Helgarpósturinn - 03.04.1997, Page 18
18
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL1997
■■■
Stjörnustríösmyndirnar eru
aftur komnar á markað.
Ari Eldjárn stúderaöi þær sem ungur maöur og hann
hefur tvíbenta afstööu til endurútgáfunnar.
St j ömustn
~ nýjum tæknibrelliora
★★★★
Aöalhlutverk: Mark Hamill, Harrison Ford, Carrie
Fisher, David Prowse, Peter Cushing og Sir Alec
Guinness
Handrit og leikstjórn: George Lucas
Hver man ekki eftir Stjörnustríðs-
myndunum og Stjörnustríðsæðinu
sem fylgdist í kjölfarið? Han Solo-dúkk-
ur og nákvæmar eftirlíkingar af Jabba
the Hut. Myndirnar hafa öðlast ótrú-
lega frægð og rakað inn peningum í öll-
um heimshornum. Þó virtist Star Wars
I ekki ætla að slá ET við í gróðatölum,
hún sat lengi vel í fyrsta sæti á lista yf-
ir gróðamestu myndir allra tíma en
núna verður ET að gera sér annað sæt-
ið að góðu. George Lucas varð svo rík-
ur af þessu ævintýri að hann notaði
peningana í að stofna fyrirtækið Luc-
asfilms Ltd. sem á THX og brellufyrir-
tækið Industrial Light and Magic sem
hefur nánast setið eitt að öllum stór-
brellumyndunum eins og Jurassic Park
og 1D4. Lucas hefur hins vegar ekki
staðið undir kröfunum sem maður
gerði til hans sem leikstjóra og voru
mestu mistök hans sem framleiðanda
að framleiða hina stórlega misheppn-
uðu Howard the Duck og rennur mörg-
um kalt vatn milli skinns og hörunds
þegar þeir heyra minnst á þá mynd.
Síðan þá hefur Lucas einblínt á að
vera ríkur og græða peninga. En nú í
seinni tíð er hann orðinn eirðarlaus og
er að undirbúa þrjár nýjar Stjörnu-
stríðsmyndir og til að undirbúa þær
þarf hann að setja gömlu myndirnar
aftur í dreifingu. En markaðsaðstæður
hafa breyst og eru áhorfendur farnir
að gera meiri kröfur til tæknihliðarinn-
ar. Nú má kannski nota tækifærið og
minnast á það að mörg brelluatriðin
voru það erfið í framkvæmd á sínum
tíma að Lucas hefði ekki getað látið
þau frá sér og voru þau þess vegna
klippt út. En nú er búið að setja inn
nýja hljóðrás með nýjum áhrifshljóð-
um og teikna inn á nýja bakgrunna og
geislabyssuskotum hefur verið fjölg-
að. Flottast er þegar plánetan Aldera-
an springur í loft upp, en það atriði var
alltaf tiltölulega gallað og ósannfær-
andi. Síðan er þarna samtalssena á
milli Han Solo og Jabba the Hut, sem
var á þeim tíma ekki risastór ormur
eins og hann kom fram seinna heldur
lítill feitur kall. Nú er búið að klippa
hann út af myndinni og teikna orminn
inn á. Einnig er þarna samtalssena á
milli Lukes Skywalker og vinar hans
Biggs. Á mínum yngri árum las ég Star
Wars-bókina með ljósmyndum upp úr
myndinni og var þar mynd af Luke og
Biggs að tala saman. Þetta atriði hefur
alltaf vantað í myndina en núna er bú-
ið að setja inn atriðið þar sem þeir
hittast á nýjan leik og verður það til að
útskýra hvers vegna þeir virðast
þekkjast svona mikið. En myndin sjálf
er alveg óbreytt að mínu mati, því
handriti og leikstjórn hefur ekki verið
breytt. Það tvennt var svo gott á sín-
um tíma að það mun aldrei skemmast,
þrátt fyrir nýjar tæknibrellur.
kvikmyndir
Ari Eldjárn
skrifar
Mars Attacks!
