Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 7
RMIVmJDAGUR 29. MAÍ1997 7 Jafnréttisráö hefur komiö saman samstarfshópi fólks úr öllum stjórnmála- flokkum sem og kvenréttindafélögum. Ástæöan er aö völd kvenna og áhrif eru ekki í samræmi viö framlag þeirra til samfélagsins. Þessu þarf aö breyta aö mati Jafnréttisráös. HP haföi samband viö Stefaníu Trausta- dóttur hjá Jafnréttisráöi. Glerþakinu náð? Stefanía Traustadóttir: „Við viljum sjá konu og karlmann saman í pólitík- inni og höldum því fram að með því verðum við einfaldlega sterkari til að stjórna vel.“ að fulltrúi landeiganda hafi ár- ið 1945 talið að eignarnámið myndi ná í sjó fram. Hvers vegna var fjaran undanskilin? Áratugum saman eftir þetta lá strandlengjan við Helguvík ósnortin og án afskipta manna. Þar gjálfraði sjórinn við fjöru- steinana rétt eins og hann hef- ur gert um einhverjar þúsund- ir ára. Þeir landeigendur sem höfðu afsalað ríkinu landinu fyrir ofan ströndina velktust að sögn aldrei í vafa um það hver ætti fjörusteinana og landræmuna upp af strönd- inni. Á hinn bóginn virðist það hafa liðið mönnum úr minni í fjármálaráðuneytinu og öðrum stjórnsýsluskrifstofum. Það hlýtur a.m.k. að verða að telj- ast eðlilegra en að forráða- menn ríkissjóðs hafi allan tím- ann ætlað sér að stela fjörunni í kringum Helguvík. En hvernig skyldi hafa staðið á því að fjaran var undanskilin þegar landið var tekið eignar- námi fyrir nærri hálfri öld? Svarið þarf ekki endilega að vera flókið. Verðamætamat fólks var allt annað á þeirri tíð. Nú myndu sennilega fáir láta sér detta í hug að undanskilja beitarrétt þegar land er tekið eignarnámi. Það var gert í þessu tilviki og auðvitað vegna þess að beitarrétturinn var þá raunverulegt verðmæti. Sama gilti á þessum tíma um reka, netalagnir, eða veiðirétt í sjón- um næst ströndinni og jafnvel fjörubeit, sem fyrir nokkrum áratugum var mikið verðmæti. Bæjarfélagið gert ábyrgt Keflavíkurkaupstaður þurfti á auknu landrými að halda um 1970 og árið 1971 var gengið frá sölu á þeim hluta þess lands sem ríkið hafði eignast á svæðinu 1948 og 1958. Ríkið seldi Keflavíkurkaupstað þetta land og í afsalinu kemur skýrt fram að þessar nýju lendur kaupstaðarins ná í sjó fram. Magnús Jónsson frá Mel var fjármálaráðherra og undirrit- aði afsalið 6. maí, einum og hálfum mánuði áður en við- reisnarstjórnin féll. Ef tekið er mið af uppdrætt- inum sem fylgdi eignarnámsaf- salinu frá 1948 virðist einsætt að Magnús hafi þarna fyrir hönd ríkissjóðs selt Keflavík- urkaupstað sjávarströnd og landræmu sem ríkið átti ekkert í. Einfaldast er auðvitað að gera ráð fyrir að í fjármála- ráðuneytinu hafi menn einfald- lega ekki gert sér neina grein fyrir því að eignarnámslandið hafi ekki náð í sjó fram á sínum tíma. En hafi svo verið vekur óneitanlega furðu að í afsalinu skuli varið löngu máli til að varpa allri hugsanlegri skaða- bótaábyrgð af ríkissjóði yfir á Keflavíkurkaupstað. í afsalinu er tekið fram að reynist einhverjar kvaðir vera á landsvæðinu taki Keflavíkur- kaupstaður þær yfir á sig. Þá er í afsalinu ítarlega fjallað um hugsanlega riftun á eignarnám- inu. Bæjarfélaginu er gert að þola slíka riftun án þess að gera bótakröfur á hendur ríkis- sjóði. Það er sem sé engu lík- ara en að starfsmenn fjármála- ráðuneytisins hafi haft eitt- hvert hugboð um að ekki væri fyllilega rétt staðið að málum. Auðugir menn Hefði strandlengjan verið keypt eða tekin eignarnámi meðan hún var ósnortin er hæpið að Keflavíkurkaupstað- ur hefði þurft að borga mjög háa upphæð fyrir hana. En nú gæti gegnt öðru máli. Jón Oddsson lögmaður, sem rekur málið fyrir landeigendur, vitn- ar í Ólaf Lárusson, fyrrverandi prófessor, því til staðfestingar að þau mannvirki