Alþýðublaðið - 16.09.1972, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.09.1972, Blaðsíða 1
HREINSUÐU KOPARINN ÚR ÞREMUR TRILLUM! Tveir piltar. 16 og 17 ára, gengu svo hart að þrem trillum i koparleit sinni. að þær eru allar ósjófærar eftir og eru bóta- kröfur miklar. Það var i siðustu viku, sem piltarnir fóru niður i Óseyrar- fjöru við Hafnarfjörð. en þar voru trillurnar. Þeir hafa haft með sér nóg af verkfærum, þvi þeir söguðu skrúfurnar af þeim öllum! Siðan reyttu þeir allt verð- mætt utan af vélunum, slitu og rifu leiðslur, skrúfuðu eða sög- uðu af krana, og höfðu yfirleitt allt koparkyns með sér úr trill- unum. Auk þessa söguðu þeir sundur öxlana við vélarnar. Rannsóknarlögreglan i Hafn- arfirði komst brátt á slóð pilt- anna þar sem þeir voru að reyna að koma góssinu i verð. Við handtöku játuðu þeir á sig verknaðinn. og gátu skilað meirihluta þýfisins aftur. en tjónið er samt sem áður mjög mikið. — Á myndinni er nokkuð af þýfinu. íslands. TVO HVALVEKII- SKIP TIL LAND- HELGISGÆZLU Tekin leigunámi, samningar tókust ekki við eigendurna Nú hefur rikisstjórnin ákveðið að taka leigutaki um óákveðinn tima tvö af hvalveiðiskipum Hvals h.f. til að styrkja varnir landhelginnar. Þar sem gerð hafði verið árangurslaus tilraun til þess að semja við eigendur skipanna um leigu á þeim, var talið nauðsynlegt, að gefa út bráðabirgðalög um leigutak skip- anna, en fyrir kemur fullt endur- gjald fyrir afnotin, eftir mati dómkvaddra manna. Ólafur Johannesson, dóms- málaráðherra, gaf út þessi bráðabirgðalög á miðvikudaginn, staðfest af forseta íslands. í fréttatilkynningu um bráða- KALLAÐIR FYRIR AFTUR Rannsókn Hamranessmálsins er nú enn á ný komin i fulian gang eftir að „lykilmaðurinn” Rúnar Þórisson, fyrrverandi stýrimaður togarans, kom til landsins frá Færeyjum. Hann hefur verið yfirheyrður af fulltrúa bæjarfógetans i Hafnar- firði, og vegna framburðar hans hafa verið kallaðir fyrir þeir, sem sátu i gæzluvarðhaldi vegna málsins i sumar, auk nokkurra annarra. Fógetaembættið og rannsókn- arlögreglan i Hafnarfirði vinna nú að þvi að kanna réttmæti ým- issa atriða, sem fram hafa komið i framburði Rúnars. Við höfðum samband við Sigurð Hall Stefánsson, fíilltrúa fógeta i Hafnarfirði i gær, og kvaðst hann ekki geta skýrt frá framburði vitnisins á þessu stigi, þar sem nú væri verið að kanna réttmæti hans. KAÞÓLSKIR BISKUPJUt ÞINGA AD LOFTLEIDUM Kaþólskir biskupar Norður- landanna fimm halda fund á Hótcl Loftleiðum i Rcykjavik 12,- 2(1. þessa mánaðar. Þetta er fyrsti fundur biskupa Stokkhólms, Kaupmannahafnar, Helsingfors, Oslóar, Þrándheims, og Tromsö, sem haldinn er á is- landi. Fundurinn er haldinn i boði dr. Henriks Frehens, biskups ka- þólskra á islandi. i tilcfni fundarins syngja bisk- uparnir hátiðarmessu i Landa- kotskirkju kl. 10.30 á morgun. Siðar þann sama dag munu þeir fara til Bessastaöa i boði forscta birgðalögin segir m.a. að nauð- synlegt sé að efla Landhelgis- gæzluna að skipakosti við núver- andi aðstæður, og hentugustu skipin i landinu til þess séu hval- veiðiskipin. Skömmu eftir útfærslu land- helginnar i haust bárust fregnir frá erlendum fréttastofum þess efnis, að Landhelgisgæzlan hygð- ist taka hvalveiðiskip i notkun við gæzlu landhelginnar. en forráð- amenn gæzlunnar staðfestu þá frétt aldrei. Hafsteinn Hafsteinsson, blaða- fulltrúi Landhelgisgæzlunnar. sagði i viðtali við Alþýðublaðið i gær, að hann gæti ekkert sagt um þetta mál, þar sem hann vissi ekki hvort skipin yrðu tekin á leigu, þrátt fyrir bráðabirgða- lögin og þvi siður hvenær^ verði af