Alþýðublaðið - 25.04.1972, Síða 6

Alþýðublaðið - 25.04.1972, Síða 6
Ggrðhreppingai — Garðlönd Þeir Garðhreppingar, sem áhuga hafa á áframhaldandi leigu garðjanda í Hrauns- holti eru vinsamlegast beðnir að greiða leigugjaldið kr. 300,00 til skrifstofu hrepps- ins, eigi síðar en 2. maí n.k. Aðrir, sem áhuga hafa á þessum garðlönd- um, þurfa einnig að hafa samband við skrif- stofu hreppsins fyrir þennan tíma. Sveitarstjórinn í Garðahreppi. LANDSVIRKJUN ÚTBOÐ Landsvirkjun óskar eftir tilboðum i bygg- , ingu á 5 steinsteyptum stöðvarvarðahús- um við Búrfellsstöð til afhendingar tilbún- um undir tréverk næsta haust. Útboðs- gagna má vitja i skrifstofu Landsvirkjun- ar, Suðurlandsbraut 14, Reykjavik,frá og með 24. þ.m. gegn skilatryggingu að fjár- hæð kr. 5.000,-. Tilboðsfrestur er til 15. mai n.k. FRÁ TÓNLISTASKÓLA KÓPAV0GS Vornámskeið fyrir 6 og 7 ára börn hefst þriðjudaginn 2. mai og stendur yfir i 3 vik- ur. Kennt verður á þriðjudögum og föstu- dögum frá kl. 3.30. Skólagjald kr. 800.00 greiðist við innritun. (Blokkflauta og fleira innifalið). Tekið á móti umsóknum daglega frá kl. 11- 12 að Álfhólsvegi 11, III-hæð. Skólastjóri Ég þakka öllum sem veittu mér þá ánægju aö heimsækja mig, eða minnast min á annan hátt á áttræöisafmæli minu á Páskadag. Þakka ykkur allt frá fyrstu kynnum. Vilborg Magnúsdóttir Skólavöröustig 20A. ARIÐ 1965 létust 15.564 menn i umferðarslysum i Vestur-Þýzka- landi (nú hefur þessi tala hækkað um fjórðung). Sama ár frömdu 11.779 manns sjálfsmorð. Þeir, sem fyrirfóru sér voru þvi litlu færri en þeir sem misstu lifið i umferðarslysum. A meðan alls konar samtök og yfirvöld, þar á meðal Félag bif- reiðaeigenda i Þýzkalandi, gera allt sem i þeirra valdi stendur til að bæta ástandið á vegunum finnst varla nokkur maður sem sinnir um þá sem likur eru til að gripi til þess örþrifaráðs að stytta sér aldur. Samt er ekki erfiðara að finna mann sem liklegur er til þess heldur en hinn sem trúlega á eftir aö enda ævi sina i slysi úti á vegum. Hvorugt er mögulegt ef á allt er litið. En fjöldi sjálfsmorðs- tilfellanna er svo mikill i saman- burði við umferðarslysin að sjáanlega er ekki hægt að láta eins og ekkert sé. Aðeins örfáar manneskjur eru svo tilfinningalausar, að þær van- ræki að hjálpa eða bjarga manns- lifi ef það stendur i þeirra valdi, t.d. barni, sem er að falla fyrir björg, sjúklingi er þarf að koma á sjúkrahús, stúlku sem vaðið hefur út á of djúpt vatn, bilstjóra, sem ekur stórbilaðri bifreið. Ef mögu- legt er að hjálpa i slikum tilfellum þá finnast alltaf nógir til að gera það. Sérstaklega á það við þegar slys og hörmungar dynja yfir. Þá er meira að segja um að ræða sérstakar starfsgreinar sem stunda hjálp, t.d. lækna, bruna- verði og björgunarlið. Menn stofna meira að segja sinu eigin lifi i hættu ef með þarf. Þess vegna er undarlegt, að ekki skuli neinn björgunarmaður vera til staðar þegar fólk gripur til þess óyndisúrræðis, að ætla að svipta sig lifi. Og það útheimtir þó ekki neitt björgunarafrek i vana- legum skilningi, það þarf ekki að fleygja sér út i vatn eða vaða inn i brennandi hús. Það er ekkert annað nauðsynlegt en vera við- staddur, andlega og likamlega, vera nærri og „láta sér koma við”, þvi eins og franski rithöfundurinn Paul Valery sagöi: „Sjálfsmorð er alger fjar- vist allra annarra”. Rannsóknir siöari ára, á vegum Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar m.a. hafa leitt i ljós ýmislegt um sjálfsmorð og orsakir þeirra, hverjir liklegir séu til sliks og hversu það megi fyrirbyggja. En vita þeir sem komið geta til mála