Alþýðublaðið - 17.11.1972, Page 3
FISK-
SALAR
HÓTA
LOKUN
Telja rekstrar-
grundvöll brostinn
Svo getur farið, að flestallar
fiskbúðir Iteykjavikur loki á
næstunni. Telja fiskkaupmenn
álagningarprósentu á fisk allt of
lága, og að útilokað sé að reka
fiskbúðir að óbreyttu ástandi.
Hafa þeir farið fram á hækkun
álagningarprósentu, en yfirvöld
hafa litið viljað sinna þeirri
beiðni.
Sigurður Hólm, fisksali,
Sörlaskjóli 42, tjáði Alþýðublað-
inu i gær, að þessi mál hefðu
verið til umræðu i félagi fisk-
sala. Sagði Sigurður að hann
hefði i vor flutt um það tillögu,
að allar fiskbúðir i Reykjavik
lokuðu ef ástandið breyttist ekki
til hins betra.
Var tillagan samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum, og
jafnfram ákveðið að biða sum-
arið á enda og sjá hverju fram
yndi.
Kvaðst Sigurður hafa haft
samband við Sjávarútvegsráð-
herra og verðlagsyfirvöld.
Sjávarútvegsráðherra bað
Sigurð að hafa samband við sig
að nýju, og vildi hann verða við
þeirri ósk. Hins vegar hefur
reynzt ógerlegt að ná i ráð-
herra,.og sagðist Sigurður þó
hafa reynt að hringjairáðuneyt-
ið daglega i langan tima.
Samtök fisksala tóku málið til
meðferðar að nýju á fundi ný-
lega. Voru fisksalar almennt
sammála um að ekki þýddi að
halda áfram rekstri fiskbúða að
óbreyttu. Voru fundarmenn
margir hverjir ákveðnir i að
loka búðum sinum, og það alveg
á næstunni.
Sigurður Hólm sagðist vera
alveg ákveðinn að hætta rekstri
sinnar fiskbúðar fyrir áramót.
Kvaðst hann hafa rekið búðina i
Þrjú tonn af
fatnaði til Angola
fjögur ár, við sifellt versnandi
kjör. Taldi hann að á þessum
fjórum árum hefðu kjör sin
rýrnað um minnst 20%.
„Ráðherra hefur sagt að
greiða ætti niður fisk ekki siður
en kjöt, en ekkert hefur bólað á
þvi enn”, sagði Sigurður, „enda
sjáum við fisksalar ekki neitt
réttlæti i þvi að greiða endalaust
niður kjöt en ekki fisk.”
Edvard Ijósmyndari tók
þessa mynd þegar veriö var
aö afgreiða fisk úr búð Sig-
urðar Hólm í Sörlaskjóli i
gær.
Menningar- og friðarsamtök is-
lenzkra kvenna efndu i maimán-
uði siðastliðnum til fatasöfnunar
meðal félagskvenna i þvi skyni
að senda fatnaðinn til Angóla til
aðstoðar þjóðfrelsishreyfingunni
þar, sem berst gegn nýlendukúg-
un Portúgala i landinu.
Konurnar, sem eru 210 talsins,
söfnuðu á skömmum tima 3 tonn-
um af fatnaði.
Antonio Neto fastafulltrúi þjóð-
frelsishrey fingar Angóla
(MPLA) i Stokkhólmi kom i
heimsókn hingað til lands á veg-
um nokkurra félagssamtaka i
marzmánuði s.l.
Antonio Neto skoraði þá á ts-
lendinga að veita Angólabúum
alla þá hjálp, sem þeir mættu og
taldi upp helztu vörur, sem að
gagni gætu komið, m.a. lyf, fatn-
að, niðursuðuvörur, bygginga-
vörur o.fl.
Eins og kunnugt er hafa
Angólalbúar um 15 ára skeð háð
baráttu gegn nýlendustefnu
Portúgala, sem um margar aldir
hefur arðrænt og kúgað þjAðir
Angóla, Mozambique og Guinea
Bissau.
Nú er talið, að þjóðfrelsishreyf-
ingin i Angóla hafi á valdi sinu um
þriðja hluta landsvæðis Angóla og
er þar búið að setja á stofn skóla,
sjúkrahús og læknamiðstöðvar og
er þar unnið að þvi, að þjóðin geti
komizt i tölu sjálfstæðra þjóða.
