Helgarpósturinn - 16.01.1997, Side 8
8
RMMTUDAGUR16. JANÚAR1997
Stöð þrjú blæs til sóknar eftir mögur tapár og mikla erfiöleika frá stofnun fyrirtækisins.
Búið er aö ganga frá skuldum og nýtt hlutafé komið inn í fyrirtækið. Núna síðast hirtu
þeir fimm stjórnendur frá helsta keppinaut sínum, Stöð tvö. Því má segja að framtíðin
sé spennandi á þessu sviði fjölmiðlunar hér á landi. HPhafði samband við Atla Rúnar
Halldórsson, fréttamann RÚV til margra ára og núverandi fjölmiðlaráðgjafa.
Búnir að fá nóg af Stöð 2
Atli Rúnar Halldórsson: „Ég bara vona að
við sem heima sitjum fáum sem mest fyrir
sem minnst út á þetta stríð allt saman.“
Ivernig líst þér á þessar
vœringar í fjölmiðla-
heiminum?
„Þessi tíðindi um að fimm-
menningarnir hefðu fært sig yf-
ir á Stöð þrjú komu náttúrulega
á óvart,“ segir Atli. „Þetta er
eins og með köttinn sem hefur
níu líf. Maður var löngu búinn
að afskrifa þetta fyrirbæri —
Þristinn — sem eitthvað líf-
vænlegt og þurfti reyndar ekki
mikinn spámann til,“ segir
hann og hlær.
Hann virðist lifa þó góðu
lífi enn...
„Svo virðist sem drifkraftur-
inn fyrir því að fjárfestar moki
peningum í stöðina sé frekar
að þrengja að Jóni Ólafssyni
heldur en brennandi áhugi á
fjölmiðlum, hvað þá heldur
hagnaðarvon.“
Eru menn þá hrœddir við
völd Jóns Ólafssonar?
„Það er sú skýring sem að
manni er rétt úti í viðskiptalíf-
inu. Það finnst mér nokkuð at-
hyglisvert, ef eitthvað er til í
því. Það er að minnsta kosti
ekki verið að fjárfesta í fyrir-
tæki eins og Samherja þarna.
Stöð þrjú er fyrirtæki sem
þyrfti að búa til sérstök nám-
skeið um í viðskiptafræðinni í
Háskólanum: Fyrirtæki sem
hefur bara útgjöld en engar
tekjur á annað ár en lifir samt.
Það sem gerist núna — að
„Svo virðist sem drif-
krafturinn fyrir því að
fjárfestar moki peningum
í Stöð þrjú sé frekar að
þrengja að Jóni Ólafssyni
heldur en brennandi
áhugi á fjölmiðlum, hvað
þá heldur hagnaðarvon.
... Það er að minnsta
kosti ekki verið að fjár-
festa í fyrirtæki eins og
Samherja þarna.“
•
fimmmenningarnir færa sig yf-
ir til andstæðingsins — hlýtur
að vera sambland að því að
menn hafi verið búnir að fá
nóg af Stöð tvö og eins að þeim
hafi verið boðið eitthvað gott.
Það hlýtur að þurfa þetta
tvennt til. Það læðist í það
minnsta að manni sá grunur að
þessir fimmmenningar hafi
verið sannfærðir um að það
væri einhver framtíð á Stöð
þrjú.“
Telurðu Stöðvar þrjú-
menn vera að plana ein-
hverja stórsókn?
„Já, það er borðleggjandi að
þeir ætla sér að lifa. Það verð-
ur spennandi að sjá hvaða dag-
skrá þeir ætla að bjóða. Þeir
gera ekki stóra hluti nema þeir
bæti hana talsvert. Það sem ég
hef séð hingað til af dagskrá
Stöðvar þrjú gefur ekki tilefni
til bjartsýni, enda er dagskráin
að mínu mati afar rýr. Þeir
hljóta að fara inn á einhverja
innlenda þáttagerð, bæði létt-
meti og svo fréttatengda
þætti."
Hvað með öfluga
fréttastofu í líkingu
við þœr á Stöð tvö og
RÚV?
„Fréttastofa og
fréttastofa. Það er
hægt að gera út frétta-
stofu á milljón vegu.
Þegar Stöð tvö var
stofnuð á sínum tíma
apaði hún rammann
eftir Ríkissjónvarpinu.
Flest fólkið á Stöð tvö
hafði fengið sitt upp-
eldi þar. Það er auðvit-
að engin eilífðarfor-
skrift að sjónvarps-
fréttatíma, síður en
svo. Það er hægt að
búa til takmarkaðri
fréttir í þyngri kantin-
um eða takmarkaðri
fréttir í léttari kantin-
um.“
Hvað þarf svona
sjónvarpsstöð að
gera til að lifa?
