Alþýðublaðið - 16.03.1973, Qupperneq 6
Skattfr jáls stafla
og engin útsvör
Nýlega birtist auglýsing i
danska blaöinu „Dragör Nytt”
sem hófst á þessa leið:
„Prófessor eða visindamaður
óskast til þess að leysa kross-
gátur, útfylla launareikninga,
annast skattskýrslugerð, út-
reikning á söluskatti og fleira,
svo og að lesa stafla af yfir-
lýsingum og reglugerðum, sem
rikið gefur út i bókaformi.” Undir
auglýsingunni stendur nafnið
Schwartz and Black, en það var
dulnefni auglýsandans, sem er
teppasali, Urban F’ries að nafni. 1
viðtali við Politiken segir Fries,
að það sé heilög alvara á bak við
þetta spaug. Þvi að óneitanlega
sé það spaug. Uann sé að visu
ekki með stærri atvinnu-
rekendum, en hann velti hálfri
annarri mill.jón danskra króna á
ári, og það útheimti þó nokkrar
skriftir. Og pappirsflóðið sé
sannarlega slikt nú til dags, að
það heimti sinn mann. Staðan,
sem hann hefur i huga að stofna,
býður ekki upp á neina lifseyris-
sjóðsgreiðslur, en sá sem verður
ráðinn verður skrifaður i fyrsta
flokk i danska Útfararfélaginu.
Launin geta orðiö eins lág og
maöur óskar sjálfur eftir. En i
staðinn er unnt að fá hæstu mögu-
legar húsaleigubætur, félagsaö-
stoð, heimilishjá’p, benzinstyrk
og aðrar félagslegar bætur. Og
þessu til viðbótar þriggja vikna
fri á Mallorca á ári hverju, ef
óskað er eftir þvi. Allt þetta telur
Urban Fries, að muni nema 50-60
þúsund skattfrjálsum dönskum
krónum á ári. Kveðst hann þegar
hafa fengið umsækjanda um
starfið.
Þrjár plánetur
hafa íundizt utan
sólkerfis okkar
Þrátt fyrir mikla fyrirhöfn
hefur ekki tekizt að finna fleiri en
þrjár plánetur utan sólkerfis
okkar, segir i nýlegri grein i
sænska blaðinu Dagens Nyheter.
Hlýtur það að koma mjög á óvart.
Þvi að skoðun stjörnu-
fræðinganna er sú, að það hljóti
að vera til plánetur þar sem lif
þrifst, meira að segja vitrænt lif.
En þær plánetur, sem til þessa
hafa fundizt i nágrenni næstu
starna, búa ekki yfir neinum
möguleika á lifi. í mesta lagi er
hægt að segja, að nokkur þau
tungis, sem fylgja Júpiter og
Saturnurs, búi yfir stöku
forsendum þess, að lif megi verða
til.
Þaö féll i hlut eins manns,
bandarikjamannsins Peter van
de Kamp, að finna allar þær 3
plánetur, sem fundizt hafa utan
sólkerfis okkar. Sú, sem næst er,
er i 4,3 ljósára fjarlægð og heitir
Proxima Centauri. Þvi næst
kemur Bernards-stjarnan, sem er
i 5,9 ljósára fjarlæðg. Fjarlægust
er Epsilon Eridani, sem er i 10.7
ljósára fjarlægð frá jörðinni. Hún
hefur i sér fólginn „massa,” sem
svarar til sjö tiunda hluta
massans i sólinni, og býr yfir
ljósstyrk, sem nemur 30
prósentum sólarljóssins.
" 11 1 ..........................1......M\
Híttumst i ktœpfélagínu
-..- ...........-.—
1 nágrenni plánetunnar Epsilon
Eridani gerði van de Kamp
siðustu uppgötvun sina. Þar er
nefnilega eitthvað fyrir hendi,
sem er með öllu ósýnilegt frá
jörðinni og þar að auki gjörsam-
lega hljótt. Samt vitum við nú, að
fjarlægð þess frá Epsilon Eridani
er 8 sinnum meiri en fjarlægðin
milli sólar og jörðu, og að það er 6
sinnum stærra en risaplánetan
Júpiter. En vegna þessara að-
stæðna hefur enn ekki verið talið
timabært að skýra þessa nýju
uppgötvun. Tæpast er þar um
stjörnu að ræða, það er nefnilega
of litið til þess að þar geti farið
fram kjarnsprengingar, sem er
grundvöllurinn fyrir hinni stór-
kostlegu ljósgeislun stjarnanna.
Hins vegar er þetta alltof stórt til
þess að geta nefnzt planeta. Hið
eina, sem virðist algjörlega
öruggt, er, aö hið óþekkta býður
tæpast upp á nein skilyrði fyrir
lif.
Hvernig er svo unnt að
uppgötva það i himingeimnum,
sem hvorki er unnt að sjá eða
heyra? Jú, það er unnt með þvi að
fylgjast nákvæmlega með
brautum næstu stjarna. Samfellt
um 35 ára skeið hefur verið fylgzt
nákvæmlega með þessum braut-
um. Komi fram reglulegt frávik
má reikna með, að það sé vegna
aðdráttarafls einhverrar
óþekktrar stjörnu i nágrenninu.
