Alþýðublaðið - 26.04.1972, Side 3
LOKAST HRIHG-
VEGURIHN FYRIR
ÞjÓOHÁTIDIHA ?
Ekki vildi Helgi Hallgrimsson
hjá Vegagerðinni fullyrða i gær,
er Alþýðublaðið hafði samband
við hann, að íbúar á Kirkjubæjar-
klaustri og nærsveitum geti sótt
þjóðhátíð þeirra Hornfirðinga
sumarið 1974. Svo nákvæmlega
sagði hann ekki vera búið að
ákveða, hvenær lokið verði við
vegarlagninguna yfir sandana.
Hinsvegar er þessa dagana að
ljúka ýtuvinnu yið 5,2 km kafla á
Stjórnarsandi, fyrir austan
Kiaustur, sagði Steingrimur
Ingason hjá Vegagerðinni, og i
sumar á að ljúka við upphleyptan
6,5 m. breiðan veg allt austur að
Núpsstað.
Það verða lika heilmiklar
framkvæmdir við brúargerð i
sumar. Helgi Hallgrimsson sagöi
að lokið verði við fjórar nýjar
brýr, og sú fimmta endurbyggð,
fyrir vestan sandana, en vestast á
sandinum verði lokið að mestu
leyti við fimmtu brúna.
Næsta sumar verða síðan reist-
ar þrjár stórar brýr á söndunum
sjálfum, og ein minni, þannig að
samtals verður að reisa átta
nýjar brýr til þess að ljúka hring'-
veginum.
Auk þess er gifurleg vinna við
byggingu varnargarða, auk vega-
lagningarinnar sjálfrar, sem
hclzt væntanlega nokkuð i hendur
við brúargerðina.
Stöðugt er nú unnið að úr-
vinnslu athugana þeirra sem
gerðar voru i Skeiðarárhlaupinu,
og sagði Helgi Hallgrimsson
niðurstaðanna að vænta von
bráðar. En hann sagði i viðtali við
Alþýðublaðið fyrir skömmu, að
hann áiiti þá útreikninga sem var
búið að gera fyrir hlaupið, vegna
vegagerðarinnar yfir sandana,
standast nokkurn veginn.
102 MILUONIR
A fundi stjórnar Iðnþróunar-
sjóðs i fyrradag, voru samþykkt-
ar tillögur um lánveitingar að
upphæð alls 102 milljónir króna.
Hefur stjórn sjóðsins frá upphafi
ráðstafað 504,3 milljónir króna.
1 stjórn Iðnþróunarsjóðsins
eiga sæti fulltrúar frá öllum
Norðurlöndunum, formaður er
dr. Jóhannes Nordal.
2—1x2
(16. leikvika — leikir 22. april 1972.)
Úrslitaröðin: 1X2 — 11X — ÍXX — 212
1. vinningur: 11 réttir — kr. 65.500.00
nr. 2169
2850
8505
41166
76537
85037
2. vinningur: 10 réttir — kr. 2.200.00
nr. 842 nr. 16516 nr. 31594 + nr. 49169 nr. 73690
- 2516 - 18222 - 34273 - 59082 - 75533
- 6705 - 18435 - 35910 + - 59139 - 75912 ■
- 7872 - 19076 - 36823 - 60258 + - 76501
8068 - 19588 + 38704 - 60343 + - 77346 +
- 9213 - 24052 39121 - 63758 - 77626
- 10312 + - 24754 - 40555 - 64037 + - 77874
- 10823 - 27353 - 41124 - 64363 - 81716 +
- 11943 - 27742 42098 - 66001 - 82076 +
- 12089 - 28099 - 42554 - 66122 - 82106 +
- 12576 - 28319 - 43773 - 68122 • - 84704
- 12921 - 29642 - 44564 • - 68463 - 87009
- 13612 - 30118 - 46372 - • 71372 - 87554 +
- 13622 - 30952 - 46809 - 72662 - 87768
- 14277 +
+ nafnlaus
Kærufrestur er til 15. mai. Vinningsupphæðir geta
lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir
16. leikviku verða póstlagðar eftir 16. mai.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
heimilisfang til getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR —Iþróttamiðstöðin — REYKJAVIK
auk o-tual annara
S‘txí>r\^irAoirYo^
* ÍBÚD
1 millján
* 10 BÍLAR m.a.
MERCEDESBENZ
900 þós.
*
Kjörorð næsta Fjórðungsmóts
sunnlenzkra hestamanna, sem
verður haldið að Hellu dagana
30. júni til 2. júli, verður ,,Með
frelsi i faxins hvin”. Ilesta-
mannafélagið Geysir sér um
framkvæmdir á mótsstað, og er
ætlunin að koma upp m.a. 900
metra langri löglegri hring-
braut ásamt ýmisskonar fyrir-
greiðslu, sem miðar að bættri
aðstöðu á mótssvæðinu.
