Helgarpósturinn - 03.04.1997, Blaðsíða 23

Helgarpósturinn - 03.04.1997, Blaðsíða 23
RMMTUDAGUR 3. APRÍL1997 23 X Ekki missa Sverrir fer til Kristjaníu Sverrir Guðjónsson söngvari hefur fariö um víöa veröld I söngferðir og á þessum ferðum hefur hann safn- aö saman ýmsu efni. Sverrir leyfir almenningi að njóta þessara ferða með sér í útvarpsþáttum á laugardögum á gömlu Gufunni og nú er ferðinni heitið til Dan- merkur, nánar til- tekið til Kaup- mannahafnar. „Á laugardaginn fer ég til dæmis í Kristjaníu og skoða svolítið upphaf fríríkisins, hvers vegna þessi frelsisbær myndaðist einmitt þarna. Marg- ir segja Dani frjálslyndari en marga aðra og að þeir takí hlut- unum meö meiri ró. Þess vegna hafi bærinn fengið að standa þarna síðustu tuttugu og fimm árin. Ég fór þarna inn nokkrum sinnum og kynntist þar norskri fjölskyldu, arkitekt, konu hans og tveimur börnum. Þau búa á rólegasta og fallegasta stað bæjarins. Þær hugsjónir sem voru í upphafi hafa breyst að sjálfsögðu, en það eru ýmsir sem búa þarna sem eru að byggja upp bæinn hvaö varðar útlit og viðhorf til staðarins. Það er svo auðvelt að dæma þetta samfélag eingöngu eftir því sem blasir við þegar komiö er inn í Kristjaníu, hinu svokall- aða Pusher-stræti. En það verð- ur margt annað áhugavert í þættinum. Ég byggi þáttinn upp þannig aö ég gef ýmislegt í skyn sem áheyrendur verða svo aö vinna úr og nota eigið ímynd- unarafl til að tengja saman og búa til úr þvT púsli sem þátturinn gef- ur. Mérfinnst mjög áhugavert að vinna svona þætti fyrir útvarp, en þessi miöill er oft ekki nýttur eins og hægt er að gera. Það er hægt aö gefa meiri tilfinn- ingu fyrir áferð og hljóði með texta, þannig að jafnvel hljóð taki viö þar sem orð þrýtur.“ Þátturinn er á laug- ardögum og hefst klukkan 15. Með aug- að á verk- inu Sjónþing Magnús- ar Tómassonar verður haldið I Menningarmið- stöðinni Gerðu- bergi á sunnudag- inn og hefst klukk- an 14. Magnús ræðir vítt og breitt um myndlistarferil sinn fýrir opnu húsi og sýnir fjölda • # @ • • • % ® ® litskyggna afverkum sTnum. Honum til aðstoðar verða spyrl- arnir Þóra Kristjánsdóttir list- fræðingur og Jónína Guðna- dóttir myndlistarkona. Líkt og endranær er úrval eldri verka til sýnis í Gerðubergi, en á Sjónar- hól, Hverfis- götu 12, get- ur að líta nýj- ustu skúlp- túra Magnús- ar. Segja má að sýningin marki ákveð- in tímamót því verkin fjalla öll með ýmsu móti um tímann, allt frá stein- öld fram til dagsins í dag. Sýningin T Geröubergi stendur frá næst- komandi sunnudegi til 25. maí, en þeirri á Sjónarhól lýkur 27. apríl. Maður með mönnum Hvemig skyldi hinn lokaði ís- lenski karlmaður líta út inn við beinið? Til að fá einhver svör við þessari ævafornu ráögátu er hægt að kTkja inn á Mokka við Skólavörðustíg og skoða sjónræna samantekt, hangandi uppi á veggjum kaffihússins, á þrjátíu sjálfboðaliðum á aldrin- um tvítugs til sextugs. íslenski karlmaðurinn er það sem kallað er á útlensku „survivor". Hann lifir allt af. Við sjáum hann gjarnan fyrir okkur inni í ísköld- um öldudal með hafsaugað sem eina viðmiðið og mállausa fiskana allt í