Alþýðublaðið - 13.12.1972, Blaðsíða 9
iþrótiir I
HSK VAR
KR
ÓÞÆGUR
LJÁR í
ÞÚFU...
Um helgina voru leiknir fjórir
leikir i islandsmótinu i körfu-
knattleik. Uröu úrslit leikja sem
hér segir:
IS-Þór 66:45
KR-Valur 90:66
ÍR-Þór 91:64
KR-HSK 83:66
Hlé verður gert á mótinu fram
til 6. janúar.
Þá má geta þess hér; að á
sunnudaginn fór fram einn leikur
i leynimótinu svonefnda, þ.e
Reykjavikurmótinu i körfuknatt-
leik. Valur sigraði ÍS 79:76.
Hér á eftir fer frásögn af 1.
deildar leikjunum sem fram fóru
á sunnudagskvöld, og neðar á sið-
unni er sagt frá leikjum sem fram
fóru á laugardaginn:
ÍR-Þór 91:64 (38:27)
tslandsmeistarar ÍR virtust
þegar i byrjun ætla að kafsigla
Þórsara og komust þeir strax i
4:1,12:8og 18:8. En þá kom góður
kafli hjá Þór og þeir minnkuðu
munin i aðeins fjögur stig (18:22)
e'n 1R tekur góðan endasprett fyr-
ir hlé, og komust þá ellefu stigum
yfir.
1 siðari hálfleik tók 1R siðan öll
völd i sinar hendur og sigraði ör-
ugglega eins og fyrirfram var bú-
izt við.
Þótt sigur 1R hafi verið stór
var hann alls ekki átakalaus og
oft brá fyrir góðum köflum hjá
Þórsurum.
Akureyringarnir geta varla bú-
izt við að geta haldið sér lengi i
fyrstu deild ef liðið hefur engan
þjálfara, en i fyrra þjálfaði Gutt-
ormur Ólafsson liðið með ágætum
árangri, Guttormur þjálfar lið
HSK i vetur auk þess sem hann
leikur með KR.
Anton Bjarnason var beztur i
liði 1R og gerði hann 21 stig, en
Einar Sigfússon 26.
Vitaskot: 1R: 20:9. Þór: 21:12.
KIl-HSK 83:66 (31:27)
Já, hvern gat órað fyrir þvi að
HSK veitti KR jafn mikla keppni
og raun varð á? Sennilega bjugg-
BEST TIL CITY?
Malcholm Allison, fram-
kvæmdastjóri Manchester City,
lýsti þvi yfir i gær, að hann vildi
gjarnan kaupa vandræðagems-
ann George Best frá Manchester
United.
United, sem er i fallhættu, vill
frekar fá nýja leikmenn en pen-
inga i stað Best. George Best er
álitinn 300 þúsund punda virði.
SPÁ HDAN
Vegna þrengsla nú i jólaönn-
iinum, verður getraunaspá Helga
Danielssonar að biða birtingar til
morguns. Þá birtist einnig staðan
og töflur.
ust flestir við öruggum sigri KR,
en það var öðru nær, KR-ingar
geta verið ánægðir fyrir það að
hljóta 2 stig i leiknum, þvi KR
átti i mesta basli með HSK og það
var ekki fyrr en á lokaminútunum
að sigur vannst.
Svo virðist sem KR, 1R og Ar-
mann séu i lægð um þessar mund-
ir en HSK, Valur og 1S i stórsókn,
kannski eru lið KR og 1R þreytt
eftir nýafstaðna erfiða Evrópu-
leiki?
1 leik KR og HSK komust KR-
ingar strax i 14:4 og 19:7, en þá
tóku Skarphéðinsmenn við sér og
minnkuðu muninn niður i aðeins 4
stig 25:21 fyrir KR, og enn var
fjögurra stiga munur i hálfleik
31:27.
HSK byrjar mjög vel siðari
hálfleikinn og jafnar og kemst
yfir 35:34.
Én KR kemst aftur yfir og siðan
hélst leikurinn lengi vel mjög
jafn, eh á lokaminútunum
tryggðu KR-ingar sér sigur eins
og áður er sagt.
Hjá KR vantaði Hjört Hansson
Framhald á bls. 10
Þórir Magnússon úr Val er
ætið erfiður að eiga við fyrir
varnir andstæðinganna. Ilér
sést hann skora i leik við HSK.
FJÖGUR
LIÐ í
ÞRIÐJU
DEILD
—AFTURELDING,
ÞÓR.ÍBÍ OG
VÖLSUNGUR
Fjögur lið hafa tilkynnt sig i
hina nýju deild sem stofnað hefur
verið til innan handknattleiksins,
3. deild. Eitt lið i viðbót tilkynnti
sig, en sú tilkynning kom eftir að
frestur var útrunninn, og var þvi
ekki hægt að taka hana til greina.
Þátttökuiiöin i meistaraflokki
karla vcrða þvi alls 20 i vetur,
átta i 1. deild, átta i 2. deild, og
fjögur I 3. deild. Er þetta lang-
mesta þátttaka sem vitað er um I
meistaraflokki islandsmótsins.