Með þessum hætti hefur verið
unnt að reikna fit hinar nýju
plánetur. Hér er um að ræða
mikið til sömu aðferðarinnar og
kjarnvisindamennirnir nota,
þegar þeir finna áður óþekktar
kjarnaagnir. 1 dag eru þekktar
um það bil 200 kjarnaagnir, sem
allar hafa fundizt á þennan hátt.
Kjarnvisindamennirnir hafa sem
sagt verið heppnari en starfs-
bræður þeirra, sem stara út i
geiminn, segir i greininni i
Dagens Nyheter.
Úti i heimi er það ekki lengur
neinum sérstökum erfiðleikum
bundið að verða sér úti um lista
með nöfnum fólks, sem — hvað
eigum við að segja — er áskrif-
endur að klámritum eða hefur
vissa upphæð i tekjur á ári. Deild
innan póstþjónustunnar lætur
hverjum sem hafa vill i
frimerkjabransanum i té lista
með nöfnum fólks, sem safnar
frimerkjum og eru fastir áskrif-
endur að nýjum frimerkjaút-
gáfum póststjórnarinnar, jafnvel
þótt slik notkun á þekkingu póst-
þjónustunnar, sem hún fær vegna
einokunaraðstöðu, virðist laga-
lega meira en hæpin. Ef til vill er
ekki hægt aö taka nákvæmlega
sömu dæmi um Island og takin
hafa verið hér að framan, — en
dæmi þó. Tölfræðingar, hagfræð-
ingar og aðrir sem fást við þjóö-
félagsrannsóknir og skráningu
þeirra telja meira aö segja, aö Is-
land sé eitt „bezt gegnumlýsta”
þjóðfélag i heimi — sem merkir,
að alls kyns upplýsingar um sam-
félagið — og einstaklinginn —
séu hér ýtarlegri og nákvæmari,
en viðast hvar annars staðar.
Þessar niðurstöður má svo viða
fá bæði frá opinberum stofnunum
og einkaaðilum og eru þær um
ótrúlegustu efni.
Svo dæmi séu tekin, þá láta
manntalsskrifstofur i hverju um-
dæmi i té nákvæmar ibúaskrár.
Bifreiðaeftirlitið hefur i sinum
fórum skrár yfir lögheimili allrá
bifreiðaeigenda i landinu. Stjórn-
málaflokkarnir hafa i skjala-
skápum sinum kjörskrár tnerktar
eftir þvi, hvar flokksstarfsmemm
halda að hver og einn sé i pólitik.
Bankarnir hafa i sinum höndum
skrár um hvaða fólk dró að borga
vixilinn sinn á tilskildum tima
þennan og þennan dag fyrir þetta
og þetta mörgum mánuðum —
sem „dúkka” svo upp á óvænt-
asta andartaki mörgum árum
seinna, þegar viðkomandi er
löngu orðinn heiðarlegasti maður
á Islandi i sjálfs sin augum og
annara og hefur fyrir lifandis
löngu gleymt þessum helv ....
vixli, sem setti svarta blettinn á
kortið hans. Og til þess að skýrsl-
ur allra aðila „stemmi” nú ná-
kvæmlega saman og enginn
hugsanleg leið sé fyrir einstakl-
inginn til þess aö detta einhvers
staöar niður á milli, þá hefur
hverjum og einum verið fengið
sitt nafnnúmer — sitt fangaheiti
hjá vélheilunum — og eins og
dæmin sanna þýðir jafnvel ekki
fyrir fólk að hrökkva upp af ef
vélheilarnir ekki um leiö sam-
þykkja, að númerið sé dautt.
Háttvirtur herra
5514-6227 fær senda happdrættis-
miða, fundarboð, rafmagnsreikn-
inga, jafnvel skattseðil að
ógleymdum útvarpsrukkunum
þótt mannvesalingurinn, sem það
fanganúmer bar, sé löngu dauður
og grafinn og farinn aö njóta
sinna góðverka i dýrð drottins —
ellegar harma sinar syndir á
öðrum, ónefndum stað — fyrir lif-
andis langt um löngu. Þótt hann
sé dauður fyrir mönnum og
fyrir guði lifir hann enn fyrir vél-
heilunum og lifa skal hann meðan
vélheili vill — raunar lifir hann
áfram þótt hann sé einnig þar
dauöur, þvi kortin hans i rafheila-
kerfunum geyma allar upplýsing-
ar um háttvirtan herra 5514-6227
eins og hann var og hét ,,á meðan
grasið grær, vindurinn blæs og
himininn er blár” svo vitnað sé i
leiktexta i indiánasjói Buffaló
gamla Bills, sem þykir nú öllum
textum merkilegri enda mæltur i
fyrndinni af munni manns, er bar
það hljómfagra nafn Liggjandi
tuddi og mun vist hafa verið sjálf-
ur Sókrates endurborinn.
En hvað um það. Að beztu
manna yfirsýn hefur þessi innrás
i einkalif manna nú þegar náð
meira en nógu langt og fræöi-
menn i lögvisi i Vestur-Evrópu
hafa nú skorið upp herör gegn
skýrslunum um ævi og skoðanir
einstaklinganna — gegn raf-
magnsheilunum, sem allar þess-
ar upplýsingar gleypa og geyma
UPPLÝSINGABANKAI
0
Föstudagur 16. marz 1973