Alþýðublaðið - 30.03.1973, Page 8
MIHNIHG:
LAUGARASBÍÓ siiiii 121175
ACAOEMY AWARD
NOMINATiON FOR
BEST
ACTRESS
CARRIE
SIMODGRESS
Dagbók
reiörar
eiginkonu
a (rank perry film
A UNIVERSAL PIC7URE TECHNICOL OR* (r|48.
Úrvald bandarisk kvikmynd i lit-
um með islenzkum texta. Gerð
eftir samnefndri metsölubók Sue
Kaufmanog hefur hlotið einróma
lof gagnrýnenda.
Framleiðandi og leikstjóri er
Frank Perry.
Aðalhlutverk Carrie Snedgress,
Kichard Benjamin og Frank
Langella.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
STJÖRNUBÍÓ Simi ■811:16
Meö köldu blóöi
TRUMAN CAPOTE’S
m
€OLD
BLOOD
ÍSLKNZKim TKXTI.
Æsispennandi og sannsöguleg
bandarisk kvikmynd um glæpa-
menn sem svifast einskis. Gerð
eftir samnefndri bók Truman
Capot sem kon ið hefur út á is-
lenzku.
Aðalhlutverk: Kobert Blake,
Scott Wilson.
Endursýnd kl. 9.
Sonarvíg
Hörkuspennandi kvikmynd i
litum og Sinemascope úr villta
vestrinu.
Kndursvnd kl. f> og 7
Bönnuð innan 12 ára.
KáPAVOGSBÍÓ Simi 119Hf>
Júdómeistarinn
Hörkuspennandi frönsk mynd i
litum, sem fjallar á kröflugan
hátt um möguleika júdó-
meistarans i nútima njósnum
tSLENZKUR TEXTI.
Aðalhlutverk:
Marc Briand, Marilu Tolo.
Kndursýnd kl. 5.15 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
LEIKFELAG
YKJAVÍKl
Fló á skinni i kvöld. Uppselt.
Atómstööin laugard. kl. 20.30.
örfáar sýningar eftir.
PTó á skiimi sunnud. kl. 15.
Uppselt.
Pétur og Kúna sunnud. kl. 20.30.
3. sýning.
Fló á skinni þriðjud. Uppselt.
Fló á skinni miðvikud. Uppselt.
Lilla Teatern, Helsingfors
Kyss sjalv
sýn. mánudag kl. 20.30. Uppselt
sýn. mánudag kl. 17.15.
Aðeins þessar 2 sýningar.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin
frá kl. 14. Simi 16620.
Austurbæjarbíó:
SÚPKKSTAR
Sýning i kvöld kl. 21. Uppselt.
Næsta sýn. sunnudag kl. 15.
Aðgöngumiðasalan i Austur-
bæjarbiói er opin frá kl. 16. Simi
11384.
TÓNABÍÓ Simi 31182
bár'v.
Nýtt eintak af
Vitskert veröld
Övenju fjörug og gh.isileg
gamanmynd. 1 þessari heims-
frægu kvikmynd koma fram yfir
30 frægir úrvalsleikarar. Myndin
var sýnd hér fyrir nokkrum árum
við frábæra aðsókn.
Leikstjóri: Stanley Kramer
1 myndinni leika:
Spcncer Tracy, Milton Berle, Sid
Cacsar, Buddy Hackett, Ethel
Merman, Mickey Kooney, I)ick
Shawn, Phil Silvers, Terry Thom-
as, Jonathan Winters og fl.
ISLENZKUR TEXTI
Sýnd kl. 5 og 9.
HASKQLABÍQ s.m. 22.10
Hörkutóliö
True Grit
Hörkuspennandi mynd aðalhlut-
verk John Wayne, sem fékk
Oscar’s verðlaun fyrir leik sinn i
myndinni.
ÍSLENZKUR TEXTI
Bönnuð hörnum.
Sýnd kl. 5 og 9.
IAFHARBÍÓ .........
STEVE
ný bandarisk kvikmynd i litum og
Panavision, er fjallar um einn
erfiðasta kappakstur i heimi,
hinn fræga 24 stunda kappakstur i
Le Mans.
Aðalhlutverk leikur og ekur:
Steve McQueen.
Leikstjóri: Lee H. Katzin
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15
Halldór F. Jpnsson,
útgerðarmaður í Ólafsvík
f. 9.4. 1904, d. 22.3 1973.
Hinn 28. marz var gerð útför
Halldórs F. Jónssonar, út-
gerðarmanns, frá ólafsvikur-
kirkju.
Halldór Friðgeir Jónsson var
fæddur á Arnarstapa I Breiðu-
vik, sonur hjónanna Steinunnar
Jónsdóttur og Jóns Jónssonar.
Halldór var yngstur af sex syst-
kinum og er nú eitt þeirra eftir á
lifi, Agústa, búsett i Reykjavfk.
