Helgarpósturinn - 03.04.1997, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 03.04.1997, Blaðsíða 11
RMMTUDAGUR 3. APRÍL1397 11 Valdapólitík vinstri- llokftcanna og krappa sameiningar- umræðunnar Wú um nokkra hríð hafa stjórnarandstöðuflokk- arnir á Alþingi rætt það innan sinna raða hvort æskilegt sé að þessir flokkar hafi með sér nánara samstarf eða sameinist jafnvel. Síðastliðið sumar fór Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, þess á leit við Þjóðvaka, Sam- tök um kvennalista og Alþýðu- flokk að þeir ásamt Alþýðu- bandalaginu tilnefndu fulltrúa í nefnd sem hefði það viðfangs- efni að ræða með hvaða hætti þessir fjórir flokkar gætu eflt samstarf sitt innan þingsins, í sveitarstjórnum og í verka- lýðshreyfingunni. Þjóðvaki og Alþýðuflokkurinn tóku þessari málaleitan vel, en Samtök um kvennalista höfðu nokkurn fyr- irvara á þátttöku sinni í um- ræddri nefnd. í svarbréfi Sam- taka um kvennalista til Mar- grétar var t.d. tekið fram að Kvennalistinn liti svo á að það væri alfarið í höndum heima- fólks hvers konar samstarf kæmist á milli flokka í sveitar- stjórnum. Þannig hafnaði Kvennalistinn strax þeirri hug- mynd að miðlæg nefnd í Reykjavík gæfi út tilskipun um fyrirkomulag samstarfs í sveit- arstjórnum. í framhaldi af þessu skipuðu flokkarnir fulltrúa sína í Mar- grétarnefndina. Á fyrsta fundi nefndarinnar sl. haust kom í ljós að einungis tveir af átta fulltrúum í henni voru ekki sveitarstjórnarmenn. Þótti sumum sem fylgdust með úr fjarlægð að úr því að nefndin væri að mestu skipuð sveitar- stjórnarfólki hlyti henni að vera ætlað að ræða sveitar- stjórnarmál sérstaklega. Hleypti það skjálfta í ýmsa. Mörgum framsóknarmönnum hugnaðist t.d. ekki sú sýn að samstarfsflokkar hans þrír í Reykjavík stilltu sér upp sem sameinaðri blokk í næstu sveitarstjórnarkosningum. Bara ein kona Þá vakti það einnig athygli sumra að af sex fulltrúum Þjóðvaka, Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags í nefndinni var einungis ein kona. Var hún ein af þremur fulltrúum Alþýðu- flokksins í nefndinni. Upphaf- leg ákvörðun Samtaka um kvennalista um að taka þátt í störfum nefndarinnar byggðist á þeirri hugsun að viðræður innan slíkrar nefndar gerðu það betur kleift að meta hvort sameining eða samstarf við vinstriflokkana myndi festa í sessi hugmyndir um kvenfrelsi og fullt jafnrétti á íslandi. En karlaslagsíðan í nefndinni var Kvennalistanum vonbrigði því hún var vísbending um að flokkarnir þrír væru síður en svo meðvitaðir um nauðsyn þess að rödd kvenna heyrðist „Margir sem ganga til liðs við stjórnmála- flokka gera það til þess að tryggja eigin frama. Því sækja þeir í flokka sem útdeilt geta feitum embættum og öðrum bitlingum. í valdakappp- hlaupi er það þó öllum flokkum fjötur um fót að hafa ekki aðgang að upplýsingum og öðrum björgum sem tryggja stöðu flokksins gagnvart öðrum flokkum. Þetta aðgangsleysi hefur einnig staðið Kvenna- listanum fyrir þrifum í baráttunni um valdið.