Alþýðublaðið - 22.11.1972, Síða 1
OVISSAN DREGUR
ÚR ÍBÚÐASÖLUNNI
Fólk virðist nú heldur halda
að sér höndum með sölu á ibúð-
um sinum, enda hefur ibúðasala
verið minni i haust en tvö
undanfarin haust, að þvi er
blaðið fregnaði hiá nokkrum
fasteignasölum i gær.
Um ástæðuna voru þeir yfir-
leitt sammála, óvissan i
efnahagsmálunum væri þar að
verki. Fólk byggist almennt við
einhverjum meiriháttar að-
gerðum i þeim málum um ára-
mótin, og þvi héldi það að sér
höndum þar til það vissi hvar
það stæði.
Eftirspurn eftir húsnæði hefur
samt sem áður ekki þotið upp,
enda er þess að gæta, að flestir
kaupendur ibúða selja sinar
gömlu um leið og þeir kaupa
nýjar.
Þetta ástand hefur þó ekki
orðið til að hækka ibúðaverð
almennt, og sögðu fasteignasal-
arnir að litilla verðsveiflna hafi
gætt á markaðnum siðustu
mánuði. Virtist sem hin mikla
sveifla upp á við, sem staðið
hefur i tvö ár, væri nú að stöðv-
ast, og eðlilegt jafnvægi að
komast á. Um framvindu mála
eftir áramót vildu þeir engu
spá.
ÞAU
VERÐA
AÐEINS
DÝRARI
ÍÁR
(EINS OG ANNAÐ)
Fyrstu jólatrén i ár komu til
landsins með Múlafossi i fyrra-
kvöld frá Danmörku, og var
verið að skipa þeim upp i gær-
dag. Þau koma nú nokkrum
dögum fyrr en i fyrra, og i þess-
ari sendingu komu aðallega
greinar og stærri tré, sem verða
seld út á land.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavikur i gær,
munu tré hækka nokkuð i verði i
ár frá i fyrra. Kemur þar til
hækkun á þeim erlendis og auk-
inn flutningskostnaður. Islenzku
trén, sem enn eru aðeins litill
hluti af jólatrjáanotkuninni,
hækka til jafns við þau erlendu,
en ekki er enn fullljóst hversu
mikil hækkunin verður.
Jólatrén koma þó ekki á
markað fyrr en undir miðjan
næsta mánuð, enda eru nokkrar
sendingar enn ókomnar til
landsins. Ennfremur er ekki
enn byrjað að höggva islenzku
trén, enda er það ekki gert fyrr
en rétt undir að sala hefst.
HNEYKSLIÐ í
LANDHELGINNI
AF 740 LAHDHELGIS-
BRJOTDM Á SIDAST-
LIDNUM 10 ÁRUM HAFA
700 VERIÐ ÍSLENZKIR
„Okkur fiskifræðingunum
þykir anzi hart að sektir við land-
helgisbrotum fari allt niður í eitt
þúsund krónur, á sama tima og
menn cru rukkaðir um tvö þúsund
krónur fyrir að koma með bílinn
sinn of seint til skoðunar”.
Þetta voru orð Ingvars Hall-
grimssonar, fiskifræðings, eins
hinna ötulu starfsmanna Haf-
rannsóknastofnunarinnar, sem
gert hefur róttækar tillögur um
tilhögun veiða inna<hinnar nýju 50
milna landhelginnar. Tillögur
stofnunarinnar hafa vakið land-
landsathygii, og þá ekki siður sú
ásökun sem kemur fram i
greinargerð með tillögunum, um
virðingarleysi islenzkra sjó-
manna fyrir veiðireglum.
„Þetta virðingarleysi veröur að
hvcrfa, annars verður
enginn árangur af útfærslu land-
helginnar, sagði Ingvar Hall-
grimsson i samtali við blaðið i
gær.
Nefndi Ingvar máli sinu til
stuðnings tölur um landhelgis-
brjóta undanfarinna 10 ára, en
þær voru fyrir nokkru birtar opin-
berlega. Af 740 landhelgisbrjótum
siðustu 10 ára voru 700 islenzkir,
langflest rninni togbátar.
Þessir bátar voru dæmdir i
sektir, misháar, en undantekn-
ingalitið hafa þær firnzt, og veiði-
brjótarnir hafa sloppið við að
borga.
„Vciðarnar eiga tvímælalaust
að vera háðar leyfum, og hvern
þann, sem brýtur reglurnar, á að
svipta leyfinu samstundis.
