Helgarpósturinn - 16.01.1997, Page 19
F1MMTUDAGUR16. JANÚAR1397
19
■BH8
Körfubolti
Snúin umferð
Sigurður Ágústsson og Karl Jónsson spá í leiki 13. umferðar DHL-deildarinrtar
Skallagrímur
- Tindastóll
Leikur Skallagríms og Tinda-
stóls verður væntanlega í járn-
um. Liðin eru svipuð, hafa
bæði átt heldur á brattan að
sækja í vetur eftir rysjótta tíð
undanfarin ár. Bæði lið hafa
samviskusamlega tekið til hjá
sér yfir nýafstaðnar hátíðir og
mæta til leiks með nýja Kana.
Nýi útlendingurinn hjá Sköll-
unum, Rhett, kom sérlega vel
út í sínum fyrsta leik og Buck-
ingham stóð fyrir sínu með
Stólunum gegn Þór. Úrslit
leiksins ráðast ekki fyrr en í
lokin og ekki er ólíklegt að til
framlengingar komi. Röggsemi
Tómasar Holton, að setja leik-
menn í agabann, skilaði sér í
að hálfvængbrotið lið Skall-
anna vann góðan sigur á ísa-
firði. Séu agabrjótarnir ekki
mun meiri karakterleysur en
þeir hafa þegar sýnt ætti liðið
að leika af miklum krafti gegn
Stólunum. Stólarnir unnu frem-
ur auðveldan sigur gegn ótrú-
lega slöku liði Þórs á Króknum
og það er spurning hvort þeir
hafa kraft til að fylgja því eftir.
Eftir sorgleg úrslit heimaleikja
liðsins í vetur er líklegt að sig-
urinn veiti mönnum það sjálfs-
traust sem þarf. Útisigur í
hörkuspennandi leik.
ÍA - Haukar
Skagamenn hafa komið á
óvart í vetur, Alexander
Ermolinski, þjálfari Skaga-
manna, er engin smásmíð og
honum hefur tekist hið ómögu-
lega; að berja mannskapinn á
Skaganum saman. Ronald Bay-
íþróttir
Siqurður Áqústsson
skrifar
less hefur leikið sérlega vel
með liðinu undanfarið og lyft
leik þess á hærra plan. Gallinn
við IA er að leikmenn liðsins
eru of óstöðugir í Ieik sínum,
en slíkt hið sama má segja um
andstæðingana, Hauka. Hauk-
arnir hafa verið vægast sagt
brokkgengir í leikjum vetrar-
ins, bæði unnið góða sigra og
tapað mjög óvænt. Geta Hauk-
anna er þó meiri, bræðurnir
eru það sem munar um, og
Haukar vinna.
KR - Njarðvík
Þetta er athyglisverðasti
leikur umferðarinnar og ætti
að verða bráðskemmtilegur
fyrir margra hluta sakir.
Hrannar Hólm, núverandi
þjálfari KR-inga, var rekinn frá
Njarðvík fyrir það eitt að vera
Keflvíkingur, ef marka má um-
mæli hans sjálfs. Það verður
fróðlegt að sjá hvort hann
kenndi Njarðvíkingum allt sem
hann kann (og þá hvort það
dugar) eða hvort hann lumar á
leynivopni. Hann þekkir Njarð-
víkinga út og inn og fýsir vænt-
anlega fátt meira enn að inn-
byrða sigur með sínu nýja fé-
lagi. Fari KR-ingar eftir fyrir-
mælum Hrannars ættu þeir að
vinna. Það má þó ekki afskrifa
UMFN, þeir hafa aldrei gefist
upp og eiga margt góðra leik-
manna. Þeim hlýtur að vera
mikið í mun að sanna og sýna
að ákvörðun þeirra um brott-
rekstur Hrannars hafi verið
réttmæt. Jakkafataklæddur
þjálfarinn, Ástþór Ingason,
gæti lumað á trompum. KR er á
heimavelli og verður að fara að
sýna stöðugri leik til að vinna
tiltrú áhorfenda, þetta vita
strákarnir og vinna.
Keflavík - Grindavík
Tvö af toppliðum deildarinn-
ar eigast við í Keflavík. Liðin
eru áþekk og leika svipaðan
körfubolta, leggja mikla áherslu
á langskot og hraðan bolta.
Heillavænlegast fyrir Grindvík-
inga er að leita að Herman My-
ers inni í teig og sækja villur og
stig þar frekar en að fara í drit-
keppni við Gauja og Kidda.
