Alþýðublaðið - 25.04.1972, Page 12
alþýðu
InRMM
Alþýðubankinn hf
ykkar hagur/okkar metnaður
KOPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7.
Laugardaga til kl. 2.
Sunnudaga milli kl. 1 og 3.
Á FERÐ OG FLUGI
Þetta eru húsgögn auðvitaö,
cf einhver er i vafa, búin til af
Rosenthal, gler- og
postuifnsverksmiðjunum þýzku.
„Vario Pillo” heitir efri sam-
setningin. Einingunum má raða
saman eftir vild og fá sæti sem
falla að lfkamanum eftir hæfi.
Hið neðra er kallað „pollur”,
stykki og púðar sem raða má a
gólfiö eftir vild.
MBÁADNADA
STÚRU BlANA
Aukatollur sá, sem lagður var á
alla nýja biia fyrir skömmu,
verður iækkaöur úr 25% i 15%,
þegar um er að ræða almennings-
vagna eða vörubíla frá sex tonn-
um.
Ákvörðun um þetta var tekin i
gær, en innflytjendur og Lands-
samband vörubifreiðastjóra fóru
eindregið fram á að tollurinn yrði
afnuminn af þessum gerðum biia,
eða að minnsta kosti iækkaður.
Ilefði verðhækkunin haft þau
áhrif, að fjölmargir ákváðu að
draga pantanir sinar tii baka yrði
hún ekki afnumin.
Þessi nýi 25% tollur, sem
lagður var á alla nýja bila fyrir
skömmu, þýðir i flestum tilfeilum
tæplega 11% hækkun á útsölu-
verði fólksbila. Vörubilar eru
hinsvegar tollaðir á annan hátt,
og hefði hækkunin á þeim orðið
allt að 15,7% á útsöluverð, eða um
hálf milljón á dýrustu bilunum.
Miðað við þá hækkun, sem nú
hefur verið ákveðin, verða
hækkanir á almenningsvögnum
LEYNIVÍN-
SALI TEKINN
Lögreglan i Reykjavik hand-
samaði leynivinsala á laugar-
dagskvöldið, og átti hann tals-
verðar birgðir vins i fórum sin-
um, sem ætlaðar voru til sölu.
Lögreglan komst á snoðir um,
að maður þessi stundaði leynivin-
sölu, og var sett vakt við hús
hans.
Ekki leið á löngu þar til menn
komu þangað i viðskiptaerindum.
Þegar þeir höföu átt viðskipti
við manninn og .voru á leið i
burtu, stöðvaði lögreglan þá og
viöurkenndu þeir að hafa keypt
vin af manninum.
Var þá gerð húsleit hjá honum
og fundust 1!) áfengisflöskur,
keyptar i Afengisverzluninni en
þaö mun aigengara, að leynivin-
salar hafi smyglvarning á boð-
stólum.
Viö yfirheyrslur viðurkenndi
maðurinn brot sitt.
og vörubilum frá sex tonnum
milli eitthundrað og þrjúhundruð
þúsund, eftir vcrði vörubíla, sem
getur numið allt aö þremur
milljónum króna.
Geir Þorsteinsson, varafor-
maður Bílgreinasambandsins,
sagði i viðtali við Alþýðublaðið i
gær, að ekki væri komið i ljós,
hvort þeir kaupcndur, sem höfðu
dregið pantanir sinar til baka,
væru ánægðir með þessa lækkun,
en það kæmi i ljós næstu daga.
Búið var að ganga frá pöntun-
um á allmörgum vörubilum um
sama leyti og tilkynnt var um
verðhækkanirnar, og standi við-
skiptavinirnir ekki við gerða
samninga, getur reynzt mjög
erfitt að losna við bilana.
Gunnar Asgeirsson hjá Velti
sagði i viðtali við blaðið fyrir
skömmu, að i rauninni mætti
segja, að bilarnir væru smiðaðir
cftir sérstökum óskum hvers og
eins, og þvi ekki vist, að þeir henti
öðrum en þeim sem upphaflega
pöntuðu.
Verksmiðjurnar taki heldur
ekki bila til baka, þar sem allir
almenningsvagnar og vörubilar,
sem hingað koma, séu smiðaðir
sérstaklega fyrir isienzkar
aðstæður og henti óviða annars-
staðar.
UMRÆÐURNAR
„GAGNLEGAR”
„Umræðurnar voru gagn-
legar og báðir aðilar hafa lýst
yfir þvi, að þeir séu reiðubúnir
til að halda þeim áfram sið-
ar”, sagði Hannes Jónsson,
blaðafulltrúi rikisstjórnarinn-
ar, vera það eina sem sagt
yrði að svo stöddu um við-
ræðurnar um landhelgismálið
við brezku sendinefndina, sem
var hér stödd fyrir skömmu.
