Alþýðublaðið - 30.03.1973, Side 12
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7,
nema laugardaga til
kl. 2, sunnudaga milli
kl' 1 og 3 Sími40102.
Dúfnastríð á Grettisgötunni
VERÐLAGSSTJÚRI
HEFUR VIKIÐ
GÓÐU AÐ
DÚFUNUM EN
í ÓÞÖKK
HEILBRIGDIS-
YFIRVALDA
Heilbrigöisyfirvöld borgar-
innar með tilstyrk lögreglu rufu
hús á áttræðri konu, og að henn-
ar sögn unnu þessir aðilar ætl-
unarverk sitt af þeim myndug-
leik, að hún komst ekki til að
nota sinn eigin sima, er hún
hugðist leita leiðbeiningar og
hjálpar dýraverndunarfélags-.
ins. betta skeði hinn 12. febrúar
s.l., er óhjákvæmilegt þótti að
fjarlægja dúfur úr kjallara
Sigriðar Steffensen.
Sigriður hefur unnið sér það
til óhelgi, að hún hefur hænt aö
mikinn fjölda dúfna með þvi að
kasta korni fyrir þær i garði sin-
um á baklóð við Grettisgötuna.
Hafa þær þvi leitað þangað eftir
griðlandi og fóðri. Þá hefur hún
oft bjargað meiddum fuglum og
veitt þeim skjól i kjallara húss
Einhverjir nágrannar hafa
amazt við þessu tómstunda- og
liknarstarfi gömlu konunnar, og
valdið henni margs konar ama.
Dúfnakofi, sem hún hafði i garði
sinum, hefur verið rifinn og rúð-
ur brotnar i ibúð hennar og
sundurskotnar. Telur Sigriður,
að hún hafi ekki fengið viðhlit-
andi vernd fyrir ofurefli pöru-
pilta og óvinveittra nágranna.
Asgeir Friðjónsson, fulltrúi
lögreglustjóra, kvað þessa að-
gerð eiga sér langan aðdrag-
andi, og hefðu allir aðilar verið
seinþreyttir til ráðstafana gegn
þessari fullorðnu konu. Hins
vegar hefðu itrekaðar sam-
þykktir heilbrigðisráðs borgar-
innar hnigið að þvi, að ekki var
unnt að láta þetta dúfnahald
viðgangast.
bórhallur Halldórsson, fram-
Pörupiltar hafa gengið hart á rúðurnar hjá
Sigriði með loftrifflum, eins og sjá má á stóru
myndinni. Á litlu myndinni i horninu er Sigriður
að gefa dúfunum sinum.
kvæmdastjóri heilbrigðiseftir-
lits Reykjavikurborgar, sagði
að árum saman hefði verið
kvartað undan óþrifnaði af
þeirri dúfnamergð, sem þarna
hefði hænzt að. Kvað hann allar
fortölur við Sigriði um árabil
hafa reynzt árangurslausar.
Taldi hann mjög miður, að beita
þurfti þeim, aðgerðum, sem
gert var, en ekki hefði verið
annarra kosta völ, af heil-
brigðis- og þrifnaðarástæðum.
Aðför yfirvalda að Sigriði
hefur verið kærð fyrir sakadómi
Reykjavikur.
LEIÐIB SVIM-
KJÖTHI HIÁ SÉR
Eftir þvi sem Alþýðublaðið
kemst næst eru verðákvarðanir á
svinakjöti ákaflega lausar i
reipunum, — „þetta er svo litil
búgrein”, „það er litið á svinakjöt
sem lúxusmat” og „verðlags-
stjóri leiðir hjá sér að taka
ákvarðanir um verðið”, voru
svörin, sem við fengum hjá
nokkrum framámönnum kjöt-
vinnslunnar, þegar við höfðum
samband við þá i gær. Þeir sögðu,
að verðlagsstjóra sé tilkynnt um
hækkanir á svinakjötinu, en hann
skipti sér ekkert af þeim.
Það kom lika i ljós, að verðið er
nokkuð mismunandi i kjöt-
verzlunum. Við spurðum um verð
á úrbeinuðum svina hamborgar-
hrygg, og reyndist verðið vera
ýmist 913 krónur kilóið eða 927
krónur, og i einni verzlunni
kostaði það enn 707 krónur, eins
og verðið var fyrir 1. marz.
Að þvi er Vigfús Tómasson,
sölustjóri hjá Sláturfélagi Suður-
lands, sagði Alþýðublaðinu i gær,
hækkaði svinafóður gifurlega
vegna gengisfellinganna, og töldu
bændur sig þurfa 15% hækkun.
Hana fengu þeir að sjálfsögðu, og
hækkuöu þá heildsalarnir sitt
verð jafn mikið, og smásalarnir
lögðu álagningarprósentuna á
það verð, en siðan koma sölu-
skattshækkunin á allt saman.
