Alþýðublaðið - 05.04.1972, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 05.04.1972, Blaðsíða 11
Kross- gátu- krílið m/£6/R F£/.fiGHfí Wt\ T L— 'o'rOUR SvoíPm Sfírf)Cfr Korvu £/?rft 'i £!/S$ 7 ÚLftÐO* orHfíG , irS-S r/tv/ s / ÚT/L L //v'lLD/ VOND UP rfíuP ftNGftH 3 OSOÐ , /rY FUGL //VN V FÉt-t- HZÓP $PJÓ n&Ð/ 1 rrn 1&ror* 9 LRL my/vr i i //y//< / FJ&lfiR. i tfÓT/m 16/YJR ÖGN I 6 H L VM/L ORt) * /90 5/9 m£/y/V / £t> • c • < c- • a ni • X * o o X • % 5? "• QJ Cfc CB " O' ■ i ^ r- o' ^ -35 7l Þ- • ihi'-'í A VALD1 VÍDÁTTUNNAR eftir Arthur Mayse En núna þaut hún ósjálfrátt af stað og hrópaði örvingluð: ,,Mike! Mike!” Hún hrópaði aftur um leið og hún skaust á milli klettanna. Skyndilega birtist hendi, sem virtist i fyrstu svifa i lausu lofti og greip um ökklann á henni og felldi hana. Hann lá endilangur milli tveggja kletta. Kuldaleg blá augun virtu hana fyrir sér án minnsta votts um hluttekningu. ,,Þetta var laglega gert hjá þér, eða hitt þó heldur!” hvislaði hann og var augsýnilega ösku- reiður. ,,Mjög gott! Fari það bölvað, Linny. þú átt ekki skilið að fá að borða! ” Hún ætlaði að standa upp, en hann tók fast um mittið á henni og þrýsti henni niður i lyngið. ,,Ertu kannski blind, man- neskja? Sástu ekki múrmeldýrið, eða hvað? Ég er búinn að biða eftir þvi hér i klukkutima”. Aldrei fyrr hafði nokkur talað við hana á þennan hátt. Hún andvarpaði og reyndi að finna sér ein- hverja afsökun. En henni datt ekkert i hug og það var allavega léttir að vera ekki ein. Mike skipti sér ekkert af henni. Hann lá á maganum og hafði i höndunum riffil með hlaup- viddinni 22. Það var búið að saga bæði framan af hlaúpinu og aftan af skeftinu, svo að vopnið minnti helzt á byssu. í dálitilli fjarlægð tók hún eftir hreyf- ingu. Hún hafði vit á að þegja. Múrmeldýrið litaðist i kringum sig. Aðeins sást i trýnið og svört augun. Það fór i taugarnar á henni hve dýrið var varkárt. Það fór sér að engu óðslega, og var eins og góður og gegn borgari, sem tefldi ekki á neina tvisýnu. Að lokum gerði dýrið það upp við sig, að nú væri grænt ljós, þótt það virtist ekki allt of visst i sinni sök. Það fór þvert yfir hið auða svæði og bjó sig undir að fara upp i klettana hinum megin. Linn brá við, þegar skotið reið af. Múrmeldýrið kipptist við, reyndi örvæntingarfullt að skreiðast til baka, en féll svo til jarðar. Einhvers staðar yfir þeim heyrðist i fugli, sem gargaði til viðvörunar öðrum fuglum. Mike tæmdi byssuna. Heitt skothylkið snerti kinn stúlkunnar. Sessunautur hennar stóð upp. ,,Morgunverður”, sagði hann elskulega, eins og ekkert hefði i skorizt. ,,Mér finnst leiðinlegt að þurfa að drepa þessi litlu grey. En kjötið er gott, þegar maður hefur ekki annað”. ,,Nú skal ég segja þér nokkuð, herra Clendon. Ef þú heldur, að þú getir hellt þér yfir mig eina stund- ina og verið vingjarnlegur þá næstu, þá hefurðu á röngu að standa!” ,,Þú litur ágætlega út i dag, Linny. Nefið gæti náttúrlega litið betur út, en að þvi slepptu virðistu mjög hress”. Hann var allt i einu orðinn kátur, og það var sjálfsagt vegna veiðinnar. Hann var lika orðinn eitthvað svo ókunnuglegur. Hann hafði rakað af sér skeggið og þar með var postulaútlitið horfið. ,,Þú minnir mig á stúlku á barnaheimili i London, þar sem ég var