Alþýðublaðið - 16.03.1973, Page 12
alþýðu
KOPAYOGS APÓTEK
Opið öli kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl. 1 og S|mj4Q1Q2.
SENDiBILASTOÐiN Hf
GUNNAR THORODDSEN UMYFIRLYSINGU HANNIBALS:
Þingmeirihluti fyrir Haag
„Mér þykir liklegt, að nú sé
þingmeirihluti fyrir þvi, að við
flytjum mál okkar fyrir
Alþjóðadómstólnum i Haag”,
sagði dr. Gunnar Thoroddsen,
alþingismaður i svari við þeirri
spurningu Alþýðublaðsins,
hvort yfirlýsing Hannibals
Valdimarssonar bæri þvi ekki
vitni, að þingmeirihluti væri
fyrir þvi, að senda mái-
flutningsmann til Haag.
Alþýðublaðið lagði einnig þá
spurningu fyrir dr. Gunnar
Thoroddsen, hvort afstaða
Hannibals Valdimarssonar væri
ekki i sama dúr og sú skoðun,
sem hann sjálfur hefði barizt
fyrir.
„Jú, vissulega”, svaraði
Gunnar Thoroddsen, „Ég fagna
þessari afstöðu Hannibals
Valdimarssonar. Vegna hags-
muna tslands tel ég nauðsyn-
STORTIDIHOI -
ORÐ UM ÞAO A ALÞINGI
legt, að mál okkar verði flutt i
Haag. Til þess liggja margar
ástæður og ein er sú, sem
Hannibal nefnir, þ.e. að máls-
úrslit frestast, og það er okkur i
hag.
Ennfremur mundi mál-
flutningur auka stórum likur til
þess, að niðurstaðan yrði okkur
i vil og okkur gefst gullið tæki-
færi til að kynna málstað okkar
á alþjóðavettvangi”.
EN EKKI
— Min skoðun hefur ekkert
breytzt, sagði Einar Agústsson,
utanrikisráðherra, i stuttu við-
tali við Alþýðublaðið i morgun
út af ummælum Hannibals
Valdimarssonar i landhelgis-
málinu. Ég tel, að við eigum
ekki að senda fulltrúa til Haag.
Annars höfum við ekki fjallað
um malið. Það verður gert i
landhelgisnefndinni.
Ummæli Hannibals Valdi-
marssonar, sem hann upphaf-
lega lét falla á fundi i Junior
Chambers og Morgunblaðið
fékk staðfest hjá honum i gær,
hafa vakið griðarmikla athygli,
enda ganga þau þvert á þá
stefnu, sem talið er að rikis-
stjórnin hafi i málinu. Er einnig
athyglisvert, að röksemdir
Hannibals Valdimarssonar
fyrir þvi, að rétt sé nú að senda
talsmann til Haag eru nákvæm-
lega þær sömu og komu fram i
leiðara Alþýðublaðsins um mál-
ið i gær og Gylfi Þ. Gislason
lýsti i útvarpsumræðunum á
dögunum.
í upphafi fundar sameinaðs
Alþingis i gær f jölmenntu blaða-
menn i blaðamannastúkuna þar
eð þeir bjuggust við þvi, að mál-
ið yrði tekið til umræðu utan
dagskrár. Ýmsir þingmenn
væntu þess einnig að þvi er
blaðamaður Alþýðublaðsins
varð var við. Málinu var hins
vegar ekki hreyft — enginn
þingmaður bað um orðið utan
dagskrár og fundaði þvi Alþingi
á sinn venjulega hátt þótt þau
stórtiðindi hefðu gerzt, að einn
af ráðherrunum hefði opinber-
lega lýst sig andvigan stefnu,
sem talið var að rikisstjórnin
hefði i mesta lifshagsmunamáli
þjóðarinnar og Einar Agústs-
son, utanrikisráðherra, hefur nú
itrekaðsem sina skoðun i viðtali
við Alþýðublaðið.
