Alþýðublaðið - 05.04.1972, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 05.04.1972, Blaðsíða 3
r r •• AAÁni NAUÐ- HEMLA— ÞVÍ FÓR SEM FÓR l>að slys varð i gærdag á mót- um llverfisgötu og Ingólfsstræt- is, að fullorðinn maður, sem var farþegi i strætisvagni, kastaðist úr sæti sinu og slasaðist, er vagnstjórinn nauöhemlaði til þess að forðast árekstur við bil, sem ók skyndilega i veg fyrir ha n n. Maöurinn skarst illa á andliti og hlaut höfuðhögg, en ekki lifs- hættulegt. Tveir aðrir farþegar köstuð- ust úr sætum sinum, en þeir kenndu sér einskis meins. Myndin var tekin, er verið var að bera slasaða manninn út úr vagninum. en hann var fluttur á Slysavarðstofuna,- GUÐMUNMJR SIGRAfll ,,Ég vil ekki segja, að við séum i neinni sérstakri hættu, en bólu- sóttin gctur borist hingað eins og i hvcrt annað land Evrópu”, sagði landlæknir, og kvað ástæðuna hina miklu umferð erlendra l'erðamanna gegnum lsland. I.andlæknir sagði ennfremur, að engar sérstakar ráðstafanir vrðu gerðar umfram þaö sem þegar hefur veriö gert, nema þá að bólan breiddist enn meira út ytra. l>ær ráðstafanir, sem þegar hal'a verið gerðar, eru fólgnar i aövörunum til þeirra, sem hyggja á ferðalög til þeirra landa þar sein liólan hefur skotiö upp kollin- um að undanförnu. Bólusetning gegn kúabólu er Guðmundur Sigurjóusson sigraði með nokkrum yfirburð- um á Skákþingi islands scm fram fór um páskana, og hlaut hann þar með titilinn Skák- meistari islands 1972. Er þetta i þriðja sinn sem Guðmundur verður Skákmeistari islands, en hann er aðcins 24 ára gamall. Áður sigraöi hann á skákþing- unum 1965, þá aðeins 17 ára og 1968. A skákþinginu nú hlaut Guðmundur 7 1/2 vinning af 9 mögulegum, tapaði engri skák en gerði 3 jafntefli. í öðru sæti varð Björn l>orsteinsson með 6 1/2, en i þriðja og fjórða sæti urðu þeir Magnús Sólmundar- son og Jónas Þorvaldsson með 6 vinninga. Pessir skákmenn skipa landsliðið, en i haust verö- ur landsliö sent i Ólympiuleika. i meistaraflokki sigraöi ungur skákmaður, Kristján Guð- mundsson og hlaut hann 8 vinn- inga af9 mögulcgum. i 2.-3. sæti lentu Stefán Þormar og Jóhann- es l.úðviksson, og verða þeir að tefla einvigi um réttinn til að tefla i landsliðsflokki að ári. i I. flokki sigraði Adolf Emilsson með 9 vinninga, eða 100% árangur sem er frekar sjaldgæft i 2. flokki sigraði Einar ólafs- son með 7 1/2 vinning, cn i ung lingaflokki sigraði Ásgeir ólafs- son. i 2. flokki vakti ntikla athygli ungur piltur frá Stöð- varfirði, Óttar Armannsson 13 ára. Tefldi hann mjög vel og krækti sér i 2. sætiö. MED GANGI VEIKINNAR Ekki er vitað til þess, að bólu- sóttin i Júgóslaviu hafi breiðst að ráði út siðustu dagana. Land- læknir hafði sent Alþjóða heil- brigðisstofnuninni skeyti þess efnis, að honum yrði tilkynnt um það strax ef um frekari útbrciöslu væri að ræða. Þegar blaðið hafði samband við hann i gær, hafði engin slík til- kynning borist. venjulega gerð á ungbörnum þeg- ar þau eru eins ársgömul, og svo aftur við fermingu. Auk þess var töluvcrt mikið bólusett hér fyrir einu og hálfu ári, þegar bólusótt barst til Danmcrkur, og sömu- leiðis þegar bólusótt barst til Sviss og annarra landa i Mið- Evrópu árið 1962. Taidi landlæknir, að töluverð mótstaða væri gegn bólusótl hér- lcndis, þrátt fyrir að bólusetning- in dygði ckki óyggjandi nema i 3 ár. Eftir það veitir bólusetningin nokkra niótstöðu í tvö ár til við- bótar, en þegar liðin eru ineira en 5 ár frá bólusetningu, cr hæpið að nokkur vörn sé fyrir hendi. , . ****!"