“ líka. Innan Alþýðbandalagsins gætti einnig óánægju meðal kvenna með að flokkurinn skyldi ekki hafa tilnefnt konu í nefndina. í framhaldi af þessu sendi framkvæmdarráð Samtaka um kvennalista hinum stjórnar- andstöðuflokkunum bréf þar sem þess var farið á leit að þeir tilnefndu fulltrúa í sér- stakan hóp sem ræddi það með hvaða hætti virk þátttaka kvenna í hugsanlegu samstarfi yrði tryggð. Það má búast við að slíkur hópur hittist innan skamms. Með bréfi þessu vildi Kvennalistinn vekja athygli á því að hann er fyrst og fremst samtök femínista sem berjast fyrir því að hagsmunir kvenna og sjónarmið séu virt til jafns við sjónarmið karla. Innan raða Kvennalistans, og í for- ystusveit hans, eru konur sem hafa skiptar skoðanir um hvernig rekstri ríkisins verði best háttað, en allar eru þær sammála um að konur eigi fullt erindi á öll svið þjóðlífsins. Af þessum sökum hefur Kvenna- listinn alla tíð lýst því yfir að hann sé hvorki hægri- né vinstriflokkur, heldur sé hann þriðja víddin í íslenskum stjórnmálum. Femínistar hafa bent á að hvorki kapítalískt né sósíalískt þjóðskipulag tryggi sjálfkrafa jafnrétti kynjanna; jafnrétti kynjanna verði ekki komið á nema með samstilltu og meðvituðu átaki kvenna. ís- lenskir femínistar kusu á sín- um tíma að kanna þá leið að bjóða fram sérstakan kvenna- lista þar sem reynslan sýndi að konur áttu ekki auðvelt uppdráttar innan hinna flokk- anna. Þetta var upphafið að starfi Kvennalistans. Ekki hefðbundinn flokkur Kvennalistinn er á engan hátt hefðbundinn stjórnmála- flokkur. Á það jafnt við um skipulag hans sem og málflutn- ing. Allt frá fyrstu tíð hafa Kvennalistakonur lagt áherslu á að samtökin séu farvegur hugmynda og boðberi nýrra sjónarmiða. Málflytjendurnir sjálfir hafa þótt skipta minna máli. Til þess að komast hjá þeirri foringjadýrkun, sem vilj- að hefur loða við Fjórflokkinn, tók Kvennalistinn strax upp hina svokölluðu útskiptareglu. Hún felst í því að enginn kjör- inn fulltrúi Kvennalistans skuli sitja lengur en tvö kjörtímabil. Þessi regla byggist á þeirri trú að stjórnmál eigi ekki að vera ævistarf örfárra útvalinna og að nauðsynlegt sé að tryggja stöðuga endurnýjun í röðum stjórnmálamanna. Endurnýjun með reglulegu millibili eflir lýðræðið og tryggir að fleiri sjónarmið ná eyrum valdhafa. Kostir slíks fyrirkomulags voru t.d. höfundum bandarísku stjórnarskrárinnar ofarlega í huga á sínum tíma. Langlífi Kvennalistans má m.a. skýra með því að hann byggðist upp í kringum hug- myndir en ekki einstaklinga. Margar þær konur sem veitt hafa Kvennalistanum lið í gegnum árin hafa fundið sér annan vettvang þar sem þær hafa haldið áfram að vinna hugmyndum um kvenfrelsi lið. í þeirra stað hafa komið nýjar konur. Kvennalistinn metur velgengni sína ekki eingöngu út frá fylgi í skoðanakönnunum heldur ekki síður út frá þeim hugmyndafræðilegu áhrifum sem hann hefur haft á íslandi, eða jafnvel út fyrir strendur landsins. Langlífi ekki markmiðið Langlífi Samtaka um kvenna- lista er hins vegar ekkert mark- mið samtakanna. Sú ákvörðun að bjóða fram sérstakan kvennalista í alþingiskosning- unum 1983 var sértæk aðgerð sem endurtekin hefur verið þrisvar síðan. Kvennalistakon- ur ræða nú sín á milli hvort halda eigi áfram á sömu braut eða hvort taka eigi upp bar- áttuaðferðir sem séu e.t.v. bet- ur í takt við tímana sem við lif- um á. Sumar Kvennalistakonur vilja vera þátttakendur í því að endurskapa nýja vinstrihreyf- ingu á íslandi sem býggi m.a. á hugmyndum um kvenfrelsi. Aðrar vilja aftur á móti alls ekki taka þátt í slíku starfi þar sem sósíalismi samræmist ekki grundvallarlífsskoðunum þeirra. Komi til þess að Sam- tök um kvennalista ákveði að bjóða ekki fram sér munu allar þessar konur vafalaust finna hugmyndum sínum nýjan far- veg. Að Kvennalistanum undan- skildum hafa nýir stjórnmála- flokkar á íslandi verið skamm- lífir í seinni tíð. Ástæðan er sú að