Alþýðublaðið - 30.03.1973, Blaðsíða 6
F
Eg mun skjóta ykkur niður eins
og akurhænur, sagði Trotskívið
þó 1921 — og það gerði hann:
KRONSTADT-SJÓLIÐARNIR
Nokkrir byltingarmenn frá
Kronstadt, sem undan kom-
ust. Þeir sluppu yfir isinn á
Finnlandsflóa til Terijoki á
Finnlandi — og sluppu frá
hinu blóðuga uppgjöri eftir
fall Kronstadt.
VORU TAKNMYND - ÞESS
VEGNA UROU ÞEIR AD DEYJA!
Spjallað um nýútkomna danska bók
eftir Henry Rasmussen / Aktuelt
Trotskí vildi ekki
semja viö sjóliðana og
verkamennina í Kron-
stad árið 1921.
— Ég mun skjóta
ykkur niður eins og
aukurhænur, sagði hann.
Og það gerði hann.
Kronstadt-sjóliðarnir
voru gamlir félagar
hans. Kjarnakarlar, sem
árið 1917 voru þeir tru-
föstustu, þeir hug-
rökkustu, en gerðu uþþ-
reins árið 1921 til stuðn-
ings við mótmæli og
verkföll verkamanna í
St. Pétursborg.
Kronstadt-sjóliðarnir
brutust undan kerfinu
með því að gefa út
striðsyf irlýsingu á
hendur flokksgæðing-
KR0NSTADT5 BtLIGGENHED
I DEN FINSKE BU6T
kOTLlN-
0ÉN
10 KM
V/EJ.....JERNBANE
unum og þeim stjórn-
málaflokki, sem tekið
hafði sér alræðisvald og
þar með svikið hugsjón
byltingarinnar.
Kronstadt gat einangrað sig
úti á isilögðum Finnlandsflóa
með aðstoð flotadeildar og
hins öfluga Kronstadt-virkis. t
byrjun hélt Kronstadt fyllilega
sinum hlut gegn flokknum —
sem á móti skaut fótunum
undir hryllingssögur um
..fólkið i Kronstadt, sem lætur
zarinn stjórna sér”. En þegar
til lengdar lét var ekki hægt að
halda Kronstadt.
Hinn 17. marz árið 1921 féllu
borgin og virkið. Frá megin-
landinu þrumuðu fallbyssur
gegn Kronstadt. Úr lofti
vörpuðu flugvélar sprengjum
á virkið. Isinn á flóanum var
ótraustur, en nokkrir her-
mannahópar komust yfir.
Þúsundir sjóliða og verka-
manna láu dauðir á götunum i
Kronstadt. Eftir áhlaupið kom
svo dómsuppkvaðningin yfir
þá, sem þá þegar höfðu ekki
týnt lifi... það, sem vanrækt
hafði verið, unnu dómarnir
upp. Aðeins fáum einum tókst
að flýja til Finnlands.
1 mörg ár eftir þetta reyndi
Trotski að réttlæta ákvörðun
sina um útrýmingu Kronstadt-
sjóliðanna- Þetta voru ekki
gömlu Kronstadt-sjóliðarnir,
sagði hann. Þvert á móti voru
þarna að verki siðlaus,
borgaraleg öfl i stifpressuðum
buxum og með nýmóðins hár-
greiðslur, er hegðuðu sér sem
svikarar við byltinguna i
Kronstadt... sagði Trotski.
Fullyrt er, að siðasta setning-
in, sem hann mælti á bana-
beði, hefði snúizt um sjólið-
ana, sem hann hafði svikið ...
það siðasta, sem menn hins
vegar heyröu frá Kronstadt-
sjóliðunum, þegar stórskotalið
Rauða hersins gerði enda á
uppreisn og hugsjón, voru
hrópin: ..Lengi lifi heims-
byltingin” ... óp sjóliðanna um
leið og þeir voru murkaðir
niður.
Sjóliðarnir i Kronstadt eru
atburður i sögunni, sem enn er
lifandi. Margar útlistanir hafa
komið fram. Margar skýring-
ar hafa verið gefnar. Mikil
reiði hefur verið látin i ljós og
mikil fordæming hefur verið
viðhöfð.
Sagnfræðingar hafa mikið
fjallað um þennan blóðuga og
að sinu leyti dularfulla
kapitula i sögu eftirbyltinga-
áranna i Rússlandi.
Var ýtt undir uppreisnina i
Kronstadt utanfrá á timabili,
þegar Sovétrikin voru
auðsæranleg? A timabili,
þegar fólkið svalt, skalf af
kulda og hafði misst alla von?