sem björgunarmenn nokkuð um slikt, hafa þeir til að bera þekk- ingu á hvenær sjálfsmorð er yfir- vofandi? Og er það ekki einmitt skortur á hjálpsemi á „að láta sér koma við”, sem veidur mörgum sjálfsmorðum? Einn versti misskilningurinn er sá, að maður, sem talar um að fremja sjálfsmorð láti aldrei verða af þvi. Það er nefnilega þveröfugt. Slikt tal er hættumerki og ætti að taka alvarlega. Misskilningurinn stafar af gamalli sálfræðilegri kenningu, sem fyrir löngu hefur verið lögð fyrir róða. Geðlæknir nokkur hét Hoche. Hann lagði fram kenningu um að menn fremdu sjálfsmorð að athuguðu máli. En nú er vitaö samkvæmt staðtölulegum upp- lýsingum að sjálfsmorð gerast ekki þannig. Kenning hans er röng, og hún var röng fyrir 50 ár- um lika. Þess i stað vitum við nú, að sjálfsmorð er lokastig lang- varandi sjúkleika. Viðkomandi þjáist vegna alls konar árekstra sem unnt er að lýsa, og flestir standa þeir i sambandi við ást, hjónalif og kynferöismál. En handan við sálarflækjurnar er hér um bil ævinlega sálræn veikl- un, vanalega þunglyndi. Sömu árekstrarnir skipta litlu fyrir heilbrigða. Þeirskilja hreint ekki hvers vegna nokkrum dettur i hug. að farga sér af svo litlu til- efni, t.d. út af kvenmanni. Ef kenning Hoches um sjálfsmorð að athuguðu máli væri rétt, hefðu þeir auðvitað á réttu að standa, en samkvæmt henni er varla nokkurn tima ástæða til að fremja sjálfsmorð. Arekstrar og erfiðleikar eru hins vegar sá faktor sem hleypir þunglyndi, geðveiklun og öðru sliku upp á yfirborðið, en þetta eru fyrirbæri, sem fjalla þyrfti um af geð- læknum. Lyf gegn þunglyndi er i þessum tilfellum það sem kalla mætti hjálp i viðlögum. Þau koma ekki i staðinn fyrir læknismeðferð fremur en það að stöðva blóðrás kemur i staðinn fyrirskurðaðgerð Þau leysa engan vanda, en þau geta komið i veg fyrir að gripið sé til örþrifaráða. Þýzki geðlæknirinn og guð- fræðingurinn dr. Klaus Thomas segir: „Sjálfsmorð er eina ofbeldis- aðgerðin, þar sem fórnarlambið og árásarmaðurinn er ein og sama manneskjan. í hlutverki árásarmannsins er sjálfsmorð- inginn veikur og þvi ekki ábyrgur gerða sinna, og sem fórnarlamb er hann saklaus og á rétt á að vera varinn gegn sjálfum sér”. Maður, sem gengur um með sjálfsmorðshugsanir þarf með- bræður sem hann getur reitt sig á. Aðallega koma þar til greina gamlir vinir og kunningjar. En maður sem starfar hjá stofnun, eins og prestur eða „simavinur” kemur lika til greina. Dr. Thomas stendur fyrir stofn- un i Vestur-Berlin sem heitir „Læknavaröstofa fyrir lifs- þreytta”. Af 10 þúsund sjúkling- um sem þangað hafa komið eru 526 sendir frá læknum, 341 frá sjúkrahúsum, 4364 komu af sjálfsdáðum, 385 frá prestum, 2225gegnum simasálgæzluna, 187 frá yfirvöldum og 1971 eftir ráð- leggingu kunnugra manna. Fólki finnst þetta kannski sanna sem oft er sagt, að sjálfs- morð-kanditatar deyi sjaldan i sjálfsmorði. En þeir eru ekki að leita á náðir dauðans, það gera þeir ekki nema öll önnur sund séu lokuð. Og ef unnt er að fjarlægja hina sálrænu orsök reynast árekstrarnir sem sjúklingurinn kvartar um ekki mjög skaðlegir. En ef sjúkleikinn lætur aftur á sér bera getur skeð að sjálfsmorðstil- raunin sé endurtekin án þess að nokkrir nýir árekstrar komi til greina. Það er algengt að menn telji að orsakir fyrir sjálfsmorði liggi helzt i samfélagsástæðum, en það er ekki rétt, þær er að finna i and- legri heilsu manna og árekstrum sem þeir verða fyrir. Það þýðir ekki að fjárhagsástæður til að mynda séu ekki með i þvi sem þvi sem árekstrunum veldur. Svokallaðir heilbrigðir menn eru stoltir yfir sinum