Helgarpósturinn - 16.01.1997, Síða 14
FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1997
14
Húmor, heimspeki og symbólik
Dómínó
eftir Jökul Jakobsson
Leikhljóð: Ólafur Öm Thoroddsen
Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson
Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson
Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir
Leikarar: Eggert Þorleifsson, Hanna María
Karlsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Margr-
ét Ólafsdóttir, Egill Ólafsson, Guðrún Ás-
mundsdóttir
★★★★
Pað er óneitanlega glæsi-
bragur yfir Leikfélagi
Reykjavíkur þegar ýtt er úr
vör á afmælisári félagsins.
Uppfærsla Kristínar Jóhann-
esdóttur á leikriti Jökuls Jak-
obssonar á Litla sviðinu ein-
kennist af metnaði, fágun og
nákvæmni en líka næmri til-
finningu fyrir texta höfundar-
ins og þeim flókna minninga-
vef sem hann inniheldur.
Sviðsmynd, búningar og lýs-
ing virka vel saman og mynda
heildstæða umgerð eða
ramma um sýninguna en gefa
verkinu samtímis framandi
blæ sem slítur það úr viðjum
þess nútíma sem það er
sprottið úr. Leikrit Jökuls
bera öll einhver einkenni síns
tíma, en hér tekst leikstjóran-
um að draga fram meginatriði
verksins með hreinum, fersk-
um línum þannig að textinn
verður frjáls. Tíminn sjálfur,
sem að mínu viti er höfuðvið-
fangsefni höfundar, birtist hér
ljóslifandi, laus undan oki
rúmsins, sem hefur verið fryst
eins og rammi í kvikmynd
meðan hljóðrásinni er leyft að
rúlla. Hvernig meðhöndlar
tíminn mennina og minningar
þeirra? Hvar eiga minningarn-
ar raunverulega heima?
Dómínó er í stuttu máii
stofuleikur sem gerist í húsi
hjóna sem fengið hafa til sín
gesti. Meðan veislan fjarar út
utansviðs verðum við vitni að
nótt í lífi sex persóna sem
mætast í einkennilegum sam-
runa minninga, nútíma og
drauma. Hjónin, Kristján í
túlkun Eggerts Þorleifssonar
og Margrét leikin af Hönnu
Maríu Karlsdóttur, búa í hús-
inu ásamt Sif dóttur sinni,
leikin af Halldóru Geirharðs-
dóttur, og Lovísu móður
Margrétar, f túlkun Margrétar
Ólafsdóttur. Gestur, leikinn af
Agli Ólafssyni, sem kominn
er til landsins erlendis frá,
hrindir af stað runu minninga
sem líkt og dómínókubbar
ýmist raðast upp eða hrynja,
ruglast eða skipta um eigend-
ur. Inn í leikinn fléttast einnig
Soffía, leikin af Guðrúnu Ás-
mundsdóttur, einhvers konar
fulltrúi hins ytra rýmis eða
mögulega hins raunverulega
raunveruleika.
Úlfari Erni þótti einkar vel
til fundið af hálfu Leikfélagsins
að fá kvikmyndaleikstjóra á
borð við Kristínu Jóhannes-
dóttur til að taka að sér leik-
stjórn þessa verks og taldi
ekki fráleitt að ætla að fersk-
leiki sýningarinnar ætti rætur
að rekja til þess hvernig hún
nýtir sér kvikmyndamenntun
sína við þessa uppfærslu. Hon-
um fannst að bæði áherslur í
leik og jafnvel leikaravali bæru
keim af kvikmyndavinnu en
líka lýsing og hljóð svo ekki sé
talað um beina tilvísun í Fell-
ini með tilliti til tónlistarinnar.
Kormákur
Þráinn
Bragason
meö Úlfari Erni
Valdemarssyni
augtýsingamanni á
frumsýningu Borgarleik-
hússins á Dómínó eftir
Jökul Jakobsson.
Það eru þó umfram annað
leikararnir sem lifa í minning-
unni eftir þessa sýningu og
við Úlfar vorum hjartanlega
sammála um að leikararnir
hefðu allir unnið mikinn leik-
sigur og er þar enginn undan-
skilinn. Greinilegt er að leikar-
ar og leikstjóri hafa unnið
mikla nákvæmnisvinnu í með-
förum textans og öðru því
sem að leiknum lýtur. Leikur-
inn er jafnan á fínu nótunum
þar sem hver hreyfing og
hvert orð styður annað en þó
er stöðug stígandi og þróun í
öllum leiknum. Úlfar var eink-
um hrifinn af Eggerti Þorleifs-
syni í hlutverki Kristjáns og
Guðrúnu Ásmundsdóttur í
hlutverki Soffíu meðan ég
hreifst hvað mest af leik
Hönnu Maríu í hlutverki móð-
urinnar. Egill Ólafsson fer
mjög vel með hlutverk Gests,
einkum þegar á líður, eins og
reyndar Margrét og Halldóra
báðar. Halldóra er í afar við-
kvæmu hlutverki, sem á viss-
an hátt er akkilesarhæll verks-
ins, en hún skilar því alla leið
óaðfinnanlega.