■.•* k 80LAH: GJtÍRLA PASKAAMNIR Hlt BJORG- UNARLHII VALLARINS Björgunarþyrlur varnarliðsins á Keflavikurflugvelii höfðu i nógu að snúast yfir páskana, þvi að þær voru þrisvar kallaðar út til björgunarstarfa. Fyrst til þess að bjarga manni úr sprungu i Vatnajökli. Þar hafði 17 ára Reykvikingur, Magnús Magnússon, fallið ofan i 200 feta djúpa sprungu. Ekki var mögulegt að hifa hann upp með handafli, svo að þyrlan var notuð til þess og flutti hann siðan beint á sjúkrahús i Reykja- vik, enda var hann nokkuö meiddur. Þá fóru björgunarþyrla og llereules björgunarvél til móts viö litla tveggja hreyfla Piper flugvél, sem var á leið frá Græn- landi til Keflavikur. Annar hreyfill vélarinnar hafði stöðvast, og hinn gekk óreglu- lega, auk þess sem benzinið var á þrotum. Björgunarvclarnar komu til inóts við vélina um 40 sjómilur frá Keflavik, og fylgdu henni fast eftir þangað, tilbúnar að bjarga mönnunum ef eitthvað kæmi fyrir. IÐNNEAAAR GRAFA UPP STRÍÐSÖXINA ,,i flestum tilfellum skoðar meistarinn iðnnemann sem lág- launaðan vinnukraft, sem maiar honum gull,” segir dreifibréfi Iðnnemasambands íslands, sem nú ætlar að gera gangskör að þvl aö kaup iðnnenta hækki. Sam- bandið boðar til fundar með iðn- nemum um þessi mál og aðgerðir þeim samfarandi á morgun, fimmtudag, kl. 8,30 i Lindarbæ, uppi. i bréfinu er rætt um að i ein- stökum greinum hafi átt sér stað yfirborgun iðnnema, og því valdi að eftirspurn eftir nemum hafi verið meiri en framboöiö. Það sé Ijóst að þessar yfirborganir séu timabundnar og hverfi þegar dæmið snúist við. Framhald a bls. 4. FYLGST Þegar vélin var svo að koma inn til lendingar, fóru lijól licnnar ckki niður, en á siðustu stundu tókst riugmönnunum að koma þcim niðiir mcð handafli og i lenda, og var vélin þá benzinlaus, I og licfði raunar átt að vera orðin | þar fyrir 12 ininútum samkvæmt i útreikningum. j Loks var það svo á mánudags- niorguninn að Slysavarnafélagið óskaði eftir aðstoð varnarliösins við að flvtja unga konu, llrönn | Borgþórsdóttur frá Ólafsvik, á spitaía i Reykjavik, en hún var með fæðingarhriðir mánuði fyrir : timann. ófært var milli ólafsvikur og Stykkishólms, og flugvöllurinn á ! Sandi einnig ófær, en þar sem j konan þurfti tafarlaust að komast i á spitala, var björgunarþyrla i eina farartækið scm til greina ' kom við fliitiiinginn. Kerðin tókst ] vel, og liður nú konu og barni eftir , atvikum vd. EHN ORBIH DYR ARA AD TÚRA Vnisar verðhækkanir á vörum og þjónuslu liafa verið gerðar að undanförnu, og i sumum tilfellum bcfur almcnningi engin vitneskja borizt um þær fyrr en þær liafa tckið gildi. Þannig var mcð