þeir hafa verið stofnaðir í kringum ákveðna einstaklinga og baráttu þeirra. Hér er átt við Samtök frjálslyndra og vinstrimanna undir forystu Hannibals Valdimarssonar, Bandalag jafnaðarmanna undir forystu Vilmundar Gylfason- ar, Borgaraflokk Alberts Guð- mundssonar og Þjóðvaka und- ir forystu Jóhönnu Sigurðar- dóttur. En öllum þessum flokk- um reyndist það einnig skeinu- hætt að þeir komust aldrei í þá aðstöðu að verða hliðverðir að kjötkötlunum eins og Fjór- flokkurinn. Vilmundur heitinn Gylfason kallaði þessa hlið- verði „varðhunda valdsins". Margir sem ganga til liðs við stjórnmálaflokka gera það til þess að tryggja eigin frama. Því sækja þeir í flokka sem út- deilt geta feitum embættum og öðrum bitlingum. í valdakapp- hlaupi er það þó öllum flokk- um fjötur um fót að hafa ekki aðgang að upplýsingum og öðrum björgum sem tryggja stöðu flokksins gagnvart öðr- um flokkum. Þetta aðgangs- leysi hefur einnig staðið Kvennalistanum fyrir þrifum í baráttunni um valdið. Járnlögmálið íhaldssömum stjórnmála- skýrendum hefur alla tíð þótt útskiptaregla Kvennalistans ákaflega einkennileg, enda hef- ur umræða á íslandi um stjórn- mál gengið meira út á einstak- linga en hugmyndir. Foringjar hafa komist til valda í hinum hefðbundnu flokkum þar sem þeir hafa deilt og drottnað ár- um saman með hjálp meðreið- arsveina sinna. Járnlögmál fá- mennisstjórnar er velþekkt innan stjórnmálafræðinnar, en það vísar til þeirrar tilhneig- ingar innan stofnana að völdin safnast á hendur fárra einstak- linga sem í krafti stöðu sinnar sitja einir að upplýsingum og öðrum björgum. Með tímanum búa þeir svo um hnútana að þeir virðast algjörlega ómiss- andi fyrir stofnunina. Merki járnlögmálsins má víða sjá inn- an íslenskra stjórnmálaflokka. Víst er það að járnlögmálið tryggir ákveðinn stöðugleika í síbreytilegum heimi, en það býður einnig stöðnun heim. ís- lenskir vinstriflokkar hafa mátt kenna á þessari stöðnun. Þeir sitja uppi með götótta hug- myndafræði sem heldur fáir aðhyllast. Það eitt og sér virð- ist samt ekki vera forystu- mönnum þessara flokka áhyggjuefni, heldur hitt að það er allt útlit fyrir að Sjálfstæðis- flokkurinn fari með stjórn- taumana langt fram á næstu öld. Því duttu þeir niður á þá gömlu hugmynd að hrista sam- an flokka í stjórnarandstöð- unni og vona að úr yrði einn al- mennilegur flokkur sem kjós- endum líkar. Það er hins vegar álitamál hvort kjósendur koma til með að heillast af slíkum sambræðingi. Við íslendingar þurfum á nýjum lausnum að halda til þess að tryggja áfram- haldandi velferð og samstöðu. Það er heldur ólíklegt að slíkar lausnir verði til við það að stjórnarandstaðan sameinist um lægsta samnefnarann. Þessi gagnrýni heyrist æ meir innan allra stjórnarandstöðu- flokkanna og hún á án efa eftir að draga úr fylgi við hugmynd- ina um sameiningu. Viiðing og írirðingaHeysi Tilefni þessa tilskrifs er kveðja sem mér barst frá formanni Nemenda- félags KHÍ, Jóni Pétri Zimsen. Þetta var fallega og lipurlega skrifað bréf, en ég skildi ekki alveg hvað bréfið snerti hugleiðingar mínar um að þyngja bæri nám í KHÍ en ekki lengja. Mér tókst ekki að finna, þrátt fyrir ít- arlega leit í greinarkorninu, veilur í röksemdafærslum mínum. Ég fagna því þó að Jón skuli vera áhugamaður um bætta menntun kennara, en það þykist ég merkja á skrifum hans. Hér eru nokkur atriði sem ég tel mig verða að leiðrétta við Jón, svo honum geti liðið betur og við þá rætt