Bændur fengu sina hækkun 1.
marz, en hún kom ekki til fram-
kvæmda á útselt kjöt fyrr en 5.
marz.
AÐALSTYKKIN
VANTAR ENN
(AMERÍSKU
DÆLURNAR
Énn var barizt við að halda
hrauninu frá Vestmannaeyjahöfn
i gær með sjódælingum, og i gær-
kvöldi, þegar Alþýðublaðið siðast
frétti, hafði það borið þann
árangur, að jaðarinn hafði litið
sem ekkert hreyfzt allan daginn.
Amerisku dælurnar eru enn ekki
komnar i gagnið. Astæðan er m.a.
60 VESTMAHHAEYJAFJÖLSKYLDUR
VIUA SETJAST AD f ÞORLÁKSHÖFN
Hreppsnefnd ölfushrepps vill
að Þorlákshöfn verði vettvangur
„nýs Vestmannaeyjabæjar”, ef
með þarf. „Hreppsnefndin vill
taka fram að nægjanlegt land-
rými er fyrir hendi i Þorlákshöfn
fyrir alhliða uppbyggingu
staðarins”, segir i tilkynningu frá
hreppsnefndinni. Nú eru milli 110
og 120 Vestmannaeyingar i Þor-
lákshöfn og 60-70 húsabeiðnir frá
Vestmannaeyingum liggja fyrir
til Þorlákshafnar.
I tilkynningu hrepps-
nefndarinnar kemur fram, að
llEyjasíminn orðinn innanborgar
Þeir aðilar i Vestmannaeyjum,
sem mesta þörf hafa fyrir sima-
samband við land, hafa fengið
númer beint frá Reykjavik, og
má hringja þangað eins og innan-
bæjar. Meðal þeirra eru Póstur
og simi, almannavarnir og
gúanóið.
Fimm önnur númer eru tengd i
gegnum Selfoss og hafa svæðis-
númer 99, eins og skýrt heíur
veriðfrá áður i Alþýðublaðinu. Að
sögn Ólafs Tómassonar, yfirverk-
fræðings hjá simanum er mjög
mikið álag á númerin um Selfoss,
enda var það þegar orðið gifur-
legt áður en Vestmannaeyja-
númerin voru tengd inn á stöðina
þar. Sagði hann, að úr þessu
rætist þó fljótlega, þar sem unnið
sé að þvi að fjölga linum á Sel-
fossi úr 48 rásum i 120.
Mjög erfitt hefur verið að ná til
Eyja um simstöðina i Reykjavik,
en hún er aðeins i sambandi um
svonefnda grunnlinu radiósam-
bandsins.
Viðlagasjóður „vixlaði” þeim 25
húsum, sem til Þorlákshafnar
áttu að fara i fyrstu, til Selfoss,
þar sem skipuiag Þorlákshafnar
hlaut ekki strax náð fyrir augum
yfirvalda á skipulagssviðinu. Nú
hefur þessu verið kippt i lag og
liggur nú fyrir samþykkt skipulag
fyrir 120 einbýlishús i Þorláks-
höfn og er hönnun gatna þegar
hafin. Segir hreppsnefndin að
henni sé ekki kunnugt um annað
en að Þorlákshöfn fái ,, að
minnsta kosti 25 hús” i fyrsta
áfanga Viðlagasjóðs.
t lok tilkynningar sinnar tekur
hreppsnefnd ölfushrepps fram,
„að stórátak i hafnarmálum er
ótvirætt nauðsynjamál”.
sú, aö Suðri, sem átti að koma
með aðalstykkin f þær i gær, varð
að leita vars undan Garðsskaga
og lá þar enn um niuleytið i gær-
kvöldi, að þvi er bezt er vitað.
Ofar i bænum hélt hraunið
áfram að mjakast i gær, og siðast
þegar við frÁtum var það fjarið að
leggjast upp að suðurhúsi
ísfélagsins. Þá var hraunið komiö
yfir gömlu slökkvistöðina og
komið út í miðjan Kirkjuveg.
Rafmagnsskortur hefur verið i
Eyjum, en væntanlega verður úr
þvi bætt I dag, þar sem Herjólfur
átti aö leggja af stað til Eyja með
rafstöð, sem á að anna allri raf-
magnsþörf.
Vatnsskortur hefur ekki verið
tilfinnanlegur, en erfitt er aö
nálgast vatnið, þar sem sækja
verður það mestallt i brunna, og
einnig fæst vatn úr vatnspósti i
Botni. Það er að visu dálitið salt,
en þó má drekka það.
NYR BATUR
Fyrir skömmu kom nýr bát-
ur til ólafsvíkur, Stefán Krist-
jánsson SH 184. Hann hét áður
Guðbjörg og var frá Hafnar-
firði, en er nýuppgerður.
Stefán Kristjánsson er 60
lestir, og er örn Alexanders-
son formaöur á bátnum og
aðaleigandi.