Þannig verður komið i veg fyrir
það að sami skipstjóri haldi bros-
andi á vciðar aftur, bara til þess
að brjóta rcglurnar að nýju”,
sagði Ingvar.
()g hann bætti þvi við, að dæmi
væru til þess að cinn og sami
báturinn hafi verið tekinn tvisvar
við ólöglegar veiðar einn og sama
sólarhringinn'.
Þá sagði Ingvar að svokallaðar
hólfaveiðar ætti að banna tafar-
laust. Samkvæmt þeim er bátum
leyft að veiða alveg upp i land-
steina á vissum svæðum, og
skrapa þar allt stórt og smátt.
„Þeir geta jafnvel strandað lög-
lega”, sagði Ingvar.
Af þessu leiddi ægilegt smá-
fiskadráp og ekki væri annað að
Framhald á bls. 4
ISA iFIÖRÐUR
Al lltá
Rafi í
snjó
Óvenju mikill snjór og ófærö er
nú á tsafirði og þar i nágrenni,
enda hefur þar meira og minna
verið norðan stórhrið svo skaflar
ná viða upp á aðra hæð húsa, að
lögreglan á tsafirði sagði i viðtali
við blaðið i gær.
öll tiltæk snjómoksturstæki
vinna stöðugt að mokstri, en ekki
sér högg á vatni þar sem jafnóð-
um skefur i ruðningana og élin
fylla þá upp.
Flestallar götur bæjarins eru
ófærar, og sagðist lögreglan hafa
farið 20 til 40 ferðir út i bæ til að
hjálpa fólki milli húsa eða úr bil-
um föstum i snjósköflum, en nú
reyna fæstir að hreyfa bila sina
lengur.
Ekki treysti lögreglan sér til að
segja hversu mikill jafnfallinn
snjór væri i bænum, þar sem
skafrenningur hefur verið allan
timann siðan byrjaði að snjóa og
sumstaðar geysiháir skaflar og
annarstaðar nær auð jörð. Það er
þó bót i máli, að frost hefur verið
fremur vægt um nokkurra daga
skeið.
Allir vegir út frá tsafirði eru al-
gerlega ófærir, en vegagerðin
ætlaði i gær að kanna möguleika á
að ryðja veginn til Bolungarvik-
ur.
P’lugvöllurinn var einnig ófær i
nokkra daga þar til i gær, að hann
var ruddur, og tókst flugvél að
koma sér þar niður á milli élja.
Að sögn lögreglunnar eru veður
sem þessi mjög fátið á þessum
árstima. Þrátt fyrir þetta óvænta
hret, var lögreglunni ekki kunn-
ugt um nein teljandi óhöpp eða
vandræði af þeim sökum, enda
sagði hún tsfirðinga öllum veðr-
um vana.
HAGRANNSOKNASTOFNUNIN:
ÞJOÐVIUA-
TÖLURNAR
ERU EKKI
FRÁ OKKUR
— Þctta er að engu leyti
byggt á niðurstöðum frá
okkur, sagði Jón Sigurðsson,
hagra nnsóknarstjóri, er
Alþýðublaðið leitaöi i gær álits
hans á furðufréttum Þjóðvilj-
ans um þróun kaupmáttar
launa á viðreisnarárunum.
Sagðist Jón ekki geta um það
sagt, hvaðan Þjóðviljinn tæki
lölur sinar, en þær væru i engu
samræmi við niðurstöður út-
reikninga Hagrannsókna-
deildar Framkvæmdastofnun-
ar rikisins um sama cfni.
Að beiðni Aiþýðublaðsins iét
slofnunin þvi i té þessar niöur-
stöður sinar og er frá þeim
greint á bls. 2 i Alþýðublaðinu
i dag. Tii dæmis að taka sýna
þessar tölur Ilagrannsókna-
stofnunarinnar, að á árunum
1!I5!»-1!)70 jókst kaupmáttur
timakaups verkamanna og
iðnaðarmanna uin 21,6% og
kaupmáttur atvinnutekna
verkantanna og sjómanna og
iönaöarmanna um 50,3%
miðað við visitölu framfærslu-
kostnaðar á saina tima og
þjóðartekjur á mann á föstu
verðlagi jukust um 43%.
Samkvæmt frásögn Þjóð-
viljans átti kaupmáttur
verkamannalaunanna hins
Framhald á bls. 4