Alþýðublaðið - 30.03.1973, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 30.03.1973, Blaðsíða 11
í SKUGGA MARÐARINS Saga ástar og örlaga eftir Victoriu Holt — Kettir! endurtók Lucie rugluð. — Hunter læknir tók þá og fór með þá, sagði ég til skýringar. — Verið svo vænar að segja mér um hvað þið eruð að tala. Ég vildi ekki að hún vissi um þetta. Ég hugsaði með mér: Það KRÍLIÐ H/MZ.T/) GfíRN IÐ ÞRNN NOTRR JÖTnRR RRS/R OL/K/R ÖOPRjr FERÐ HtiKfilt E/6r. i FoRfíR R£/P /Ð F/NF um H HiT/IRI 15wnTe. 'I / 8EKK mj? I- PKbF F/T ORKU f FR051N msfi f e'OL. 3ER& 'fv/hl. ffíLfí EYKT /VHRK 'PTT '/LftT- /Ð FlSKfí TORFfílf verða yfirheyrslur og allt kemst upp. ó, Stirling hvernig gaztu gert þetta? Eins og ég gæti haldið áfram að elska þig eftir sem áður! Minta sagði blátt áfram: — Ég held að læknirinn hafi ekki viljað að við töluðum um það strax. Hún sneri sér að mér. — En það ætti að mega segja Lucie frá þvi. Lucie, mjólkin, sem var i herberginu minu . . . ég drakk hana ekki. — Hvaða mjólk? spurði Lucie. — Mér var send mjólk upp i herbergið. Þú sagðir Lizzie að fara með hana til min, var það ekki? — Jú . Núna man ég það. — Ég drakk hana ekki. Ég velti henni niður af borðinu og kettirnir drukku hana. Nú eru þeir dauðir. — En hvað kemur þetta mjólk- inni við? Hún sagði þetta svo eðlilega að ótti minn rénaði að mun og mér létti. Ég hugsaði: — Við erum að imynda okkur þetta . . . báðar. Vitanlega stendur kattadauðinn i engu sambandi við mjólkina. — Svo kettirnir eru dauðir, sagði Lucie, — og þetta hefur komið ykkur i uppnám. Ég frétti að einhverjir af bændunum hefðu verið að eitra fyrir ref, sem gerði usla i alifuglabúunum. Bella er sifellt á flækingi. Ég leit á Mintu og sá einnig feginleik i svip hennar. Lucie hélt áfram spurningun- um: — Hvað hélduð þið að mjólk in kæmi þessu við? — Við héldum, að eitthvað hefði verið að mjólkinni, sagði ég, — og að vegna þess að þeir hefðu drukkið hana . . . Lucie var undrandi á svip: — Þið hélduð að mjólkin hefði verið eitruð'. En hver i ósköpunum . . . Hvað er annars orðið að ykkur báðum? — Auðvitað er þetta skýringin, sagði ég. — Kettirnir hafa étið eitthvað eitrað á bóndabæjunum. Það liggur i augum uppi. — Er þetta te, sem þið eruð með þarna i könnunni, sagði Lucie. — Ég gæti þegið sopa. — Það er kalt, en ég get sent eftir meiru. — Þakka þér fyrir. Svo held ég að við ættum að koma okkur aftur heim, Minta. Þú verður að fara betur með þig. Þvilikar hugdettur sem þið fáið. Ég hringdi eftir tei, og þegar það var komið og ég var að hella þvi i bollana, heyrðum við i vagn- hjólum fyrir utan og Mabel kom inn til að segja okkur að Hunter læknir væri kominn. — Hunter læknir! sagði Lucie. — Hvað er hann að gera hér? Ég bað Mabel að visa honum inn. Mér til undrunar var Stirling með honum. Lucie reis til hálfs upp úr stólnum og sagði: — Hvað er hér um að vera? Læknirinn sagði: — Ég er hingað kominn til að tala við yður og það sem ég hef að segja ættu allir að fá að heyra. Ég þarf vitna við. Ég hefði átt að leysa frá skjóðunni áður en þetta kom fyrir. — Er það viðvikjandi köttun- um? spurði Lucie. Ég leit á Stirling, en gat ekki ráðið neitt af svip hans. — Kettirnir átu eitur, sagði læknirinn. — Var það á einhverjum bóndabænum? spurði ég milli vonar og ótta. Áskriftarsíminn er 86666 AUGLÝSING Fjármálaráðuneytið vekur athygli þeirra aðila, sem hlut eiga að máli, á auglýsingu ráðuneytisins frá 29. marz 1973, og birt er i B-deild stjórnartiðinda, um sérstaka toll- meðferð vara, vegna aðildar Islands að Friverzlunarsamtökum Evrópu (EFTA) og samninga íslands við Efnahagsbanda- lag Evrópu (EBE) Sérprentun auglýsingar þessarar verður afhent i ráðuneytinu þeim aðilum, sem þess óska, i dag og næstu daga. Fjármálaráðuneytið, 29. marz 1973. Hjúkrunarkona Hjúkrunarkona óskast til starfa á nætur- vöktum aðra hverja viku á Geðdeild Barnaspitala Hringsins. Upplýsingar veitir yfirhjúkrunarkonan, simi 84611. Reykjavik, 28. marz 1973 Skrifstofa rikisspitalanna. AÐALFUNDUR Verzlunarbanka Islands hf., verður hald- inn i veitingahúsinu Sigtúni, laugardaginn 7. april 1973 og hefst kl. 14.30. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf skv. 18. grein sam- þykkta bankans. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum bankans. Tillögurnar liggja frammi i bankanum til athugunar fyrir hlut- hafa frá 2. april n.k. Aðgöngumiðar og atkvæðaseölar tu tund- arins verða afhentir hluthöfum i af- greiðslu bankans Bankastræti 5 miðviku- daginn 4. april, fimmtudaginn 5. april og föstudaginn 6. april kl. 9.30—12.30 og kl. 13.30—16.00. t bankaráði Verzlunarbanka íslands hf. Þ. Guðmundsson Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson Magnús J. Brynjólfsson. Aðalskoðun bifreiða i Mýra- og Borgarfjarðarsýslu árið 1973 fer fram svo sem hér segir: Borgarnes- !!. aprll, kl. 9 til 12 og 13 til 16,30. Borgarnes- 4 april, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30. Borgarnes- 5. aprfl kl 9 til 12 og 13 til 16,30. Borgarnes- 6. apríl, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30. - Borgarnes- 9. april, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30. Borgarncs- 10. april, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30. Borgarnes- 11. april, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30. Borgarnes- 12. april, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30 Borgarnes- 13. april, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30 Borgarnes- 16. apríl, kl. 9 til 12 og 13 til 16.30 Lamhiiagi - 17. april, kl. 10 til 12 og 13 til 16.00 i Oliust. Hvalfirfti. 18. april kl.10 til 12 og 13 til 16.00 Við skoðun þarf að framvisa kvittunum fyrir greiðslu bif- reiðaskatts og útvarpsgjalds. Þeir bifreiðaeigendur, sem eigi færa bifreiöar sinar til aðalskoðunar og tilkynna eigi forföll, er gild teljast, til bif- reiðaeftirlitsins i tima, mega búast viö þvi, að þær verði teknar úr umferð hvar sem til þeirra næst, án frekari fyrirvara. Sýslumaðurinn i Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu, 14. marz, 1973 o Föstudaqur 30. marz 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.