A timabili þar sem matur var
af svo skornum skammti, að
verkföll brutust út iivýmsum
borgum? Eða voru mótmæli
Kronstadt-sjóliðanna yfir-
veguð og skipulögð tilraun til
þess að stöðva þróun i Sovét-
rikjunum, sem sjóliðarnir
töldu hættulega og svik við
hugsjónirnar?
Kronstadt-sjóliðarnir voru
táknmynd — symból — áður
en þeir gripu til uppreisnar-
innar.
Það var þess vegna, sem
þeir voru hættulegir — svo
hættulegir, að þeir urðu að
deyja... Kronstadt-sjóliðarnir
voru e.t.v. svona hættulegir,
vegna þess að þeir höfðu rétt
fyrir sér. Svo að segja á sömu
stundu og þeir voru stráfelldir
kom Lenin fram með sina ,,ný-
pólitik”, sem m.a. fól i sér
ákveðna tegund af blönduðu
hagkerfi með einkakapital-
isma sem vaka breytingar á
sósiölskum hugsunarhætti og
framkvæmdahugmyndum.
Með þeirri breytingu komu
kommúnistar til móts viö
meginatriðin i kröfum
Kronstadts-sjóliðanna, sem
vildu fá fólkið i framþróunina
frekar en að það léti stjórnast
af ósáttfúsum flokki. Þeir
vildu styrkja sóvétin, en draga
úr valdi flokksins.
Frásögn tsvestíu
Tveir Danir, þeir Niels
Brunse og Hans-Jörgen
Nielsen hafa tekið Kronstadt-
málið til meðferðar i nýrri
bók, sem m.a. byggir á mjög
athyglisverðum skjölum:
Kronstadt-útgáfum blaðsins
Isvestiu frá þessum ógn-
þrungnu timum.
Efni þetta hefur nýlega
verið þýtt á Vesturlandamál,
og hinir tveir dönsku rit-
höfundar taka þessi 14 tölu-
Iblöð af Kronstadts-lversiu
með i heimildaskrána, sem
safnað hefur verið i frá
„báðum hliðum”. Greinar
Kronstadts-blaðsins eru i heild
spennandi lesning, sem lýsir
viðburðum og hugarástandi,
segir frá von og að lokum von-
svikum. Þetta efni ætti að
skoða i samhengi við frá-
sagnir þeirra sagnfræðinga,
sem skoðað gátu atburðina úr
nálægð, svo sem eins og hin
vinstri sinnaða JBandarikja-
kona Emma Goldman, sem
Trotski vitaskuld afneitaði oft
og mörgum sinnum — en
lýsingar hennar hafa aðrir
staðfest.
Tilkynningar Kronstadts-
ísvestiu eru oft barnalegar,
alveg eins og tilkynningar
danskra blaða frá hernáms-
árunum um skammtanir,
varúðarreglur o.s.frv. voru
barnalegar.
Samt er afgerandi munur á.
Kronstadt var ekki hersetin af
„erlendum öflum” en blaðið
Framhald á bis. 4
SÍMALÍNUR TIL EVRÓPU UPPTEKNAR -
GERIÐ SVU VEL AÐ REYNA AFTUR 1975
Margir brezkir við-
skiptahöldar, sem reyndu
að setja sjálfir upp sina
einka-fagnaðarhátiðir
þegar Bretar um s.l. ára-
mót gerðust aðilar að
Efnahagsbandalagi
Evrópu, urðu að gefa þau
upp á bátinn. Þeir komust
nefnilega að þvi, að það er
alls ekki svo auðvelt að ná
simasambani við megin
landið. Oft er það hreinn
ógerningur.
Það tók blaðamenn
„The Sunday Times” 128
tilraunir aö ná átta sinn-
um simasambandi við höf-
uðborgir annara EBE-
landa viö upphaf
ársins. Þeir reyndu
við simann á þeim tima
dagsins, þegar flestir i
viðskiptalifinu þurfa að ná
tali af stéttarbræðrum sin-
um i fjarlægum löndum
eða af viðskiptavinum.
Árangurinn var oft afkára
legur. Til dæmis i niundá
sinn, sem reynt var að ná
simasambandi við brezka
sendiráðið i Luxemburg
voru blaðamennirnir
skyndilega komnir i sima-
samband við furðulostinn
fisksala i Sheffield.
