Helgarpósturinn - 29.05.1997, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ1997
Blaöamannafundur var hald-
inn síöastliöinn þriöjudag í
Ráöhúsi Reykjavíkur þar
sem kynnt var framtíöar-
stefnumörkun í dagvistar-
málum í Reykjavík. Blaða- y
maöurHP fór ekki á fundinn
heldur hringdi hann einfald-
lega í Árna Þór Sigurðs-
son, borgarfulltrúa og for-
mann stjórnar Dagvistar
barna, og spuröi hann um
dagvistarmálin í Reykjavík.
Útlitið bjart
„Framtíðarstefnumörkun
sem við vorum að kynna felst
fyrst og fremst í því að ljúka
uppbyggingu leikskólakerfis-
ins á næsta kjörtímabili," seg-
ir Arni. „Við munum núna,
sem fyrstu skref, fara í frekari
byggingar í Grafarvogi, Árbæ
og gamla vesturbænum. Þar
eruin við svolítið á eftir öðr-
um hverfum, einkum í Grafar-
vogi og Árbæ. Staðan er núna
sú að allflest
tveggja ára
börn og eldri
eiga kost á
þeirri vist
sem foreldrar
þeirra kjósa,
en við setjum
markið við
eins árs börnin og stefnum
að því að ljúka því á næsta
kjörtímabili. Til að leysa
vanda þelrra sem ekki kom-
ast að með börn sín eins og
sakir standa greiðum við nið-
ur dagvistargjöld hjá dag-
mæðrum.“
Eru þau svipuð og ú leik■
skólum?'
„Mjög svipuð. Að vísu er
ekki ein gjaldskrá hjá dag-
mæðrum þannig að það get-
ur aðeins rokkað, en í fiest-
um tilfellum eru þær með
mjög áþekkt gjald og á leik-
skólunum."
Vantar ekki menntað
fólk í leikskólana?
„Það er visst áhyggjuefni
að aðeins um 40 prósent af
því fólki sem er við uppeldis-
störf á leikskólum eru fag-
menntuð. Það hlutfali hefur
ekki breyst undanfarin ár
þrátt fyrir verulega fjölgun
plássa. Það er ekki verið að
gera lítið úr starfi þeirra 60
prósenta sem eru ekki með
fagmenntun. Margir þeirra
hafa tekiö námskeið og þess
háttar þannig að þeir eru í
stakk búnir til að sinna börn-
unum. Það breytir því ekki að
það er markmiðið að fjöiga
fagmenntuðu fólki inni á leik-
skólum. Það er mál sem er á
verksviði ríkisins. Bæði
Reykjavíkurborg og önnur
sveitarfélög hafa þrýst á
ráðuneytið um að taka fleiri
nemendur inn í Fósturskól-
ann. Því miður hafa ekki ver-
ið fjárveitingar til þess, þann-
ig að mjög takmarkaður fjöldi
kemst þar inn á hverju ári.“
Vilja murgir fara í Fóst-
urskólann efmaður lítur á
lágu launin sem fást í þess-
ari atvinnugrein?
„Það vantar ekki umsóknir
og á hverju ári er hafnað
fjöldamörgum umsóknum í
Fósturskólann þrátt fyrir að
um sé að ræða fólk sem upp-
fyllir inntökuskilyrði. Það er
ekki vandamál. Frekar hitt að
skólinn hefur ekki haft svig-
rúm til að taka fleiri en 60 til
70 nemendur á hverju ári ef
ég man rétt. Það er einfald-
lega of lítið.“
Er bjart yfir dagvistar-
málum Reykvíkinga?
„Ég held að það sé ekkert
vafamál að dagvistarmál í
Reykjavík eru í tiltölulega
góðu horfi í dag. Sérstaklega
ef maður ber þau saman við
hvernig þau voru fyrir þrem-
ur árum. Reykjavík stendur
mjög vel að vígi í samanburði
við önnur sveitarfélög í land-
inu og ég veit að mörg sveit-
arfélög horfa til Reykjavíkur
um stefnumótun í dagvistar-
málum, óháð því hvaða
stjórnmálaflokkar stjórna
þeim sveitarfélögum.“
Elsta steinhús borgarinnar er neöst á Barónsstíg og var byggt rétt fyrir aldamótin.
Húsiö, sem upphaflega var byggt sem fjós, hýsti eitt sinn sælgætisgerö en breytist
nú í hótel og veröur viöbót viö Hótel Barón. Nýja viöbótin veröur opnuö alveg á
næstunni og af því tilefni haföi blaðamaöur HP samband við Halldóru Lilju Helga-
dóttur, sem er eigandi hótelsins ásamt eiginmanni sínum.
