Alþýðublaðið - 17.11.1972, Page 9
I
Iþróttir 2
HVER Á 463?
Dregið hefur verið i happdi’ætti
körfuknattleiksdeildar KR. V'inn-
ingurinn, sem er ferð jneð liði KR
til írlands og Þýzkalands, kom á
miða númer 463.
ðSKABYRJUH HlA (R
- EN KR VARO AR ÞOLA
TAP f FYRSTA LEIKNUM
Það var sannkölluð öskabyrjun
sem ÍR-ingar fengu i tslandsmót-
inu á miðvikudaginn. Sigur yfir
KR i fyrsta leiknum, og þar með
tvö stig, sem geta orðið liðinu
dýrmæt þegar liða tekur á keppn-
ina. Munurinn á liðum lá fyrst og
fremst i úthaldi. Hjá IR dugði út-
haldið allan leikinn en KR-ingar
sprungu eftir 40 minútna leik, eða
alveg þann tima sem leikið er i
Reykjavikurmótinu. Það fór þvi
eins og marga grunaði, þessar 20
minútur i viðbót réðu úrslitum.
ÞESSIR
URÐU
FYRSTIR
Þaö er oft gert til gamans að
skrá niður hverjir eru fyrstir
til að gera ýmislegt i nýbyrj-
uðum islandsmótuin. Við hér
á iþróttasiðunni gerðum þetta
til gamans á fyrsta leikkvöldi
islandsmótsins i handknatt-
leik og hér kcmur árangurinn.
Fyrsta markskotið: Hörður
Kristinsson.
Fyrsta skot varið: Ólafur
Benediktsson markvörður
Vals varði skot Harðar.
Fyrsta markið skorað: Jón
Astvaldsson, Armanni, þegar
7 minútur og 13 sekúndur voru
af leik Vals og Armanns.
Fyrsta aukakast fengið:
Björn Jóhannsson, Armanni.
Fyrsta vitakast fengið:
Gunnstcinn Skúlason, Val.
Fyrsta vitakast tekið:
Bergur Guðnason skoraði úr
vitakastinu sem Gunnsteinn
fékk.
Fyrsta vitakast varið:
Skafti Halldórsson markvörð-
ur Armanns varði vitakast hjá
Bergi Guðnasyni i fyrri hálf-
leik i leik Vals og Armanns.
Fyrsta áminningin: Bergur
Guðnason, Val.
Fyrsti útafreksturinn:
Stefán Hafsteinsson,
Armanni, i siðari hálfleik i leik
Vals og Armanns.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn
og spennandi, og reyndar má
segja að leikurinn hafi verið hnif-
jafn alveg fram i seinni hálfleik.
Ágúst Svavarsson skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir fR, en KR
komst siðan marki yfir. Munaði
aldrei meira en einu eða tveim
mörkum i hálfleiknum, og þá var
staðan orðin 9:8 . Siðasta mark
KR var all ævintýralegt, Haukur
Hauksson skoraði beint úr auka-
kasti eftir að leiktima var í raun
og veru lokið.
Það var Ágúst sem átti fyrsta
orðið i seinni hálfleiknum, og
jafnaði þar með leikinn fyrir IR.
Slðan má má segja að liðin hafi
skipzt á um að skora alveg fram
undir miðjan hálfleik. Athygli
vakti að markverðir beggja liða
vörðu nær öll vitaköst sem tekin
voru i leiknum, enda voru þau
flest afar illa tekin. Þannig varði
ívar Gissurarson markvörður KR
samtals þrjú vitaskot frá einum
helzta sérfræðingnum i greininni,
Vilhjálmi Sigurgeirssyni. Þótti þá
ýmsum bleik brugðið.
Um miðbik hálfleiksins urðu
svo þáttaskil i leiknum. Staðan
var 13:12, og KR fékk dæmt vita-
kast, en Birni Blöndal mistókst að
skora. Brynjólfur skoraði þess i '
stað mark, Gunnlaugur og Þórar-
inn bættu við tveim mörkum, og
staðan var orðin 16:12, og leikur-
inn tapaður hjá KR.
IR-ingar juku enn muninn þær
minútur sem lifðu af leiknum, og
lokatölurnar urðu 21:15 1R I hag.
Þrátt fyrir þennan sigur var lið
IR alls ekki sannfærandi i leikn-
um, og það verður að taka sig á ef
það ætlar sér ofar en miðju á ný-
byrjuðu móti. Vörnin batnar þó
sifellt, og þar átti afmælisbarnið
Ólafur Tómasson (200 leikir)
góðan leik, en i sókninni bar mest
á Brynjólfi.
