Alþýðublaðið - 13.10.1972, Qupperneq 5
alþýðul
aöiö
E
Alþýðublaösútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm-
ar Hverfisgötu 8-10. — Simi 86666.
Blaðaprent h.f.
TUITUGO ÞUS-
UHD MLUÖNIR
Rikisstjórn ólafs Jóhannessonar hefur nú lagt
fram annað fjárlagafrumvarp sitt. Að þessu
sinni gerir hún tillögur um útgjöld, sem nema
eiga tæpum 20 þúsund milljónum kr.
í fjárlagafrumvarpinu, sem rikisstjórnin
lagði fram i fyrra, námu útgjaldatillögurnar
tæpum 14 þúsund milljónum, en enduðu i rúm-
um 16,5 þúsund milljónum. Þannig jók rikis-
stjórnin útgjöldin um tvö þúsund og fimm
hundruð milljónir röskar á timanum sem leið
frá þvi frumvarpið kom fram og þar til það var
afgreitt. Miðað við þá reynslu má sjálfsagt bú-
ast við þvi, að útgjöldin verði aukin upp i tals-
vert miklu meir en þær 20 þúsund milljónir, sem
frumvarpið gerir ráð fyrir nú,- og þykirflestum
sú útgjaldaupphæð þó ærin.
Árið 1971 — siðasta árið áður en rikisstjórn
Ólafs Jóhannessonar fór að ráðskast með fé
landsmanna námu útgjöld rikissjóðs u.þ.b. 11
þúsund milljónum króna. Nú — tæpum tveim
árum siðar — er gerð tillaga um 20 þúsund
milljóna útgjöld. Aukningin á þessum tveim ár-
um nemur hartnær 100% og ef miða má við
reynslu siðastliðins árs af fjárlagagerð
stjórnarinnar, þá mun útgjaldaaukningin nema
meiru en 100% þegar öll kurl eru komin til graf-
ar. Er þetta sú hagsýni og sú gætni i f jármálum,
sem Halldór E. Sigurðsson var alltaf að tala um
á meðan hann var helzti talsmaður þáverandi
stjórnarandstöðu i rikisfjármálum? Er þetta
sparnaðurinn, — að tvöfalda eyðsluna á tveim
árum?
Og hvað ætlar rikisstjórnin svo að gera við
alla þessa peninga, — allar þær tuttugu þúsund
milljónir, sem hún ætlar að hafa i tekjur af
landsmönnum á næsta ári?
Á að nota eitthvað af þvi fé til þess að halda
vöruverði niðri og verðbólgu i skefjum? Nei!
Þvert á móti er gert ráð fyrir þvi að fella niður
allar niðurgreiðslur á vöruverði i sambandi við
verðstöðvunina frá og með næstu áramótum og
um leið á að hætta að greiða þá viðbót á fjöl-
skyldubætur, sem greidd hefur verið i sama til-
gangi.
Á þá e.t.v. að nota eitthvað af öllum þessum
peningum til þess að vernda kaupmátt launa
verkafólks með þvi að greiða þvi visitölubætur
vegna aukins framfærslukostnaðar á næsta ári,
— m.a. vegna afnáms niðurgreiðslna? Nei!
Þvert á móti er gert ráð fyrir þvi að kaup-
greiðsluvisitalan hækki EKKI þrátt fyrir aukinn
framleiðslukostnað. Þarna er rikisstjórnin að
ráðgera stórfellt visitölusvindl sem hefur það að
megintakmarki að koma i veg fyrir, að launþeg-
ar fái á næsta ári verðlagsbætur á laun.
En hvað þá um almannatryggingarnar? Ráð-
gerir rikisstjórnin ef til vill að verja einhverju fé
af þessum 20 þúsund milljónum til þess að koma
fram þeim miklu endurbótum á tryggingakerf-
inu, sem núverandi stjórnarflokkar hafa sifellt
verið að fjasa um, — einkum á meðan aðrir áttu
þar hlut að máli? Nei, ekki aldeilis! Það er þvert
á móti sagt i athugasemdum með frumvarpinu,
að þess sé tæplega að vænta að i nein útgjöld
þurfi að leggja vegna endurskoðunar á trygg-
ingakerfinu fyrr en þá árið 1974.
Þannig litur það nú út, — annað fjárlagafrum-
varpið, sem rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar
stendur að.
ÞANNIG SKIPTAST
ALÞÝÐUFLOKKSÞING-
MENN f NEFNDIRNAR
Á fundum alþingis i gær fór
fram kjör i nefndir. Nefndir þess-
ar eru ólaunaðar starfsnefndir
Alþingis og til þeirra er visað
málum þeim, sem fyrir þingið eru
lögð, eftir eðli þeirra.
Þingmenn Alþýðuflokksins
náðu kjöri i nefndir, sem hér
segir:
Eggert G. Þorsteinsson, i heil-
brigðis- og tryggingamálanefnd
Eggert G. Þorsteinsson, i
menntamálanefnd Jón Armann
Héðinsson og i allsherjarnefnd
Eggert G. Þorsteinsson.
