Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 Skipuiagt mergunarslys umhverfisraðhefTa Ný reglugerö leyfir margfaldan umferöarhávaöa viö íbúöarhús. Reykjavíkurborg gengur á lagiö og leyfir byggingu fjölbýlishúss sem áöur var bannaö vegna hávaöamengunar: Miklubrautarástand út um alla borg. Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra breytir mengunarvörnum í takt við hagsmuni byggingarverktaka og losar Reykjavíkurlistann úr snörunni. Cuðmundur Bjarnason um- hverfisráðherra breytti reglugerð um hávaðamengun vegna þrýstings frá byggingar- verktökum sem fannst að sér þrengt vegna ákvæða sem vernda fólk gegn heilsuspill- andi hávaða. Reglugerðar- breytingin færir verktökum á borð við ístak og Ármannsfell fjárhæðir upp á tugi eða hundruð milljóna króna. Fyrir aðeins þremur árum var sett mengunarvarnareglu- gerð sem tók m.a. mið af nor- rænum stöðlum. Byggingarfyr- irtæki sem hafa tryggt sér byggingarlóðir á auðum svæð- um í Reykjavík hafa átt í erfið- leikum með að uppfylla skil- yrði reglugerðarinnar um hljóðmengun. Ármannsfell varð að lækka fjölbýlishús sem eru í byggingu við Kirkjusand og tapaði þar tugum milljóna króna. ístak fékk ekki bygging- arleyfi fyrir fjölbýlishúsi við Skúlatún af sömu ástæðu. Nýja reglugerðin var sam- þykkt af Guðmundi Bjarna- syni í síðasta mánuði og hún breytir skilgreiningu á hávaða- mörkum þannig að byggingar sem áður voru ólöglegar eru núna samþykktar. Umhverfisráðherra skrifaði undir reglugerðina 30. apríl og viku síðar samþykkti bygging- arnefnd Reykjavíkur fjölbýlis- hús ístaks við Skúlatún, en byggingarleyfi hafði áður verið synjað vegna ákvæða mengun- arvarnareglugerðar um há- vaða. Forstjóri Ármannsfells, Ár- mann Arnar Ármannsson, gerir reglugerðarbreytingu Guðmundar að umtalsefni í nýrri ársskýrslu fyrirtækisins. Hann kallar það „kaldhæðni örlaganna" að reglugerðar- breytingin gerir löglegar þær fjölbýlishúsabyggingar Ár- mannsfells við Kirkjusand sem áður voru ólöglegar. Vinnubrögðin við reglugerð- ina eru flaustursleg. í 6. grein reglugerðarinnar er vísað í 6. málsgrein 5. greinar í viðauka 5 í mengunarvarnareglugerð en aðeins eru fimm málsgrein- ar í 5. grein. Umferðarhávaði er víða vandamál í Reykjavík og hvergi eins og við Miklubraut, þar sem yfir tvö þúsund íbúar búa við heilsuspillandi há- vaða. Með reglugerðarbreyt- ingunni er verið að leyfa sam- bærilegan hávaða og víða finnst við Miklubraut. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gaf út yfirlýsingu í tengslum við deilurnar um nýbyggingar Ármannsfells við Kirkjusand þar sem hún rökstuddi synjun borgarinnar á byggingarleyfi til Ármannsfells með þeim orð- um að „við megun ekki við því að fara að búa til ný“ vandamál vegna umferðarhávaða. Eftir reglugerðarbreytinguna er bú- ið að skilgreina vandann niður á við. Miöstjórnarfundur var haldinn í Alþýöubandalaginu um síö- ustu helgi. Fundurinn var haldinn sérstaklega til að fjalla um sjávar- útvegsmál og biðu margir sþennt- ir eftir niðurstöðum af fundinum. Skúli Alexandersson, fyrrver- andi þingmaður, lagði á fundinum fram tillögu um eins konar veiði- leyfagjald. Skúli vill afnema nú- verandi kvótakerfi en aflaheimildir veröi leigöar út í staðinn. Þessi tillaga fékk aö sögn mikinn hljóm- grunn á miðstjórnarfundinum. Engin ályktun var þó samþykkt á fundinum. Ástæða? Jú, fundurinn var ékki