Alþýðublaðið - 30.03.1973, Side 3
Þvi verður ekki
neitað, að hún
er snotur
stúlkukindin á
myndinni. —
Hún er ensk og
vinir hennar
kalla hana Bluff
eða Blöff upp á
islenzku. Það
þarf þvi ekki að
koma ykkur á ó-
vart, að hún
hefur starf að
þvi að „blöffa”
fólk. Hún vinnur
nefnilega við
sjónvarpsaug-
lýsingar.
HLAUPA MEÐ
LANDNÁMSELD
FRÁ INGÚLFS-
HÖFÐA TIL
REYKJAVÍKUR
Hátiðahöld á Reykjavikur-
borgar i tilefni af 1100 ára afmæli
tslandsbyggðar ná hámarki
sunnudaginn 4. ágúst 1974, þegar
siðustu 100 hlaupararnir þeysa
inn á Arnarhól, eftir að lögð hefur
verið að baki vegalengdin frá
Ingólfshöfða til Reykjavikur, og
tendraður verður langeldur mik-
ill við styttu fyrsta landnáms-
mannsins, Ingólfs Arnarsonar.
Formaður bjóðhátiðarnefndar
Reykjavikur 1974 er Gisli Hall-
dórsson, forseti borgarstjórnar.
A þrettándanum, 6. janúar,
hefjast hátiðahöld með álfadansi
og brennum i borginni. Frá þvi
upp úr áramótum og fram i maí
verða skólabörn virkir þátt-
takendur i hátiðarhöldunum. A
þessu timabili verður lögð
áherzla á að kenna börnum sögu
Reykjavikur, efnt verður til
teiknisamkeppni meðal skóla-
barna og verða beztu úrlausn-
ar væntanlega gefnar út i bókar-
formi. Einnig verður efnt til sýn-
inga á vegum skólanna i höfuð-
borginni, m.a. föndur- og teikni-
sýningar, en auk þess iþrótta-
sýningar, skólahljómsveitir
koma fram o.fl.
17. júni verður „dagur æsk-
unnar” og eiga iþróttaviðburðir
einkum að einkenna daginn.
Aðalhátiðin verður siðan
helgina 3.-5. ágúst, og er það
sama helgin og aðalhátiðahöldin
fóru fram fyrir 100 árum.
Dagskrá fyrir unga og aldna
verður alla dagana, bæði að degi
til og á kvöldin.
Skólabörn, sem aka munu á
skrautvögnum, með hljóðfæra-
slætti, munu að morgni laugar-
dagsins 3. ágúst vekja borgarbúa.
Sunnudagurinn verður aðallega
helgaður iþróttum.
KYNFRÆÐSLAN
Æni ENGAN
AÐ HNEYKSLA
,,Ég held að enginn þurfi að
hneykslast á þessari fræðslu,
þvi efnið er sett fram á ákaf-
lega nærfærinn hátt”, sagði
Jón b. Hallgrimsson læknir,
er Alþ.bl. spurði hann um kyn-
fræðslu fyrir börn sem hefst i
sjónvarpinu næsta miðviku-
dag.
„Efnið er við hæfi barna-
skólabarna, enda sett inn til
sýningar á þeim timum sem
æatlaðir eru börnum. betta er
einskonar þróunar saga. —
Sýndar eru'fæðingar nokkurra
dýra, og svo er einnig sýnd
fæðing hjá konu í einum þátt-
anna”.
betta mun verða i fyrsta
sinn, sem barnsfæðing sést i
islenzku sjónvarpi. bættir
þessir eru frá BBC, og verða
þeirsýndir þrjá miðvikudaga i
röð. Ekki var Jóni kunnugt um
að fyrirhuguð væri samskonar
fræðsla fyrir unglinga, „en
ekki væri vanþörf á sliku”,
sagði hann.
RAUÐI KR0SSINN KAUPIR HOTEL FYRIR
AGODANN AF FJÁRHÆTTUSPILAKOSSUHUM
Setja upp sjúkragistihús — vilja einnig kaupa Hafnarbúðir
Rauði kross tslands hefur fest
kaup á húsnæði Hótels Ness við
Skipholt í Reykjavik og er kaup-
verðið 10,5 milljónir króna. Enn-
fremur hefur Rauði krossinn haf-
ið viðræður við Reykjavikurborg
um kaup á Hafnarbúðum, en það
VILJA FRIÐUN
Alþýðublaðinu barst i gær
ályktun þess efnis, að banna beri
veiðar i botnvörpu og dragnót á
Faxaflóa og auka beri friðunina.