„Það er ekki nóg að
ná starfsmönnum af
Stöð tvö, þeir þurfa að
ná kaupendum líka.
Þeir hljóta að þurfa að
ná einhverjum slatta af
áskrifendum til sín.
Sendingarsvæðið hjá
þeim er náttúrulega
mjög takmarkað og
Stöð tvö mjög út-
breidd. Ég held að Stöð
þrjú geti ómögulega
komist af með að vera
bara við hliðina á Stöð
tvö. Þeir verða bókstaf-
lega að taka kúnna frá
þeim. í þessu stríði
þeirra hlýtur líka að
fara að þrengja enn
frekar að Ríkissjón-
varpinu og mun það
trúlega hafa veruleg
áhrif þar á bæ. Þrýst-
ingur á breytingar þar
hlýtur að aukast mikið.
Einhvern veginn liggur
það í loftinu að þeir
sem ráða menntamál-
um þjóðarinnar ætli
ekki að horfa upp á
þessar sviptingar án
þess að aðhafast nokk-
uð. Það verður forvitni-
legt að sjá hvað gerist á
þeim vettvangi."
Hefurðu trú á að
Stöð þrjú sé komin til
að vera?
„Þá má ef til vill frek-
ar spyrja hvort Stöð
tvö sé komin til að
vera. Það er mjög
skuldugt fyrirtæki og
má lítið klikka þar ef
ekki á að fara illa. Ef
þessi darraðardans
harðnar verulega og
Stöð þrjú fer að sækja
af einhverri alvöru er
alveg hægt að spyrja
um það. Stöð tvö hefur
ekki efni á að missa
mikið yfir til keppinaut-
arins. Nú eru þeir búnir
að hirða af þeim þessa
fimmmenninga og er al-
veg trúandi til að fara
að hirða af þeim ein-
hverja áskrifendur og
jafnvel auglýsendur.
Ég bara vona að við
sem heima sitjum fáum
sem mest fyrir sem
minnst út á þetta stríð
alit saman.“
Frá næstu áramótum verður 10% skattur af vaxtatekjum
og arði innheimtur í staðgreiðslu.
Vaxtatekjur
Staðgreiðslu vegna skatts á vaxtatekjur ber
að halda eftir við greiðslu vaxta. Þeir sem
eiga að halda eftir skattinum og skila til inn-
heimtumanns ríkissjóðs eru:
• Bankar og sparisjöbir
• Verbbréfafyrirtceki og verhbréfamiMarar
• Eigtiarleigufyrirtœki og adrar
fjármálastofnanir
• Lögmenn, löggiltir endurskóöendur
og aðrir umsýslumenn fjármuna
• Tryggingafélög
• Sérhverjir adrir sem hafa atvinnu af
fjárvörslu, milligöngu eða innheimtu
í verðbréfaviðskiptum éða annast
innheimtu fyrir aðra
Skrá yfir þá sem eiga að skila
staðgreiðslu af vaxtatekjum
Ríkisskattstjóri hefur útbúið skrá yfir skila-
skylda aðila og var miðað við atvinnugreina-
merkingar Hagstofu íslands við gerð hennar.
Þeir sem færðir hafa verið á skrána hafa nú
fengið tilkynningar þar um og geta gert
athugasemdir ef við á. Þeim sem ekki hafa
fengið slíka tilkynningu en telja sig eiga að
vera á skránni, ber að tilkynna ríkisskattstjóra
um starfsemi sína fyrir áramót.
Á skránni verða ekki aðrir en þeir sem skila
eiga staðgreiðsluskatti af vaxtatekjum.
Arður
Öll félög sem greiða aró til hlutahafa eiga
að halda eftir staðgreiðsluskatti af honum
og skila til innheimtumanns ríkissjóðs.
Skrá yfir þá sem eiga að skila
staðgreiðslu af arði
Hlutafélög og önnur félög með takmarkaða
ábyrgð félagsaðila fara sjálfkrafa inn á
skrá og fá sendar skilagreinar vegna
staðgreiðslu af arði í lok hvers árs, í fyrsta
sinn í árslok 1997.
Skilagrein ásamt greiðslu er skilað til
innheimtumanns ríkissjóðs. Þau félög sem
ekki greiða arð skila núll-skýrslu.
Orbsendingar
Allir launagreiðendur hafa fengið sendar
orðsendingar með upplýsingum varðandi
innheimtu skattsins í staðgreiðslu.
RSK
RIKISSKATTSTJORI