Alþýðublaðið - 04.04.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 04.04.1973, Blaðsíða 1
alþýðu Miðvikudagur 4. apríl 1973 7594. % M Ú9RUNIN SAMKVÆMT SKIPUN FRA LONDON? Floti vestur-þýzkra togara hóf i gærmorgun veiðar við 12 milna mörk- in á Selvogsbanka, en þar eru afar mikilvægar hrygningastöðvar. Þetta leiddi til þess að islenzka viðræðunefndin neitaði að ræða við þýzku viðræðu- nefndina sem hér er stödd, en viðræðurnar áttu að hefjast klukkan 11 i gærmorgun. Varðskip tilkynnti klukkan 14,23 i gær, að togararnir væru að hverfa af Selvogs- banka. Voru þeir allir farnir um klukkan 16. Margir hafa velt þvi fyrir sér hvað liggi að baki þessari aðgerð þýzku togaranna i gær- morgun, og er m.a. fjall- að um þetta i grein eftir Pétur Guðjónsson á 2. siðu blaðsins i dag, sem neinist ,.Þýzku togararnir fengu sina skipun beint frá London”. 1 fyrramorgun voru tveir veztur-þýzkir og fimm brezkir togarar að veiðum á Selvogsbanka, en i gærmorgun voru þýzku togararnir orðnir 22 og þeir brezku 6. . Þegar þýzku samningamennirnir komu til fundarins, kall- aði Pétur Thorsteinsson, formaður islenzku samn- inganefndarinnar dr. Dedo von Schenk á sinn fund, og tjáði honum að islenzka sendinefndin hefði fengið fregnir af að- gerðum þýzku togaranna, og ekkert yrði úr fyrir- huguðum viðræðum ef togararnir færu ekki af Selvogsbanka. Hófust samninga- viðræðurnar lþks rétt fyrirklukkan 17 i gærdag, Milljónagróöi af einvíginu Það liggur nú á borð- inu, að hagnaður Skák- sambands Islands af heimsmeistaraeinvigis- haldinu á siðasta ári nemur tæplega 1.9 milljón króna og að heildarveltan nam 52,1 millj. kr. Þetta eru upp- gjörs tölur miðað við ára- mótin og þvi ekki innifal- in útgáfa sigurvegara- penings eftir einvigið, sem reiknað er með að hafi fært skáksamband- inu á aðra miljón króna og einnig vantar inn i niðurstöður af þátttöku sambandsins i bókaút- gáfu i Bandarikjunum og fleiru. Heildarútgjöld við ein vigishaldið námu rösk- lega 52 milljónum króna (52.101.814,71 kr.) og voru verðlaun keppenda þar stærsti liður; tæpar 11 millj.kr. (10.927.500 kr.) og þar næst kom kostnað- ur við Laugardalshöll, röskar 9 millj. kr., en þar af var húsaleigan hálf önnur milljón og kostnað- ur við tækni- og ljósbúnað i höllinni nam röskum 7 milljónum; (7.114.798 kr.). Heildartekjur af ein- vigishaldinu námu tæp- um 54 millj. kr. (53.985.159.83 kr.) og varð hagnaðurinn 1.883.345.12. krónur. Tekjur af útgáfu tveggja minjapeninga námu tæplega 17 millj. kr. (16.757.426 kr.) og að- göngumiðasalan gaf rösklega 10. millj. kr. (10.408.695,10) af sér. Vart verður þvi fjár- hagsútkoman til að skemma þá „fallegu fjöð- ur”, sem fjármálaráð herra sagði, að einvigið hefði orðið i okkar hatti. Þegar allt kemur til alls BÍTLARNIR SAMAN Á NYJAN LEIK? Sá möguleiki er nú kannaöur hvort Bítlarnir fjórir, John Lennon, Paul/ McCartney, George Harrison og Ringo Starr muni sameinast aftur, segir i frétt frá fréttastofunni Reuter í gær- kvöldi. Eftir að Allen Klein, framkvæmdastjóri fyrir- tækis Bitlanna, Apple, hefur hætt störfum, er, talinn grundvöllur fyrir áframhaldandi sam- vinnu, en Paul neitaði á sinum tima að gangast inn á það að Klein yrði falin stjórn málefna App- le. Hins vegar urðu fjórmenningarnir skattanna