ályktunarhæfur. Það höfðu ekki nægilega margir séð ástæðu til að mæta... Ekki mun enn fullráðið í hlut- verk í Veðmálinu en ýmis nöfn heyrast þó nefnd þessa dag- ana. Það eru einkum ungir leikar- ar sem koma við sögu. Eggert Þorleifsson mun t.d. vera aldurs- forseti í ieikarahópnum, a.m.k. ef tekið er miö af þeim nöfnum sem fram að þessu hafa heyrst. Aörir leikarar sem heyrast orðaðir viö þessa sýningu eru IngvarSig- urðsson og Margrét Vil- hjálmsdótt- ir, sem bæði tóku þátt í sýn- ingu Leikfé- lags íslands á Storie Free í fyrra, Balt- asar Kor- mákur, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Hilmir Snær Guðnason og loks nýútskrifaður leikari, Atli Rafn Sigurðsson, sem reyndar er gam- alreyndur á sviði. Hann lék nefni- lega barnahlutverk í Kardi- mommubænum á sínum tíma... Félagslega húsnæöiskerfiö í óvæntum fjárhagsvanda: Hundmð manna gætu átt miljónakrafur Tugir ef ekki hundruð fólks gætu átt inni milljónir króna hjá félagslega íbúðakerf- inu. Eldri kona, Ása Bjaraa- dóttir, sem kærði útreikninga Húsnæðisnefndar Reykjavíkur, hefur nú fengið greiddar tæpar þrjár milljónir króna eftir dómsúrskurð. Húsnæðisnefnd- in leysti til sín íbúð Ásu og hér- aðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu að íbúðin hefði verið metin nærri þremur milljónum of lágt. Mikill fjöldi fólks er í svipaðri stöðu og gæti því átt rétt á stórfé til viðbótar því sem það hefur fengið fyrir íbúðir sínar. En þótt dómur sé fallinn í einu máli er enn ekki útséð um endalyktirnar. Mættu ekki í Hæstarétti Héraðsdómur gekk Ásu Bjarnadóttur í vil. Dómurinn var kveðinn upp 30. maí í fyrra og Helgarpósturinn fjallaði ítar- lega um hann í byrjun júní. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur var fyrir Héraðsdómi dæmd til að greiða Ásu tæpar þrjár milljónir til viðbótar því sem hún hafði fengið á grundvelli venjubundinna útreikninga sem gerðir voru þegar Hús- næðisnefndin leysti til sín íbúð hennar í Þórufelli 4. Gylfi Thorlacius, lögmaður húsnæð- isnefndarinnar, áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en mætti svo ekki fyrir réttinum þegar þar átti að taka málið fyrir nú í vet- ur og var áfrýjuninni þar með sjálfkrafa vísað frá. Húsnæðisnefnd Reykjavíkur hefur nú greitt Ásu þær þrjár milljónir sem henni voru dæmdar í héraðsdómi. Hér- aðsdómur hefur á hinn bóginn ekki sama lagalega fordæmis- gildi og dómar Hæstaréttar þannig að enn er of snemmt að fullyrða að allir þeir sem svip- að er ástatt fyrir nái jafn hag- stæðri niðurstöðu. Gylfi Thorlacius sagði í sam- tali við Helgarpóstinn að ástæða þess að ekki var mætt fyrir Hæstarétti væri sú að ákveðið hefði verið að bíða eft- ir öðru máli sem nú bíður reyndar dóms í héraði. í því máli kæmu fleiri atriði til álita. „Ég á von á að það mál fari alla leið fyrir Hæstarétt og þá fást hreinar og skýrar línur um öll þau vafatriði sem hér er um að ræða,“ sagði Gylfi. Lögin eins og stagbætt flík Lögin sem gilda um félags- lega íbúðakerfið hafa tekið sí- felldum breytingum undan- farna áratugi. „Það er varla von að fólk viti hvar það stend- ur. Það er búið að hræra í þessum lögum fram og aftur og þau líta einna helst út eins og stagbætt flík,“ sagði einn viðmælandi HP. Meðal skringilegheita í laga- og reglugerðabreytingum síð- ustu áratuga má nefna að bráðabirgðalög voru sett undir lok ráðherratíðar Svavars Gestssonar í