Alþýðublaðið - 13.02.1973, Síða 3

Alþýðublaðið - 13.02.1973, Síða 3
HIIGSAD- UR SEM TENGI- LIÐUR Það hefur varla farið framhjá fólki, að undanfarin kvöld hefur verið á dagskrá útvarpsins, að loknum kvöldfréttum, sérstakur þáttur helgaöur Vestmannaeyj- um og Vestmannaeyingum. Hann er nefndur Eyjapistill, og þrir Eyjamenn hafa tekið að sér að sjá um hann, bræðurnir Gisli og Arnþór Helgasynir og Gunn- ar Sigmundsson prentari. Við hittum þá bræður að máli i „stúdió 5” i Útvarpshúsinu i gærdag, þegar þeir voru að ljúka við upptöku þáttarins, sem var útvarpað i gærkvöldi og spurðum þá, hvert upphaf Eyja- pistilsins hafi verið. — Ég er ekki alveg viss um það, hvernig þetta byrjaði, svaraði Gisli, en ég held, að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi viljað koma honum á laggirnar. Magnús Magnússon bæjarstjórinn hringdi i okkur og spurði, hvort við vildum koma fram i honum, og að sjálfsögðu vorum við til i það. — En það kom eins og reiðar- slag yfir okkur, þegar var á- kveðið, að við skyldum stjórna þættinum. — En það hefur gengið vel. — Já, þetta kemst i æfingu — það er erfiðast fyrst að þurfa að tala blaðalaust, en það er ekki ætlazt til að við lesum fyrir Eyjamenn, heldur tölum til þeirra. — Það er lika mikill styrkur, að eftirá má klippa út allar missagnir og vitleysur. Gunnar Sigmundsson hefur veitt okkur ómetanlega aðstoð við efnissöfnun, — hann hefur veriðsérstaklega ómissandi þar sem hann er kunnugur öllum málum i Eyjum, en við höfum ekki verið þar nokkuð íengi. — En hvernig er þátturinn hugsaður, Gisli? — Han er hugsaður sem tengi- liður á milli Vestmannaeyinga. Við flytjum Eyjafréttir, ef ein- hverjar eru, og lesum tilkynn- ingar, bæði til Vestmanna- eyinga, — og komum boðum á milli þeirra. Ætlunin er að hafa skemmti- efni með, og ég vil beina þvi til Eyjamanna, að þeir skrifi okkur eða hringi, hafi þeir eitthvað fram að bjóða, — það er geysi- mikið atriði að sem flestir láti i sér heyra. — Ef menn eru hræddir við að koma hingað nið- ur i útvarp getum við komið til fólks og tekið upp efni heima. — Og mig langar til að koma enn einu sinni á framfæri heimilis- fangi þáttarins. Það er: Eyja- pistill, Rikisútvarpinu, Skúla- götu 4, og á kvöldin er hægt að ná i okkur í simum 12943 og 34086. Aður en við yfirgefum „stúdió 5” hittum við sem snöggvast nýja prestinn þeirra Eyja- manna, Karl Sigurbjörnsson, — en hann var að koma til þess að lesa inn bænarorðin, sem fylgja á eftir Eyjapistlinum. Við spurðum hann, hvernig honum fyndist að vera hálfgerður út- lagaprestur, — hafa söfnuð en ekkert prestakall. — Það er náttúrlega dálitið öðruvisi en maður bjóst við, svaraði séra Karl, — en ég hef ekki trú á öðru en sóknarbörnin og ég snúi til Eyja að lokum. I Rækjufriðunin bar árangur Athuganir benda til þess að friðun Eldeyjarsvæðisins fyrir rækjuveiðum 1971 og 1972, hafi borið tilætlaðan árangur. Svæði þetta var friðað, þvi þarna eru upp- eldisstöðvar smáýsu. Athugun sem Hafþór gerði nýlega á þessum slóðum, sýndi að magn smáýsu var mun meira í aflanum nú en i fyrra eða 2-3 sinnum meira. Af þessu magni var hlutur tveggja ára ýsu mestur. Sama athugun leiddi i ljós, að rækjan á þessum slóðum heldur sig á takmörkuðum svæðum. Einn með 1 1 — annar með 10 Þrátt fyrir mjög óvænt úr- slit i ensku knattspyrnu- leikjunum um helgina, fann- st einn getraunaseðill með öllum leikjunum réttum 11 talsins. Og það sem merki- legra er, aðeins einn seðill fannst með 10 réttum leikj- um, og er þetta I fyrsta sinn sem aðein's einn seðill hlýtur annan vinning. Sá sem var með 11 leiki rétta fær i sinn hlut 322,500 krónur, en 10 réttir gefa 138 þúsund krónur. Það hefði