Alþýðublaðið - 09.05.1972, Blaðsíða 4
Sinfóníuhljómsveit Islands
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtud. 11. mai kl. 21.00
Stjórnandi Bohdan Wodiczko.
Einleikari Sidney Sutcliffe óbóleikari frá Bretlandi.
Flutt veröa verk eftir Vivaldi/Bach, Cimarosa, Rawst-
horne, Respighi og Stravinsky.
Aðgöngumiðar i bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg
og Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti.
Aðvörun til húsasmíðameistara
Að marggefnu tilefni eru húsasmiða-
meistarar og aðrir atvinnurekendur tré-
smiða alvarlega áminntir um að standa
skil á iðgjaldagreiðslum til lifeyrissjóðs
byggingamanna.
Trésmiðafélag Reykjavikur.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok. á Volkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar
Skipholti 25, Simar 19099 og 20988.
■ Við velium minlal
' það borgar sig
millbl - OFNAR H/F.
4 Síðumúla 27 . Reykjavík
Símar 3-55-55 og 3-42-00
MEIDDUST____________________12
frá Arnagarði átti að stöðva
hann ■
■ þvi skyni stökk einn mótmæl-
enda upp á bilinn -Brá lögreglu-
maðurinn, sem var óeinkennis-
klæddur, hart við og greip til
hans.
En svo illa tókst til, að við þetta
tognaði hann injög illa á öðrum
fæti og hefur þvi verið frá vinnu
frá þvi mótmælin fóru fram.
Annar lögregluþjónn fékk einn-
ig heldur óbliðar viðtökur, þegar
hann ætlaði að stöðva mótmæl-
anda.
Hann hafði ekki fyrr gripið til
hans, cn hann fékk duglegt spark
á milli fótanna.
Leið hann miklar kvalir og var
frá vinnu þann dag allan.
Sá þriðji hlaut minnst meiðsli.
Varð hann fyrir stórum steini,
semkastað var að lögregluliðinu.
SKÁKEINVÍGID________________12_
sambandsins, og ljóst er að ráða
verður sérstaka starfsmenn til
þess að annast undirbúning ein-
vigsins.
Það sem mest er aðkallandi
þessa stundina er útvegun gisti-
rýmis fyrir þá erlendu ferða-
menn, sem hingað koma vegna
einvígisins, og svo nauðsynlegar
breytingar og endurbætur á
keppnisstaðnum, Laugardals-
höllinni.
Asgeir sagði, að Skáksamband-
ið trycsti mjög á almenning i
sambandi við gistirýmið, enda
heföu margir óskað eftir því að
gista á einkaheimilum. Þá kæmi
einnig til greina að hingað kæmu
skemmtiferðaskip full af farþeg-
um, og dveldu hér þann tima sem
einvigið stendur yfir, cða þá ein-
livern hluta þess.
Kvaðst Asgeir ekki efast um, að
auðvelt yröi aö fylla slík skip,
cinkum þó i Rússlandi og Banda-
rikjunum.
Margt stórmenna mun eflaust
gista ísland meðan á einviginu
stendur, einkum þó stórmenni úr
skákheiminum. tsland hefur
mjög verið i sviðsljósinu vegna
cinvigismálanna, og skákþættir
erlcndra blaða hafa vcriö uppfull-
ir af vangaveltum um einvigið.
Að sögn Asgeirs, taldi Skák-
sambandið ekki ástæðu til þess að
krefjast tryggingar af keppend-
um, það væri alltaf hægt aö krefj-
ast skaöabóta ef eitthvað færi úr-
skeiöis.
HOFSJÚKULL 1
inu fremur en hin tvö fyrri skiptin
þegar það var tollskoðað i
Reykjavik.
Þegar skipið kom svo hingað til
lands frá Murmansk fyrir
skemmstu kom það að landi á
Seyðisfirði. Voru þangað komnir
tveir tollverðir úr Reykjavik, og
voru þeir „munstraðir” á skipið,
eins og sagt er þegar tollverðir
sigla mcð þvi til Iteykjavikur, og
var allt vélarrúmið grandskoðaö,
svo og aðrir staðir I skipinu, en
ekkert fannst fremur en fyrri
daginn.