vegna að eiga fyrirtækið i sameiningu. Paul taldi tengdaföður sinn, bandariska lögfræðing- inn Lee Eastman, mun hæfari til að stjórna fyrirtækinu og öðrum eignum þessara frægustu hljómlistarmanna yngri kynslóðarinnar. . Krafta- mynd Reynis sýnd hér eftir tvo mánuði Nú er fullgerð 30 mln- útna mynd með krafta- jötninum Reyni Leós- syni, og er filman vænt- anleg til landsins I dag, en hún hefur verið I vinnslu i London. Hún verður ekki sýnd hér opinberlega til að byrja með, sagði Revnir i viðtali við blaðið i gær, cn ég rcnni henni kannski i gegn fyrir kunningja mina! Siðan ætla ég út og ferðast með myndinni til Japan, Bandarikj- anna og Sviþjóðar, til að byrja ineð, sagði Reyn- ir, en fjöldi fyrirspurna hefur borizt viðsvegar að úr heiminum, og vilja flestir fá mig i eigin persónu með myndinni! önnur tæplega 90 minútna mynd, er einn- ig i vinnslu, sem vænt- anlega vcrður tilbúin eftir tvo mánuði, og verður hún sýnd hér i kvikmy ndahúsum. Reynir sagði, að kostnaðurinn við mynd- irnar væri orðinn geysi- lega mikill, en vonaðist þó til að tekjur af sýn- ingum jöfnuðu upp, og endahnúturinn yrði góð- ur. Framtíð Sædvrasafns mmmaaaaammmamammmmmmammaammmammamm^ wKammmmBanmmammmmmaam í hondum borgarráðs aaamaaa^ammmaaamammammaammmaamaaaaaaaaaa^J mmmaaamammmaaammmm■ A næstu dögum verður afráðið, hvort starfrækslu Sædýrasafnsins i Hafnar- firði verður haldið áfram Bílaþvottastöðvum borgarinnar f ækk ar um helming Bilaþvottastöövum borg- arinnar fækkar um helm- ing um næstu mánaðamót, þegar þvottastöðin við Shellstööina Laugavegi 180 verður lögð niður, þvi þá verður aðeins ein slik þvottastöð i gangi i Reykjavik. Þ. Jónsson & Co hefur rekið stöðina að Laugavegi 180 i sex ár, en þegar leigu- samningurinn við Shell rann út i fyrra, fékkst hann ekki endurnýjaður. Þ. Jónsson & Co sótti um lóð fyrir nýja þvottastöð fyrir ári og nýlega úthlutaði Reykjavikurborg fyrirtæk- inu lóð i Breiðholti. óvist er þó, hvort ráðizt verður f byggingu þar að sögn Val- týs Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra þvotta- stöðvarinnar, þar sem hæpinn rekstrargrundvöll- ur er talinn vera fyrir slikt fyrirtæki i þeim borgar- hluta. eða ekki, en beðiö er eftir svari við erindi safnsins um stuðning frá riki og sveitarfélögum á Reykja- nesi. Fáist sá stuðningur mun safnið halda áfram starfsemi sinni og það endurbætt á margan hátt, en fáist stuðningurinn ekki, er ekki annað fyrir- sjáanlegt en starfs- ræsklunni verði hætt. 1 fyrrasumar gerði Framkvæmdastofnun rikisins tillögur um upp- byggingu safnsins, og er þar gert ráð fyrir 20 milljón króna framlagi frá riki og sveitarfélög- um. Átti skiptingin að vera sú, að rikið legði fram 8 milljónir, Reykja- vikurborg 8 milljónir og önnur sveitarfélög á Reykjanesi 4 milljónir. Rikið mun hafa gefið já- kvætt svar, og sveitar- félög á Reykjanesi önnur en Njarðvikurhreppur, sem svaraði neitandi. Þá hefur Reykjavikur- borg ekki enn svarað, og var afgreiðslu málsins frestað i borgarráði sið- ast i gærkvöldi. Að þvi er blaðið hefur fregnað horf- ir þar þunglega fyrir mál- inu, að óbreyttum kostn- aðarhlutföllum. Þvi má segja að framtið þessa vinsæla dýrasafns sé að miklu leyti i höndum borgarráðs.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.