Fréttastofan AP hefur það
hinsvegar eftir formanni
sendinefndarinnar, að um-
ræðurnar hafi borið talsverð-
an árangur.
Ekkert vildi Hannes segja
um þá staðhæfingu, islenzk
stjórnvöld hefðu ákveðið að
segja ekkert um gang við-
ræðnanna að svo komnu máli.
,A MEDAN MADUR DREGUR ANDANN’
„Það er nú ekki öll von úti
meðan maður dregur andann”,
sagði Stefán Runólfsson i Vest-
mannaeyjum þegar við ræddum
við hann um vertiðina i gær.
Og það kom reyndar úr kaf-
inu, að iaugardagurinn siðasti
var bezti dagurinn á vertiðinni
til þessa, og inenn voru að gera
sér vonir um, að aflinn væri eitt-
hvað að glæðast.
En um hrotu verður varla að
ræða, mönnum finnst óliklegt að
hún láti sjá sig úr þessu.
Páskahrotan kom aldrei, og
aflinn hcfur verið sáralitill fram
að laugardcginum.
Ef aflinn fer hins vegar að
glæðast úr þcssu. er allt eins lik-
legt, að bátarnir haldi áfram
allt til vcrtiðarloka 15 mai. En
ef ástandiö breytist ekki til hins
betra, má vænta þess, að marg-
ir þeirra SO báta, sem stundað
hafa veiðar á vertiðinni, snúi
sér að öðrum veiðum.
Stefán sagði að vel hefði hald-
ist á fólki i landi þrátt fyrir afla-
leysið, þvi landfólkið færi betur
út úr aflatregðunni en sjó-
mennirnir. Það gerir bónus-
kerfið, sem nú er unnið eftir i
ölluni fiskvinnslustöðvum. Nýt-
ing hefur verið nokkuð sæmileg
á fiskinum i vetur, og meiri
hlutinn farið i 1. flokk. Þó hafa
komiö tímar þegar tið var rysj-
ótt, og netafiskurinn þá flokkast
vcrr.
Tveir bátar berjast um efsta
sætið á vertiðinni, i Eyjum llug-
inn og Andvari. Þegar siðasta
aflaskýrsla var gerð, var Hug-
inn kominn með 724 Iestir cn
Andvari fylgdi fast á eftir með
721 lest.
★
Það var hcldur dauft hljóðið i
Guðmundi Sigurðssyni á vikt-
inni i Þorlákshöfn, er blaöiö
spurðist fyrir um aflabrögð
Þorlákshafnabáta i gær.
Hann sagði að smá vonar-
neisti hefði komið siðasta
laugardag, þegar nokkrir bátar
fengu reitingsafla, en i gærvirt
ist allt sækja i sama farið aftur.
Hæsti háturinn, sem hafði til-
kynnt um afla i gær, var með 24
tonn, tveggja nátta, og nokkrir
voru með sáralitið.
Guðmundur sagði, að nú væri
fyrirsjáanlegt, að vertiðin yrði
mjög léleg hjá mörgum bátum,
þvi að engin hrota virtist ætla að
koma til þess að lyfta þeim upp i
tonnatölu.
Það sem af er vertiðinni, eru
aðeins átta Þorlákshafnarbátar
búnir að fá 500 lcstir og þar yfir.
Búrfell hefur fengið 68G tonn,
Ingvar Einarsson 678, Friðrik
Sigurðsson 644, og Brynjólfur
582 tonn.
Gæftir hafa verið góðar hjá
Þorlákshaf narbátum undan-
farna daga, en allt kemur fyrir
ekki. — .
„Hrotuvonin er nú farin að
dvina meira og meira,” sagði
Jón Júliusson, vigtarmaður i
Sandgerði, þegar við höfðum
samband við hann i gærkvöldi.
Aflinn glæddist heldur I þrjá,
fjóra daga fyrir siðustu helgi, og
fékkst reytingsafli.
Stærstur straumur var ein-
mitt um þetta leyti, og bundu
menn vonir við, að aflinn glædd-
ist með honum.
Sú von brást þó, og þeir veta-
bátar, sem höfðu landað um sjö-
leytið i gærkvöldi, voru með 11
og 18 lestir af tveggja ngtta
fiski. *
Mun tregara er á linunni, og
togbátar hafa aflað litið, þó ætla
Framhald á bls. 4
VESTMANNAEYJAR - ÞORLÁKSHÖFN - SANDGERÐI