um menntamál. Það er mikill misskilningur að ég telji mig hafa töfralausnir á öllu, — þær hafa fáir, og enginn sem ég þekki, í það minnsta ekki töfralausnir í þeim skilningi að það taki ekki meir en 3-5 ár að laga það sem að er. Það er líka misskilningur að ég dá- sami numerus clausus, ég einfaldlega benti á að þar væri um að ræða síu sem veldi hæfustu nemendurna úr. Rök KHÍ um að síun á nemum hafi far- ið fram þegar þeir hefja nám þar dug- ir mér ekki. Það er að auki í hæsta máta undarlegt að ekki skuli fara fram annað mat en prófskírteini úr mennta- eða fjölbrautaskóla við val á þeim sem annast eiga uppfræðslu komandi kynslóða. Að jafnaði innrit- ast um 125 nemendur í KHÍ árlega; sjaldan útskrifast færri en 115, en það eru um 92% innritaðra. Fylgnin í Háskóla íslands er að jafn- aði á bilinu 70% og í kennaradeild Há- skólans á Akureyri er fylgnin um 50%. Reyndar er þessi fylgni mun lægri í t.d. stærðfræðideild HÍ (20-30%). Finnst mönnum virkilega að það sé ekkert athugavert við þessa fylgni í KHÍ? Jón Pétur talar um að virðingu fyrir kennurum sé ábótavant, það lagist allt verði námið lengt, því þá hækki launin. Það er rétt hjá Jóni Pétri að langt er um liðið og margt hefur breyst frá því Sókrates var aufúsu- gestur í öllum teitum. Ekki get ég ímyndað mér að Jón Pétur sækist eft- ir því að fá meistara sinn, Þóri Ólafs- son, í teiti til sín. Þó er Þórir hinn skemmtilegasti piltur og sérlega þægilegur viðmóts. Af hverju ætti virðing fyrir kennurum að aukast um leið og námið lengist; ég ber ekki meiri virðingu fyrir t.d. tannlækni en kennara ef báðir eru fagmenn á sínu sviði og skila árangri. Virðing eða virðingarleysi við kenn- ara er undir kennurum sjálfum komin og hæfileikum þeirra til að miðla þekkingu án tillits til lengdar náms eða krónutölu í launaumslagi. Árangur íslenskra skólabarna talar sínu máli. Hverju er um að kenna? Eins og Kristján Kristjánsson, dósent við HA, segir, þá fá nútímabörn ekki þá siðlegu heimanfylgju baðstofunnar sem áar þeirra fengu. Samfélagið hef- ur einfaldlega breyst. Börnin sem koma í skólana nú koma á allt öðrum forsendum en kynslóðin á undan. Þessum breytingum verða menn að mæta. Ég mæli með aukinni siðfræði- kennslu fyrir börnin í formi heim- speki. Það er reyndar önnur saga, en það er ágætt að menn velti þessu fyr- ir sér á sama tíma og umræða um menntamál er hvað háværust. Áður en Jón Pétur Zimsen vappar fram á ritvöllinn að nýju til að úttala sig um menntamál væri ekki úr vegi fyrir hann að kynna sér hvernig stað- ið er að málum í kennaradeild HA. Þar er kennslufræðin látin víkja að nokkru fyrir fagþekkingu, enda til lítils að kunna að kenna eitthvað sem maður veit ekki nægilega mikið um. Bréfaskriftir eða umræður um menntamál eru mér og áreiðanlega fleirum fagnaðarefni. í umræðunni má ekki gleyma að hæfni kennarans skiptir meginmáli og að sá sem gagn- rýnir er ekki endilega óvinur. Með blíðum kveðjum - Sigurður Ágústsson kennari „Það er að auki í hæsta máta undarlegt að ekki skuli fara fram annað mat en prófskírteini úr mennta- eða fjölbrauta- skólavið val á þeim sem annast eiga uppfræðslu komandi kynslóða... Fylgnin í HI er að jafnaði á bilinu 70% og í kenn- aradeild HA er fylgnin um 50%. Reyndar er þessi fylgni mun lægri í t.d. stærðfræðideild HÍ (20-30%). Finnst mönn- um virkilega að það sé ekkert athugavert við þessa fylgni í KHÍ?“

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.