Ályktunin fer hér á eftir:
„Fundur i Otvegsmannafélagi
Hafnarfjarðar haldinn 22. marz
1973 samþykkir að mæla
eindregið gegn þvi að framkomið
frumvarp til laga um breytingu á
lögum um bann gegn veiðum með
botnvörpu og flotvörpu, þar sem
gert er ráð fyrir að veiðar verði
leyfðar i botnvörpu eða dragnót i
Faxaflóa.
Fundurinn bendir á að full
ástæða sé til þess að halda áfram
friðunum á þeim uppeldissvæð-
um, sem nú eru friðuð og litur svo
á, að heldur beri að auka
friðunarráðstafanir en að draga
úr þeim”.
mál er nú til athugunar hjá
borgarritara og Hafnarbúða-
nefnd.
„bað hefur lengi verið draumur
okkar að eignast húsnæði, sem
gæti orðið samastaður fyrir fólk
utan af landi, sem leitar lækninga
i Reykjavik, þ.e. fólk, sem ekki
leggst inn á sjúkrahús, en þarf að
dvelja svo og svo lengi i höfuð-
borginni fyrir og eftir aðgerðir á
sjúkrahúsum o.s.frv.”, sagði
Eggert Asgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins, i
samtali við Alþýðublaðið i gær.
Rauði krossinn fær húsnæði
Hótel Ness afhent i júni, en i vetur
er húsnæðið tekið sem heimavist
fyrirnemendur i Kennaraháskóla
tslands. Húsnæðið er á tveimur
hæðum, 17 herbergi, og er þar
gistirými fyrir 26 manns. Með i
kaupunum fylgja allir innan-
stokksmunir hótelsins.
Um hugsanleg kaup á Hafnar-
búðum sagði Eggert: „Við höfum
lengi verið að leita að húsnæði,
sem hentaði starfsemi okkar, og
er orðið alllangt siðan okkur datt i
hug, að Hafnarbúðir kæmu til
greina i þessu efni. Vegna starf-
semi okkar i húsinu, siðan
náttúruhamfarirnar i Vest-
mannaeyjum hófust, höfum við
komizt ennbetur að raun um, hve
hentugt þetta húsnæði er fyrir
ýmsa starfsemi, sem við höfum
lengi haft á prjónunum, en ekki
getað ráðizt i vegna húsnæðis-
skorts.”
Hins vegar sagði Eggert að
Rauði krossinn myndi ekki leggja
áherzlu á að fá Haínarbúðir til af-
nota, meðan Vestmannaeyingar
þyrftu á þeim að halda.
Eggert sagði, að fjáröflun
Rauða krossins hefði gengið mjög
vel að undanförnu. „Til dæmis
hafa söfnunarkassarnir, sem
komið var upp viðs vegar á land-
'inu fyrir hálfu ári siðan, gefið
okkur miklar tekjur. Er gert ráð
fyrir, að tekjurnar, sem kassarn-
ir gefa, geti staðið undir stofn-
kostnaði og rekstri húsnæðisins i
Skipholti. Við viijum, að pen-
ingarnir, sem til okkar renna,
verði til þess að bæta heilbrigðis-
þjónustuna og velferð fólks i
landinu”, sagði Eggert að lokum.
GÆTIÐ YKKAR — ÞAÐ ER EKKI
SAAAA HVER TEKUR AÐ SÉR
AÐ TELJA FRAM TIL SKATTS
Fjöldi framteljanda hefur lent
i vandræðum vegna manns, sem
auglýsti að hann sæi um að telja
fram til skatts fyrir fólk. Tók
hann i nokkrum tilvikum fyrir-
framgreiðslu, og skuldbatt sig
jafnframt til að skila framtölun-
um til Skattstofunnar eða þá að
sækja um framtalsfrest. Hvor-
ugt gerði maðurinn, heldur
lagðist i óreglu, og sýpur sak-
laust fólkið nú seyðið af henni.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem blaðið hefur aflað sér
koma svona atvik upp á hverju
ári. Lendir þá blásaklaust fólk i
þvi að fá dráttarvexti vegna
vanskila.
Engin skilyrði eru sett hér-
lendis þeim mönnum sem taka
að sér slika þjónustu, en í ná-
grannalöndunum verða menn
að setja fram peningatrygg-
ingu, sem siðan rennur til bóta-
greiðslna bregði eitthvað útaf.
1 framangreindu tilviki varð
að brjótast inn á skrifstofu
mannsins, til þess að ná þaðan
út gögnum sem hann átti að
vera búin að skila til Skattstof-
unnar.
Föstudagur 30. marz 1973.
o