Alþýðublaðið - 22.11.1972, Blaðsíða 5
alþydu)
aðið
B
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f.
Ekkert gefið eftir
,,ASÍ gefur ekkert eftir” segir Alþýðublaðið i
gær i forsiðufyrirsögn. Vitnar blaðið i uppkast
að ályktun um kjara- og atvinnumál, sem stjórn
Alþýðusambandsins hefur lagt fyrir Alþýðu-
sambandsþingið, sem nú stendur yfir. í upp-
kasti þessu segir m.a. svo:
„Þingið leggur rika áherzlu á, að þær stjórn-
málalegu ákvarðanir, sem fyrir liggur að taka á
næstu vikum i efnahagsmálunum, verði að tak-
ast af fullri viðurkenningu á gerðum og gildandi
samningum verkalýðsfélaganna.”
Þá segir einnig i uppkastinu:
,,Við lausn efnahagsvandamálanna nú telur
þingið algert grundvallaratriði, að ekki verði
hróflað við þeim heildarkjörum, sem ákveðin
voru með frjálsum kjarasamningum og i gildi
eru til 1. nóvember 1973.”
Svarið, sem i þessum orðum felst við þeim
ráðagerðum rikisstjórnarinnar, sem Timinn
hefur nefnt að „semja við verkalýðshreyfinguna
um nýja visitölu” er afdráttarlaust neitandi.
Slikt svar hljóta launþegasamtökin að gefa. Á
hvern annan hátt geta þau svarað tilmælum
stjórnvalda um að úr gildi skuli fella gerða
kjarasamninga sem voru á þeim tima er þeir
voru undirritaðir taldir lágmarks-kjarabót af
þessari sömu rikisstjórn og raunar gerðir eftir
fyrirsögn hennar?
Ekki 24% heldur 10%
Um þessar mundir reyna stuðningsblöð rikis-
stjórnarinnar allt hvað þau geta til þess að fá
forsvarsmenn verkalýðshreyfingarinnar til
þess að falla frá gerðum kjarasamningum og
afsala verkalýðshreyfingunni miklum hluta
þeirra kjarabóta, sem fengust með samningun-
um haustið 1971. öðru visi en á kostnað laun-
þegans telja kommúnistar, Framsóknarmenn
og frjálslyndir sig ekki geta leyst þann efna-
hagsvanda, sem þeir sjálfir hafa skapað. Þeir
ganga meira að segja svo langt að ætlast til þess
af verkalýðshreyfingunni sjálfri, að hún hjálpi
þeim a.m.k. með þvi að sitja aðgerðarlaus hjá.
Röksemdir þær, sem notaðar eru til þess að
reyna að fá verkalýðshreyfinguna til að gefa
eftir eru allar á þá lund að verkafólkið hafi
raunverulega fengið miklu meira, en nokkurn
tima hafi staðið til að veita þvi og eigi þvi að
skila einhverju aftur til baka. Þannig hafa
stjórnarsinnar talað um allt að 24% kaup-
máttaraukningu á stjórnartimabilinu og segja
undir rós, að þar sem stjórnin hafi aldrei lofað
nema 20% aukningu og það á tveggja ára tima-
bili þá sé ekkert athugavert við það þótt verka-
lýðurinn verði neyddur til þess að skila aftur
einhverju af þessari 24% kaupmáttaraukningu
sem verkafólkið á að hafa fengið á þessu hálfa
öðru ári, sem rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar
hefur verið við völd.
En er þessi reikningur réttur? Hefur kaup-
mátturinn aukizt um 24%? Nei, langt i frá!
Bein kaupmáttaraukning i kjölfar samning-
anna frá haustinu 1971 hefur orðið 15%. Þar af
hefur ríkisstjórnin með efnahagsráðstöfunum
sinum, — fyrst með visitölusvindlinu i sambandi
við skattalagabreytingar og niðurgreiðslur i
fyrra vetur og síðan með kaupstöðvun bráða-
birgðalaganna i sumar - haft af verkafólki rösk 4
visitölustig. Raunveruleg kaupmáttaraukning
hefur þvi orðið rúmlega 10%, en ekki 24% eins
og stjórnarsinnar segja. t ljósi þessarar stað-
reyndar finnst þá fulltrúum á þingi ASÍ rétt-
mætt að gefa nú eftir?