þessu. Það er hins vegar ljóst, að bát- arnir hljóta að verða teknir til gæzlustarfa fyrst svo mikið lá á Framhald á bls. 6 ólympiuleikarnir ýttu að sjálfsögðu undir það, en annars var það mjög að færast i vöxt hjá vestur-þýzkum mæðrum, að þær tækju börn sTn nánast úr vöggunni og ýttu þcim á flot — og áður en nokkur vissi voru þau orðin flugsynd! Myndin er frá Köln. Þar mæla þeir með þvi að vatnið i lauginni sé þrjátiu gráða heitt og þar kváðu rollingarnir iðulega vera farnir að synda áður en þeir læra að ganga. BLEIU- TRIMM KRUATAR RÆNDU SAS-VÉL I GÆRDAG MED 90 MANNS Þrir vopnaðir Króatar rændu siðdegis i gær einni af þotum SAS flutfélagsins með 86 manns innanborðs og fjögurra manna áhöfn á flugleiðinni milli Gauta- borgar og Stokkhólms. Flug- ræningjarnir neyddu flugstjór- ann til að snúa til Málmeyjar og þar lenti vélin sem er af gerð- inni DC-9 og skráð i Noregi, laust eftir klukkan 16 að islenzk- um tima. Flugræningjarnir hafa krafizt þess, að sjö Króatar sem eru i fangelsum i Sviþjóð, verði látnir lausir. Tveir Króatanna eru dæmdir i ævilangt fangelsi fyrir morðið á ambassador Júgó- slava i Sviþjóð i april á fyrra ári. Króatisku flugræningjarnir halda farþegunum um borð i flugvélinni sem gislum og hafa hótað að sprengja vélina i loft upp með farþegana innanborðs innan átta klukkustunda, verði föngunum sjö ekki flogið i þyrlu til MSlmeyjar. Lögreglan umkringdi flug- vélina þegar eftir lendingu á Bulltofta flugvelli utan við Málmey. Olaf Palme forsætisráðherra Sviþjóðar kallaði rikisstjórn sina saman til skyndifundar i gærkvöldi vegna flugránsins. Þetta er i fyrsta sinn, sem flugvél i eigu SAS er rænt og jafnframt er þetta fyrsta flug- ránið á Norðurlöndum. Flugstjórinn um borð i vél- inni, semerskráð undir heitinu ..Gunder Viking” tilkynnti um ránið á sérstakri sendibylgju, sem aöeins á að nota vegna flugráns. Skömmu siðar fékk SAS i Kaupmannahöfn tilkynn- ingu um, að þrir farþeganna um borð hefðu ógnað áhöfn vélar- innar með skotvopnum. Þegar vélin var ient á flug- vellinum við Málmey, var einn farþegi sendur út úr vélinni til að flytja stjórnvöldum kröfur flugræningjanna. Um það bil 60.000 júgóslav- neskir verkamenn eru búsettir i Sviþjóð og er talið, að 10.000 — 15.000 þeirra séu frá Króatiu. Júgóslavnesk stjórnvöld og sænska öryggislögreglan telja, að öfgasamtök Króata, Ustasja, hafi flutt höfuðstöðvar sinar frá Vestur-Þýzkalandi til Sviþjóð- ar. •• Samtökin bera ábyrgð á fjöldamörgum mannránum og að minnsta kosti einu pólitisku morði i Sviþjóð. Morðið á júgóslavneska ambassadornum, Vladimir Rol- Framhald á bls. 6 FONGUNUM SLEPPT! SÍÐUSTU FRÉTTIR Olof Palme forsætisráðherra Sviþjóðar kunngcrði scint i gær- kvöldi, að rikisstjórnin hefði ákvcðið að láta króatisku fang- ana sjö lausa og flytja þá með þyrlum til Bulltofta flugvallar við Málmey. Tilkynningin kom um það bil klukkustund áðúr en frestur- inn, scm flugvélarræningjarnir höfðu veitt stjórnvöldum til að taka ákvörðun sina var liðinn. Rikisstjórnin tók ákvörðun sina cftir nokkurra klukku- stunda umræður. Þcgar blaöiö fór i prentun i nótt rikti nokkur óvissa um hvað gerast myndi, þegar fangarnir væru komnir til Málmeyjar, en Ijóst virtist, að sænska stjórnin myndi gera allt, sem i hennar valdi væri, til aö koma i veg fyrir, að króatisku ofbeldis- mennirnir sprengdu vélina i loft upp mcð 7!) farþega og 4 manna áhöfn innanborðs. Alls sjö far- þegum tókst að sleppa úr vélinni i gærkvöldi, áður cn ákvörðun rikisstjórnarinnar var kunn- gerð.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.