Alþýðublaðið - 30.03.1973, Qupperneq 1
ÞETTA
GERÐIST
LÍKA
• FISKUR
í RÚSSANN
Þ. 28. marz var undir-
ritaður i Reykjavik
samningur milli Sölu-
miðstöðvar hraðfrysti-
húsanna og SÍS annars
vegar, og Prodingtorg
hins vegar, um sölu á
11.500 tonnum af
frystum flökum og fiski
til Sovétrikjanna.
Heildarupphæð söl-
unnar nemur 670
milljónum í slenzkra
króna. Hinn 5. febr.
voru send 1.500 tonn af
heildarmagninu frá
Vestmannaeyjum til
Sovétrikjanna.
i SPÁ
UM LOÐNU
Hjálmar Vilhjálms-
son fiskifræðingur mun
á næstu dögum gera
athuganir á ókynþroska
loðnu fyrir norðan og
austan. Að þeim athug-
unum loknum munu
fiskifræðingar gera spá
fyrir næstu loönuvertið,
en þess má geta hér, að
spá þeirra fyrir þessa
vertið stóðst 100%.
Hjálmar hefur að
undanförnu kannað
loðnumagnið fyrir
norðan, en litið fundið
nema innst i fjörðum.
Þar eru smabátar að
veiðum, en enginn
grundvöllur er þar fyrir
stórveiði.
• BYE
STJÚRNAR
Skemmtikraftar frá
öllum Norðurlöndunum
koma fram á skemmtun
til styrktar Vestmanna-
eyingum i Háskólabiói á
sunnudag. Stjórnandi
skemmtunarinnar verði
norski sjónvarps-
maðurinn Erik Bye, en
hann stjórnaöi þvi
fræga Vestmannaeyja-
kvöldi norska sjón-
varpsins fyrir
skemmstu. Aðgöngu-
miðar að skemmtuninni
á sunnudag verða jafn-
framt happdrættis
miðar.
• LAGA
REGLURNAR
„Við stefnum að þvi
að breyta reglum um
álagningu fasteigna-
skatta á aldraða
þannig, að ekki þurfi að
sækja sérstaklega um
lækkun, heldur verði
eingöngu farið eftir
tekjum”, sagði Kristinn
Ó. Guðmundsson
bæjarstjóri i Hafnar
firði, þegar Alþýðu
blaðið hafði samband
við hann i gær.
Alþýðublaðið skýrði
frá þvi I gær, að lækk
anir og niðurfellingar á
fasteignasköttum aldr
aðra komi misjafnlega
niður á fólki eftir því
hvar á landinu það býr
Hérá
risa
hundasjúkrahús
Fostudagur 30. marz 1973 54! árg.
vm FÁUM TVÚFALDAN
SKAMMT AF OSKARNUM
Við eigum ekki aldeilis
að missa af þvf áttfalda
Óskarsverðlaunaefni
„Cabaret”, þvi auk þess
sem Hafnarbió hefur þeg-
ar fest kaup á kvikmynd-
inni til sýninga i vor eða
fyrripartinn I sumar,
verður leikgerðin sett á
sviö i Þjóðleikhúsinu, og
hefjast sýningar þar í
april.
Eins og kunnugt er
hlaut leikkonan Liza
Minelli Óskarsverölaun
SKIPSTAPAR
fyrir leik sinn i „Caba-
ret”, en i það hlutverk á
fjölum Þjóðleikhússins ;
hefur veriö valin Edda
Þórarinsdóttir. Aætlað er j
aö hefja æfingar á |
„Cabaret” um helgina.
Að þvi er forstjóri
llafnarbiós sagði við |
Alþýðublaöið I gær verður
myndin annað hvort tekin
til sýninga i vor eða eftir
að sýningum Þjóð-
leikhússins lýkur, og yrði
það þá i júni eöa júli.
Hinn kunni islands-
vinur, Mark Watson,
hefur boðizt til að gefa
hingað dýraspitala að
sögn Hilmars Foss, dóm-
túlks, er við áttum tal viö
hann i gær, en Hilmar er
vinur Watson og umboðs-
maður hans. Dýraspitali
þessi mun risa i nágrenni
Reykjavikur.
Watson hefur áður
komið við sögu islenzka
sögu með örlæti sinu og
menningaráhuga; meðal
annars, er hann gaf Þjóð-
minjasafninu safn Coll-
ingwood-myndanna, sem
eru, að sögn Kristjáns
Eldjárns, forseta, og ann-
arra kunnugra, ómetan-
legt verðmæti.
Það var þessi sami
Watson, sem á sinum
tima gaf fé til endurreisn-
ar Glaumbæjar i Skaga-
firði, sem nú er hið merk-
asta byggða- og minja-
safn.
Þá gaf Watson myndar-
lega fjárhæð til þess að
bæta aðbúnað hundanna,
sem geymdir eru á veg-
um veiðistjóra uppi við
Hafravatn, og þegar
Vestmannaeyjagosið
hófst, tjáði hann sig
reiðubúinn til að styrkja
fjárhagslega flutning á
dýrum úr Eyjum, ef þess
gerðist þörf.
Watson er mikill
dýravinur og kunnáttu-
maður um hundarækt.
Hefur hann m.a. skrifað
bók um islenzka hundinn,
sem hann hefur hrein-
ræktað. Er það vafalaust
hundaspitali, sem Watson
vill gefa hingað
Ml
I íhinrw,i'|,ntri
'ff kSas
ili : m JPMI 1 '
tíHBiiilii .......