Rilraunirnar til þess að
ná simasambandi viö
meginland Evrópu brugð-
ust sem sagt i 93 skiptum
af hverjum 100 — og eru
það athyglisverðar upp-
lýsingar fyrir okkur Is-
lendinga, þar sem mikið af
simasamskiptumm okkar
við önnur lönd fara fram
um London þótt við getum
ekki hringt beint út án
milligöngu miðstöðvar,
eins og hægt er viða ann-
ars staðar. Brezka póst-
málastjórnin (sem viður-
kennir að „tekst ekki hlut-
fallið” sé 60%) segir, að á
næstu tveim árum muni
simasambandið enn
versna. Þá fyrst er hægt
að vænta betri tima.
Þegar blaðamenn „The
Sunday Times” endurtóku
tilraun sina kl. 6 siðdegis á
virkum degi náðu þeir
sambandi við sex af átta
höfuðborgum annara
EBE-landa i fyrstu til-
raun. Simasambandi við
Paris náðu þeir i annarri
tilraun og við Luxemburg i
þeirri þriðju.
Til þess svo að bæta
gráu ofan á svart á þess-
um dögum Evrópusam-
vinnunnar var erfiðasta
tilraunin, sem blaðamenn-
irnir gerðu, að ná sima-
sambandi við sjálfar aðal-
stöðvar Efnahagsbanda-
lags Evrópu i Bríissel.
Byrjað var að hringja kl. 3
siðdegis og var hringt án
afláts, en ávallt kom „á-
tali-sónninn”. Þegar sam-
band loks fékkst i 23ju til-
rauninni, sem gerð var, þá
gerðu truflanir á linunni
allt samtal ómögulegt.
Það tók hálfa klukkustund
til viðbótar — og 33 til-
raunir — að ná sambandi
við stöðvar EBE, en þá
var klukkan orðin 5 i
Briissel og flest starfsfólk-
ið á leiðinni heim til sin.
Helzti flöskuhálsinn
hvað varðar simasam-
band við meginlandið er
ekki fjöldi eða fæð linanna,
sem tengja Bretland og
meginland Evrópu sima-
sambandi, heldur dreifi-
stöðvarnar fyrir endunum
á þessum linum. 011
simasamtöl milli Bret
lands og annara hluta
heimsins fara um aðra
hvora af tveimur mið-
stöðvum i London: Fara-
day House við Thames-
ána eða miðstöðina i
Woodstreet, að baki St.
Pálskirkjunnar. Há-
marksafkastageta stöðv
anna á simtöl til og frá
Bretlandi — hvort sem
hringt er beint eða gegn
um miðstöð — eru 3.300
simtöl i senn.
Póststjórnin telur þó, að
hámark þeirra simtala,
sem i raun og veru geti átt
sér stað á sama tima um
þessar miðstöðvar, séu
2.750. Afgangurinn af lin-
unum er þá upptekinn af
simnotendum, sem eru að
reyna að „ná I gegn”, en
tekzt ekki.
Þegar kerfið yfirhleðst
þá fækkar þeim simtölum,
sem „takast”, vegna þess,
að þá eru fleiri linur
bundnar simtalstilraun-
um, sem engan árangur
bera. 1 undantekningartil-
vikum, þegar álagið er
sérstaklega mikið, geta á-
hrifin verkað aftur fyrir
sig, þannig að ekki aðeins
simakerfi viö útlönd fari i
rúst, heldur einnig sima-
kerfi sjálfrar Lundúna-
borgar.
Hluti af vandamálinu
skapast af þvi, að sima-
þjónusta Frakka og Itala
annar alls ekki þeim kröf-
um, sem til þeirra eru
gerðar. Niðurstaðan verð-
ur sú, að tilraunir Breta til
þess að ná simasambandi
við Róm eða Paris, sem
ekki takast vegna upp-
náms i simakerfi þessara
borga, hafa afturverkandi
áhrif og leggja brezka
utanlandskerfið einnig i
rúst.
Samt sem áður var hægt
að auka árangur kerfisins
ef viðtækari dreifiútbún-
aði hefði verið komið fyrir
á undanförnum árum. Ár-
ið 1967 spáði brezka Póst-
málastjórnin 14% aukn-
ingu á ári á simtölum við
útlönd og hagaði fram-
kvæmdum i samræmi við
þaö. Sumir — fyrst og
fremst Samtök simnot-
enda — fullyrtu, að þörfin
myndi verða miklu meiri.
Og þeir reyndust sannspá-
ir. Hún jókst um 20% á ári
og þegar Póststjórnin
hafði áætlað tvöföldun á
simtalabeiðnum við útlönd
á fimm árum fjölgaði
beiðnunum um 25%.