um tima”, sagði hann þegar þau gengu til múrmeldýrsins. ,,Það var skortur á fötum á heimilinu og gæzlusysturnar höfðu fengið stúlk- unni allt of litlar buxur og peysu, sem náði henni ekki nema niður á nafla”. „Viltu gera svo vel að láta mig i friði! ” Hún vildi alls ekki að hann skildi hana hérna eftir aleina, en hún var dálitið feimin yfir þvi hvernig hún hafði hlaupið vælandi eins og þriggja ára krakki. Þar að auki fór það honum alls ekki vel að vera skemmtilegur, fannst henni. Andlit hans var eins og höggvið i stein, munnurinn allt of stór, kinnbeinin allt of fast mótuð. Maðurinn á bak við þetta andlit hlaut að vera mjög harður, næstum ómannlegur. Hún vissi að til var miklu vinalegra og mildara andlit. Hann greip i afturfæturna á dýrinu. „Svafstu vel i nótt?” ,,Ég svaf ágætlega”, svaraði hún treglega. ,,Þú hefur kannski lika sofið?” ,,Ég svaf til fóta hjá þér, þvert fyrir dyrunum”. Hann leit brosandi til hennar. Það lá betur á honum, heldur en hún hafði haldið i fyrstu. ,,En hve þú UNGIR MENN FRÁ CHICAGO þjáðst at „deyfðri ábyrgðar- tilfinningu”, en árið 1924 var engin vörn i sliku. Hins vegar var hægt að nota það til að reyna að lina dóminn. Darrow vissi að af þeim niutiu manns, sem teknir höfðu verið af lifi i sögu Chicago- borgar, hafði enginn maður undir 23ja ára aldri verið hengdur hafi hann lýst sig sekan. A næstliðnum 10 árum höfðu 340 manns verið ákærð fyrir morð og lýst sig sek. Aðeins einn fertugur maður af öllum þeim fjölda, hafði verið hengdur. En hann hafði áhyggjur af einu: Þegar þetta gerðist, hafði nitján ára gamall piltur verið dmdur til dauða fyrir að skjóta lögregluþjón. Yrði hann tekinn af lifi, hvernig átti Darrow þá að koma i veg fyrir að Leopold og Loeb hlytu sömu örlög? Ef hann bæði um lifstiðarfangelsi þegar svo væri komið, myndi múgurinn hrópa að ekki giltu sömu lög fyrir rika og fátæka. Darrow hélt fyrirætlunum sinum leyndum. Fyrst varð hann að sefa kröfur almennings um að piltarnir yrðu teknir af lifi. Skoðanakönnun leiddi i ljós að 60% af þeim, sem spurðir voru, vildu láta hengja piltana. Darrow lét feður piltanna lýsa þvi yfir opinberlega, að þeir myndu ekki gera neina tilraun til að frelsa þá, heldur einungis að sanna að þeir væru vitskertir. önnur skoðana- könnun leiddi þá i ljós, að 60% voru reiðubúin að sætta sig við lifstiðarfangelsi til handa morð- ingjum Bobbie litla Franks. Darrow tók nú til óspilltra mál- anna að undirbúa varnir sinar. Bandariskir geðlæknar sátu þing i Filadelfiu og hann sendi að- stoðarlögfræðing sinn, Ben Bachrach, þangað til að tryggja þeim aðstoð færustu manna. Sjö leiðandi bandariskir geðsér- fræðingar, voru fengnir til Chicago, tií að rannsaka piltana. Réttarhöldin i máli þeirra Leo- polds og Loebs hófust þann 21. júli undir forsæti John Robert Caverly, yfirdómara glæpa- réttarins i Cook sýslu. Gifurlegur fjöldi fólks settist um dómshúsið, þrjú þúsund manns, sem reyndu að ná i eitthvað af hinum þrjú hundruð sætum i dómssalnum og löngu áður en dómarinn gekk til sætis sins, var allt orðið troðfullt. Aheyrendur voru einkum telpur á táningaskeiði, vinir sakborning- anna og lögfræðingar, sem flykktust að til að heyra og sjá, hvernig Darrow sneri sér i þess- um réttarhöldum aldarinnar i Bandarikjunum. Allir