„Barónsstígur er kenndur
við hinn stórmerkilega mann
Baróninn á Hvítárvöllum og
því ákváðum við að kalla hót-
elið okkar eftir honum líka,“
segir Halldóra. „Hann ákvað
eitt sinn að fara að selja mjólk
í Reykjavík og lét því byggja
þetta flotta hús fyrir beljurnar.
Hann ætlaði að hafa kýrnar
hér á veturna og vera svo með
þær uppi í Borgarfirði á sumr-
in. Á þessum tíma bjuggu
Reykvíkingar bara í litlum
timburhúsum. Ætli þeim hafi
ekki fundist skrýtið að þarna
skyldi vera byggt stórt og mik-
ið steinhús bara fyrir beljur!“
segir Halldóra og hlær. „Eg er
nú ekki alveg með það á
hreinu hvort kýrnar komust
hér í hús, en þetta gekk að
minnsta kosti ekki upp hjá
baróninum. Og nú, meira en
hundrað árum seinna, er hér
komið hótel.“
Hefurðu verið viðloðandi
hótelrekstur lengi?
Ég hef verið með
„minnsta“ hótel í bœnum,
Hjá Dóru, sem er á Laugaveg-
inuru, frá því árið 1991,“ segir
Halidóra. „Ég rak sólbaðsstofu
í tíu ár en var orðin leið á því
og langaði til að prufa eitthvað
nýtt. Mér hafði alltaf fundist
þessi rekstur heillandi og
ákvað að skella mér í slaginn.
Ég ætlaði í raun aldrei að fara
út í stærra, hugsaði þetta sem
vinnu fyrir mig. Þá má kalla
þetta hálfgerðan einyrkjahugs-
unarhátt. Svo kom þessi hug-
mynd að setja upp íbúðahótel
hér á Barónsstígnum. Mér
fannst stórsniðugt að opna
íbúðahótel, því það vantaði
þannig hótel í borginni. Ég
vildi ekki opna eitt hefð-
bundna hótelið enn, heldur
eitthvað sem væri rúmbetra
og gæfi fólki tækifæri á að búa
sér til eitthvað I matinn sjálft,
sem sagt íbúðahótel. Það varð
því ofan á að við fórum út í
þetta ævintýri. Við vissum
strax að það myndi aldrei
ganga að opna allt í einu, því
þetta er það stór og mikil fjár-
festing. Við opnuðum því fyrst
átján íbúðir og nokkru seinna
opnuðum við fjórtán íbúðir til
viðbótar. Þetta gera 32 íbúðir.
Núna opnum við tuttugu her-
bergi til viðbótar við það sem
komið er. Árið 1998 ætlum við
að opna afganginn af húsnæð-
inu. Hvað það verður mörg
herbergi veit ég ekki, en við
eigum efstu hæðina eftir.“
Erfitt að selja ísland í
skammdeginu
Hvernig hefur hótelrekst-
urinn gengið?
„Fyrsta sumarið var náttúru-
lega erfitt hjá mér. Maður vissi
ekkert hvað maður var kom-
inn út í, en það gekk mjög vel
eftir að maður var búinn að
markaðssetja sig.“
Er ferðamannatíminn haf-
inn?
„Já, hann er þegar hafinn og
aprílmánuður var mjög góður.
Það má segja að ferðamanna-
tíminn sé að iengjast. Sept-
ember er til að mynda betri og
helgarferðir yfir vetrartímann
eru einnig að verða vinsælli,
sérstaklega hjá Norðurlanda-
„Bókanir eru góðar og alls
staðar að, þannig að þetta
lítur vel út. Það er bjart al-
menntyfir ferðamanna-
þjónustunni á íslandi og
fjölgun ferðamanna hér á
landi hefurverið mikil. Fólk
er orðið leitt á að fara á
sólarstrendur ogvill prófa
eitthvað nýtt. ísland er
spennandi möguleiki.“
búum. Þó er enn
erfitt að selja ís-
land í mesta
skammdeginu og
verður alltaf erf-
itt. Þó er hægt
að gera það
þannig að mun-
urinn sé ekki svo
gífurlegur á milli
sumars og vetr-
ar. Það er nátt-
úrulega ljóst að í
Reykjavík er
minni munur en
á landsbyggð-
inni. Þar þrífst
ferðamannaþjón-
ustan aðallega á
sumrin. Það er
gífurleg fjárfest-
ing sem bændur
hafa farið út í
fyrir aðeins þrjá
mánuði á ári.“
Mér hefur
fundist hótel og
gistiheimili
spretta upp
eins oggorkúl-
ur undanfarin ár. Er nœgur
markaður fyrir þetta allt
saman?