Þá gerði Póststjórnin
heldur ekki ráð fyrir vara-
afkastagetu simakerfisins
sem hægt væri að gripa til
á þeim timum dags, þegar
álagið nær hámarki. Af-
leiðingarnar eru þær, að á
þeim tima, sem skrifstof-
ur eru opna i Bretlandi er
talsimakerfið við útlönd
með afköst 20% undir
þörfinni. Póststjórnin hef-
ur reynt að mæta þessu
með ýmsum ráðum —
m.a. þvi að stækka til
muna helzt telex-miðstöð
Bretlands i St.Botolph i
Lundúnaborg. Það eykur
getu kerfisins um 50% til
þess að afgreiða simtöl til
útlanda, þar sem simnot-
andinn sjálfur velur núm-
erið — en vel að merkja
aðeins til landa utan
Evrópu.
Erfiðleikarnir, sem
mæta þeim simnotendum,
er sjálfir geta valið sima-
númer viðmælenda sinna i
Evrópu, eru þó litilvægir
miðaðviðerfiðleika hinna,
sem verða ávallt að leita
Myndin sýnir hve oft þurfti
aö reyna til að ná síma-
sambandi við númer i höf-
uðborgum hinna átta rfkja,
er voru fyrir I Efnahags-
bandalagi Evrópu frá
fyrirtækissíma i London, er
Bretar gengu i Efnahags-
bandalagið (ytri hringirn-
ir) — og simasambandi frá
viðkomandi borgum til
London (innri hringirnir).
Eftir þvi sem rikjum
bandalagsins fjölgar, þvi
flóknara og svifaseinna
verður allt simasamband.
til miðstöðvar um sima-
samband við útlönd.
Biðtiminn eftir hand-
virkum simtölum er oft ó-
trúlega langur. Það er
ekkert óvanalegt að biða
þurfi i sex klukkustundir
eftir simtali til Rómar —
þeir sem eiga peninga
geta sem sagt mæta vel
tekið sérflugfarfram og til
baka til Rómar og verið
komnir aftur heim löngu
áður, en miðstöð kemur
með simtalið. Með þvi að
snúa skifunni án afláts er
þó yfirleitt hægt að ná
simasambandi við borgina
á ca. 15 mínútum.
Að þvi er yfirmaður
utanlandsdeildar brezku
simaþjónustunnar segir
eru umbætur væntanlegar
árið 1975.
A þessu ári kemst mið-
stöðin i Wood Street til
fullra afkasta, en þær um-
bætur munu ekki megna
annað en að mæta við-
bótaróskum um utan-
landssimtöl þannig að af-
kastageta kerfisins verður
áfram að meðaltali 20%
fyrir neðan þarfir. A næsta
ári verða engin umtals-
verð nývirki framkvæmd
eða tekin I notkun i sima-
kerfinu við útlönd þannig
að á þvi ári gæti afkasta-
getan alveg eins dottið
niður i 40% fyrir neðan
þarfir.
Það eru sem sagt ekki
við Islendingar einir, sem
eigum i vandræðum með
simaþjónustuna. Þar virð-
ist hver og einn hafa sinn
djöful að draga.
Föstudagur 30. marz 1973. Föstudagur 30. marz 1973.
GORDON
BANKS
Enski landsliðsmarkvörð-
urinn Gordon Banks, sem talinn
hefur verið bezti markvörður
heims og var i fyrra kjörinn
knattspyrnumaður ársins og
iþróttamaður ársins i Englandi,
hefur hafið æfingar á ný. Hann
hefur sett sér það takmark að
leika aftur i ensku 1. deildinni
eftir bilslysið, sem hann lenti i i
október sl. Hann langar einnig
að komast i landsliðið og taka
þátt i iokabaráttu heimsmeist-
arakeppninnar i Þýzkalandi ár-
ið 1974.
Að morgni sunnudagsins 22.
október sl. var Gordon Banks á
ferð I gegnum þorpið Whitmore
á heimleið. Hann haföi verið i
London aö leita sér lækninga á
axlarmeiðslum, sem hann haföi
hlotið daginn áður i leik gegn
Liverpool. A sunnudögum var
hann vanur að hafa börnin sín,
14, 9 og 3 ára, með sér i bilnum,
en þennan dag var hann einn á
ferð.
Þegar hann var kominn út úr
þorpinu, rakst hann á bil, sem
kom á móti. Framrúðan möl-
brotnaði við áreksturinn og
hann skarst á enni, augnlokum
og hægra auga. Hann var alger-
lega blindur I 50 stundir, og
jafnvel nú er ekki fullvist, að
hann fái aftur fulla sjón á hægra
auga. Þessi þekkti markvörður
veitekki heldur, hvort hann get-
ur nokkru sinni leikið aftur með
1. deildar liði.