veriðlitiðbetra fyrir þann að hafa 11 rétta, þvi þá hefði sigurupphæðin skipzt i tvennt, og 161 þúsund komið i hlut hvors eða bara 23 þús- und krónur meira en annar vinningur gaf i þetta sinn. GUÐFAÐIRINN GÆTI SLEGIÐ ÖLL MET Fræðilegur möguieiki er á þvi að kvikmyndin Guðfaðirinn hljóti 11 Óskarsverðlaun að þessu sinni. Þetta var gert opinbert i gær, þeg- ar bandariska kvikmyndaaka- demian tilkynnti hvaða kvikmynd- ir og leikarar kæmu til greina að hljóta hin eftirsóttu verðlaun. Marlon Brando er að sjálfsögðu álitinn koma til greina sem verð- launahafi fyrir karlahlutverk, og auk þess á myndin möguleika á 10 öðrum Óskarsverðlaunum. Myndin er aðeins árs gömul, en er þegar orðin bezt heppnaða kvikmynd allra tima. Auk Brandos koma leikararnir Peter O’Toole, Michael Caine og Sir Laurence Oliver til greina fyrir karlahlutverk, en i kvennahlut- verkum koma helzt til álita sænska leikkonan Liv Ullmann, Liza Min- elli og Maggie Smith. Af kvikmyndum koma auk Guð- faðirins til greina Cabaret og fleiri myndir sem beztu myndir ársins. FRETT- NÆMT Fauk Langferðabíll frá Sæmundi i Borgar- nesi, fauk út af veginum við Stór- holtsmela náiægt ölvcri, i ofsaroki þar i fyrrakvöld, og valt hann utan vegar. Killinn var á leið til Borgarncss, er slysið varð, en svo heppilega vildi til, að aðeins einn maður var i hilnum auk ökumanns. ökumaðurinn slasaðist i vcltunni, en farþcginn slapp ómciddur. 1 fyrstu var haldiö að meiðsli ökumanns- ins væru óveruleg og var hann fluttur til Borgarncss, en I gærmorgun var liann flultur á spitalann á Akra- nesi, og liggur þar cnn. Tvær Hercules flutningaflug- vélar voru væntanlegar Nú hefur verið ákveðið að taka til óspilltra málanna við flutning á vélum, tækjum og lausafjár- munum úr atvinnnufyrirtækjum i Vestmannaeyjum, og i gærkvöldi voru væntanlegar til Keflavikur tvær Hercules flugvélar til að annast það verk. Almannavarna- ráð fól i gærmorgun Baldri Jó- hannessyni verkfræðingi að fara með stjórn verksins. Litið var að frétta af gosinu sjálfu i gærkvQldi, en að þvi er segir i fréttatilkynningu frá Al- mannavörnum var gosið lengst af litið i gær, en i fyrrinótt féll aska yfir austasta hluta flugvallarins. Mældist öskulagið tveir senti- metrar norðan við flugskýlið. Sið- an klukkan sex i gærmorgun og fram á kvöld bar öskuna til suð- austurs. Megin rennsli hraunsins var til norðurs úr gignum i gær og út i sjó austan i tanganum, sem stefn- ir á Yztaklett. Samkvæmt mælingu, sem gerð var kl. 15.00 i gær frá varðskipi, voru 180 metrar milli Yztakletts og hraunsins, en frá syðri hafnar- garðinum voru i gær 80 metrar, en milli Heimakletts og hraunsins voru 160 metrar. Hraunjaðarinn við Kirkjubæ hreyfðist ekkert i gær, og virðist sem létt hafi á þeim megin, þegar hraunið tók að renna greiðlega austur i vikina. Eftir upplýsingum Veðurstof- unnar er „veðrið” vona: Norðan stórhrið var á öllu Norðurlandi i gær. Veðurhæðin i Grimsey mældist 10 vindstig. Mikið snjóaði viða, og náði úr- koman suður i Borgarfjörð og suður um Austfirði, með 8-10 stiga frosti. Sunnan lands var bjartaraog úrkomulaust, en svipaö frost og heldur hægari vindur. Þessari veðráttu veldur geysidjúp lægð fyrir austan land. Er loftþrýstingurinn i lægðarmiðjunni 945 millibör. Veldur þetta gifurlegum þrýstingsmun, og má búast við að þetta veður fari vaxandi á Norausturlandi, en að heldur dragi úr á Vesturlandi. Þetta veður er á mörkum þess, að menn fari að kala i and- liti, ef þeir eru eitthvaö úti. Má Á mörkum þess að menn fari að kala í andliti gera ráð fyrir, að þetta sam- svari allt að 40 stiga frosti i logni. Þriöjudagur 13. febrúar 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.