frjálsa vilja, og þá grunar ekki að fyrir hinum lifsþreytta er enginn frjáls vilji til. Enginn gengur viljugur i dauðann. Maður, sem þjáist af geðveiklun er ófrjáls, hann er fjötraður við sjúkdóm sinn. Fyrrum höfðu menn áhuga á aðgerðum til sjálfsmorða og flokkuðu þær niöur nákvæmlega án þess að gera sér grein fyrir hve þýðingarlausar þær eru. Og likt er þvi farið um ástæðuna. Þaö er kannski ekkert að marka hvaða skýringar sjálfsmorðs- kandidat gefur á framferði sinu. Hann veit kannski ekkert um það sjálfur hver er hin raunverulega orsök. En þó maður viti alla skapaða hluti, hvaða gagn er að þvi, er vegna þekkingarinnar unnt að hjálpa þeim sem er að þvi kominn að fremja sjálfsmorð? Sannarlega er þekking nauð- synleg. En sú þekking sem mestu varðar er að gera sér ljóst að sjálfsmorðs-kandidat er sjúkl- ingur sem þarf á að halda með- ferð geðlæknis. Þannig er kannski unnt að koma honum til hjálpar. Menn þurfa að temja sér glögg- skyggni á sálarástandi náung- ans. Dr. Thomas kemur með dæmi: Það var i fyrirtæki með 150 starfsmenn, að 19 ára gömul skrifstofustúlka taldi sig sjá, að eitthvað væri að hjá dyraverð- inum og þess vegna gaf hún honum gætur. Kvöld eitt elti hún hann upp á efstu hæð i húsi fyrir- tækisins og kom rétt nógu snemma til aö varna honum að fleygja sér út um gluggann. Hún tók hann með sér heim til sin til að freista þess að hjálpa honum, en hringdi um leið til kærasta sins, sem var stúdent, og hann hafði samband við „Læknavarð- stofu fyrir lifsþreytta”. Með þessu tókst stúlkunni að bjarga mannslifi. Dr. Thomas segir: „Að skilja ekki vini og granna eftir eina með vandamál sin, að ofurselja þá ekki einmana- leikanum, að vita hvar unnt er að hafa samband við sérfróða — það geta allir og það er það sem gildir”. Þar að auki ætti að vera gagn- legt að gera sér grein fyrir hve sjálfsmorðssvkin er smitandi. Framliald á bls. 4 ■ j-og orsakirnar liggja j helzt í andlegri heilsu j manna og árekstrum, j sem þeir hafa orðið fyrir ■ BHíl FÆRIST OF ÖRT í VÖXT AD BÖRN FÆDIST FVRIR TÍMANN REYKINGAR MÆORA 00 ÓREGLULEGT LÍFERNI • • • • ÞEIRRA ER HOFUOSOK N HANN er þriggja daga gamall og vegur aðeins 860 grömm (rúmar þrjár merkur). Hann er ekki miklu stærri en manns hönd. En i þessari litlu veru rik- ir sterkasta og dularfyllsta aflið sem til er i fari manns: lifsviljinn. Sá litli er fæddur alltof snemma, en hann berst samt örvæntingarfullri baráttu fyrir að halda lifi. Hann berst ómeð- vitað. Hann berst af eðlishvöt. En hann hefur hlotið sterkan bandamann: lækninn, hinn há- menntaða og langþjálfaða lækni, sem beitir öllum galdra kúnstum nútima læknavisinda til að forða honum frá dauða. En þrátt fyrir allt þetta getur lækn- irinn ekkert annað en hjálpaö. Sjálf spurningin um lif og dauða liggur i honum sjálfum einum. Þetta gerist á hverjum degi á hinum vönduðu sjúkrahúsum hins þróaða heims. Börn fæðast fyrir timann og læknarnir berj- ast með þeim fyrir lifinu. Skýrslur herma (samkv. uppl. frá Danmörku) að 7-8% allra barna komi i heiminn fyrir timann, og þau eru ekki öll lögð inn á sjúkradeildir. Danskir læknar segja að ástæðurnar fyrir þvi að svona mörg börn fæðast fyrir timann sé margar og mismunandi. Samt er vitað að lifsmáti móð- urinnar meðan hún gengur með barnið er aðalatriði málsins. Kyrrlát og jöfn lifsskilyrði eru bezt. Rannsóknir sanna að börn þeirra kvenna, sem búa á mæðraheimilum meginhluta eða siðari hluta meðgöngutim- ans, koma afar sjaldan i heim- inn fyrir timann. Hið reglu- bundna lif heimilisins, valin fæða og timanlegar hættur undantekningarlaust dag