Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 29.05.1997, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997 13 GEP geimstrákur horfir á ísland Nýjasta bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar er að sögn höfundar um stjórnmálahagfræði en rétta orðið er stjórnmála- brask... og heimsmynd hans er kennd við Altúngu Vottaires í tímaritsgrein sem afturbatapíka úr röðum frjáls- hyggjumanna stofnaði fyrir áratug. veginn standast gagnrýna skoðun. Hannes er lítillátur að vanda þegar hann lýsir sinni bók sem „framlagi til þeirrar stjórn- málahagfræði (e. political ec- onomy), sem hugsuðir eins og Adam Smith, John Stuart Mill, Karl Marx, John Maynard Keynes og Friðrik Ágúst von Hayek iðkuðu.“ í raun er Hannes það sem Krugman kallar policy entre- preneur eða stjórnmálabrask- ari á íslensku. Pað er nú gott að heil þjóð skuli geta átt sér áhugamál sem allir geta iðkað í samein- ingu. Mér liggur við að nota orð- ið trúarbrögð í staðinn fyrir áhugamál, það er hvort sem er ekki nema skilgreiningaratriði. En svo ég komi mér að efninu þá á ég við þessar ofsóknir sem beinast að fitu í hvaða mynd sem er. Eyðum fitu. Útrýmum fitu. Líkamsfitu. Fitu í matvælum. Fitublettum í fötum og fitu á óhreinu leirtaui. Miklum fjár- munum er sólundað í þessum leik og þá sérstaklega þegar fitan er komin undir skinnið á fólki, í bókstaflegri merkingu. Ég veit ekki alveg hvaða vopn eru álitin best í þessu undarlega stríði en ef ég tek mið af auglýsingum — er ekki talað um að auglýsingar endurspegli þjóðfélagið og tíðar- andann? — þá get ég ekki betur séð en að árangursríkast sé talið að nota ýmisleg efni sem ætluð eru annaðhvort til inntöku eða áburðar. Pillur, duft, vökvar og krem svo ég nefni nú það helsta. Svo er líka hægt að hengja á sig alls kyns töfragripi í sama tilgangi, megrunareyrnalokka og megrun- arplástra. Ég hélt að mitt kyn teldist hátæknivætt, en við kom- umst ekki með tærnar þar sem megrunarspekingar mannkyns hafa hælana. Ég hef auðvitað enga hugmynd um það sem fram fer á þessum fitubrennslunám- skeiðum sem leggja undir sig helminginn af auglýsingaplássi dagblaðana, en ég býst við að þar hjálpist menn að við að brenna fitu hver annars. Ég bar málið undir mömmu og ætlaðist eiginlega til þess að hún tæki mig alvarlega, sérstaklega með tilliti til þess að hún hefur iðu- lega (að minnsta kosti í orði) hvatt mig til sjálfstæðra mann- fræðirannsókna. En hún hló bara að mér. Hún gat hreinlega ekki hætt að hlæja. Loksins náði hún andanum, kannski fýlusvipurinn á mér hafi hjálpað þar eitthvað til, og stundi því upp hvort það væri ekki bara fljótlegast og áhrifamest að nota Yes últra plús, sem ku gereyða fitu við minnstu snertingu. - Til inntöku eða sem áburð? spurði ég alvarlegur, í tilraun til að mjaka samræðu okkar upp á hærra plan en mamma hló bara ennþá meir, eiginlega miklu meir en hæfir einstaklingi á hennar aldri, og hikstaði: - Bara hvort heldur sem er eða bæði! Fylla bara heilt baðkar af Yes últra Conti er hættur. Hinir meðlimirnir eru sem fyrr Wendy Smith og Martin, litli bróðir Paddys. Heimahljóðverið er nýuppsett og ber nafn nýrrar plötu Prefab Sprout, „Ándromeda Heights“. Það er fyrsta plata sveitarinnar frá útkomu „Jordan: The Comeback“ 1990. Tveimur árum síðar kom samansafnplatan „A life of surpris- es“. Paddy McAIoon verður fertugur nú í júní. Hann tekur sér frí á hverju kvöldi, þvælist þá um Newcastle-borg og drepur tímann. Reyndar er þetta endurnýjunartími; hann kemur til baka fullur orku, sem hann nýtir um nóttina, finnst hún vera besti starfstím- inn. Hann segir að í dag séu til fimm fullkláraðar plötur og þar á meðal séu margar af sínum bestu tónsmíðum. Ýmsir hafa leitað í lagalager Paddys, t.d. Jimmy Nail þegar hann vantaði tónlist fyr- ir sjónvarpsþættina Krókódílaskóna. Dodgy áttu á síðasta ári plötuna „Free peace sweat“. Hún var lofuð af gagnrýnendum og sást á árslistunum. A & M gáfu út nýjan singul með Dodgy í mars, aukalög útgáfunnar eru ábreiður (covers) af Bítla-lag- inu „Revolution" og „I can’t make it“ með Small faces. Einnig verða tónleikaupptök- ur af Dodgy- lögunum „Found you“ og „Stand by your self“ með í útgáfunni. Cast ætlar að nota ábreiðu- útgáfu af hinu sígilda Bob Marley-lagi „Redemption Song“ á bakhlið næstu smá- skífu. Framhliðin verður „Gu- iding