Alþýðublaðið - 17.11.1972, Síða 1
STÚRTJÓN ER HLAÐA
ASAMT FJARHUSUM
BRUNNU í GUFUNESI
alþýðu
ÚTTINN VIÐ VERÐHÆKKUN
KVEIKIR í BÍLASðLUNNI
Þaö má líka ot-
bjóða likama
sínum — OPNA
ÞAÐ A AÐ
FJÖLGA KER-
LAUGUNUM
„Nú er hún Snorrabúð
stekkur”, má segja um Sundlaug
Vesturbæjar þessa dagana. Þar
er verið að gera talsverðar breyt-
ingar, m.a. að steypa nýjan
„pott” og verða þeir þá þrir.
Segja gárungarnir, að sá nýi sé
aðallega ætlaður Guðmundi Jóns-
syni söngvara m.m., en hann
þolirheitast vatn allra manna. —
Þá er verið að steypa gólfið i
kringum laugina, en það var
hellulagt og orðið hættulegt vegna
missigs. Loks verða brotin upp
gólf i búningsskýlum utan húss,
og þykir það tiðindum sæta, að i
þessari hitaveituparadis Vestur-
bæinga, verða þau nú hituð með
rafmagni i stað vatns. Þegar og ef
„hundurinn” hans Magnúsar
kemur, getur þvi svo farið, að
norðlenzk fallvötn ylji fætur hörð-
ustu Vesturbæinga i vetrarkuld-
um. — Útlendingar, sem hér
dveljast um skemmri eða lengri
tima, kunna vel að meta sund-
laugarnar okkar. Bæði Fischer og
Spassky sáust ekki kátari en i
laugunum, og eins og sjá má af
myndinnigildirhiðsama um hina
brosleitu Ingelu Bránder, sem
einu sinni skemmti borgarbúum
með saxófónleik og fleiru.
,SUAAARSALA' HJÁ EINU UMBOÐINU
Enn einu sinni flýgur sú fiski-
saga meðal fólks, að á næsta leiti
séu miklar verðhækkanir, annað-
hvort sem hækkaður söluskattur
eða hækkun á innflutningsgjöld-
um. Þessi orðrómur hefur þegar
haft þau áhrif, að sala á nýjum
bilum hefur i haust verið mun
meiri en vanalega á þessum árs-
tima, — og einn bifreiðainnflytj-
andi, sem Alþýðublaðið hafði tal
af i gær, sagði söluna hjá sér svip-
aða og þegar sumarsalan gengur
sem bezt.
Við höfðum samband við
nokkra bifreiðainnflytjendur, og
bar þeim saman um, að salan sé
um þessar mundir óvanalega
mikil, og heyra megi á viðskipta-
vinunum, að aðaiástæðan sé ótt-
inn við verðhækkun á bilum eftir
áramót. Hinsvegar voru þeir ekki
hræddir um, að kæmi til verð-
hækkunar dragist bilasalan
saman svipað og 1968.
„Ég er búinn með þann kvóta,
sem ég pantaði i fyrra,” sagði
Ingvar Helgason, umboðsmaður
fyrir Datsun, „og nú geri ég
ekkert annað en hringja út og
panta meira og meira, og hef
varla við”.
Hann bætti þvi við, að siðast i
ágúst og i september hafi salan
dottið niður, eins og venjulega á
hsutin, en i október hafi salan
skyndilega orðið eins og hún ger-
ist bezt á sumrin.
Finnbogi Asgeirsson hjá Sveini
Egilssyni sagði, að greinilega
megi finna ótta manna við verð-
hækkanir á bilum, og salan sé
óvanalega góð. Þó sagði hann að
væntanleg hækkun á innkaups-
verði einnar bilategundar hafi
lika nokkur áhrif.
Þá höfðum við samband við
umboðsmann Fiat, og þar var
enn sama sagan, óvanalega mikið
af nýjum bilum hefur selzt i haust
og vetur, og litið orðið eftir af
þeim.
Ekki tókst að ná sambandi við
ráðuneytisstjóra viðskiptaráðu-
neytisins til að fá frekari upplýs-
ingar, en þeirra er varla von
þaðan frekar en sl. vor, þegar
Alþýðublaðið skýrði frá væntan-
legum hækkunum á innflutnings-
gjöldum á bilum en ráðuneytið
bar fréttina til baka mánuði áður
en hækkunin skall á.