sem reist eru á landi í óleyfi landeiganda séu eign hans. Samkvæmt uppdrættinum er ekkert vafamál að Helguvík- urhöfn eins og hún leggur sig teljist vera á hinu umdeilda landsvæði og sömu sögu er að segja um fiskimjölsverksmiðj- una sem þarna stendur, Helgu- víkurmjöl hf. Og hér með er reyndar ekki allt upp talið. Þeim sem reisa slík mannvirki í óleyfi landeiganda ber nefni- lega að aflýsa öllum kvöðum og veðböndum. Jón Oddsson telur ekkert vafamál hverjir séu réttir eig- endur þessara mannvirkja. „Ef taka ætti þetta land eignar- námi nú verður vitaskuld að meta landið til fjár eins og það er í dag með þeim mannvirkj- um sem á því standa," sagði hann þegar HP bar þessa hlið á málinu undir hann. Ef svo færi að dómur félli landeigendum í vil einnig að þessu leyti væru þeir þar með orðnir eigendur að mannvirkj- um sem vafalaust má meta upp á einhverja milljarða króna og þar með í hópi auð- ugustu manna íslands. Kært til ríkissaksóknara Jón Oddsson sendi ríkissak- sóknara bréf snemma í apríl og fór þar fram á opinbera rann- sókn á máli þessu. í kæru sinni vísar lögmaðurinn í 257. grein almennra hegningarlaga þar sem greind eru viðurlög við því ef maður sviptir annan mann eigum sínum, skemmir þær eða eyðileggur. Viðurlög við slíku eru allt sex ára fang- elsi ef eignaspjöllin hafa verið mikil eða brotið að öðru leyti stórfellt. í kærunni er einnig vísað í 26. kafla hegningarlaganna í heilu lagi. Sá kafli fjallar um auðgunarbrot og flestir smá- þjófar, t.d. þeir sem brjótast inn í sjoppur þegar þeir verða tóbakslausir að næturlagi, eru yfirleitt dæmdir eftir ákvæðum þessa kafla. í þessu tilviki eru það þó engir smáþjófar sem grunaðir eru um að hafa brotið af sér. Sá sem skrifaði undir afsalið til Keflavíkurkaupstaðar vorið 1971 fyrir hönd ríkissjóðs var enginn annar en Magnús heit- inn Jónsson, sem var fjármála- ráðherra á þessum lokadögum viðreisnarinnar. Háttsettir embættismenn í ráðuneytinu kynnu líka að teljast hafa brot- ið af sér og sömuleiðis e.t.v. sýslumaðurinn í Keflavík, sem tók við afsalinu til þinglýsingar þótt þar væri (kannski?) verið að afsala landi sem seljandinn átti ekkert í. Þjófheld girðing Það síðasta sem gerst hefur í þessu máli er það að Jón Oddsson hefur í bréfi til utan- ríkisráðuneytisins og lög- manns Reykjanesbæjar hótað því að girða Helguvík af. Jón telur upp marvíslegar fram- kvæmdir og eignaspjöll sem hann telur að orðið hafi á landi umbjóðenda sinna, þar á með- al höfnina og fiskimjölsverk- smiðjuna, og segir síðan: „Umræddar framkvæmdir hafa farið fram án leyfis land- eigenda. Þá hefur jáarna án leyfis landeigenda farið fram mikið grjót- og malarnám. Vegna þessa ágangs og ólög- mætra nytja af umræddu landi telja landeigendur nauðsyn- legt, lögum samkvæmt, að sett verði Iandamerkjagirðing á umræddu landsvæði í sam- ræmi við þinglýstar eigna- heimidir, sbr. áðurtilgreint af- sal, dags. 16. sept. 1948. Hefðu landeigendur betur sett þarna þjófhelda girðingu fyrr.“ „Þetta er samstarfshópur sem vill vinna að bættum hlut kvenna á framboðslistum," segir Stefanía. „Jafnréttisráði fannst ástæða til að grípa til einhvers átaks til að auka hlut kvenna í komandi sveitar- stjórnarkosningum, fannst það í raun hin mesta nauðsyn. Því var tilvalið að bjóða stjórn- málaflokkum og kvennahreyf- ingunum að taka þátt í því. Að- ilar tóku því vel, hópurinn hitt- ist fyrir um mánuði og er að fara af stað með ákveðna fræðslu- og upplýsingaherferð. Þegar úrslit síðustu sveitar- stjórnarkosninga eru skoðuð, og Iíka í raun síðustu Alþingis- kosningar, er ýmislegt sem bendir til þess að sú þróun, sem hefur átt sér stað allt frá árinu 1974 og hefur lýst sér í því að hlutur kvenna í stjórn- málum hefur stöðugt