eftir dag veldur þvi að konan slakar á, taugarnar hvilast, þróun fóst- ursins fær að ganga eðlilega sina leið. Það að börn fæðist fyrir timann hefur farið iskyggilega i vöxt siöustu ár. Fyrstu fimm árin eftir striðið var tala þeirra um 5%. En siðustu ár var hún kom- in upp i 8% af öllum barnsfæð- ingum. Þroski fóstursins i móðurlifi er undur náttúrunnar, og komið hefur i ljós að konur sem sitja hreyfingarlausar við vinnu sina og eru eins og sagt er i rólegu formi likamlega eiga oft börn sin fyrir timann. Þá er vist að ógiftar mæður eiga fremur börn áður en meö- göngutima er talið lokiö, vafa- laust gf þvi þær lifa óreglusam- ara lifi en giftar konur. Sama máli gegnir um reykingar. Kona sem reykir mikið af sigarettum á á hættu að eignast barn sitt fyrir timann. Þá eru börn mikilla reykingarkvenna léttari en þeirra kvenna sem ekki reykja, virðist það til jafnaðar muna þrjú til fjögur hundruð grömm- um. Þetta segja læknar vera meö- al þeirra skilyrða sem auki likur á fæðingu áður en fóstur hefur tekið út fullan þroska. Þá skiptir ýmis vanheilsa máli, t.d. vissir sjúkdómar, eins og krómiskar bólgur, alls konar eitrun, eggja- hvituefni i þvagi o.fl. Almennt talað er álitið að meiri hætta sé á að kona fæði fyrsta barn sitt fyrir timann en seinna verður. Ef kona hefur látið eyða fóstri áður eykst hættan lika. I Ungverjalandi þar sem hver kona getur látiö eyða fóstri sem vill er tala þeirra barna sem fæðast fyrir timann komin upp i 10-15%, sú aukning er vafalaust bein af- leiöing fóstureyðingarfrjáls- ræðisins. Læknar segja lika að öll afstaða skipti máli. Bent Friis-Hansen prófessor i Kaupmannahöfn nefnir dæmi um furðulegt hirðuleysi van- færrar konu. Barn hennar fædd- ist 6-8 vikum fyrir timann og var aðeins 1300 grömm. Og i ljós kom að hún haföi aldrei látið skoða sig né haft samband við lækni allan timann sem hún gekk með barnið. Sami læknir segir að minnsta barnið sem hann hefur haft með að gera og lifði, hafi verið ný- fætt aðeins 700 grömm (tæpar þrjár merkur). Skýrslur um hvað hrjáir helzt þau börn sem fæðast fyrir tim- ann sýna, að sum eru með ein- hverjar heilaskemmdir, önnur með lömun i útlimum. Reiknað er með að 95% deyi af þeim börnum sem fæðast léttari en 1000 grömm. Og al- mennt er talið að búast megi við að þau börn látist sem fædd eru meira en þremur mánuðum fyr- ir timann. Vandamál geta einnig skap- azt á hinn veginn. Börn sem veröa of þung geta verið i hættu. Ef fóstrið er orðið meira en 5 kg (tuttugu merkur) tekur hættan að aukast verulega. Konur eiga að ganga með i 40 vikur, en sé barnið fætt fyrr en eftir 37 vikur er það kallað fætt fyrir timann. En samt þarf ekk- ert að vera að. Ef barnið er léttara en 2500 grömm (tiu merkur) er líka tal- að um burð fyrir timann, en það skapar rugling þegar um er að ræða tvíbura sem eru léttari en það þótt meðgöngutiminn hafi verið eðlilegur. Það fer eftir ástæðum hvaö gert er fyrir börn sem fæðast fyrir timann. Ef barnir er liflát- ið er séð um að það fái súrefni svo heilinn biði ekki varanlegt tjón. Fyrstu dagana fær það vökva-meðhöndlun, salt og syk- urupplausn i æð, og svo fram- vegis. Flest börn sem fædd eru fyrir timann eyða fyrstu dögum ævinnar i öndunarvél. Það er vakað yfir þeim daga og nætur ef meö þarf, a.m.k. litið eftir lið- an þeirra með stuttu millibili. Það dugar ekki aðeins, segir Friis-Hansen prófessor að halda lifinu i barninu, það þarf að leit- ast við að það lifi heilbrigt og óskaðað. O Þriðjudagur 25. apríl 1972 Þriðjudagur 25. apríl 1972 o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.