Þjóðfrelsishreyfingin berst nú i
10 af 15 héruðum landsins, sem
spannar um 500.000 ferkólómetra
svæði. A svæðum þeim, þar sem
barizt er, er allt ástand hið
Rjúpuverð svipaö og 71
Talið er fullvist að verð á rjúpu
verði ekki hærra i ár en i fyrra.
Kemur þar til, að rjúpnastofninn
er nú i örum vexti, en mun
væntanlega ná hámarki 1975-76.
Samkvæmt upplýsingum frá
kaupmönnum var algengasta
verðið á rjúpu i fyrra 260 kr. Þar
sem framboð er öllu meira nú en
þá má jafnvel búast við nokkurri
verðlækkun er nær dregur jólum.
NORDMENN KOMNIR I STOR-
SlLD f FJÖRUBOROINU
Norðmenn hafa veitt stórsild i
miklu magni við Norður-Noreg að
undanförnu. Er sildin i f jörðunum
þar.
Norðmenn eru þrumu lostnir
yfir þessu, þvi i fyrra sást alls
engin stórsild, hvað mikið sem
fiskifræðingar leituðu að henni.
Vita þeir ekkert hvaðan henni
skaut upp nú.
Má með sanni segja að sildin
hafi lag á að koma mönnum á
óvart.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræðingur tjáði blaðinu i gær, að
hann hefði ekki trú á þvi, að um
sterkan stofn væri að ræða.
Kvaðst Hjálmar treysta á Norð-
menn að fara hægt i sakirnar
isambandiviö veiðar á þessari
stórsild.
Sagði Hjálmar að stofninn gæti
ekki verið það’ sterkur, að hann
þyldi nokkra veiði að ráði, og bezt
væri að friða hann alveg.
Að sögn Hjálmars hélt stórsild-
in sig fyrr á árum i hafinu milli
Noregs og tslands á þessum árs-
tima. Hin seinni árin var nokkuð
óreglulegur gangur á sildinni, og i
fyrra sást hún alls ekkert, hvað
mikið sem leitað var. Kom það
Hjálmari á óvart, að henni skyldi
nú skyndiiega skjóta upp i norsk-
um innfjörðum.
Samkvæmt frásögn i norska
blaðinu Fiskaren hefur stórsildin
gotið i nokkrum mæli i f jörðunum
i Norður-Noregi. Biða Norðmenn
FISKIFRÆDING-
«1 GÁTTAÐIR
þess nú spenntir hvort nýr stór-
sildarstofn sé i uppsiglingu við
Norður-Noreg, og Fiskaren spyr,
hvort Norðmenn eigi i vændum,
að stórsild fari að veiðast i miklu
magni við Noreg.
ATHUGASEMD UM GÆDAMAT
t blaðinu i gær sögðum við frá
ársskýrslu Heilbrigðismálaráðs
Reykjavikurborgar og fullyrtum,
að hreinlæti við meðferð á neyzlu-
HLUTAFE SAMVINNUBANKA STORAUKIÐ
Á siðasta aðalfundi Samvinnu-
bankans var ákveðið að auka
hlutafé bankans úr tæpum 16
millj. kr. i allt að 100 millj. Jafn-
framt var samþykkt að gefa öll-
um félagsmönnum samvinnufé-
laganna kost á að eignast hlut i
bankanum.
Hlutafjárútboðið er hafið á 10
ára afmæli bankans, sem stofn-
aður var 17. nóv. 1962 og verða
hlutabréfin til sölu i bankanum og
útibúum hans svo og i kaupfélög-
unum um land allt.
Starfsemi Samvinnubankans
hefur vaxið mjög á liðnum ára-
tug. Við yfirtöku Samvinnuspari-
sjóðsins, sem starfað hafði frá
1954, nam innlánsfé 152 millj kr„
en nemur nú um 1400 milljónum.
Það sem af er árinu 1972 nemur
innlánsaukningin 350 millj. kr.
eða 34%. Starfsemi bankans er
dreifð um land allt og hefur hann
á liðnum starfstima yfirtekið 12
innlánsdeildir kaupfélaga og 2
sparisjóði með innlánsfé samtals
94 millj. Bankinn starfrækir nú 10
útibú og 2 umboðsskrifstofur úti á
landi, auk 1 útibús i Reykjavik.
