Alþýðublaðið - 26.04.1972, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 26.04.1972, Blaðsíða 11
Kross- gátu- krílið S V/r/» 5 BtNN _ // Fosr TfEPT 7 fl£rr ffRbRL. Qí. //<•//? RTORKU 5//viv/ v- £YÐ,Nq 5 3 UNUH /tí/S'b/ HjfíRK GfíuN 8 fl *» TO/VS/ L£/K VUG LE&UR X rúkr DRYRK fnfELlR Öl7/</R Bj'anr ) flÐfiLE FR.0 7 KOfffl / mvvR 'oXflfUR SRyTj\ flR. v /0 6 // TK£ LTIOLORÐ* R£HHVoTUR ■ • • • • 3> • • • \n * Xi ^ Qn i> ^ cr> ------\ S cn ^ \Jj r-o>Lo • Si ^ X r- ■ í- ■ t" o *í • *> i> * r~ c Q> ^ :t> /Q rfc Á Vi m r Víl 1Á1 nui NNAI R eftir U Arthur lm Mayse 33 ,,Vertu ekki að kalla mig þetta, fjandinn hafi það!” Nú yrðu ekki fleiri dagdraumar um fleka, sem ennþá var ekki búið að smiða, né um áningarstað, sem öldungis óvist var, að þau næðu nokkurn tima til. í þessari fjallsskriðu gætu svona fall boðið dauðanum heim. Hann benti Linn að ganga fremst. Hún gekk varlega, ýtti verstu runnunum frá honum, varaði hann við erfiðum stöðum og studdi hann. þegar með þurfti.Þeim miðaði vel áfram. Lækurinn breyttist smám saman og varð að miklu vatnsfalli. Stundum voru þau svo heppin að rekast á malar- breiður og gátu þá komizt áfram án mikillar fyrirhafnar. Mike stanzaði næst, þegar þau voru á einni af þessum malarbreiðum. Þeim hafði miðað að minnsta kosti þrjú hundruð metra i viðbót og voru komin fram hjá þokubakkanum. 1 stað þokunnar var nú komin úðarigning, sem var næstum eins fin og þokan. Hérna á hálendinu i svona veðri gat dug- legur maður sætt sig við bleytuna með þvi að imynda sér vermandi eld og hlýtt skýlið, sem beið hans um kvöldið. Hér dugðu engin regnföt. Annað hvort rifnuðu þau og slitnuðu eða urðu næstum vot- ari á innra borðinu. Svo að ef maður var heilbrigður og hress, þá treysti maður á sitt eigið hörund og lét veðrið lönd og leið. Þetta var nokkuð, sem hann hafði lært af Ves Jones. En hjá særðum manni leit málið öðru visi út. Það varð að reyna að verja hann gegn rakanum. Halsted hafði neitað harðlega, siðast þegar þau stönzuðu, að hafa plasthúfuna hennar Linn á höfð- inu, og hann hafði mótmælt, þegar Mike klæddi hann i rykfrakkann hans, sem var fóðraður! Nú sat hann á jörðinni með bakpokann við bakið og reykti hálfblauta sigarettu, sem hann hafði geymt frá sið- asta áningastað. Vatnsþéttur jakkinn var honum allt of stór. Hann minnti Mike á gamla indiánakerl- ingu, sem situr tómlát i öllum pilsunum sinum og virðir fyrir sér ungu mennina, þar sem þeir eru að veiða lax með spjótunum sinum. ,,Jæja, pabbi, hvers vegna gerir þú okkur ekki ónæm fyrir bleytunni” sagði Mike. ,,Það er jú i þin- um verkahring að fást við þessháttar”. ,,Það mundi nú verða erfitt. Ef ég nokkurn tima kemst lifs af frá þessu, þá skal ég kenna þér að hætta að kalla mig pabba! Hvað um dálitinn 'sjúss?” „Spurðu hana”. ,,Hvað segir þú um það, Linny?” „Ákveðið nei, Morg. Ég held að þú hafir alls ekki gott af þvi að fé þér vin”. „Æ farðu i rass og rófu”, sagði pabbi hennar ergi- legur. Linn sat flötum beinum. Hún virtist ekki á þvi að gefast upp, hún var bara i vondu skapi. Mike teygði sig eftir indianaskónum, sem bilaður var, og fór að gera við hann. Það var stórt gat á öðrum sokknum hennar eftir gönguna. „Ertu með blöðrur?” „Nei”. „Félagi minn, Ves Jones, hafði þær minnstu gæt ur, sem