★★★
Aöalhlutverk: Jack Nichoison, Glenn
Close, Pierce Brosnan og fleiri
Leikstjóri: Tim Burton
Geimvísindamenn eru
farnir að taka eftir geimför-
um sem nálgast jörðu óð-
fluga. Áætlanir þeirra um
fróðlega rannsókn á geim-
verunum renna þó fljótt út
í sandinn þegar það kemur
í ljós að geimverurnar hafa
ekkert gott í huga.
Jack Nicholson leikur
tvö hlutverk í myndinni,
annars vegar Bandaríkja-
forseta og hins vegar brjál-
aðan hóteleiganda í Las
Vegas, og verð ég að segja
að hann er kannski aðeins
of ýktur sem hóteleigand-
inn. Glenn Close leikur
snobbaða forsetafrú og
Natalie Portman (sem
margir muna eftir úr
myndinni Léori) leikur
dóttur þeirra. Pierce
Brosnan er stórgóður sem
vísindamaður sem stjórn-
ar rannsókn á geimverum,
en sá allra fyndnasti af
leikaraliðinu er Tom Jo-
nes, sem kemur bara allt í
einu inn í myndina eins og
ekkert sé.
Tim Burton, snillingur-
inn sem færði okkur Ed
Wood, er hérna mættur til
leiks með mynd sem er
samsuða úr mestu klisjum
sem til eru í Hollywood.
Ólíkt nýlegustu geimveru-
myndunum eru geimver-
urnar aftur orðnar að litl-
um grænum köllum. Þær
eru með endemum fárán-
legar og klisjukenndar, en í
þessu tilfelli er ekki hægt
að líta á það sem galla,
heldur er ætlun leikstjór-
ans að hafa myndina eins
fáránlega og mögulegt er.
Myndin er sjúklega fyndin
á köflum og minnir mann á
Gremlins og ID4 í einni
sæng.
blands þúsund ár
fanga andrúmsltíft fyrri alda atvinnuhætti hér á árum áð-
einstaklega vel og er góð ur.
heimild fyrir áhugamenn um
Evfta
★★★
Handrit og stjórn: Erlendur Sveinsson
Kvikmyndataka: Siguröur Sverrir Páls-
son
í þessari einstaklega vel
gerðu heimildamynd er degi í
lífi sjö íslenskra sjómanna ít-
arlega lýst. Myndin gerist á
þeim tíma er tæknin var ekki
komin á það háa plan sem
hún er á núna og lýsir hún að-
ferðum við að veiða fisk sem
höfðu verið notaðar í þúsund
ár...
Erlendur Sveinsson leik-
stýrði þessu stórgóða verki
auk þess að safna heimildum
og skrifa handritið. Hann
sinnir sínu hlutverki vel og
má segja það um alla sem
tóku þátt í myndinni. Leik-
myndin og búningarnir eru
einstaklega vel gerð, þökk sé
þeim Ámýju Guðmundsdótt-
ur og Gunnari Baldurssyni,
og kvikmyndatakan er fyrsta
flokks, enda er Sigurður
Sverrir einn besti tökumaður
landsins. Myndin nær að
★★
Aöaihiutverk: Madonna, Jonathan
Pryce, Antonio Banderas og Jimmy Nail
Leikstjórn: Alan Parker
Maður hafði heyrt það út-
undan sér að fólk hefði komið
grátandi út af þessari mynd í
London en öskrandi í Argent-
ínu. Reyndar gat ég hvorki
séð tilefni til að öskra né
gráta. Mér fannst myndin
ekki snerta mann á einn eða
neinn hátt. Madonna fannst
mér ekki vera neinn dýrlingur
og finnst mér henni ekki hafa
farið neitt fram sem Ieikkonu
síðan hún lék í Dick Tracy hér
á árum áður. Antonio Band-
eras, sem leikur sögumann-
inn, var einnig eins og hann
er alltaf: reiður ungur maður,
og Jonathan Pryce fannst
mér hálf litlaus og leiðinlegur
sem Juan Peron.