Eins og sjá má af þessu, þá
hefur einni nefnd — atvinnumála-
nefnd — verið bætt við nefndir
Sameinaðs þings og i þingdeild-
unum báðum hefur einni nefnd
verið breytt i tvær, — hinum
gömlu heilbrigðis-og félagsmála-
nefndum verið breytt i félags-
málanefnd og heilbrigðis- og
tryggingamálanefnd.
i SAMEINUDU AL-
ÞINGI
t fjárveitingarnefnd Jón Ar-
mann Héðinsson, i utanrikisnefnd
Gylfi Þ. Gislason, i atvinnumála-
nefnd Pétur Pétursson, i alls-
herjarnefnd Stefán punnlaugsson
og i þingfararkaupsnefnd Eggert
G. Þorsteinsson.
í NEDRI DEILD
I fjárhagsnefnd Gylfi Þ. Gisla-
son, i samgöngumálanefnd Pétur
Pétursson, i landbúnaðarnefnd
Benedikt Gröndal, i sjávarút-
vegsnefnd Stefán Gunnlaugsson, i
íðnaðarnefnd Pétur Pétursson, i
félagsmálanefnd Gylfi Þ. Gisla-
son, i heilbrigðis- og trygginga-
málanefnd Stefán Gunnlaugsson,
i menntamálanefnd Benedikt
Gröndal og i allsherjarnefnd
Pétur Pétursson.
í EERI DEILD
t fjárhagsnefnd Jón Ármann
Héðinsson, i samgöngumálanefnd
Jón Armann Héðinsson, i sjávar-
útvegsnefnd Jón Armann Héðins-
son, i iðnaðarnefnd Eggert G.
Þorsteinsson, i félagsmálanefnd
ILAN DSHAPPDRÆTTl!
RAUÐA KROSS
ÍSLANDS
DREGIÐ
A \
M0RGUN 4 ’
AÐALFULLTRÚAR
REYKJAVÍKUR Á
FLOKKSÞINGIÐ
Um s.l. helgi fór fram í Guðjónsdóftir, Pétur
Alþýðuflokksfélagi Pétursson, Vilhelm Ingi-
Reykjavíkur kjör 35 aðal- mundarson, Baldvin
fulltrúa á flokksþing Al- Jónsson, Guðmundur R.
þýðuflokksins. Fór at- Oddsson, Helgi Sæmunds-
kvæðagreiðslan fram á s00' Þðrunn Valdimars-
skrifstofum flokksins dóttir, Pétur Sigurðsson,
laugardag og sunnudag. Sigfús Bjarnason, Baldur
Þessir voru kjörnir sem Guðmundsson, Björn Vil-
aðalfulltrúar: mundarson, Jón
Eggert G. Þorsteinsson, Þorsteinsson, Jón Ágústs-
Björgvin Vilmundarson, s00- J°n Axel Pétursson,
Gylfi Þ. Gíslason, Emelia Baldur Eyþórsson,
Samúelsdóttir, Björgvin Hilmar Jónsson, Ingvar
Guðmundsson, Benedikt Ásmundsson, Jón (vars-
Gröndal, Sigurður Ingi- s00' Þóra Einarsdóttir,
mundarson, Arni Gunn- Emanúel Morthens,
arsson, Eiður Guðnason, Siguroddur Magnússon,
Sigurður E. Guðmunds- Þórður Gíslason.
son, Aðalsteinn Halldórs- Auk þessara 35 aðalfull-
son, Jóna Guðjónsdóttir, trúa voru kjörnir 26 til
Öskar Hallgrimsson, Elín vara.
FLOKKSSTARFIÐ
HAFNARFJÍRDIIR
Fundur i Alþýðuhúsinu við Strandgötu mánu-
daginn 16. október, kl. 20,30.
1. Stjórnmálaviðhorfið og sameiningarmál.
Gylfi Þ. Gislason hefur framsögu.
2. Reglugerð um fulltrúaráð.
3. Kosning fulltrúa á flokksþing.
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar
LANDSFUNDUR KVENNA
Fyrsti landsfundur Alþýðuflokkskvenna verður haldinn i Alþýðuhúsinu,
Hafnarfirði, n.k. föstudag og laugardag. Fundurinn verður settur kl. 20,
föstudaginn 13. október. Þá verða fjórar Alþýðuflokkskonur heiðraðar. Að
loknum almennum söng og kaffidrykkju verður svo skipt i nefndir.
Laugardaginn 14. október hefst fundurinn kl. 2 e.h. með erindi um jafn-
aðarstefnuna, sem Benedikt Gröndal flytur. Siðan verða nefndaálit rædd.
Að loknu kaffihófi flytur Stefán Gunnlaugsson erindi um sameiningar-
málið. Siðan verða nefndaálit rædd og að þvi loknu flytur Sigurður E.
Guðmundsson ræðu um ný baráttumál Alþýðuflokksins. Landsfundinum
lýkur svo með kvöldverði i Skiphól i Hafnarfirði.
Undirbúningsnefndin
Föstudagur 13. október 1972
o