UM MÁLEFNI REYKJAVÍKURBORGAR
BORGIN BVGGI LEIGII-
IBUGIR FYRIR ALDRADA
A siðasta fundi borgarstjórnar
Reykjavikur mælti Björgvin Guð-
mundsson, borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, fyrir svohljoðandi til-
lögu, sem hann flytur:
„Borgarstjórn Reykjavikur tel-
ur, að inikiU skortur sé i borginni
á ódýru leiguliúsnæði fyrir aldrað
fólk. Telur borgarstjórnin æski-
legt, að stuðlað sé að þvi að hinir
öldruðu geti dvalizt sem lengst i
heimahúsum i eigin ibúðum eða i
leiguibúðum?
Borgarstjórn samþykkir að
hraða undirbúningi að byggingu
nýs sambýlishúss með leiguibúð-
um fyrir aidraða. Skal gert ráð
fyrir einhverri sameiginlegri
þjónustu við gamla fólkið i sam-
býiishúsinu og stefnt aö þvi, að
slik þjónusta verði aukin.
Borgarstjórn telur timabært að
befja nú þegar undirbúning að
byggingu þriðja sambýlishússins
fyrir aldraða.”
í framsögu með tillögunni sagði
Björgvin Guðmundsson:
„Þessi tillaga min þarfnast
ekki mikilla skýringa.
Þegar Reykjavikurborg aug-
lýsti eftir umsóknum um leigu-
ibúðir i sambýlishúsi þvi, er borg-
in reisti fyrir aldraða við Norður-
brún, barst mikill fjöldi umsókna
og mun fleiri en unnt var að
sinna. Alls bárust 158 umsóknir
um 60 ibúðir. Kom þá vel i ljós,
hversu mikill skortur er i Reykja-
vik á ódýrum litlum leiguibúðum
fyrir aldraða. Ástæður þessa eru
margar, en þessar munu helztar:
Flestir aldraðir, sem eru sæmi-
lega heilsugóðir vilja fremur búa
i heimahúsumen á elliheimilum.
Gamla fólkið ræður ekki við að
búa i stórum ibúðum eins og áður
meðan fjölskyldan var stærri.
Það er ofviða aldraðri húsmóður
að hreinsa og halda reglu á stórri
ibúð. Það er einnig nú orðið ofviða
öldruðu fólki að greiða öll þau
gjöld, sem greiða þarf af stórum
ibúðum. Þess vegna vilja æ fleiri
úr hópi hinna öldruðu komast i
minni ibúðir i ellinni. Framboð á
litlum ódýrum söluibúðum, sem
hentað gæti öldruðu fólki, er mjög
litið. Þyrfti að athuga, hvort
borgin gæti ekki reist slikar sölu-
ibúðir fyrir aldraða. Borgin hefur
enn ekki farið út á þá braut, held-
ur einungis reist leiguibúðir fyrir
gamla fólkið til þessa. Tillaga
min gerir ráð fyrir, að þvi verði
haldið áfram og undirbúningi að
næstu byggingarframkvæmdum i
þágu aldraðra verði hraðað.