Um þessar mundir er að taka til
starfa við Samvinnubankann,
Stofnlánadeild samvinnufélaga.
Er hlutverk hennar að veita
stofnlán til byggingar verzlunar-
og skrifstofuhúsnæðis fyrirtækja
samvinnumanna.
vöru væri ábótavant. Sú ályktun
varm.a. dregin af þvi að 75 þeirra
180 kjötsýnishorna, sem tekin
voru af kjöti og kjötvörum, hafi
verið aðfinnsluverð.
Þórhallur Halldórsson hjá
borgarlækni hafði samband við
blaðið i gær og vildi koma á fram-
færi af þesssu tilefni þeirri at-
hugasemd, að þessi sýnishorn
sem slik gæfu ekki rétta heildar-
mynd af gæðum neyzluvara al-
mennt.
Hann sagði, að mest væri tekið
af sýnum, þar sem búast mætti
við, að eitthvað væri athugavert
og að sjálfsögðu oftast farið i
eftirlitsferðir þangað sem léleg-
ustu sýnin finnast og reynt að
knýja fram endurbætur.
Hinsvegar sagði Þórhallur, að
Framhald á bls. 4
hörmulegasta, fátækt og skortur
á öllum nauðsynjum.
Nýlega hefur Menningar- og
friðarsam tökum islenzkra
kvenna borizt þakkarávarp frá
MPLA, þjóðfrelsishreyfingunni i
Angóla, þar sem samtökunum er
þakkaður stuðningurinn með von
um „áframhaldandi stuðning við
réttláta baráttu fyrir algeru sjálf-
stæði”.
SLÖKKVILIÐIÐ
ENN KVATT AÐ
KENNARASKÓLA
Siðdegis i gær var slökkviliðið i
Reykjavik kvatt að Kennara-
skólanura.en þá logaði þar glatt i
ruslatunnum i sorpgeymslu við
húsið.
Slökkviliðið slökkti eldinn áður
en okkkrar teljandi skemmdir
höfðu orðið, en að sögn
varðstjóra i slökkviliðinu er þetta
stöðugt að endurtakasig.og hefur
komið fyrir, að rúður hafa
sprungið i skólahúsinu vegna
hita, og má þá litlu muna að
eldurinn nái frekari útbreiðslu.
Samkvæmt upplýsingum
varðstjórans munu börn vera
þarna að verki, en frágangur
sorpgeymslunnar er mjög lélegur
og eiga þau auðvelt með að kom-
ast þar inn -
SPRENGIBRÉFIN
BREZKA PÚST-
STJÓRNIN BÝÐUR
SAMVINNU
Vegna bréfasprengjanna, sem
nú eru á ferðinni i Evrópu, hafði
blaðið samband við Rafn Július-
son póstfulltrúa, og innti hann
eftir þvi hvort póststjórnir er-
lendis hefðu sett sig i samband
við islenzku póststjórnina vegna
þessa faraldurs.
Itafn sagði að póststjórnin i
Bretlandi hefði sent skeyti, og
óskað eftir samvinnu, Að öðru
leyti hefði ekkert samband
veriðhaftvið póststjórnir erlendis
vegna þessa máls.
Að sögn Ilafns hafa engar sér-
stakar ráðstafanir verið gerðar
hé á landi vegna sprengjubréf-
anna. Sagði hann að Island hefði
ætið sloppið við slika vágesti.
Þess má i lokin geta, að hingað
villast iðulega bréf merkt
heimilisföngum i fsrael, en eins
og kunnugt er af fréttum, eru
þessar bréfasprengjur aðallega
stilaöar til Gyðinga og velunn-
arra þeirra.
ÞÝZKT VERK,
ÞÝZKUR LEIK-
STJÓRI
Á jólunum fá islenzkir leik-
húsgestir að sjá Mariu Stúart og
Elizabetu fyrstu á leiksviði
Þjóðleikhússins. Æfingar hófust
s.I. miðvikudag á Mariu Stúart,
sem eins og kunnugt er, er eitt
af höfuðverkum Friedrich
Schillers og er eitt þekktasta
leikhúsverk klassiskra þýzkra
leikmókmennta.
Leikstjóri er Ulrich Erfurth
frá Þýzkalandi
Askriftarsiminn er
86666
Föstudagur 17. nóvember 1972
o