áfcngishækkunina, og nú fyrir skömmu hækkuðu taxtar hjá rök- urum um rúm 20%. Að sögn skrifstofustjóra verð- lagsstjóra liggja allmargar um- sóknir um verðhækkanir fyrir cinbættinu, en ekki kvaðst hann vita hvort von variámikilli verð- hækkanaskriðu á næstunni, þar sein ákvarðanirnar eru ekki cin- göngu i höndiim vcrðlagsstjóra, licldur verða umsóknirnar að fara fyrir rikisstjórnina. Þá var á skrifstofustjóranum að skilja, að ekki sé von á þvi, að allar vcröhækkanir verði til- kynntar fyrirfram né auglýstar, þar sein um sé að ræða hámarks- taxta, scm settur sé til þess að setja ákveðið hámark á verð en ekki samræma það. Siðasta hækkunin gckk i gildi I. april sL, en það er liækkun á gjaldskrá pósts og sima. Við hana aukast tekjur pósts og sima um 10%, og eru hækkanir á einstökum liðuin misjafnar. Burðargjald almennra bréfa innanlands og til Norðurlanda er nú 9 kr. [ stað 7 króna áður,- Þá fellur niður söluskattur af póst- þjónustugjöldum. Afnotagjald sima liækkar úr 1000 kr. i 1100 kr. Stofngjald sima sem tengdur er við sjálfvirka kerfið liækkar úr 7.500 kr. i 8.000 Gifurlcg umferð var út úr bæn- um um páskahelgina, cr þúsundir bila strcymdu út á land, en svo merkilega vildi til, að cngin slys urðu i allri þessari umferð, og taldi liigreglan aðeins 10 árckstra i Rcykjavik og nágrenni yfir alia helgina, en það mun liklega vcra algjört met miðað við svo mikla umferð. Bláfjöllin virtust vera vinsælust og telur lögreglan að um 2000 bil- ar liafi verið þar á föstudaginn, og mikill fjöldi var þar liina helgi- dagana cinnig. kr., stofngjald af aukatcngli hækkar hlutfallslega meira, cn gætt verður að innhcimta afnota- gjald af aukalengli. Þá fellur inn i gjaldskrána laxt- inn fyrir langlinusamtöl, sem val- in eru sjálfvirkt á limabilinu frá kl. 22.00 - 7.00 alla virka daga, cn gjaldið gildir einnig frá kl. 15.00 á laugardögum til kl. 7.00 á niánu- dagsmorgnum. Samkvæmt þess- um taxta verður livcr minúta i flcstum tilfellum helmingi ódýrari cn dagtaxtinn. Simskcy tagjöld til allra Evrópulanda, ncma Norður- landa, hækka um kr. 2.30 fyrir orðið, og byggist sú liækkun cin- göngu á framkvæmd inillirikja- sam ninga. SVALIRNAR VORU BARA ENGAR SVALIR Siðastliðið miðvikudagskvöld, laust fyrir klukkan 23, vildi það slys til i Grindavik, að maður féll niður af annarri hæð verbúðar Fiskanes IIF, og mun fallið vera um 6 metrar. Þannig hagar til, að i matsal verbúðarinnar er neyðarútgang- ur sem ekki er að fullu frágcng- inn, og huröinni bara lokað mcð venjulcguin glugga læsingu in . Ilélt maðurinn að þarna væru svalir, og mun liafa ætlað að fá sér ferskt loft. En i staðinn fyrir svalir var bara gatan 6 metrum ncðar. Lá maðurinn hrey fingarlaus þegar að var kontið, og var þegar liringt i sjúkrabil og farið mcð manninn 'á Keflavikurspitala. Virtist liaim i fyrstu litið slasaður, cn á föstudaginn mun lionuni liafa versnað, og var maðurinn þá flultur til Reykjavikur. Reyndist bann höfuðkúpubrotinn, og er lið- an hans slæm. Miövikudagur 5. april 1972 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.