Alþýðublaðið - 05.04.1972, Síða 12
alþýðul
aðið
PÁSXA-
POPP
Paö var ekki innan viö eitt
þúsund manns sem kom i Lang-
hoitskirkju aöfaranótt páska-
dags, en þar hófst á miönætti
páskavaka, sem bar yfirskrift-
ina „Jesús”, og iauk henni við
sólarupprás, en þá gengu 300
unglingar tii altaris.
Um fjögur hundruð manns
sátu i kirkjunni alla nóttina og
hlýddu á poppóperuna „Jesús
Christ Superstar”, sem leikin
var af plötum, og tóku þátt i um-
ræðum um verkið.
Unglingar og ungt fólk var i
miklum meirihluta en þar var
lika talsvert af fullorönu fólki og
gömlu. Þar á meðal var gömul
kona, scm virtist ekki vera und-
ir áttræöu, og fylgdist hún með
af áhuga fram undir sex um
morguninn, og tók þátt i umræð-
unum.
Sr. Bernharður Guðmunds-
son, æskulýösfulltrúi þjóð-
kirkjunnar stjórnaði vökunni,
og var næsta ótrúlegt að fylgjast
meö þvi hvernig liann hafði al-
gert vald yfir kirkjugestum og
tókst að skapa skemmtilegt og
frjálslegt andrúmsloft, sem
hann gerði m.a. með því að
stjórna fjöldasöng og láta fólk
klappa i takt, og var myndin
tekin eitt sinn er lagiö var tekið i
kirkjunni.
Einnig voru mjög fjörug
ar umræður um fangelsismál
og ináiefni AA-samtakanna, en
Framhald á bls. 2
RIKISSTIOBNIN
ÞAOI PENIH6ANA
KOMMARNIR KEYRÐIR í KAF
KRAFTAMYND
FYRIR GOÐA
MILUÓN
Nú á vist að fara að gera
kraftakarlinn hann Reyni
Leósson, sem sýndi listir sinar
i sjónvarpinu i fyrravetur,
heimsfrægan, en þeir Jón
Georgsson og Vilhjálmur
Knúdsen eru byrjaðir að gera
kvikmynd um hann.
Aætlað er að kvikmyndin
kosti 1100 þúsund krónur, og
eru höfð samráð við erlenda
aöila, m.a. verður myndin
sýnd á sölusýningu i Milanó.
Byrjað var að kvikmynda á
sunnudaginn siðasta fyrir
páska, og braut Reynir þar ein
handjárn, leysti sig úr ramm-
lega bundnum 60 metra löng-
um kaðli og vann fjóra menn i
rciptogi,- hafði einn fingur á
móti hverjum.
Rikisstjórnin hefur ákveöið að
taka tilboöi Bandarikjastjórnar
um. að Bandarikin kosti brautar-
lengingu og aörar framkvæmdir
við Keflavikurflugvöll. Atkvæða-
greiðsla varð um málið i rikis-
stjórninni og var tilboö Banda-
rikjastjórnar þegið með at-
kvæðum fimm ráðherra af sjö.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins,
Magnús Kjartansson og Lúðvik
Jósefsson, greiddu atkvæði á
móti.
Eins og Alþýðublaöiö hefur
skýrt frá barst islenzku rikis-
stjórninni skömmu fyrir páska
tilboð frá ríkisstjórn Bandarikj-
anna um að verja 5,8 millj. doll-
urum, — 500 millj. kr.—, til að
kosta lengingu flugbrautar og
aðrar nauðsynlegar fram-
kvæmdir á Kefla vikurflugvelli.
Bandarikjaþing haföi áður sam-
þykkt fjárveitingu til þessara
framkvæmda, en Bandarikja-
stjórn setti fyrirvara um greiðslu
fjárins i sumar, skömmu eftir að
rikisstjórn ólafs Jóhannessonar
settist að völdum. Var almennt
talið, að fyrirvarinn hafi verið
settur vegna þeirrar yfirlýsingar
stjórnarinnar, að varnarliðið yröi
látið hverfa á brott af landinu á
kjörtim abilinu og Bandarikja-
stjórn hafi ekki viljaö verja miklu
fjármagni til endurbóta á flug-
stöð, scm senn ætti að leggja
niður sem lið í varnarkerfi
Atlandshafsbandalagsins.
Umrædda brautarlengingu og
aðrar framkvæmdir á Kefla-
vikurvelli var hins vegar nauð-
synlegt að gera ef völlurinn átti
að halda gildi sinu, sem milli-
lendingarvöllur fyrir farþega-
flug.
Ráðherrar I ríkisstjórn Ólafs
Jóhannessonar, þ.á.m. utanrikis-
ráðhcrra, létu á sér skilja i sumar
og haust, að rikisstjórnin myndi
sjálf útvega fjármagn til fram-
kvæmdanna og þá jafnvel hér
innanlands fyrst féð fengist ekki
frá Bandarikjunum. Hljótt hefur
verið um það mál upp á siökastið,
en þó virðist augljóst, að tilraunir
til þess að fá fjármagn þctta frá
innlendum aðilum hafa ekki
tekizt.