Lið KR skortir greinilega út-
hald, en þegar þvi atriði hefur
verið kippt i lag, þarf KR varla að
kviða falli, en vart er að búast við
stórræðum af liðinu i vetur.
Haukur Hauksson var drýgstur i
sókninni, en Ivar markvörður
varði vel.
Mörk 1R: Brynjólfur 5, Agúst 4,
Þórarinn 4, Gunnlaugur Hj. 3,
Vilhjálmur 3, Bjarni og Jóhannes
eitt hvor.
Mörk KR: Haukur 6, Þorvarður
3, Björn Blöndal 2, Geir, Björn B,
Bogi og Atli Þór eitt hver.
Einar Hjartarson og Þorvarður
Björnsson dæmdu leikinn vel.
—SS.
A efri myndinni sést Ágúst
Svavarsson i skotstiiðu, en liann
er hindraöur af vörn KR. Að
neðan sést Torfi Ásgcirsson skora
'
á glæsilcgan hátt. 23-mark Vals
Dóri tók myndirnar.
VAtSMEHH HAFA ÞEGAR TEKID
STEFNUNA A TOPPINN 11. DEIID
Valsmenn hafa þegar tekið
stefnuna á toppinn i I. deild. Stór-
sigur liðsins yfir Armanni i fyrsta
ieik islandsmótsins sannaði það
áþreifanlega. Að vísu var mót-
spyrnan ekki mikil, en þó var
greinilcgt á öllu að Valsliðið er að
ná sér á strik, og allar spár um að
liðið verði ekki i einhverjum af
þrem efstu sætunum eru alveg út
i hött.
Valsmenn hafa smám saman
fengið leikmenn sina inn i liðið að
nýju, en þeir hafa margir verið
frá vegna meiðsla. Til dæmis kom
Ágúst ögmundsson nú i liðið að
nýju. Hins vegar er enn nokkuð
langt i það að Gisli Blöndal geti
leikið með, og munar þar stórum
fyrir Val.
Um Armannsliðiðer það að
segja, að gæfan virðist ckk: brosa
við liðinu nú.Liðiðnuhefurstórum
farið aftur frá i fyrra, enda
saknar það tilfinnanlega Kjart-
ans Magnússonar. Þá saknar það
ekki siður.Harðar Kristinssonar,
sem að vftu leikur enn með, en
mun að mestu vera hættur æfing-
um. Þess sjást glöggt merki, þvi
Hörður reynir varla markskot
lengur.
Ef Ármannsliðið batnar ekki á
næstunni, biður þess ekkert nema
fallbaráttan, þvi miður. Þetta er
sagt af þeirri ástæðu, að vel er
hægt að una Ármanni lengri veru
i 1. deild en eitt ár, eftir baráttu
og vonbrigði undanfarinna ára.
Ekki byrjaði leikur Vals og Ár-
manns með miklum tilþrifum,
enda virtust hinir sárafáu áhorf-
endurekki skemmta sér neitt sér-
lega. Fyrsta markið kom ekki
yfrr en á eftir rúmlega sjö min-
útna leik, og var Jön Ástvaldsson
þar að verki fyrir Ármann.
Leikurinn hélzt jafn i byrjun, en
upp úr miðjum hálfleik var stað-
an orðin 10:5 Val i hag.
Byrjun seinni hálfleiks var svo
nánast kaffæring af hálfu Vals.
Hver knötturinn af öðrum skall i
marki Armanns án svars, og á
þessu timabili skoruðu Valsmenn
átta mörk gegn aðeins tveim, og
staðan var orðin 18:7. Upp frá þvi
var ekki um neina baráttu að
ræða hjá Ármanni, og með hröð-
um og skemmtilegum sóknarleik
tókst Val að auka forskotið i 25:11
áður en flautað var til leiksloka. >
Það sem er eftirtektarvert við
Val er breiddin, i þessum leik
skoruðu allir leikmennirnir, að
markvörðunum undanskildum,
auðvitað. Að visu skora vissir
menn alltaf mikið af mörkum,
t.d. Bergur Guðnason og Jón
Karlsson, en breiddin er fyrir
hendi. Athygli vakti, að Stefán
Gunnarsson var nú beittari i
sókninni en oftast áður, enda
skoraði hann fimm mörk. En af
öðrum ólöstuðum var Óla^ur
Benediktsson þó bezti maður liðs-
ins. Hanii varði frábærlega allan
timann.
1 liði Ármanns kom Vilberg vel
út að vanda, en aðrir leikmenn
voru slakir, einkum þó Hörður og
Björn Jóhannsson. Markvarzlan
var slök.
Mörk Vals: Stefán G. 5, Bergur
4, Jón K. 3, Gunnsteinn 3, Jóhann
Framhald á bls. 4
Föstudagur 17. nóvember 1972