Er blaðið ræddi við Ólaf Jóns-
son tollgæzlustjóra og innti hann
eftir þessari leit sagði hann að
ckki heföi verið um raunverulega
tollskoðun að ræða, tollþjónarnir
hefðu aö visu grandskoðað skipið,
einkum vclarrúmið, en Tremur til
að átta sig á ýmsu hugsanlegu
geymslurými I vélarrúmi. -
K 0 L 0 K
Merki sem hægt er að
treysta.
☆
KOLOKFILM ekta kalkipappir
fyrir vélritun.
Smitar ekki — hrein afrit
hrein frumrit.
☆
KOLOK LETURBORDAR I allar
tegundir rit- og reiknivéla
Superfine — Silki — Nylon
☆
Litir: Svart - Blátt - Grænt
Brúnt - Svart/rautt
Blátt/rautt
☆
KOLOK PLASTIC FILM
leturborðar fyrir I.B.M. vélar.
☆
Biðjiö um KOLOK vörur.
Orvalsvörur á hagstæðu verði.
HEILDVERZLUN
AGNAR K. HREINSSON
Sími 16382 — Bankastræti 10 — Pósthólf 654
MÆLSKULIST____________________1
Peningana sina myndi hann
aldrei láta af hendi.
Ræningjarnir misstu við þetta
kjarkinn og sneru burt.
Þegar blaðamenn spurðu Prox-
mire hvort eitthvaö amaði aö
honum, þá hristi hann aðeins
höfuðið.
— Ég skokka oftast þessa átta
kílómetra á skrifstofuna og ég hef
aldrei verið við betri heilsu en nú,
sagði hann.
KRINGUM JÚRÐINA 3
hákarlsbit á hægri handlegg, og
lá i óráði um tíma.
Sylvia varð þvi að sjá um
stjórn bátsins, auk þess sem hún
þurfti að hjúkra Fairfax .
Um tíma var haldið að bátur
þeirra hefði farizt i miklum
stormum sem geysuðu á Kyrra-
hafinu i marz og apríl, en um
miðjan april kom bátur þeirra
fram í Astraliu, nokkru seinna
en búizt var viö þeim
„Sylvia bjargaði lifi minu, á
þvi er enginn vafi, og ég dái
þessa stúlku takmarkalaust”,
sagði Fairfax,þegar þau stigu á
land.
Og nú, aðeins mánuði eftir
þessa erfiðu róörarferð, ætlar
hinn 34 ára gamli ævintýra-
maður enn að leggja á sjóinn, og
nú þarf hann 10 stúlkur i stað
cinnar áður.
Sylvia Cook fer þó örugglega
ekki meö honum í þessa ferð,
þvi hún fékk sig fullsadda á
sjónum. Hún hefur mestan
áhuga á þvi þessa stundina að
hvilast —og gifta sig síðan meö
timanum.
En John Fairfax er ekki rétta
mannsefnið að hennar dómi ,
hann er of mikill flakkari i eðli -
sínu.
TQGARINN______________________12
aðeins fengið litlar fregnir um
óhappið, og leituðu þeir þvi til
Slysavarnarfélagsins um frek-
ari upplýsingar.
Togarinn Sundaberg var frá
Klakksvfk i Færeyjum, og bar
hann einkennisstafina KG 336.
Hann var 623 tonn að stærð,
smiöaöur áriö 1952.
Tilkynning til
Kópavogsbúa
og annarra
Að gefnum tilefnum, tilkynnist hér með að
óheimilt er að henda lifrænu sorpi á hafn-
arfyllinguna á Kársnesi. Þeim, sem þurfa
að koma frá sér úrgangi (sorpi), er bent á
sorphaugana sunnan Hafnarfjarðar, en
leiðin þangað liggur frá Keflavikur* vegin-
um á Krisuvikurveg nokkurn spöl að
merktum vegi á vinstri hönd, sem liggur
að sorphaugunum.
HEILBRIGÐISNEFND KÓPAVOGS
HEILBRIGÐISFULLTRtJlNN
Útboð —
íþróttahús
Tilboð óskast i að byggja iþróttahús i
Garðahreppi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Garðahrepps, Sveinatungu v/Vifilsstaða-
veg, frá 10. þ.m. gegn kr. 10.000- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, föstu-
daginn 9. júni n.k. kl. 11.00.
SVEITARSTJÓRINN í GARÐAHREPPI
Þriðjudagur 9. maí 1972