Eins og fram kemur i ummæl-
um Hannibals Valdimarssonar i
Morgunblaðinu hefur enn engin
ákvörðun verið tekin um mál
þetta af þingflokki frjálslyndra
þótt Hannibal hafi nú lýst sinni
persónulegu afstöðu. Alþýðu-
blaðið hafði i gær tal af Birni
Framhald á bls. 2
FINNBOGI RUTUR: ÞAÐ ÞARF AÐ
TAKA ÁKVÖRÐUN AÐ NÝJU
„Akvörðun rikisstjórnarinnar
frá siðastliðnu ári um að senda
ekki fulltrúa til Haag þarf
endurskoðunar við, eftir að
Alþjóðadómstóllinn hefur úr-
skurðað, að hann hafi lögsögu i
málinu”, sagði Finnbogi Rútur
Valdimarsson, fulltrúi Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna i
landhelgisnefndinni i samtali
við Alþýðublaðið i gær.
Eins og segir i annarri frétt i
Alþýðublaðinu i dag lætur utan-
rikisráöherra Einar Agústsson,
i það skina i viðtali við blaðið, að
það kunni að verða afgreitt i
landhelgisnefndinni, hvort
íslendingar sendi málsvara til
Haag eða ekki, — en landhelgis-
nefndin er skipuð fulltrúum
allra þingflokkanna fimm, ein-
um frá hverjum. Þá segir Björn
Jónsson einnig i sömu frétt, að
af hálfu SFV muni málið m.a.
koma til kasta fulltrúa þeirra i
landhelgisnefndinni, en sá
maður er Finnbogi Rútur
í tilefni af þessu sneri Alþýðu-
blaðið sér i gær til Finnboga
Rúts og leitaði álits hans.
Finnbogi Rútur sagði að hann
teldi s£r bera skyldu lil að gera
landhelgi snefndinni sjálfri
nákvæma grein fyrir niðurstöð-
um sinum og skoðunum
varðandi það, hvort Islendingar
eigi að senda málflutningsmann
til Haag, þegar Alþjóðadóm-
stóllinn tekur landhelgismálið
til efnislegrar meðferðar, áður
en hann léti skoðanir sínar i
þessu efni i ljós á opinberum
vettvang1. Það væri á valdi
rikisstjórnarinnar, hvenær
næsti fundur yrði haldinn i land-
helgisnefndinni.
„Hins vegar hef ég myndað
mér alveg ákveðna skoðun á
þessu atriði og geri grein fyrir
henni á næsta fundi landhelgis-
nefndarinnar. Það þarf að taka
nýja ákvörðun nú, um það hvort
senda á málflutningsmann i
Haag, eftir að dómstóllinn hefur
úrskurðað, að hann hafi lögsögu
i málinu”, sagði Finnbogi Rútur
Hann kvað það grundvallar-
skoðun sina, að þess yrði að
freista, að samkomulag allra
flokka gæti tekizt i landhelgis-
nefndinni um öll höfuðatriði
landhelgismálsins, ,,og nú
dregur að þvi, að við verðum að
taka endanlega ákvörðun i
þessu máli”. —
MU EU RETTADA AD HAFA KNIFINN I
VASANUM M RÆTT ER UM NETAGERU
Maður nokkur var fluttur
blóðugur og skorinn á slysadeild-
ina i fyrrakvöld, eftir hnifstungu,
sem hann hafði orðið fyrir i Þórs-
kaffi er hann var að skemmta sér
þar. Lögreglan handtók þann,
sem með hnifinn var.
Báðir mennirnir voru eitthvað
við skál svo þeir voru ekki yfir-
heyrðir fyrr en i gær, að ölviman
var af þeim. Kom þá i ljós að mál-
ið var ekki eins alvarlegt og á
horfðist, þvi skurðurinn virðist
vera algert óviljaverk.
Hnifstungumaðurinn er sjó-
maður, og sat hann við borð hjá
nokkrum stéttarbræðrum sinum
og ræddu þeir um netagerð.
Svona rétt til að leggja áherziu á
orð sin, tók hann upp vasahnifinn,
opnaði hann og réð þar með gangi
umræðna við borðið.
Þá bar að mann, sem ekki var
sammála sjómanninum og vogaði
sér að andmæla duglega.