félagsmálaráðu- neytinu, seint í apríl 1983. Þessi bráðabirgðalög urðu grundvöllur reglugerðar sem í er að finna reiknireglu sem notuð er enn þann dag í dag. Bráðabirgðalögin voru á hinn bóginn aldrei staðfest, heldur voru sett ný lög árið eftir. Reiknireglan var loks tekin í lög sem sett voru 1995. Að dómi fróðra manna er sem sagt hugsanlegt að í rúman áratug hafi verið farið eftir reglum sem hvergi áttu sér stoð í lögum. Regiugerð hluti samn- ings? I máli því sem nú er til um- fjöllunar fyrir héraðsdómi fara systurnar Guðbjörg Helga og Jóhanna Sigríður Magnús- dætur m.a. fram á að við út- reikning á innlausnarverði íbúðar sem Húsnæðisnefnd Reykjavíkur leysti til sín frá dánarbúi föður þeirra árið 1992 verði miðað við ákvæði reglugerðar frá árinu 1967. Þessi reglugerð er löngu fallin úr gildi og raunar margar reglugerðir komnar og farnar á eftir henni. En málið er þó ekki alveg svo einfalt. í afsali sem faðir systr- anna, Magnús Helgason, fékk á sínum tíma var vísað til ákvæða þessarar reglugerðar, sem þá var í gildi, varðandi það hvernig innlausnarverð íbúðarinnar skyldi reiknað við hugsanlega endursölu. Syst- urnar, sem nú hafa höfðað mál, byggja kröfur sínar ein- mitt á því að ekki hafi verið unnt að svipta íbúðareigand- ann þeim rétti sem kemur fram í afsali. Tíu ár aftur í timann? Ekki er vitað um fjölda þeirra íbúða sem innleystar hafa verið á síðustu árum og þetta reglugerðarákvæði gæti átt við um. Hitt er ljóst að þær eru margar. Færi svo að Hæsti- réttur úrskurðaði systrunum í hag er nokkuð ljóst að það yrði verulegt fjárhagslegt áfall fyrir þá opinberu sjóði sem þyrftu að punga út með skaðabætur. í versta falli (eða besta, eftir atvikum) gæti félagslega hús- næðiskerfið þurft að endur- meta íbúðir sem hafa verið innleystar allt að tíu ár aftur í tímann eða frá árinu 1987. Þetta fer þó eftir því hversu hratt þessi mögulegi réttur kynni að fyrnast en almennur fyrningarfrestur er tíu ár. Miklar sviptingar eru á drykkj- armarkaði þessa dagana. Vífilfell var fyrir skemmstu að kaupa bjórverksmiðjuna Viking á Akureyri og í gær bárust svo fregnir af því að Viking (les VTfil- fell) væri að kaupa öll hlutabréf í Sól hf. í Reykjavík og þessi fyrir- tæki muni sameinast á næstunni. Páll Kr. Pálsson, framkvæmda- stjóri Sólar og fyrrver- andi framkvæmdastjóri Vífilfells, lætur af störf- um en Baldvin Valdemarsson, framkvæmdastjóri Vikings, á að halda um stýri nýja drykkjarisans. Þessi viöskipti gerðust mjög snögglega og má segja aö Vífilfell hafi þarna hrifsað Sól hf. fyrir framan nefið á KEA, sem hafði sýnt áhuga. Nú vantar eiginlega ekkert annað en Egil Skallagríms- son inn í þessa fyrirtækjasam- steypu til að drykkjarvörufram- leiðslan sé komin undir sama hattinn. Ekki hefur enn heyrst neitt um viðbrögö Samkeppnis- stofnunar... Eigendur nektardansstaðanna í Reykjavík eru slæmir á taug- um þessa dagana og með fá- dæmum varir um sig gagnvart fjölmiðlum. Þetta hafa útgefendur Stúdentablaðsins orðið áþreifan- lega varir við. Eftir manndráp á Vegas.fýrir skemmstu brá svo viö að Ijósmyndarar eru stöðvaðir í dyrunum, ekki bara á Vegas held- ur einnig á hinum stööunum. Þetta eru mikil umskipti, því áöur virtust eigendur þessara staða beinlínis sækjast eftir fjölmiðlaat- hygli... Operudraugurinn hrellir Andr- és Sigurvinsson, leikstjóra Evítu, illilega þessa dagana. Ekki nóg með að einn dansarinn í söngleiknum hafi hrunið í gegn- um gólf Óperunnar og fótbrotnað heldur „hrundi" líka harði diskur- inn í tölvu Andrésar. Hann er nú í öngum sínum, því inni á tölvunni eru allir samningar og bókhald sýningarinnar. Þegar hann var bú- inn aö jafna sig á áfallinu drakk hann eina fimm bolla af sterku kaffi, væntanlega til að koma í veg fyrir aö hann sofnaði, því til þess mun ekkl gefast tími ef halda á til streitu áætluðum frum- sýningardegi... Davíð-fyrsti kvenfbrsætisráðherrann? Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur farið í kynskiptaaðgerð til að styrkja stöðu sína í íslenskri pólitík. Um þetta má lesa á vefsíðu þeirrar sérstæðu fréttaþjónustu „The hiper news service". (http://www.hiper.dk) í fregninni er sagt frá því að Davíð hafi gripið til þessa ráðs sökum mikils þrýstings öfgafullra kven- réttindakvenna um aukin völd og áhrif kvenna innan flokksins. Davíð var að sögn glaður og reifur á blaðamannafundi og sagði við það tæki- færi m.a.: „Ég hef í mörg ár verið í náinni snertingu við konuna í sjálfum mér,“ segir hún/hann, „og þroskað næmi mitt með ljóðagerð. Það olli mér engum erfiðleikum að breyta og mýkja líf mitt á þennan hátt, því engin fórn er of stór fyrir flokkinn og land mitt.“ Einnig er haft eftir forsætisráðherranum að vissulega hafi sumar konur í flokknum tekið fregninni um kynskiptaaðgerðina illa. Hann/hún dregur þá ályktun að líkleg- asta skýringin á því sé sú að með kröfum um aukin völd kvénna hafi þær haft eigin frama og metnað í huga í stað þess að hugsa um þjóðarhag. Davíð segir að að- gerðin geri sér kleift að halda til streitu stefnu flokksins um stöðugleika, jafnhliða því að gefa kvenlegum sjónarmiðum meira rúm og athygli í stjórnmálum. Davíð segist vera að íhuga að stofna hægri saumaklúbb til að hann/hún og hinar stúlkurnar í flokknum hafi færi á að ræða málin sín á milli og hreinsa andrúmsloftið án þess að fjölmiðlar blandist í málið. „Mér leiðist kisuklór alveg óskaplega“, segir Davíð, sem er þekkt/þekktur fyrir ást sína á hund- um. Það eina sem Davíð vildi ekki ræða og var greinilega viðkvæmt mál var hvernig núverandi hjónabandsmál yrðu leyst. £ilc £dit yiew 2o Eoolimarks <2ptions Qirtnory Wsndcw Help i£J*l nras __] Localion: http://www.Npet.dk/n4Wnows.htffJ What's New? [ Whnt'r Cool? | Destinationt I Net Seaichi Pcopie I Soltware j THE HIPER NEWS SERMCE (Read ’eni ainl vveep ) PM embraces PMS! Tough sexnal poIiHcs in lcehunl: Ií takes balls to lose halls! Icelandió Prirne MiriisterT'avKl Odsson has sacnficed lus manhood to prove Vus manhood and secure his posihon ac Prúne Minister and leader ofthe Icelandic Conservative Party Licreased pressure frorn rabid feminists wnthin his paity, the largest party in Iceland, and dernands tor iricreased krnirune mfluence and more power and top-posts to woraen in the party-rnaclune, havc caused tlie chairraan, unchallanged teadcr for years, to undergo a sex-change operation, now successfully finishcd At a press conference. Ms. Qddson seemcd cheerful and sliowed no rductancc to answer _£/&\ Documenf Done Discrect rnake-up ís the order of the day, but M: Qddsson hopes that her partysisters v/ill gjve her Hófsemi í förðun er krafa dagsins í dag. Davíð segist vonast til að flokkssystur sínar verði sér innan handar í þeim málum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.