VIDSKILA EN
EKKI LENGI
Það dugir ekki minna en
að vcra stórstig til að ná
hópnum, sem i gær arkaöi
um götur borgarinnar I
inisjöfnum veðrum, klædd-
ur kjólfötum og peysuföt-
Það var hinn árlegi
Peysufatadagur
Verzlunarskólanema — og
Pétur Jensson var á okkar
vegum að leita aö rétta
mótívinu á „peysufata-
dagsmynd”.
Sökudólgarnir sleppa gjarnan
Kom í veg fyrir
en veröur
2Í7lT>i
’fl-: iíí-'7T.,;í^íprlr*
að borga tjónið
Kona nokkur kom með
snarræði i veg fyrir árekst-
ur inn á Réttarholtsvegi i
gærdag, með þeim afleið-
ingum að bill hennar valt,
en liklega mun konan sitja
uppi með allt tjónið, þvi
sökudólgurinn, sem hrakti
hana út af veginum, stakk
af og veit enginn hver hann
er.
Slysið varö á Réttar-
holtsvegi, skammt sunnan
við Langagerði. Bill, sem
verið hafði á suðurleið,
stöðvaðist vegna hálku, en
annar bill, sem var á eftir
honum sveigði yfir á hina
akreinina, og ók beint á
móti konunni, sem sá sitt
óvænna og sveigöi útaf.
Konan slapp litið meidd,
og eins árs barn, sem hún
var með i bilnum, meiddist
ekkert, enda vel spennt
niður i barnastól i aftursæt-
inu.
Mikið var um árekstra
siðdegis i gær, en sam-
kvæmt upplýsingum lög-
reglunnar voru þeir flestir
fremur vægir og ekki var
vitað um meiðsli á fólki.
VERSTI VETURINN
HAGSTOFAN I STOÐUGU
STRÍÐI VIÐ UNGLINGA
„Við eigum i stöðugu
striði við unglinga, sem
eru að reyna að verða sér
úti um fölsuð nafnskir-
teini, enmeðhertum eftir-
litsaðgeröum höfum við
afhjúpaö marga þeirra,
og nú eru á döfinni að-
gerðir sem enn herða
„Þetta er sá langversti
vetur sem gengið hefur yfir
landið hvað varðar skips-
skaða og aðra óáran”,
sagði Hannes Hafstein hjá
Slysvarnarfélaginu er við
ræddum við hann i gær-
kvöldi.
Siðasti sólarhringur
hefur verið annasamur hjá
Hannesi og öðrum hjá
Slysavarnarfélaginu. I
óveðri, sem gekk yfir flest
mið við landið lentu tveir
bátar i erfiðleikum, eitt
flutningaskip, og smábáts
var saknað. Sem
betur fer kom sá bátur i
leitirnar, og það tókst að
bjarga öðrum hinna, en
einum bát varð ekki
bjargað, vélbátnum Frigg
frá Vestmannaeyjum.
Mannbjörg varð, en bátinn
rak upp i Krisuvikurbjarg,
og þar brotnaði hann i
spón. Skipverjar voru
fimm talsins, en Frigg var
50 lesta eikarbátur.
Stigandi frá Ólafsvik
hugði að björgun en fékk þá
net i skrúfuna og var dreg-
inn til hafnar. Þá var i gær
óttazt um 14 lesta bát frá
Neskaupstað, Olduna, en
hann kom i leitirnar með
bilaða talstöð. Skipverjar,
tveir talsins, voru heilir á
húfi.
Upp úr hádegi i gær barst
svo tilkynning um að 3500
lesta skipa frá Kýpur, Rug-
ia, ætti i erfiöleikum und-
an Dyrhólaey. Hafði sjór
komizt i fremstu lest skips-
ins, en skipið var fullt af
súráli.
eftirlitið”, sagði Ingimar
Jónasson deildarstjóri á
Hagstofunni, i viðtali við
blaðið.
Vegna fréttar blaðsins i
gær, þess efnis að
unglingum hefði tekizt að
svikja út fölsuð nafnskir-
teini á Hagstofunni,
kannaöi blaðið lauslega,
hvaða aðgerðum Hag-
stofan beitir gegn þess
háttar.
1 fyrsta lagi er nú farið
að þrykkja fæðingarár
með lit á skirteinið, svo
erfitt mun að breyta þvi.
Búið er að kaupa vél, sem
á að plasthúða skirteinin,
en þá verður með öllu
ókleift að breyta áletrun.
Þá verða nú þeir, sem
óska eftir nýju nafnskir-
teini, að koma með mynd,
eiginhandaráritun og
staðfest vottorð skóla-
stjóra eða vinnuveitanda i
lokuðu stimpluðu
umslagi. Ennfremur eru
unglingar nú spurðir um
annað fólk i húsinu, sem
þeir segjast eiga heima i,
en spurningar af þvi tagi
hafa oft komið upp um
falsarana.
Fleiri ráðstafanir hafa
einnig verið ræddar, svo
sem að halda eftir mynd-
um af öllum, sem fá nafn-
skirteini, og nota þær til
samanburðar ef einhver
vill fá nýtt skirteini.
Vonaðist Ingimar til, að
þegar þessar aðgerðir
væru allar komnar til
framkvæmda, yrði
endanlega girt fyrir alla
möguleika á falsi. —