ég hefi nokkurn tima séð á karlmanni. Not- aði skó númer fimm, að mig minnir. Hann var aldrei i sokkum, hvorki á vetrum né sumrum. Hannn var vanur að smyrja fitu á fæturna á sér. Sagði að það héldi þeim heitum. „Það hefur án efa verið bjarnarfita”, sagði hún kuldalega. Þessi orð voru eins og galdraþula. Mike sagði lágt við þau bæði: „Verið kyrr. Hreyfið ykkur ekki. Við höfum fengið félagsskap”. Stúlkan gaut hornauga til hans og hlýddi. „Þarna er stórt bjarndýr, og það horfir á okkur”, sagði Mike. „Sitjið kyrr, þá fer það liklega”. Þetta var frekar óskhyggja en vissa. Hann óttaðist grá- birni. Þeir voru algjörlega óútreiknanlegir, alveg eins og dýnamit, sem legið hefur of lengi ónotað. Hann gat greinilega séð höfuð dýrsins gegnum runnana. Litil augun, stutt eyrun og trýnið. Hann var naumast þrjátiu metra frá þeim. Hann bað þess i hljóði, að bjarndýrið risi ekki upp á afturfæturna til þess að sjá betur. Við þá sjón gæti maður auð- veldlega fengið taugaáfall. UNGIR MENN FRÁ CHICAGO lif piltanna Illinois-riki og meiri- hluti fólks sem heimtaði þá hengda, eða Clarence Darrow, lögfræðingurinn, sem aldrei hafði tapað máli? Þegar Leopold og Loeb voru leiddir inn, voru þeir spenntir og taugaóstyrkir. Glettni þeirra og sjálfsánægja voru horfin. Það rikti djúp þögn meðan dómarinn, Robert Caverly, las upp úrskurð sinn: —t ljósi hinnar almennu og óvenjulegu athygli, ekki aðeins i þessu samfélagi, heldur i öllu landinu og jafnvel utan marka þess, þykir réttinum það skylda sin að færa rök að þeirri ákvörðun, sem hann hefur tekið. —Það er ekki óalgengt að menn lýsi sig seka i glæpamálum, en næstum án undantekningar hefur það verið gert með óformlegu samkomulagi milli sakborninga og saksóknara, þar sem sak- sóknarinn hefur i krafti þeirrar yfirlýsingar hyllzt til að mæla með þeirri refsingu, sem hann álitur hæfilega og ef engar sér- stakar ástæður eru fyrir hinu gagnstæða, er það venja i rétti að taka slikt til greina. — 1 málinu, sem nú er til með- ferðar horfir öðruvisi við. Sekt hefur verið lýst yfir án þess að áð- ur hafi verið haft samband við ákæruvaldið og án þess að það hefði hugmynd þar um. Þar að auki hefur sektaryfirlýsingin i þessu ákveðna máli gert ákæru- valdinu erfiðara fyrir vegna þess að hér var ekki um að ræða óvissa og erfiða sönnunarkeðju. Hér hafði ákæruvaldið i höndunum, ekki aðeins grundvallar- staðreyndir málsins, heldur einnig sjálfviljugar játningar sakborninganna. Þessvegna gerir sektaryfirlýsingin þetta ekki að einu sérstöku máli þeim i hag. — Bæði málin, mor'ð og mann- rán til lausnargjalds voru þannig vaxin að þau lögðu réttinum á herðar val um refsingu, var það þvi skylda hans samkvæmt lög- um að yfirheyra vitni til aukning- ar refsingar og mildunar fyrir vörnina. Þessari skyldu hefur verið fullnægt. Lögfræðingar ákæruvaldsins og varnarinnar komu sér saman um að vitnis- burður i morðmálinu gilti einnig fyrir mannránsmálið. Þar að auki hefur sérstakt mál verið höfðað að forminu til vegna mannránsins. — Yfirheyrslur vitna I þessu máli hafa á allan hátt verið eins itarlegar og faglegar og þær hefðu farið fram fyrir kviðdómi, það hefur verið kynnt almenningi svo rækilega og hann er svo kunn- ugur öllum málsatvikum, að ég tel enga þörf á að