kring. Hann er draumaverkefni hvaða mann- fræöings sem er. Hvaða furður gerast innra með honum verða ávallt stórmerki þeim sem ekki þekkja til þessara dularfullu og séríslensku staðhátta. Sýningin á Mokka sýnir okkur í fyrsta sinn inn í einmana sjálf ís- lenska karlmannsins eins og það lítur út í dag. Þetta er heim- ur sem hingað til hefur verið harðlæstur öllum öörum en honum sjálfum. Andhéri Aö venju mun ung og fersk hljómsveit troða upp í Hinu hús- inu á hinum geysivinsælu föstu- dagssíðdegistónleikum. Nú á föstudaginn leikur hljómsveitin Andhéri listir sínar á hljóðfærin sTn. Andhéri spilar svokallað ný- bylgjurokk og að sögn þeirra sem þekkja til hljómsveitarinnar gerir hún það vel. Þess má geta aö Andhéri tók þátt í Músíktil- raunum Tónabæjar 1997 og stóö sig ágætlega. Hljómleikarnir hefjast klukkan 17 og að sjálfsögðu er ókeyþis inn. Todmobile umvafin feg- urð Hljómsveitin Todmobile hefur frá áramótum verið á fullu í dansleikjahaldi um landið þvert og endi- langt og aö sögn Þor- valdar Bjarna Þorvalds- sonar, aðalsprautu hljómsveitarinnar, hefur dansleikjaferðin gengið vonum framar. Þau voru til að mynda á Hótel Sel- fossi um síöustu helgi og mættu hvorki meira né minna en 650 manns á balliö, sem er met í því húsi. Njarðvíkingar og ná- grannar munu njóta spila- gleði þeirra um næstu helgi en á laugar- dags- kvöldið leikur Todmo- bile T fé- lags- heimil- inu Stapa T Njarðvík. Hljómsveitin hefur leikinn upp úr miðnætti en áður fer fram feguröarsamkeppni Suðurnesja. Það má því búast við dágóöri skemmtun í Stapanum á laug- ardagskvöld. Borgfirðingar, Mýramenn og Magnús Eiríksson Mikið verður um dýrðir á Hótel íslandi um helgina en Borgfirð- ingar og Mýramenn ætla að sletta ærlega úr klaufunum á föstudagskvöld. Á skemmti- kvöldinu koma fram á annað hundrað lista- menn og má þar nefna Samkór Mýra- manna, Kveld- úlfs- kórinn, Kirkjukór Borgar- ness, Freyju- kórinn, Karlakór- inn Söngbræður, Erlu Frið- geirsdóttur o.fl. o.fl. Auk þess verður boðið upp á hagyrðinga- þátt og þjóðdansa. Hljómsveitin Upplyfting fær svo alla út á dansgólfið. Á laugardagskvöldið er skemmt- unin Braggablús, söngbók Magnúsar Eiríkssonar á Hótel íslandi, en þar er farið yfir tón- listarferil eins besta núlifandi tónlistarmanns íslands. Hvurnndagslist Allsérstæð myndlistarsýning verður opnuð við Laugaveg og Bankastræti á laugardaginn kemur. Sýningin nefnist Port- myndir og er markmiöið að fara út úr hefðbundnum sýningarsöl- um og tengja listina annríki dagsins. Staðsetning verkanna verður í undirgöngum og sund- um við Laugaveg og Banka- stræti. Um er aö ræöa sýningu á innsetningum, listaverkum sem eru unnin sérstaklega inn T ákveðin valin port. Sýningin hefst eins og áður segir á laug- ardeginum langa næstkomandi og lýkur mánuði síðar, 3. maí. Kamartríó Á sunnudagskvöldið ættu allir sem áhuga hafa á kammertón- list að fjölmenna í Norræna húsið, en þar mun hið fær- eyska Tórshavnar Kamartrio halda tónleika. Á efnisskránni eru verk eftir Cheru- bini, Mozart, Schu- bert, Eyþór Stef- ánsson o.fl. Tónleik- arnir hefjast klukkan 20.30 og kostar 