Star“ af nýútkominni breiðskífu Cast, „Mother nat- ure calls", sem hefur frá út- gáfu verið ofarlega á breska sölulistanum yfir stórar plöt- ur. Smáskífan kemur út 16. júní og önnur b-hliðarlög eru live-útgáfur af „Mirror me“ og „Free me“, fyrsta singli al- búmsins. Einnig ný upptaka af „Keep it alive" og órafmögnuð útsetning af „Guiding Star“. plús, leggjast í það og svolgra það í sig í leiðinni. Ég hugsaði málið og komst að niðurstöðu. - Þú hefur einfaldlega misskil- ið þetta allt saman, fræddi ég hana. - Leikurinn er leiksins vegna, sem hlýtur að leiða til þess að svona ofurlausnir eru stranglega bannaðar. Allir menn sem finnst gaman að skjóta rjúpur vita til dæmis að það væri hægt að skjóta miklu fleiri rjúpur með því að fara með hríðskotabyssu upp á fjall, en þá væri bara búið að brjóta leikreglurnar og vanvirða íþróttina. - Jæja, svaraði mamma, ennþá hálfflissandi. - Ert þú kannski að hugsa um að fá þér megrunar- plástur? Mér hafði reyndar dottið í hug að dýpka rannsóknina með því að setja mig með áþreifanlegum hætti í spor viðfangsefnanna en hætti ekki á fleiri háðsglósur svo ég svaraði bara snúðugt: - Ne- hei, og hét því með sjálfum mér að halda henni utan við málið næst þegar ég tæki mér eitthvað uppbyggilegt og fræðandi fyrir hendur. Sumt fólk kann ekki að ala upp unglinga. „En svo ég komi mér að efninu þá á ég við þessar ofsóknir sem beinast að fitu í hvaða mynd sem er. Eyðum fitu. Útrýmum fitu. Líkamsfítu. Fitu í mat- vælum. Fitublettum í fötum og fítu á óhreinu leirtaui... og þá sér- staklega þegar fítan er komin undir skinnið á fólki, í bókstafíegri merkingu.“ Patti Schemei, trymbill hljómsveitarinn- ar Hole, hefur verið látinn víkja fyrir Chris Vrenna (Nine inch nails) í sumum ef ekki öllum lögum nýrrar plötu Hole. Vrenna er nýjasta nafnið sem Billy Corgan, upptökustjóri albúmsins, hóar í til að vera með. Áður hafði hann fengið bræðurna Jimi og Dennis Flemion úr Frogs, sem var uppáhaldsband Kurts Cobain. Flemion- bræður voru á tónleikaferð með Smashing Pumpkins á síðasta ári. Alan Moulder, sem vann við „Mellon Collie and the infin- ite sadness", síðustu plötu Pumpkins, er sömuleiðis bendlaður við nýju Hole-skíf- una. Annars er Courtney Love leiðtogi grúppunnar og ósjálfrátt spyr maður sjálf- an sig hvor muni að lokum eiga meira í plötunni; Cobain-ekkjan eða upptökustjór- inn Corgan. Tindersticks hafa hug á að gefa út nýja breiðskífu hjá Island Records um miðj- an júnímánuð, gripnum hefur verið valið nafnið „Curtains". Platan var hljóðrituð í New York, London og Dublin á síðasta ári. Fyrsta smáskífa verksins kom út 26. maí, „Bathtime". Með útgáfu singulsins fylgja sex aukalög, eitt þeirra er ábreiða af lagi Pavement „Here“. Tindersticks tekur einn- ig upp á sína arma lagið „Shadow" sem R Dean Taylor flutti á árum áður. Taylor þessi var eini hvíti listamaðurinn á mála hjá Motown. Nýja breiðskífan, „Curtains", inniheldur fimmtán lög. Embrace heldur þrenna aukatónleika í London síðast í júlí, en nýlega lauk vel- heppnuðum túr sveitarinnar um Bretland. Söngvarinn Danny McNamara segir að fyrrihluta ferðarinnar hafi ásjóna fólks ver- ið eitt stórt spurningarmerki. Seinnipart túrsins hafi aftur á móti allt verið brjálað, fólk þá meira með á nótunum. Sérstaklega í Leeds; þar voru tónleikagestir farnir að syngja með í lögum sem enn hafa ekki ver- ið gefin út! Á Lundúnakonsertunum í júlí verður kynnt nýtt efni frá Embrace af vænt- anlegri ÉP-skífu. Hún kemur á markað í sama mánuði og heitir „One Big Family". Þar verða lögin „Dry Kids“, „Butter Wo- uldn’t rnelt" og „You’ve only got to stop to get better". fnf I - bókina sem rýfur heimatilbúnu fréttastífluna sem íslendingar hafa búið við áratugum sam- an á sviði lyflæknisfræði. Þessi bók segir allt um lyflæknisfræðina sem HEIMILISLÆKNIRINN og STÓRA LYFJABÓKIN segja þér EKKI. Ef þú átt þessar tvær bækur þarftu að verða þér úti um LÍFSSPURSMÁL líka til að vita um alla möguleika þína varðandi áfamhaldandi góða heilsu eða rétt viðbrögð ef hún bregst. LÍFSSPURSMÁL fæst í öllum heilsuverslunum og í Pennanum, Máli og menn- ingu, Ásfelli, Betra lífi, Bókabúðinni í Mjódd og Bóksölu stúdenta. Og hjá bókaútgáfunni Lífi eftir fæðingu, talhólf 562-7644, box 1464, 121 Reykjavík. nHHMM

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.