Þeirri viðureign tapa þeir ör-
ugglega. Kiddi Friðriks og Gaui
Skúla eru menn sem Grindján-
ar verða að stoppa. Þeir eru
báðir skotglaðir og víla ekki fyr-
ir sér að skjóta af löngu færi;
Kiddi tekur hiklaust skot frá
miðju ef honum er boðið upp á
það. Keflvíkingar mega ekki
gleyma sér, þeir ætla að taka
allt sem í boði er og því er lífs-
spursmál að halda dampi. Spili
þeir góða vörn fellur sigurinn
þeim í skaut, ekki síst ef haft er
í huga að Damon Johnson spil-
ar með Keflavík. Hann er líkleg-
ur til að gera gæfumuninn í
þessum leik. Heimasigur í mikl-
um baráttuleik.
Atvinnumennska á Ólafefirði
Verður Gummi með í sumar? Spurning sem allir KR-ingar spyrja sig.
Kiddi Bjöms þjálfarí fær þau for-
réttindi, fyrstur íslendinga, að
þjálfa lið sem getur æft tvisvar á
Arnar Grétarsson, einn af Milljónamæringunum, spilar á óbó og syngur.
bornir og barnfæddir á bekkn-
um. Mikið mun vera hlegið að
ummælum Amars Grétarsson-
ar, miðjumannsins sterka, sem
sagði í sjónvarpi eftir að hafa
skrifað undir hjá Leiftri að fólk
hefði ranghugmyndir um kaup
og kjör leikmanna. Á Ólafsfirði
er nefnilega ekki lengur talað
um Leiftur, heldur hlæja menn
og tala um: Kidda Bé og Millj-
ónamæringana.
Leiftursmenn frá Ólafsfirði
verða ekki árennilegir
næsta sumar. Önnur topplið
eru ekki enn með sitt á þurru:
KR-ingar vita ekki enn með
Gumma Ben. og vilja ekki
sleppa Rikka Daða, sem vill
fara, auk þess semjngri menn
KR-inga flýja liðið. Á Skaganum
er ekki (þegar þetta er skrifað)
enn búið að ráða þjálfara og
þrátt fyrir að búið sé að semja
við þá leikmenn sem eftir eru,
utan Bjama, sem hlýtur að
fara í atvinnumennsku, vantar
nokkuð upp á að liðið verði
jafnsterkt og það hefur verið
undanfarin ár.
Ólafsfirðingar eru hins vegar
búnir að skipuleggja sumarið.
Þeir ætla að æfa tvisvar á dag
og líklegt verður að teljast að
það gefist vel. Gerist það munu
stórveldin ÍA og KR fylgja á eft-
ir. Líkur eru sem sagt á að bolt-
inn hér heima batni talsvert á
næstunni. Af Leiftursmönnum
er það að frétta að ekki einn
einasti heimamaður verður í
liðinu í sumar og fáir ef nokkrir
Eiríkur Önundarson, nýkominn í landsliðið, mun leiða sína menn til sigurs
á Akureyrí.
Þór - ÍR
ÍR-ingar verða að passa sig á
Fred Williams. Hann er einn
besti útlendingurinn í deild-
inni og hann og Konráð Ósk-
ars bera Þórsliðið uppi. Þórs-
arar verða að rífa sig upp eftir
slakan leik á Króknum og til að
eiga glætu verða þeir að
treysta á Fred og Konráð. Það
er óhætt að segja að Antony
Vallejo, þjálfari ÍR, nái því
besta út úr sínum mönnum.
Lið hans hefur leikið vonum
framar. A-landsliðsnýliðinn Ei-
ríkur Önundarson mun fara
fyrir sínum mönnum með góð-
um leik. ÍR-ingar vinna á Akur-
eyri.
KFÍ - Breiðablik
Verði vanmatið ekki í meira
lagi vinna ísfirðingar öruggan
sigur. Nýkrýndur konungur
þriggja stiga skyttna, Baldur
Jónasson, fær nægan tíma til
að salla á Blikana. í saman-
burði við leikmenn Blika verð;
ur jafnvel sjöundi maður KFÍ
ágætur. Léttur heimasigur.
AUKIN
ÖKURÉTTINPI
LEIGUBIFREIÐ
VÖRUBIFREIÐ
HÓPBIFREIÐ
Ökuskóli íslands býður
hagnýtt nám undir
leiðsögn færra og
reynslumikilla kennara
NÝIR
NEMENDUR
TEKNIRINN
VIKULEGA
Góð kennsluaðstaða
og úrvals
æfingabifreiðir
FAGMENNSKA
Ökuskóli
íslands
í FYRIRRÚMI
Oll kennslugögn innifalin
Hagstætt verð og góS
greiSslukjör
Mörg stéttarfélög
taka þótt í kostnaSi
félaga sinna
HafSu samband og viS
sendum þér allar nánari
upplýsingar um leiS
Dugguvogi2
104 Reykjavík
S: 568 3841