800 krónur inn fyrir fullorðna en fyrir börn og námsfólk aðeins 400 krónur. Hyerjir LAUS Á RÁSINNI A AKUREYRI „Ég fer norður á Akureyri á laugardaginn með þáttinn minn og Völu, Helgi og Vala laus á rásinni," segir Helgi Pétursson, út- varþsmaður, ferðaskrifstofufrömuður og Ríómaður. „Þátturinn hefur venju- lega verið sendur út frá kaffihúsinu Sóloni íslandusi í Reykjavík, en nú ætl- um við að breyta til og verðum á ágætri kaffistofu bókaverslunarinnar Bókvals fyrir norðan. Þeir eru með kaffihús í miðri búðinni, bókakaffi eins og það er kallað. Mjög skemmti- legt fyrirbæri.“ Hvert er tilefnið? „Það er í sjálfu sér ekkert tilefni. Við höfum reynt að fara með þátt okkar hingað og þangað um landið stöku sinnum. Við vorum til dæmis nýlega á Höfn í Hornafirði. Það er gaman að finna mannlíf og menningu sem víð- ast. Ég er nú frekar tímabundinn og stoppa því stutt við á Akur- eyri. Kem heim á Iaugardeginum aftur til að sinna fjölskyldu minni, en það er skemmtilegt verkefni.“ HEIMILIÐ SKEMMTISTAÐURINN „Skemmtistaðurinn minn um helg- ina verður heimili mitt. Ætli ég fari ekki á skíði ef veður leyfir," segir Helga Möller söngkona. Ferðu oft á skíði? „Ég hef ekki verið nógu dugleg und- anfarið en í gamla daga keppti ég á skíðum, varð einu sinni Reykjavíkur- meistari. Nú er þetta meira leikur hjá mér og fjölskyldunni. Ég fer annað- hvort upp í Bláfjöll eða í Skálafell. Því miður hef ég ekkert getað farið í vetur og nú um páskana, þegar ég ætlaði að skella mér, var lokað þennan eina dag sem ég gat farið. En ég ætla um helg- ina og vonandi verður veðrið eins og það er í dag.“ HITA UPP FYRIR ÍSLANDS- MEISTARATITIL KA „Ég skal nú segja þér það,“ segir Tryggvi Húbner gítarleikari. „Ég ætla með Rúnari Júlíussyni til Akureyrar, á skemmtistað Alfreðs Gíslasonar sem heitir Við Pollinn. Þar munum við félagarnir spila og hita upp fyrir kom- andi íslandsmeistaratitil KA-manna í handbolta." Ertu KA-maður? „Ég styð að sjálfsögðu KA í hand- boltanum.*' SPILA UM HVERJA HELGI „Ég er að spila um helgina," segir Rúnar Þór Pétursson tónlistarmaður. „Á föstudaginn í Stykkishólmi og á íaugardaginn á Ólafsvík." Spilarðu um hverja helgi? „Það má segja það, enda er þetta lifibrauðið. Ég hef spilað meira og minna um hverja helgi í tólf ár og á aldrei frí, að minnsta kosti ekki um helgar. Svo ætla ég að horfa á enska boltann á laugardaginn. Áfram Li- verpool." spurt... Ef þú fengir að ferðast í tíma og rúmi, hvert myndirðu þá fara? Gísli Þorsteinsson, fréttamaður og sagnfræðingur „Ég myndi vilja ferðast til Sturlungaald- ar, því sá tími hefur örugglega verið mjög magnaður. Þetta er eina borgara- styrjöldin sem geisað hefur hér á landi. Hálfgerð lognmolla hefur ríkt á íslandi í gegnum aldirnar nema á þessum tíma, þrettándu öld. Þá voru mikil átök milli höfðingjaætta sem enduðu með því að Gissur Þorvaldsson varð jarl yfir ís- landi. Á þeim tíma voru margir mann- skæðir bardagar þar sem fjöldinn allur var drepinn. Eg hefði viljað fylgjast með þessari atburðarás. Hún hefur örugglega verið ótrúleg."

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.