„Ég reyni að vera þolinmóð-
ur”, sagðihann I viðtali i febrú-
ar. „Ég byrjaði að æfa aftur
fyrir hálfum mánuði. Ég hef
sett mér takmark, og ég reyni
að ná þvi með þvi að æfa á
hverjum degi. Likurnar eru
ekki miklar fyrir þvi, að ég leiki
meira með Stoke á þessu leik-
timabili, en ég vona, að sjónin
skáni. Mig langar að vita, hvort
ég sé nokkurs megnugur sem
eineygður markvörður. Ef þaö
tekst ekki, vona ég, aö ég fái aö
annast þjálfun markvarða fyrir
félagið”.
„Énginn má sköpum renna”,
sagöi Banks ennfremur. „Þetta
var eitthvað það versta, sem
fyrir mig gat komið. Annars má
ég þakka fyrir, að ekki fór verr.
Ég er feginn, að enginn i hinum
bilnum skyldi slasast, og ég er
feginn, að börnin voru ekki með
mér".
Það er i frásögur færandi, að
Banks fékk 40 punda sekt fyrir
gáleysislegan akstur. Hann ók á
hægri vegarkanti, þegar árekst-
urinn varð, en sem kunnugt er,
aka Englendingar á vinstri
vegarkanti. í fyrsta sinn i 17 ár
missti hann ökuskirteinið.
Gordon Banks er hvers manns
hugljúfi, hægur i umgengni og
brosmildur. Hann hefur veriö
atvinnuknattspyrnumaöur sið-
an 1959, er hann var seldur til
Leicester frá Chesterfield.
Hann hefur leikiö nær 500 leiki,
og er sá markvörður, sem flesta
landsleiki hefur leikið, 73 tals-
ins. Hann hóf að leika með Stoke
árið 1967, og samningur hans við
félagið rennur ekki út, fyrr en
hann verður fertugur. Það er
ekkert viö þvf að gera, ef hann,
sem cr 34 ára gamali nú, verður
að hætta að leika knattspyrnu,
segir hann. „Það rekur aö þvi
fyrr eða siðar, aö maöur verður
að hætta. Knattspyrnuferill
minn er ágætur, og ég hef þegar
leikið lengur en flestir aörir at-
vinnumenn. Það hefði verið erf-
iðara fyrir mig að sætta mig við
þetta, ef þetta heföi komið fyrir,
þegar ég var 10 árum yngri. Ef
ég reynist ekki góður þjálfari,
mun ég gefa mig óskiptan að
fyrirtækjum minum”.
Banks er 180 cm á hæð, en
flestir halda, að hann sé talsvert
hærri. Hinar frægu hendur hans
eru hvítar og mjúkar. Báðir úin-
liðir hans hafa brotnað, svo og
flest fingurbein, og sumir fing-
urnir viröast stifir og kræklótt-
ir.
Gordon Banks fæddist i Shef-
field, þar sem faðir hans var
stáliöjuverkamaður, og ungur
að aldri einsetti Gordon sér að
feta ekki i fótspor föður síns.
Honum var meinilla við óhrein-
indin og reykjarsvæluna, og
faðir hans hafði slæman hósta
árum saman. í Ferris Street,
þar sem Gordon ólst upp, hugs-
uðu drengirnir ekki um annað
en knattspyrnu, og þeir áttu sér
þá ósk heitasta að verða góðir
knattspyrnuinenn.
Gordon lauk skólanámi, er
liann var 15 ára og fékk vinnu i
kolanámu. Honum leiddist
starfið. Það gafst ekki mikill
timi til að leika knattspyrnu.
Hann var við herskyldu i Þýzka-
landi, og þar hitti hann úrsúlu
konu sina.
Að lokinni herskyldu hóf hann
að leika með 3. deildarliðinu
Chesterfield og var skærasta
stjarna liðsins i mörg ár. Það
var ekki fyrr en áriö 1960, að
Leicester kom mcð viöunandi
tilboð.
Áriö 1965 varð Banks fastur
maður I landsliðinu. Hann stóð
sig með hinni mestu prýði i
heimsmeistarakeppninni árið
1966, og þá hækkaði hann mjög I
verði. Hann langaöi að freista
gæfunnar með frægara liði, en
það var ekki fyrr en ári síöar, að
Stoke tryggði sér bezta mark-
vörð heims, manninn, sem varð
arftaki Jashins. Og nú biður
hann þess i óbærilegri óvissu,
sem framtiðin ber I skauti sér
eftir að hafa lent i hinu svipiega
bilslysi 22. október, en sauma
varð 108 spor i andlit hans.
Bezti markvörður í heimi
— er ferli hans lokið?