Alls standa 14 hestamannafé-
lög, af svæðinu frá Hvalfjarðar-
botni og austur fyrir Lómagnúp,
að mótinu, og er hugmyndin, að
hvert félag sendi 22 hestamenn
til að taka þátt i hópreið i upp-
hafi mótsins.
Þá verður háð gæðingakeppni
og sýning á kynbótahrossum. t
þeirri sýningu er gert ráð fyrir
allt að 120 hrossum, og munu
þrir dómnefndarmenn ferðast
um félagssvæðið dagana 15. mai
til 15. júni til að velja hross i þá
sýningu.
Ekki hefur enn verið ákveðin
cndanleg tilhögun kappreiða, en
þó er ákveðið, að keppt verði i
800 metra stökki, 250 m. fola-
hlaupi, 250 m. skeiði, tveggja
km. þolhlaupi, kerruakstri,
hindrunarhlaupi og tveggja km.
brokki.
Búnaðarfélag tslands veitir
aðalverðlaun samkvæmt lögum
þar um, en auk þess hafa ýmsir
aðilar ákveðið að veita verðlaun
fyrir kynbótahross. Verðlaun,
sem greidd verða i peningum,
verða samtals kr. 200 þúsund,
en hæstu verðlaun kr. 30 þús-
und, en þau verða veitt fyrir 250
m. skeið og tveggja km. þol-
hlaup.
Samið hefur verið um hagbeit
með vörzlu, og einnig skipulögð
tjaldstæði mcð rennandi vatni
og vörzlu.
Dansleikir verða haldnir öll
kvöldin að Hvolsvelli og Arnesi,
en sérstakir dansleikir fyrir
hestamenn á föstudags- og
laugardagskvöld, þar sem
spilaðir verða gömlu dansarnir.
50 KRðFUSPJOLD UM
50 MÍLUR 1. MAÍ!
Landhelgismálið verður mál
dagsins i kröfugöngu og útifundi
verkalýðsfélaganna 1. mai, sem
er á mánudaginn kemur og verða
öll önnur mál lögð á hilluna. Fyrir
kröfugöngunni verður borið skilti
með tölunni 50, og þarf ekki
minna en átta menn til að valda
þvi. Síðan verða minni 50 spjöld
með sömu áletrun borin viðsveg-
ar i göngunni.
,,Með þessari ákvörðun vill
verkalýðshreyfingin i höfuð-
borginni undirstrika einhug sinn
og þjóðarinnar allrar I mesta lifs-
hagsmunamáli islenzku þjóðar-
innar”, segir i fréttatilkynningu
frá Fulltrúaráði verkalýðsfélag-
anna, sem blaðinu barst i gær.
A skrifstofu fulltrúaráðsins var
okkur tjáð, að ekki væri búið að
ganga frá smáatriðum i dag-
skránni, t.d. var ekki búið að
ákveða hverjir héldu ræður á úti-
Blaðinu barst i gær tilkynning
frá landlækni þess efnis, að
Egyptaland krefjist bólusetn-
ingarvottorðs af öllum ferða-
mönnum sem til landsins koma.
fundinum, sem haldinn verður i
miðbænum að kröfugöngunni
lokinni.
Þó bárust okkur til eyra ýmsar
flugufregnir, m.a. að i kröfugöng-
unni eigi að aka vörubil, en á palli
hans verði hópur söngmanna.
Ekki vitum við hvað þeir ætla að
syngja, en sennilega verða það
einhverjir bar á ttusön g va r,
tengdir verkalýðshreyfingunni og
landhelgismálinu.
AÐEINS HÆKKANIR
UM STUNDAR SAKIR
Nú eru i gangi i kvikmynda-
húsum borgarinnar tvær kvik-
myndir, þar sem aðgangur er
seldur á nokkuð hærra veröi en
verið hefur að bióhúsum undan-
farið. Eru þetta myndirnar
MASH i Nýja biói, og A hverf-
anda hveli i Gamla biói.
Alþýðublaðið hafði i gær sam-
band við skrifstofu verðlags-
stjóra og spurðist fyrir um það,
hvort kvikmyndahúsunum hefði
almennt verið heimilað að
hækka aðgöngumiðaverð. Var
blaðinu tjáð, að svo væri ekki,
miðaverðið væri óbreytt.
Ilins vegar veitir verðlags-
stjóri i einstaka tilfelli undan-
þágu til hækkunar. Er þá um að
ræða myndir, sem dýrar eru i
innkaupi, cða þá myndir, sem
eru óvenju langar. Falla tvær
fyrrnefndu myndirnar inn i
þessa flokka.
Miðvikudagur 26. april 1972
o