aukist, sé að stöðvast. Jafnmargar konur eru á þingi núna og voru við lok síðasta kjörtímabils. Þegar litið er á sveitarstjórnarkosn- ingar hefur hluturinn aukist ör- lítið, eða um eitt til tvö pró- sent. Hins vegar ef við horfum á stóru sveitarfélögin, Reykja- vík og kaupstaði landsins, er sama hlutfall kvenna og í kosn- ingum þar áður. Þar er engin aukning. Þegar maður rýnir í tölurnar getur maður leyft sér að spyrja: Hefur þróunin stöðvast? Þýðir það ekki að nauðsynlegt sé að halda áfram að ýta við þessari þróun? Þetta ætlar ekki að gerast af sjálfu sér, þrátt fyrir allt. Það er oft talað um glerþak í sambandi við hvaða möguleika konur hafa til að ná æðstu stjórnun- arstöðum. Við getum leyft okk- ur að yfirfæra þetta á stjórn- málin. Þar er oft talað um að konur þurfi að ná 30 prósenta hlut til að þær fari að hafa raunveruleg áhrif. Þetta er hluturinn sem konur ná í ís- lenskum stjórnmálum, 25-30 prósent. Erum við þá komin að þessu glerþaki? Verðum við ekki að grípa til aðgerða?“ Til hvaða aðgerða er hœgt að grípa? „Hópurinn hefur ákveðið að vinna undir merkinu „Sterkari saman". Við viljum sjá konu og karlmann saman í pólitíkinni og höldum því fram að með því verðum við einfaldlega sterkari til að stjórna vel. Við ætlum að reyna að hafa áhrif á val á framboðslistana eins og við mögulega getum. Við ætl- um að vera búin að ljúka okkar störfum þegar framboðslist- arnir verða tilbúnir. Það ger- um við meðal annars með því að fræða og hvetja konur til að gefa kost á sér til framboðs. Þær geta það og kunna. Við skulum hafa það í huga að það eru sífellt fleiri málaflokkar að færast yfir til sveitarstjórna sem konur hafa sinnt mikið hingað til. Þarna erum við að tala um fræðslumál, öldrunar- þjónustu og alls lags félagslega þjónustu. Þetta hafa ekki verið stórmál á sveitarstjórnarstig- inu hingað til en það er að breytast. Þetta eru mál sem konur þekkja mjög vel. Við viljum einnig kalla for- ystu stjórnmálaflokka til ábyrgðar hvað varðar hlut kvenna í pólitík. Þeir mættu vera meðvitaðri um þessa þró- un og tilbúnir að bregðast við henni á þann hátt að hlutur kvenna geti aukist í stjórnmál- um.“ Heldurðu að þetta átak breyti einhverju? „Við vonum það,“ segir Stef- anía. „Landsfundur jafnréttis- nefnda sveitarfélaga verður haldinn í lok ágúst. í kjölfar þess fundar ætlum við að birta úttekt nýrrar skýrslu sem við erum að gera, sem mun sýna það svart á hvítu hvernig þró- unin hefur stöðvast. Það er ástæða til að staldra við, skoða þessi mál og gera einhverjar ráðstafanir. Það verða fundir um allt land snemma í haust um þessi mál.“ Er munur á þátttöku kvenna í stjórnmálum á öðr- um Norðurlöndum og á ís- landi? „Jájá, hann er töluverður. Á Norðurlöndum, bæði í sveitar- stjórnum og í landstjórn, er hlutur kvenna kominn vel um og yfir 40 prósent. Við eigum langt í land með að ná þessu hlutfalli hér á landi. Það eru auðvitað til einstaka sveitarfé- lög hér þar sem hlutur kvenna er mjög góður, eins og til dæm- is í Reykjavík, en við verðum að horfa á þetta á landsvísu. Og þar verðum við að taka okkur saman í andlitinu," segir Stefanía að lokum. Sterkar/ Oft er talað um að konur þurfi að ná 30 prósenta hlut til að þær fari að hafa raunveruleg áhríf. Þetta er hluturinn sem konur ná í íslenskum stjórnmálum, 25-30 prósent. Jafnréttisráð vill breyta þessum hlutföllum. xðjafnanleg^ 'þ sœtir sofar Húsgagnalagerinn • Smiðjuvegi 9 • sími 564 1475 Á ekki að mála í sumar? Er langt síðan þú lést mála húsið þitt? Er málningin farin að flagna af þakinu? Er ekki kominn tími til að fara að mála? Gerum verðtilboð þér að kostnaðarlausu. Vanir menn. Vönduð vinnubrögð. Sími: 562-0619

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.