„Það er ljóst að ferðamanna-
straumurinn hefur aukist hér
á landi undanfarin ár. Hvort
markaðurinn sé nægur þegar
til lengri tíma er litið verður
maður bara að vona. Ég held
að léleg heimagisting detti
smám saman upp fyrir, enda
þarf að uppfylla vissa staðla.
Bjóða til að mynda upp á her-
bergi með baði. Það er aiveg
nauðsynlegt."
Er mikil samkeppni í hót-
elbransanum?
„Mér finnst við yfirleitt
reyna að vinna saman og hef
ekki orðið vör við neitt annað.
Það gefur samt augaleið að
það er samkeppni um verð,
sérstaklega yfir vetrartímann.
Við höfum vissa sérstöðu hér
með íbúðirnar okkar. Það sem
hefur haldið í okkur lífinu á
veturna eru fastakúnnarnir.
Við erum með mikið af Japön-
um sem eru hér á landi til
lengri tíma og eins hafa erlend
fyrirtæki komist upp á lagið
með að vera með starfsmenn
sína hjá okkur að vetri til í ein-
hvern tíma. Við höfum því haft
langa, góða leigu erref til vill
ekki á háu verði. Það hefur
komið vel út.“
Búum á hótelinu, — alltaf í
vinnunni
En íslendingar, koma þeir
hingað?
„Við höfum aldrei auglýst.
Einu auglýsingarnar eru í
ferðabæklingum erlendra
ferðaskrifstofa. Að sjálfsögðu
slæðast inn íslendingar, en við
höfum ekki markaðssett okkur
enn fyrir íslenskan markað.“
Hvernig er að vinna stöð-
ugtinnan um útlendinga?
Talarðu ekki meiri ensku en
íslensku dags daglega?
„Ja, stundum dreymir mig á
ensku og það segir sitt um
hvaða tungumál ég nota mest.
Svo tala ég mikið
skandinavísku."
Búið þið á hótelinu?
„Já, við búum á efstu hæð-
inni, þannig að við erum alltaf
í vinnunni. Þetta er bara hótel-
líf hjá okkur,“ segir Dóra og
hlær. Við reynum nú að
skreppa í frí aðeins á veturna.
Það er okkar frítími."
Hvernig líst þér á sumar-
ið?
„Mjög vel. Bókanir eru góð-
ar og alls staðar að, þannig að
þetta lítur vel út. Það er bjart
almennt yfir ferðamannaþjón-
ustunni á íslandi og fjölgun
ferðamanna hér á landi hefur
verið mikil. Fólk er orðið leitt
á að fara á sólarstrendur og
vill prófa eitthvað nýtt. ísland
er spennandi möguleiki,“ segir
Halldóra Lilja Heigadóttir hót-
elstýra að lokum.
|l\leðanmáls
Djassballettskóli Báru heldur upp á þrjátíu ára afmæli sitt á þessu ári. Er skólinn
alltaf jafnvinsæll? „Já, þaö er nóg aö gera," segir Bára Magnúsdóttir, dansari og
eigandi staðarins. „Þrjátíu ár eru í raun stuttur tími fyrir listaskóla."
Hvaöa listamaöur hefur haft mest áhrif á þig? Hver er merkilegasti atburöur sem þú munt upplifa?
Jerome Robbins. Hann samdi dansa í verkinu West Side Story. Aö vera á lífi á morgun.
Hvaöa stjórnmálamaöur lifandi eða látinn er í mestu uppáhaldi hjá þér?
Albert Guömundsson var í uppáhaldi hjá mér. Hann talaöi viö fólkiö.
Hvaöa skáldsagnapersónu vildiröu helst líkjast?
Pollýönnu auövitaö. Hún var alltaf svo bjartsýn.
Hvaöa persóna mannkynssögunnar vildiröu helst hafa verið?
Kleópatra.
Ef þú fengir aö lifa lífinu aftur myndiröu þá breyta einhverju?
Jájá, alveg hellingi.
Hver er merkilegasti atburður sem þú hefur upplifaö?
Aö eiga börnin mín. Ég á þrjú.
Hvaöa atburður, verk eöa manneskja hefur mótaö lífsviöhorf þitt framar
ööru?
Gærdagurinn mótar reynsluheiminn fyrir framtíöina.
Ef þú ættir kost á aö breyta einu atriði í þjóöfélaginu eöa umhverfinu,
hvað yröi fyrir valinu?
Aö elsta kynslóö íslendinga fengi aö búa viö betri kjör en raun ber vitni.
Séröu eitthvað sem ógnar samfélaginu öðru fremur?
Mengun.
Elnkunnarorö?
Brosa og trúa á sjálfan sig.