K vr\ lifandi vefur um Internetiö, fólkið, fyrirtækin og framþróunin abyrgö a viifiu o g varahfi#um F á a|i I e g meö Peníium og Pentium Pro AST Bravo MS er ein mest selda fyrirtækjatölva á íslandi. í henni sameinast allir bestu kostirnir og nýjasta tæknin. Afkastamikil og áreiðanleg forystutölva. AST Bravo MS • 3ja ára ábyrgð á vinnu og varahlutum • Fáanleg með Pentium n33 tii 200MHz) og Pentium Pro (i80og200MHz) • EJS þjónusta Hafðu samband við sölumenn okkar _____________Sími 563 3050 R AÐ GREIÐSLUR Opið á laugardögum Grensásvegur 10, bréfasími 568 711 5 http://WWW.ejs.is • sala@ejs.is grein eða áðurgildandi lög um sama efni. Mark- ús átti þátt í að semja lagatextann sem máls- höfðunin byggir á. Arnljótur dæmdi á sínum tíma í hinu fræga máli Þorgeirs Þorgeirsonar, en sá dómur var ómerktur úti t Strassborg. í mannrétt- indadómstólnum átti þá sæti Garðar Gíslason, en hann skilaði sératkvæði og vildi láta íslenska dóminn yfir Þorgeiri standa... að eru ýmsar blikur á lofti í landbúnaðinum. Nú síðast tilkynnti áburðarverksmiðjan í Gufu- nesi um rúmlega 7% hækkun áburðarverðs í vor. Fróðir menn segja þessa hækkun m.a. eiga aö auövelda verksmiðjunni samkeppni við hugsan- legan innflutning. Einstakir bændur verða látnir greiöa háa veröið og þannig skapast svigrúm til að lækka verðið svo um munar þegar um útboð eða stærri pantanir er að ræða... Félag ferskra fjárbænda, sem í haust var stofn- að um kjötsölu til Hagkaups, brást hart við verðhækkuninni á áburði og tók að safna saman áburðarpöntunum félagsmanna. Félagið stefnir að því að panta sameiginlega a.m.k. þúsund tonn fyrir félagsmenn sína t Vestur-Húnavatns- sýslu, Ströndum og Dölum, en meö því móti fæst 10% afsláttur. Kaupfélögin á svæðinu hafa nú ákveöið að bregðast við þessari nýju og óvæntu samkeppni með þvt að bjóöa félagsmönnum sín- um 10% afslátt. Félag ferskra fjárbænda mun þó ekki ætla að láta deigan síga og heldur því til streitu að kaupa þúsund tonn af áburði beint frá Gufunesi. Ástæðan er reyndar einkum sögð sú að bændur T Dölum njóta ekki afsláttar með ööru móti...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.