Alþýðublaðið - 04.04.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 04.04.1973, Blaðsíða 12
alþýöu mum Þúsund millión krÓDð Islenzk stjórnvöld hafa tekið ákvörðun um að opinbera nýjar langtimalántökur erlendis, sem samtals nema 4000 milljónum isl. kr. á yfirstandandi ári. Þegar endurgreiðslur á eldri lánum hafa verið dregnar frá munu sam- kvæmt þessu erlendar skuldir Is- lendinga aukast um 2500 milljónir i ár, og hefur skuldasöfnunin er- lendis þá aukizt um 75% á undan- förnum 3 árum. Um þessar mundir liggur fyrir Alþingi frumvarp, sem felur i sér heimild til rikisstjórnar um að auka lántökur enn um 1 þúsund milljónir islenzkra króna á árinu tii viðbótar við þær 4000 milljónir, sem að framan var getið. Er aukalántökuheimild þessi að þvi er virðist eina úrræðið, sem rikis- stjórnin sér til þess að ná endum saman i framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs, sem legið hel'- ur i salti allar götur frá þvi i' haust, en áður var venjan að af- greiða hana jafnhliða fjárlögum. En þótt rikisstjórn biðji nú Al- þingi um þessa aukalántöku- heimild þá getur hún ekki gert þinginu grein fyrir þvi, til hvers eigi að nota þessa peninga né heldur hver verði fjárhagsgeta fjárfestingasjóðanna af eigin rammleik þetta árið. Þá er einnig vitað, að sérfræðistofnanir rikis- stjórnarinnar eru ekki sammála um upphæð fjárins, sem vantar til að ná endunum saman. Þeir sér- fræðingar, sem hæstar tölur eru með, munu áætla „gapið” vera 2000 milljónir og er þá hætt við, að 1 þús. millj. kr. lánsfjárútvegun dugi skammt. Þessi fáheyrðu tiðindi eru hreint þinghneyksli og hefur Al- þýðuflokkurinn ákveðið að koma ekki nálægt afgreiðslu fram- kvæmdaáætlunarinnar, að þvi er Gylfi Þ. Gislason lýsti yfir fyrir flokksins hönd á Alþingi i fyrra- kvöld. NARRAST AÐ VEL- FERÐINNI 1 kvöld syngur einn vinsæl- asti vísnasöngvari Svia, Finn Zetterhoim, i Norræna hús- inu en hann er einkum þekktur i heimalandi sinu fyrir að narrast að velferðar- þjóðfélaginu. í norræna húsinu syngur hann eigin lög, og ljóð, og einnig sænsk þjóðlög. — Finn Zetterholm er hér i boði Sænsk-Islenzka félagsins. KOPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kl' ' 3'Simi40)02. 100 ríkisstarfsmenn hafa fengiö sér bíl Nú hafa um 100 rikisstarfs- menn fengið lán hjá rikissjóði til bilakaupa, og eru lánin veitt til 10 ára, með 5% vöxtum, og er upphæðin allt að 350 þúsund krónur. Ekki getur samt hvaða rikis- starfsmaður sem er fengið þessi vildarkjör, þvi þau fá aðeins þeir menn, sem áður höfðu til afnota svonefnda forstjórabila, sem rikið átti og fékk mönnum til afnota. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið fékk hjá hagskýrsludeild fjármálaráðuneytisins, giltu engar fastmótaðar reglur um hver ætti að fá rikisbil til afnota, og hver ekki, heldur hafði það þróazt af sjálfu sér, og fór bilun- um ört fjölgandi. Siðasta rikisstjórn ákvað þá að leggja niður þessa bilaút- gerð, og mun nú rikið búið að selja nær alla forstjórabilana. Sem sárabætur til þeirra, sem þannig misstu bilana, var þeim boðið upp á fyrrnefnd lán, sem eru þau hagstæðustu sem sögur fara af i öllum lánaviðskiptum hérlendis. Enda hafa nú nær allir ríkis- starfsmenn, sem kost áttu á, notfært sér lánin til kaupa á einkabilum. 