bjuggust við að hann lýsti skjólstæðinga sina „ósakhæfa vegna geðveiki”. Piltarnir tveir, sem athygli alls heimsins beindist nú að, gengu inn i salinn. Báðir voru rólegir, vandlega snyrtir, vel klæddir og höfðu fulla stjórn á sér. „Þetta er okkar sýning og við megum ekki valda almenningi vonbrigðum”, sögðu þeir við blaðamennina. Þeir sýndu ekki á sér nein iðrunarmerki, heldur ánægju yfir þeirri vafasömu frægð sem þeir höfðu aflað sér. Darrow reis á fætur til að ávarpa réttinn. Hann lýsti skjól- stæðinga sina seka og bað um leyfi til að koma að framburði til mildunar dóms. Þetta var kæn- lega gert, þvi það tók ábyrgðina á þvi hvort pitlarnir yrðu dæmdir til dauða eða lifstiðarfangelsisins úr höndum hinna tólf óbreyttu borgara, sem skipuðu kviðdóm- inn og lagði hana á herðar, reynds og óhlutdrægs dómara, sem Darrow vissi að var bæði vitur og mannúðlegur. Það var eins og sprengja hefði sprungið i réttar- salnum við þessa yfirlýsingu. Saksóknarinn reis á fætur og mót- mælti hástöfum. Hr. Darrow gæti ekki lýst skjólstæðinga sina seka og reyna siðan að sanna þá geð- veika. — Framburður til mildunar dóms er vörn! þrumaði Darrow. — Hin raunverulega vörn i þessu máli er hin hættulega lifs- skoðun Clarence Darrows! hróp- aði Crowe á móti. Hann lýsti þvi yfir að i lögunum væri ekki að finna neinn stigsmun á geðlægri ábyrgð. Rétturinn hefði ekkert vald til að hlýða á framburð um sálrænt ástand sakborninganna. Hann lagði áherzlu á að annað hvort bæri maður algera ábyrgð á afleiðingum gerða sinna, eða væri með öllu ábyrgðarlaus. Darrow talaði máli sinu rólega og æsingalaust. „Við höldum þvi ekki fram að sakborningarnir hafi verið laga- lega geðveikir, en hins vegar höldum við þvi fram og ætlum að sýna fram á, að hér var um að ræða margs konar geðlægt ástand, sem fellur ekki undir hina lagalegu skilgreiningu á geðveiki og myndi i þeim skilningi ekki koma okkur að nokkru haldi til varnar i þessu máli. Við vitum að fólk getur verið og er alvarlega sjúkt á geði, en veit samt muninn og er fært um að velja á milli þess, sem rétt er og rangt, en það er samt sálsjúkt og rétturinn mun taka tillit til ástands þess. 1 lögum þessa rikis er ákvæði, sem kveður svo á, að rétturinn megi rannsaka allar staðreyndir, sem geta orðið til mildunar refs- ingar, eða haft á annan hátt áhrif á hana. Er til nokkur skrá yfir mildandi kringumstæður? Er það saksóknara rikisins að ákvarða mildandi kringumstæður? Aðeins einn aðili getur skorið úr um það, hvort kringumstæður séu mild- andi eða ekki og það er dóm- stóllinn, sem falinn er ábyrgð á örlögum sakborninganna, sem færir eru fyrir hann. Við ætlum ekki að færa fram sannanir fyrir geðveiki, en við ætlum okkur að sýna fram á að skjólstæðingar okkar eru sálar- lega sjúkir. Við ætlum að draga fram i dagsljósið hugarástand, sem fellur ekki i ramma hins lagalega skilnings á geðveiki, þ.e. hvort maður geti greint rétt frá röngu og valið þar á milli. Það sálarástand, sem við ætlum að sýna skapar ekki vörn, en það leiðir svo sannarlega af sér fram- burð, sem rétturinn ætti að hlýða til mildunar að yfirlýstri sekt, rétt eins og hann verður að hlýða Sögufræg sakamál - Miðvikudagur 5. apríl 1972 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.