Þann 28. marz barst blöðum á
islandi svo fréttatilkynningin frá
Bandarikjastjórn, sem fyrr
greinir. i fréttatilkynningunni
segir, að Bandarikjastjórn hafði
ákveðið að bjóða Islenzku rikis-
stjórninni að kosta framkvæmd-
irnar á Keflavlkurvelli og hafi
Bandarikjastjórn byggt þá ák-
vörðun sina á þeirri skoðun, að
þessar umbætur væru nauðsyn-
legar bæði hvað snerti flugöryggi
og varnarmátt Atlantshafs-
Framhald á bls.4.
, STYRJ ALDARASTAND’
f HEIMSPEKIDEILD
DEILUR UM KILJANGRÁÐUNA AAAGNAST
FULLT UT
ÚR DYRUM
Popphljómsveitin Mánar, bisk-
upinn herra Sigurbjörn Einar-
sson, kirkjukór Selfoss og 11 ára
orgelleikari höfðu það aðdráttar-
afl, að Selfosskirkja troðfylltist
fólki á öllum aldri á páskavöku,
sem haldin var i kirkjunni að
kvöldi páskadags, og mun kirkjan
sjaldan eða aldrei hafa verið eins
þéttsetin og þá.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
urðar Sigurðssonar sóknarprests,
sem jafnframt stýrði samkom-
unni, tckur Selfosskirkja 300
manns i sæti, og var hvert sæti
skipað. Auk þess voru bráða-
birgðabekkir meðfram veggjum
kirkjunnar þéttsctnir, fjöldi
manns stóð aftast i kirkjunni,
unglingar sátu i öllum ganginum
eftir miðri kirkjunni, og bekkir
uppi i kór voru einnig setnir.
Bjóst Sigurður við, að um 500
manns hefði veriö i kirkjunni.
Fluttur var stuttur helgileikur,
páskaeldur kveiktur, kórinn söng
og biskupinn prédikaði.
Mánar fluttu þrjú frumsamin
lög, sem þeir sömdu sérstaklega
fyrir þessa athöfn, og loks lék 11
ára stúlka á orgel.
Aðspurður um álit sitt á poptón-
listinni i kirkjunni, sagði herra
Sigurbjörn Einarsson, aö hann
teldi sjálfsagt að nota þessa tón-
list i kirkjum, það þyrfti aðeins að
leiðbeina hljómlistarmönnunum
um gerð texta.
Mikill urgur er i heimspekideild
Háskóla islands vegna ágreinings
um það, hvaða heiðursdoktors-
nafnbót skuli sæma Halldór Lax-
ness.
A fundi deildarinnar i gær-
morgun, sem efnt var til vegna
ummæla Hreins Benediktssonar,
prófessors, i einu dagblaðanna
fyrir páska, voru að minnsta kosti
fimm kennarar við heimspeki-
deild ckki mættir og einn gekk af
fundi.
Það sem deilan stendur um er,
hvort sæma skuli llalldór titlinum
dr.phil.honoris causa eða
dr.litt.isl.honaoris causa.
Borin var fram tillaga um, að
hann yrði sæmdur fyrrnefnda titl-
inum, en Hreinn vildi hins vegar
sæma hann siðarnefnda titiinum,
sem hann álitur merkilegri.
Auk þess lýsti Hreinn þvi yfir,
að málið væri illa undirbúið af
hálfu deildarinnar og fram-
kvæmd þess litill sómi við Halldór
Laxncss.
Alþýðubiaðinu barst i gær
fréttatilkynning frá heimspeki-
deild, þar sem segir m.a., að
deildin liti svo, á að enginn stigs-
munur sé á titlunum tveimur.
Vegna mikillar aðsóknar hefur
Sveinn Björnsson ákveðið að
framlengja málverkasýningu
sina i Norræna húsinu til fimm-
tudagskvölds. Sýningin er opin
milli kl. 2 - 10 e.h.
H ER PAÐ AFRAÐIÐ: FISCHSR TEFLIR
IS^WBmhi^EDMONDSON STAÐFESTI PETTA
í Ætm fiSSaJÐMUNDAR G PÓRARINSSON-
"ÓG ER EKKI VISS UH
ÖSLAVAR TAKA" SAGÐI
VIÐ BLAÐIÐ SEINT
PETTA EYKUR LÍKUNÁR
ST".#. 25 HSFÐU
BÖLUSÓTTAR I JÚGÓ-
TF. HAFA 148 VERIÐ
S MEÐ BÖLUSÓTTAREIN-
KOVOSO HEFUR EKKI ORÐID
VART NÝRRA TILFELLA SlÐAN 27. MARZ
NÝJA SÍMANÚMERIÐ OKKAR ER 8-66-66