1 Enn velgir Bobby þeim undir uggum Nú er það skáksamband Hollands sem hefur höfuð- verkinn af viðskiptum við Bobby Fischer, — og vera kann að sambandið neyðist til að hætta við að halda i haust skákmót milli Evrópuúrvals og úrvals annarra rikja heimsins. En þegar Fischer var beðinn að taka þátt i keppni þessari krafðist hann 100.000 dollara (10 milljónir isl. króna) fyrir að taka þátt — og að auki vildi hann fá hálfa milljón króna á dag i laun. Ruth sagði að Rússar hefðu ekki viljað taka þátt i mótinu, þar sem septembermánuður væri óhentugur timi fyrir þá. FRYSTI- HÚS VIÐ ÖLFUSÁ í frétt á forsfðu blaðsins i gær um hafnarframkvrmdir á Suðurströndinni var ranglega haft eftir Þó:r Hagalin, sveit- arstjóra á Eyarbakka, að þar væru tvö frystihús og þrjár fiskvinnslustöðvar á móti einu frystihúsi á Þorlákshöfn. Þaö, sem Þór átti við var, aö tvö frystihús væri á svæðinu aust- an ölfusár, og hafnargerð á Eyarhakka kæmi þvi svæði öllu aö notum. Rannsóknir fiskifræðinqa lofa aóðu Næsta loðnuvertíð ekki síðri en þessi Fyrstu athuganir benda til B þess, að næsta Ioðnuvertið ætti ekki að verða siðri en sú vertið, sem nú stendur yfir. Rannsóknar- skipið Arni Friðriksson er þessa dagana við athuganir á ókyn- þroska ungloðnu undan Norð- Austurlandi. Að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar, hefur orðið vart við töluvert magn ungloðnu á þessum slóðum. Þessum athugunum mun ljúka upp úr miðjum mánuðinum', en þess má geta, að Hjálmar „hefur verið að brasa við loðnuna allt frá áramótum”, svo notað sé orðalag hans sjálfs. GJÖF FRÁ ,ÓKUNNUGUM' Piltur einn afhenti lögreglunni á Hornafirði marijuana vindling um siðustu helgi, og sagðist hafa fengið hann að gjöf frá varnarliðsmanni, sem er starfsmaður við radarstöð hersins á Stokksnesi. Lögreglan hóf þegar rannsókn i málinu. Húsleit var gerð i ibúð varnarliðsmannsins, en þrátt fyrir itarlega leit, fannstekkert. Rannsókn er þó haldið áfram, en varnarliðsmaðurinn segist hafa fengið vindlinginn að gjöf frá ókunnugum manni, og neitar að hafa nokkurntimann neytt fikniefna. Banaslysum í umferðinni hefur fjölgað um helming Helmingi fleiri hafa farizt i bílslysum það sem af er árinu, en á sama tima i fyrra, og með banaslysinu, sem varð á Reykja- nes braut í fyrrakvöld, er tala lát- inna nú orðin átta. Konurnar sem þá fórust voru mæðgur. Þær hétu Anna Péturs- dóttir 60 ára til heimilis að Mel- teig 22, og Sigurrós Sæmundsdótt- ir 34 ára til heimilis að Aðalgötu 16, Báðar áttu þær heima i Keflavik. Sigurrós var gift og læt- ur eftir sig tvær ungar dætur. Slysið varð skammt frá afleggjaranum upp á Keflavikur- flugvöll, og voru konurnar á suðurleið, og óku i litlum fólksbil. Fólksflutningabill kom á móti, og rctt i þann mund að bilarnir voru að mætast, sveigði bill kvennanna þvcrt fyrir stóra bilinn og varð gcysiharður árekstur. Talið er að þær hafa látizt samstundis. Mörg slys hafa orðið á þessum vegkafla siðastliöin ár og reyndar fer slysum á Reykjanesbraut fjölgandi ár frá ári. Þannig hafa þrjár manneskjur látizt þar þaö sem af er ársins, tveir létust þar I fyrra, tveir árið áður og einn áriö 1970. Er þvi tala látinna á Reykja- nesbraut einni orðin átta á rösk- um þrcm árum. —

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.