Þegar Halldór var tveggja
ára fluttist hann meö foreldrum
sinum til Ólafsvikur. Þau
settust að i ólafsvikurkoti og
bjuggu þar til æviloka. Ekki var
auöur i þvi búi, frekar en
mörgum öðrum hér i byggð á
þeim árum. Jón, faðir Halldórs,
var sjómaður og á sinum tima
talinn einn bezti ræðari undir
Jökli. Þegar ég man til, var
hann kominn nokkuð fram á
aldur. Hann átti sér tveggja
manna far, sem hann reri
jafnan einn og bar á stöfnum.
Hann gróf fjörumaðk og hafði
sér til beitu. A þessu fari mun
Halldór hafa byrjað sjómanns-
feril sinn.
Halldór var bráðgjör og hóf
snemma sjómennsku, enda um
fátt annað að velja i sjávarþorpi
á hans uppvaxtarárum. Hann
var á árabátum, m.a. með
tengdaföður sinum, Kristjáni
Vigfússyni, sem var formaður
hér i þorpinu, og stundaði auk
þess sjómennsku á þilskipum og
togurum. Eftir að trillubátaút-
gerðin kom til, gerðist hann for-
maður hjá Kristjáni Þórðar-
syni, stöðvarstjóra og útgerðar-
manni. Kristján setti vél i ára-
bátinn sinn vorið 1927, fyrstur
manna. Báturinn hét Armann,
en litlu siðar lét hann smiða sér
annan bát, Armann II, eða stóra
Ármann, eins og hann var
kallaður. Var Halldór lengi for-
maður á honum og farnaðist
vel. Vorið 1937 keyptu þeir
Kristján m.b. Viking, 12 tonna
bát, hinn fyrsta hér i byggðinni.
Þeir gerðu bátinn út um
sumarið á dragnótaveiðar og
urðu að sigla með aflann til
Reykjavikur, þvi að ekkert
hraðfrystihús var hér þá, kom
ekki hér fyrr en 1939, en i
Stykkishólmi reis hraðfrystihús
nokkru fyrr en hér og var þá
landað þar yfir dragnóta-
timann. Útgerðin á Vikingi gekk
vel og reyndist báturinn mikil
happafleyta. 1 árslok 1943 hætti
Kristján sjómennsku, og gerðist
Guðlaugur Guðmundsson þá
sameignarmaður Halldórs og
keyptuþeirhlut Kristjáns I bátn-
um. 1945 keyptu þeir annan bát,
Glað, 23 tonna bát. Sameign
þeirra Guðlaugs stóð fram til
ársins 1951.
Þegar synir Halldórs fengu
aldur til, gerðust þeir formenn á
bátum föður sins, fyrst Jón
Steinn, siðan Kristmundur og
Leifur. Halldór lét smiða þrjá
báta á Akureyri, Jón Jónsson,
Steinunni, rúml. 70 tonna báta
og Halldór Jónsson, um 100
tonna bát og átti auk þess m.b.
Glað á timabili og gerði þá út
fjóra báta.
Arið 1966 stofnaði fjölskyldan
hlutafélag um útgerðina, Stakk-
holt h.f., og er Jón Steinn
stjórnarformaður, en tengda-
sonur Halldórs, Hermann
Hjartarson, annast fjárreiður
og bókhald Halldór hætti sjó-
mennsku upp úr 1950, og sá þá
um útgerð báta sinna. Hann leit
til með sonum sinum, sem voru
formenn á bátum hans og studdi
þá i starfi þeirra.
Velgengni i starfi má að visu
kalla heppni, en hún er þó
fremur árangur af vel unnu
starfi, útsjónarsemi og dugnaði.
En öll er útgerðarsaga Halldórs
meö ævintýrablæ, rétt eins og
þær breytingar, sem hafa orðið
á þessari byggð á starfsferli
hans. Sjómennska er aðall og
uppistaða I lífi fólksins i sjávar-
þorpunum, og útgerð Halldórs
hefur verið gildur þáttur i at-
vinnulífi byggðarinnar á þessu
timabili.
Halldór var farsæll sjómaður.
Hinn 9. nóvember 1940 bar það
við, að trillubátur sökk hér fyrir
utan hafnarmynnið. Vikingur
var þá i höfn og fóru þeir Guð-
laugur út á bátnum og auðnaðist
að bjarga einum manni af bátn-
um, en þrir fórust. Oðru sinni
komu þeir til hafnar snemma
morguns aö sumarlagi, er þeir
sáu bát við hafnarmynnið, að
þvi kominn að sökkva. Halldór
bjargaði áhöfn bátsins og dró
bátinn til lands.
Halldór var vel látinn af
hásetum sinum og starfsmönn-
um ög voru margir hjá honum
árum saman og á það jafnt við
um heimamenn og aðkomu-
menn.