Alan Parker hefur gert
ógrynni af myndum í gegnum
árin og muna margir eftir
rokkóperunni The Wall sem
hann leikstýrði fyrir Pink
Floyd og einnig The Commit-
ments, sem er sennilega hans
besta mynd. Hann hefur get-
að verið mistækur jafnt sem
skemmtilegur en ef það var
eitthvað, þá var það að hann
var bara hálfhlutlaus í þess-
ari mynd. Hún var hvorki
hræðileg né frábær. Hún var
eiginlega ekki neitt. Parker
hefur bara gengið inn I verkið
með allar græjur. Tekið svo
myndina, klippt hana til og
sent síðan í bíóin. Allan per-
sónulegan stíl vantar í hana.
Parker er í þessu tilfelli bara
iðnaðarmaður.
Svo að lokum vil ég minn-
ast á leikara sem var í auka-
hlutverki, en það er Jimmy
Nail úr þáttunum Krókódíla-
skór sem nú eru í Sjónvarp-
inu. Hann fannst mér vera sá
eini sem stóð sig eitthvað vel,
það var bara verst hvað hann
fékk lítinn tíma á tjaldinu.
Hverjir
voru cp)
hvar □
Á KAFFIBARNUM aðfaranótt ann-
ars í páskum var að skemmta sér
: hið stórglæsilega
útvarpspar Davíð
Þór Jónsson og
jakob Bjamar
Grét-
nSHH I arsson.
Einnig
■■M leit þar
inn Eg-
ill Ól-
afsson
og hinn |
mildi eigandi
aðarins, Ingvar
Þórðar.
Þessa sömu nótt var líka margt
um manninn á SKUGGABARN-
M. Þar mátti til að mynda sjá
Bolla í Sautján, Braga og
bbie í Betrunarhúsinu. Amar
Gauti fékk útrás á Skuggabarn-
um svona áður en
hann tekur sjálfur
um veitingastjórnar-
taumana á nýja
staðnum sem á að
íara að opna á gamla
Habitatlagernum.
Staðurinn nýtur greinilega vin-
sælda hjá fólki úr veitingageiran-
um því Ingvi Steinar á Kaffi-
brennslunni skottað-
ist þar um sem og
Svenni á Primavera
og Jói Ara, sem áð-
ur var kenndur við
Kaffibarinn en verð-
ur brátt kenndur við
Einar Ben! Útvarps-
menn áttu sína fulltrúa í Simma
útvarpsmanni á X-inu, Jóni
Gunnari Geirdal plötusnúð á FM
og Karó á FM. Og nú verðið þið
hissa því hverjir haldið þið að
hafi dottið alveg óforvarendis
inn úr dyrunum nema Þurí og
Arnar á Ónix.
Á miðvikudagskvölcl
á ASTRÓ mátti sjá
Bjöm the beautiful
fyrirsætu og Berg-
Ijótu fyrirsætu, Bón-
usmódelið hana EIsu
Lyng og knaftspyrnu-
goðið úr Leiftri hann Auðun
Helgason.
Páskahelgin var lífleg á NELLY’S
CAFÉ. Þar mætti sjálf
Eurovisionstjarnan
Páll Óskar ásamt fé-
lögum sínum og tók
nokkur giæsileg
dansspor. Maríus
| söngfugl sem nýkom- |
inn er frá Vín kíkti
inn úr
dyrunum. Ingvar
Þórðarson var ekki
bara á Kaffibarnum
IH^. H sínum heldur líka á
Nelly’s. Sömu sögu
er að
i af Baltasar
aáki. Einnig
ettu spriklandi
i þau Skari
ipó, Emiliana
Torr-
ini og
Rósa píanóundur og
Madonnulover sem
tilkynnti hátt og
snjallt að drauma-
deitið væri Sharon
Stone sem aftur á
áti lét ekki sjá sig þetta kvöld.
ram, áfram...
ái Haukur
íbíóauglýs-
ilesari mætti
mt Sigga
ers, Selma
ömsdóttir 0-
ri, Vilii gítar í
Jmobile, Reyn-
gdrottning, Björgólfur Pep-
si og allar ótugtirnar í
t, Bjössi fjöllistamaður og
Jeypir var að sjálfsögðu á