Liðin fjögur sem hafa tilkynnt
sig eru Ungmennafélagið Aftur
elding úr Mosfellssveit, Völs-
ungur frá Húsavik, iþróttafélagið
Þór i Vestmannaeyjum og
tþróttabandalag ísafjarðar. Viðir
úr Garði tilkynnti sig einnig, en
tilkynningin barst of seint.
Af fjórum fyrrnefndum liðum
hefur aðeins eitt þeirra tekið þátt
i meistaraflokki Islandsmótsins
áður, Afturelding. Var Aftureld-
ing um tima i 1. deild hér fyrr á
árum. Voru þá þekktir kappar i
liðinu, svo sem Asbjörn Sigur-
jónsson á Alafossi og Jón Guð-
mundsson bóndi á Reykjum.
Hin þrjú liðin eru að mestu
óþekkt stærö. Völsungur hefur
innan sinna vébanda Arnar Guð-
laugsson úr Fram, en að öðru
leyti er litið vitað um styrkleika
Húsvikinganna. Lið Vestmanna-
eyinga samanstendur af knatt-
spy rnuköppum, en þeir eru
margir liðtækir handknattleiks-
menn, svo sem Tómas Pálsson og
Asgeir Sigurvinsson.
Um tsfirðinga er ekkert vitað.
Þeir búa við frekar léleg,
húsnæðisskilyrði, eins og reyrtðai
flest þessi lið i 3. deild.
Fyrirkomulag á 3. deildar-
keppninni verður það, að liðin
koma öll til Reykjavikur tvær
helgar og leika heila umferð
hvort skipti. Verður sú fyrri leik-
in 6. janúar, en sú seinni 25.
febrúar. — SS
..OG VALSMENN
VORUÞAÐEINNIG
Það er nú ljóst að Valsmenn eru
i góðri æfingu um þessar mundir
enda þarf mikið til þess að sigra
ÍR eins og um daginn. Ef Valur
leikur eitthvað i likingu við það
sem þeir gerðu í þessum leik þá
verða það liklega þeir sem skipa 3
ja sætið i mótslok.
Það var auðséð að KR-ingar
óttuðust Þóri Magnússon, þann
frábæra leikmann Vals mikið, og
þótt Birgir Guðbjörnsson gætti
Þóris ágætlega i fyrri hálfleik
gerði Þórir 18 stig i hálfleiknum.
Kolbeinn Pálsson skoraði
fyrstu körfu leiksins fyrir KR, en
Valsmenn jafna og komast yfir
6:4 og 8:7 en eftir það var KR
alltaf yfir i leiknum þótt oft
munaði litlu t.d. i miðjan fyrri
hálfleik var staðan 17:14 og siðan
21:18, semsagt jafn fyrri hálfleik-
ur.
1 siðari hálfleik dró sundur með
liðunum og þótt Valur ætti góðan
leik voru KR-ingar enn betri og
sigruðu með miklum mun 90:66.
Þetta var mjög skemmtilegur
leikur og hratt leikinn af báðum
liðum.
Hjá KR voru Bjarni og
Kolbeinn beztir,en Guttormur og
Ólafur áttu einnig góðan leik.
Þórir Magnússon var að venju
beztur Valsmanna þótt hann
skoraði aðeins 6 stig i siðari hál
leik, en þá gætti Guttormu
Ólafsson Þóris mjög vel. Au
Þóris voru Kári og Stefán nokku
góðir.
Stigin:
KR: Bjarni 28, Kolbeinn 2:
Ólafur 13 og Guttormur 12.
Valur: Þórir 24.
Vitaskot KR: 20:14
'Valur: 19:14. —PK.
LARSSON
KJÖRINN í
SVÍÞJÖÐ
Sænskir iþróttafréttanienn hafa
kjörið sundkappann Gunnar
Larsson iþróttamann ársins 1972 i
Sviþjóð.
Gunnar varð sem kunnugt er
Ólympiusigurvegari i tveim
greinum i Munchen i sumar, 200
og 400 metra fjórsundum.
Botnliðin í baráttu
í kvöld fara fram i Laugar-
dalshöllinni tveir leikir i 1. deild
islandsmótsins i handknattleik.
Er þá aðeins eitt leikkvöld eftir
fram til jóla, næsta sunnudag,
en þá mætast i Hafnarfirði
heimaliðin FH og Haukar.
1 kvöld verða botnliðin i bar-
áttunni. Fyrst er það Ármann
sem spreytir sig gegn Islands-
meisturunum frá i vor, Fram.
Fyrirfram verður að telja þann
leik auðunninn fyrir Framara,
allavega hefur frammistaða Ar-
manns verið slik að undanförnu,
að ekki er að vænta stórræða úr
þeirri átt.
Seinni leikur kvöldsins verður
milli KR og Vikings og ætti sá
leikur að geta orðið jafn. KR
hefur sýnt i leikjum sinum að
margt býr i liðinu, jafnvel þótt
þvi hafi ekki tekist að krækja
sér i stig frekar en Armann.
Fyrri leikurinn hefst i
Laugardalshöllinni klukkan
20.15 og vert er að vekja athygli
á þvi, svona til gamans að i
kvöld bera öll liðin auglýsingu
fyrir Loftleiðir, þar af KR i
fyrsta skipti.
SS
Miðvikudagur 13. desember 1972
o