Þegar Alþýðublaöið fór i prent-
un. var slökkviliðið i Reykjavik
enn að berjast við magnaðan eld
sem kom upp i hlöðu i Gufunesi
siðdegis i gær. Var þá ljóst að
hlaöan og áföst gripahús væru
gjöreyðilögð, og milljónatjón
hafði orðið.
Hús þessi eru i eigu Þorgeirs
Jónssonar bónda i Gufunesi. Eng-
ir gripir voru i gripahúsunum, en
i hlöðunni voru 2500 hestburðir af
heyi, vetrarforði Þorgeirs bónda.
Það var siðdegis í gær að elds-
ins varð vart. Kom hann upp i
fjárhúsi áföstu htöðunni. Var talið
að kviknað hafi i út frá raf-
magni. Um tima virtist sem
slökkviliðinu myndi takast að
hefta útbreiðslu eldins, en skyndi-
lcga blossaði hann upp og ekki
fékkst við neitt ráðið.
Þorgeir bóndi i Gufunesi hætti
fjárbúskap fyrir tveimur árum,
og hcfur siðan eingöngu verið
með hross.
Norðanmenn standa fast á „gamla” samkomulaginu
Aðalsamningamaður Norður-
Vietnam i Paris Le Duc Tho,
sagði i gær, að N.-Vietnamar
mundu i engu hvika frá þvi sam-
komulagi, sem talað er um i upp-
kastinu að vopnahlé i Vietnam.
Þá hafa þær fregnir borizt, að N.-
Vietnamar og Þjóðfrelsisfylk-
ingin hafi lýst þvi yfir, að engin
tilraun verði gerð til þess að ná
völdum iSaigon þótt Bandarikja-
menn flytji her sinn úr landi.
i Paris var i ga:r búist við þvi.
að nýir leynifundir Kissingers og
Norður-Vietnama mundu hefjast
á næstunni.
Rikisstjórnir fjögurra rikja,
Kanada, Ungverjalands, Pól-
lands og Indónesiu, hafa boðizt til
að ieggja fram liðsafla til þess að
hafa eftirlit i Vfetnam eftir að
vopnahlé hefur verið samiö.
Talað hefur verið um, að frá
hverju rikjanna fari til Vietnam
250 yfirmenn og 1088 óbreyttir
hermenn.
ASÍ-ÞING OG
KJARAMÁLIN
VANGAVELTUM UM VÍSI-
TOLUSKERDINGU ALGERLEGA HAFNAO
I drögum aðályktun um
kjaramál, sem lögð verða
fyrir þing Alþýðusam-
bands íslands, er hefst i
Reykjavik næstkomandi
mánudag, er öllum hug-
myndum um skerðingu
vísitölunnar harðlega
mótmælt.
1 ályktuninni er þvi lýst ský-
laust yfir, að ekki verði við það
unað af hálfu verkalýðshreyfing-
arinnar, að hróflað verði við þeim
kjarasamningum, sem gerðir
voru i byrjun desember á siðast-
liðnu ári, þar sem m.a. var samið
um visitölugreiðslur.
Ennfremur er þvi lýst yfir, að
það fé, sem þá vantar, er með
stjórn landsins fara, verði ekki
sótt i vasa láglaunafólks eða
þeirra, sem miðlungstekjur hafa.
Kjaramálanefnd Alþýðusam-
bands Islands, sem að undan-
förnu hefur unnið að gerð draga
að ályktun um kjaramál fyrir
alþýðusambandsþing, hefur nú
lagt niðurstöður sinar fyrir mið-
stjórn sambandsins. Mun mið-
stjórnin hafa fjallað um álit
nefndarinnar á fundi sinum síð-
degis i gær.
Hins vegar mun álitið ekki
verða sent til félaganna innan ASI
til umræðna þar eins og flest
önnur ályktanadrög, sem lögð
verða fyrir þingið.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Alþýðublaðið hefur aflað sér, rikti
verulegur ágreiningur innan
kjaramálanefndarinnar og munu
allir fulltrúarnir i nefndinni hafa
undirritað álitið með fyrirvara,
en þó ekki allir út frá sömu for-
sendum.
Þannig munu stuðningsmenn
rikisstjórnarinnar hafa undirrit-
að álitið með fyrirvara, þar sem
þeir telja það ganga of langt. Hins
vegar munu stjórnarandstæð-
ingar i nefndinni álita, að lengra
hefði mátt ganga.
Fulltrúarnir i kjaramálanefnd
munu þannig ganga til alþýðu-
sambandsþings með óbundnar
hendur.