rekja það hér —Meðþvi að lýsa sig seka, hafa sakborningarnir viðurkennt lög- formlega ábyrgð sina á verknað- inum. Vitnaleiðslur hafa fullnægt réttinum i þvi tilviki, að ekki hefði verið hægt að byggja vörnina á brjálsemi, eins og hún er ákveðin i lögum þessa rikis og túlkuð fyrir rétti. —Rétturinn finnur sig samt sem áður knúinn til að minnast' stuttlega á þau gifurlegu gögn, sem safnast hafa um likamlegt, sálarlegt og siðferðilegt ástand ■ hinna tveggja sakborninga. Sýnt hefur verið fram á að i mikils- verðum atriðum eru þeir ekki það sem kalla má eðlilegir (normal). Hefðu þeir verið eðlilegir hefðu þeir ekki framið glæpinn. Það er ekki i verkahring þessa réttar, né heldur hefur mannkynið náð þvi stigi þróunarinnar að geta dregið ákveðin og endanleg mörk mann- legrar ábyrgðar gagnvart verk- um sinum. —Samtimis er rétturinn reiðu- búinn að kannast við, að hin vandlega rannsókn, sem gerð hefur verið á æviferli sakborning- anna og núverandi sálrænni, til- finningalegu og þjóðfræðilegu stöðu þeirra, hefur verið gifur- lega áhugaverð og er dýrmætur skerfur til glæpafræðinnar. Samt hefur rétturinn sterka tilfinningu fyrir þvi að álika rannsóknir, gerðar á öðrum persónum sökuðum um glæpi muni ef til vill leiða i ljós, svipaðan, eða frá- brugðinn afbrigðileik. Verðleikar slikra prófa, virðast falla að þvi, hvernig þeir falla að glæpnum og glæpamönnunum yfirleitt. —Siðan þeir virðast varða hina viðtæku spurningu hinnar mennsku ábyrgðar og lögform- legrar refsingar má veraað þessi atriði varði löggjarvaldið, en ekki yfirvegun dóms i réttarsal. Af þessari ástæðu telur rétturinn að þessi spurning hafi ekki áhrif á úrskurð hans i þessu máli. —Vitnaleiðslur i þessu máli af- hjúpa einstaklega grimmúðlegan glæp. Hann er á sinn hátt óútskýranlegur, en er ekki þar fyrir minna ómannúðlegur og andstyggilegur. Það var stefnt ákveðið að honum og hann skipu- lagður og undirbúinn um tals- verðan tima og hann var fram- kvæmdur af hinni mestu fólsku og grimmd. Og , hér vill rétturinn taka fram, ekki til að draga úr sekt, heldur til að leiðrétta mis- skilning, sem virðist hafa festst i hugum almennings, að hann er sannfærður um að engin ákveðin sönnun er fyrir þvi að likama hins myrta hafi verið kynferðislega misboðið. —En þess þurfti ekki með til þess að gera glæpinn andstyggi- legan öllu mannlegu eðli. Rétturinn getur ekki i sjálfum verknaðinum, né tilgangi hans eða tilgangsleysi eða uppruna sakborninganna, fundið neinar mildandi aðstæður. —Fyrir morð og mannrán til lausnargjalds gefa lögin völ á eftirfarandi refsingum: —Um refsingu fyrir morð segir i lögunum „Hver sá sem er sekur fundinn um morð skal þola dauðarefsingu, eða fangelsisvist það sem hann á eftir ólifað eða ekki skemur en fjórtán ár. Sé hinn ákærði fundinn sekur af kvið- dómi, mun hann ákveða refs- ingupa með úrskurði sinum. Þegar sekt er lýst yfir skal rétt- urinn ákvarða refsingu.” —Um mannrán til lausnar- gjalds segir i lögunum: „Hver sá, sem fundinn er sekur um mann- rán til lausnargjalds skal þola dauðarefsingu, eða lifstiðar- fangelsi, eða fangelsisvist ekki skemmri en fimm ár.” —Þegar sekt er lýst yfir hvilir Sögufræg sakamál - Miðvikudagur 26. april 1972 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.