Ég bað Úlfar að eiga loka-
orðin: „Þetta er afar vel unnin
sýning og skemmtileg, full af
húmor en líka djúpri heim-
speki og symbólik, sem mér
finnst hafa komist vel til skila.
Ég mæli eindregið með þessu
stykki.“
„Það eru þó umfram annað leikararnir sem lifa í minn-
ingunni eftir þessa sýningu og við Úlfarvorum hjartan-
lega sammála um að leikararnir hefðu allir unnið mikinn
leiksigur og er þar enginn undanskilinn.“
Vikutilboð
á Kanarí
39.932
4. febrúar
Við eigum nokkrar viðbótaríbúðír
þann 4. febrúar í viku á ensku
ströndinni og á okkar vinsæla
gististað, Green Sea. Nýttu þér þei
einstaka tilboð og stökktu í sólina með beinu flugi
Heimsferða. Toppgististaður, Green Sea, með allri
þjónustu, íþróttaaðstöðu, góðum garði, verslunum,
veitingastöðum og skemmtidagskrá.
39.932
M.v. hjón með 2 börn, 2-14 ára,
Green Sca, 1 vika
49.960
M.v. 2 fullorðna í snldíó, Green
Sea, 4. febrúar, 1 vika.
Austurstræti 17,2. hæð • Simi 562 4600
FRÍSTUIMDAIMÁM í
MIÐBÆJARSKÓLA OG MJÓDD
ÍSLENSKA
íslenska, stafsetning og málfræöi. ítarleg yfirferð.
íslenska fyrir útlendinga 1. - 4. stig (11. stigi er raðað eftir þjóðerni nemenda).
ERLEND TUNGUMÁL
(byrjenda- og framhaldsnámskeið)
Danska. Norska. Sænska. Enska. Þýska. Hollenska. Franska. Italska. Spænska. Portúgalska. Gríska. Búlgarska.
Rússneska. Pólska. Japanska. Arabíska. Kínverska.
Talflokkar í ýmsum tungumálum. Áhersla lögð á tjáningu daglegs máls, lesnar skáldsögur, smásögur, blaðagreinar o.s.frv.
VERKLEGAR GREINAR OG MYNDLISTARNÁMSKEIÐ
Fatasaumur. Bútasaumur. Skrautskrift. Postulínsmálun. Bókband. Glerlist. Teikning. Olíumálun. Vatnslitamálun.
Tréskreytilist. Prjónanámskeið. Leðurvinna. Öskjugerð.
AÐSTOÐ VIÐ SKÓLAFÓLK OG NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN
Stærðfræðlaöstoö á grunnskóla- og framhaldsskólastigi.
Nemendur mæta með eigiö námsefni og fá aðstoð eftir þörfum. Fámennir hópar.
DANSKA, NORSKA, SÆNSKA, ÞÝSKA
fyrir 6-10 ára gömul börn til að viöhalda kunnáttu þeirra í málunum.
Leiklist fyrir börn 9-12 ára.
ÖNNUR NÁMSKEIÐ
Galdrar í heiðnum slð á Norðurlöndum. Galdrafáriö í Evrópu. Galdrar í dag. Sex vikna námskeið. Dagur Þorleifsson.
Trúarbragðasaga. Yfirlitsnámskeið. Dagur Þorleifsson.
Ásatrú - norræn goðafræðl. Dagur Þorleifsson.
Listasaga. Fjallað verður um helstu tímabil listasögunnar. Þorsteinn Eggertsson.
Ritlist. Að skrifa fyrir börn. Elísabet Brekkan og Árni Árnason.
Lestu betur. Námskeið til að auka lesskilning og lestrarhraöa. Árni Árnason.
Samskiptl og sjálfefll fyrlr konur. Jórunn Sprensen.
Heimillsbókhald. Tveggja vikna námskeið. Raggý Guðjónsdóttir.
Skokknámskelð. Byrjenda- og framhaldshðpar. Jakob Bragi Hannesson.
Tarotspil. Tákn og túlkun spilanna (kennsla fer fram á ensku). Carl Marsak.
Innritun fer fram í Mlðbæjarskólanum, Fríklrkjuvegi 1, dagana 16. og 17. janúar kl. 17:00 -19:30.
Upplýsingar í síma: 5512992 og 5514106.
Kennt verður í Miðbæjarskóla og í nýju húsnæði okkar í Mjódd á efri hæð skiptistöðvar SVR.
■VI L.I
SVO