Halldór giftist 22. mai 1926,
Matthildi Kristjánsdóttur,
ágætri konu. Hún sá um heimili
þeirra hjóna með mikilli prýði
og hjá henni var allt fágað og
prýtt og til hennar var gott að
koma. Þau eignuðust 10 börn, en
misstu hið elzta þeirra,
Laufeyju, á unga aldri. Hin eru
öll búsett hér: Pálina, gift
Sigurði Þorsteinssyni, neta-
manni, Edda, gift Hermanni
Hjartarsyni, forstjóra, Kristin
gift Per Jörgensen, rafvirkja,
Bylgja, gift Aðalsteini Birgi
Ingólfssyni, stýrimanni Bára,
ógift, Jón Steinn, giftur Hjört-
friði Hjartardóttur, Krist-
mundur, giftur Laufeyju
Eyvindsdóttur, Leifur, giftur
Ragnheiði Þorgrimsdóttur,
kennara, og Vikingur giftur Sól-
brúnu Guðbjartsdóttur. Fjöl-
skyldan stendur öll að útgerðar-
félaginu Stakkholt h.f., og er
þess að vænta að svo verði til
frambúðar. Halldór var
greindur vel og sérlega glöggur
á tölur. Ég minnist þess, að
jafnan i vertfðarlok þegar upp
var gert, reiknaði Halldór út
hlutinn i huga sér svo að ekki
skeikaði. Halldór var léttur i
lund og gamansamur og
skemmti sér gjarnan I hópi vina
sinna.
Halldór missti konu sina 19.
marz 1962, en heimili hans var
alla tið i Stakkholti, húsinu, sem
þau hjónin höfðu búið i mestan
sinn búskap.
Að leiðarlokum færi ég
Halldóri þakkir byggðarlagsins
fyrir langt og gifturrikt ævi-
starf, jafnframt þvi sem við
hjónin þökkum honum löng og
ágæt kynni og sendum fjöl-
skyldu hans samúðarkveðjur.
Ottó Árnason
þjódleÍkhúsið
Sjö stelpur
eftir Erik Torstensson.
Þýðandi: Sigmundur Orn Arn-
grimsson
Leikniynd: Björn Björnsson
l.eikstjóri: Briet Héðinsdóttir
Frumsýning i kvöld kl. 20.
Ferðin til tunglsins
sýning laugardag kl. 15.
Indiánar
sýning laugardag kl. 20.
Ferðin til tunglsins
sýning sunnudag kl. 15.
Sjö stelpur
önnur sýning sunnudag kl. 20.
Miðasala 13.15 til 20.
Simi 1-1200
Leikför:
Furðuverkið
sýning i Bióhöllinni á Akranesi
iaugardag kl. 15.
Sýning Hlégarði i Mosfellssveit
sunnudag kl. 15.
Fyrst voru það tveir bræður sem
unnu sömu stúlku — nú eru það
unna sama manni
systur sem
Franski kvikmyndasnillingur-
inn Franeois Truffaut fékk á unga
aldri dálæti á skáldsögum Henri-
Pierre Rochés, sem hóf ekki
höfundarferil sinn, fyrr en hann
var kominn á áttræðisladur.
Truffaut las fyrst söguna
..Jules og Jim” eftir Roché og
hreifst af. llndrun hans og aðdáun
varð enn meiri. þegar hann frétti.
að þetta væri frumverk 74ra ára
gamals manns. Roché dó 4 árum
eftir að Truffaut kynntist þessu
verki hans. og um þær mundir
var Truffaut að gera fyrstu kvik-
mynd sina. ..Ungur flóttamað-
ur”, sem Háskólabió sýndi fyrir
skemmstu. Tveim árum siðar tók
Truffaut sig svo til og gerði kvik-
mynd eftir þessari sögu Rochés.
I ..Jules og Jim” er sagt frá
bræðrum tveim. sem unna sömu
stúlku mikinn hluta ævinnar. 1
þeirri mynd, sem Háskólabió
sýnir næstu mánudaga ,,Anna og
MurieP'eða ,,Les deux Anglaises
et le Continent” eins og hún heitir
á frummálinu snýr Roché dæm-
inu við, þvi að þar fjallar hann
um tvær enskar systur, sem unna
sama manni, Frakka, um 20 ára
skeið. Þykir saga þessi minna
nokkuð á ævi Prousts, sem unni
Bronte-sytrunum, Charlotte og
Emily, i tiu ár, án þess að geta
ráðið við sig. hvorrar hann ætti
heldur að biðja.
Þetta ætti að nægja til að sýna,
a hér er um skemmtilegan efnivið
að ræða, og það er „einkaleikari”
Truffauts, sem er i aðalhlutverk-
inu i myndinni, Jean-Pierre
Leaud, sem hefur einu sinni sagt:
„Truffaut er faðir minn, Godard
föðurbróðir og Henri Langlois afi
minn”. Það var raunar Leaud,
sem lék aðalhlutverkið i „Ungur
flóttamaður”. Var það fyrsta
hlutverk hans, enda á 14. ári
þegar hann lék það.
Systurnar leika þær Kika
Markham og Stacey Tendeter.
Þeir, sem smá þessa mynd,
munu ekki telja sig svikna af
henni frekar en öðrum mánu-
dagsmyndum Háskólabiós.
Mánudagsmyndin
Föstudagur 30. marz 1973.