Reykjavikurborg hefur aðeins
einu sinni reist sambýlishús, sem
sérstaklega hefur verið ætlað
öldruðu fólki. Það var sambýlis-
húsið við Norðurbrún, sem ég gat
um i upphafi máls mins. Og þar
fengu færri inni en víldu. Áður
hafði borgin að visu fengið 30
ibúðir fyrir aldraða úr sambýlis-
húsi við Austurbrún, sem reist
var fyrir einstaklinga, en það hús
var ekki reist sérstaklega fyrir
aldraða. Nú mun frumundirbún-
ingur hafinn að þvi að reisa annað
Björgvin Guðmundsson
sambýlishús fyrir aldraða og i þvi
sambandi er rætt um að hafa það
á hinu nýja byggingarsvæði við
Stóragerði. Mun nú unnið að
teikningum, en ekki ætlunin að
byrja byggingarframkvæmdir
fyrr en næsta sumar. Tel ég mjög
brýnt, að öllum undirbúningi
verði hraðað sem mest og fram-
kvæmdir hafnar svo fljótt á næsta
ári sem veður leyfir, t.d. i marz
eða april, ef tið verður góð. Skort-
ur á húsnæði fyrir aldraða er svo
mikill að hraða verður málinu
eins mikið og frekast er unnt.
Einnig er nauðsynlegt að hefja
þegar undirbúning að byggingu
þriðja sambýlishúsi borgarinnar
fyrir aldraða. Reynslan hefur
leitt i ljós, að udnirbúningsstarfið
tekur ávallt svo langan tima að
ætla verður góðan tima fyrir það.
Þess vegna tel ég, að um leið og
borgarstjórn samþykkir að hraða
undirbúningi að byggingu nýs
sambýlishúss fyrir aldraða á
Stóragerðissvæðinu eigi að sam-
þykkja að hefja þegar undirbún-
ing að byggingu annars sambýlis-
húss fyrir gamla fólkið, sem yrði
þá 3ja sambýlishúsið, er borgin
reisir fyrir aldraða. Ég skora þvi
á borgarstjórn að samþykkja til-
lögu mina.”
FJORAR FYRIRSPURNIR
Lagðar hafa verið fram á
Alþingi eftirtaldar fyrirspurnir
frá Braga Sigurjónssyni:
I. Til iðnaðarráðherra
a) Hefur rikisstjórnin tryggt
sér lán til Sigölduvirkjunar, og
ef svo er, þá hvar og hve há?
b) Hvað er áætlað nú, að Sig-
ölduvirkjun muni kosta?
c) Fyrir hve mikinn hluta
orkuframleiðslunnar er þegar
tryggður markaður, og hver er
hann?
II. Til iðnaðarráðherra
a) Hvað er áætlað, að há-
spennulina frá Sigöldu til Akur-
eyrar muni kosta með núgild-
andi verðlagi, og við hve mikinn
orkuflutning verður hún miðuð?
Framhald á bls. 4
FLOKKSSTARFIÐ
FELAGSVIST
Fyrsta félagsvist vetrarins á vegum Alþýðu-
flokksfélags Reykjavikur verður haldin annað
kvöld i Ingólfscafé og hefst kl. 20,30 stundvis-
lega.
Ávarp flytur Gylfi Þ. Gislason, formaður
Alþýðuflokksins.
Góð verðlaun verða veitt. öllum er heimill
aðgangur.
Skemmtinefndin
BAZAR - ÍSAFJORÐUR
ísfirðingar! Kvenfélag Alþýðuflokksins á ísa-
firði heldur bazar n.k. laugardag þann 25. nóv-
ember. Bazarinn verður i Alþýðuhúsinu, niðri,
og hefst kl. 4 e.h. Að vanda verður á bazarnum
margt góðra muna.
Stjórn Kvenfélagsins.
ISFIRÐINGAR
Alþýðuflokkskonur á Isafirði!
Kvenfélag Alþýðuflokksins á Isafirði efnir til
fundar i Alþýðuhúsinu mánudaginn 27. nóvem-
ber n.k. kl. 20,30. Gengið verður um norðurdyr.
Fundarefni:
1. Sagt frá nýafstöðnum Landsfundi Alþýðu-
flokkskvenna.
2. Sagt frá flokksþingi Alþýðuflokksins.
3. önnur mál.
Félagskonur eru hvattar til að f jölmenna og
mæta stundvislega.
Stjórnin.
Miðvikudagur 22. nóvember 1972
0