Alþýðublaðið - 25.05.1973, Blaðsíða 4
Frá mönnum
og málefnum
Saga af
einni
milljón
Við höfum horft upp á þaö ís-
lendingar, að verðbólgan hefur
smám saman verið að spenna
okkur lengra út i efnahagslega
erfiðleika, án þess að nokkuð
hafi við ráðizt. Hefur þetta
aldrei tekið eins hröð skref til
hins verra og einmitt upp á sið-
kastið, þegar fjárlög rikisins
eru komin upp i tuttugu og fjóra
milljarða, og „fljóta”, samt,
svo vitnað sé til orða Jóns Ár-
manns Héðinssonar við af-
greiðslu fjárlaga. Til viðbótar
hinni hömlulausu verðbólgu
innanlands kemur svo vaxandi
óróleiki i efnahagsmálum viö-
skiptaþjóöa okkar, sem leiðir til
hækkandi vöruverös, þótt jafn-
fram fylgi i kjölfarið hækkun á
útflutningsvörum okkar. Er svo
að sjá að engri stjórn verði við
komið i þessum málum, og mun
okkur farnast samkvæmt þvi.
Löngum hafa verið uppi radd-
ir um það, að þjóð sem stæði i
öðrum eins framkvæmdum og
tslendingar, hlyii að búa við
verðbólgu. Þetta má rétt vera.
Hitt getur engum dulizt, að
nauðsynlegt er að hafa stjórn á
slikri þróun, svo hún verði ekki
eins og brennandi eldur að lok-
um, sem i stað þess að örva
framkvæmdir, leggur þunga
hönd reiðileysis og öryggisleys-
is á fyrirtekt stofnana og ein-
staklinga.
Nýlega hefur verið upplýst, að
hægt er að hirða eina milljón
króna eða svo með þvi að kaupa
ibúð af svonefndri Fram-
kvæmdanefnd, og selja hana
siðan á opnum markaði i gegn-
um fasteignasölur. Séu verkanir
þessarar einu milljónar raktar
eitthvað lengra er hægt að
hugsa sér, að sa sem reiddi hana
af hendi, sem umframfé handa
húsabraskara, geri sitt til að
auka tekjur sinar, svo hann getj
staðið undir afborgunum og
vöxtum. Hann getur aðeins auk-
ið tekjur sinar með tvennu móti.
Hann getur aukið vinnu sina, og
hann getur þrýst á um hærra
kaup fyrir vinnu sina. 1 báöum
tilfellum verður hann valdur að
aukinni peningaþenslu, þótt i
smáum stil sé. Þegar svo lang-
flestir lenda i slikri aðstöðu, og
sá sem borgaði milljónina til
einskis, höfum við fyrir okkur
dæmi um verðbólguþróun.
Þessarar milljónar, sem engum
kemur til góða, og enginn hefur
unnið fyrir eða myndað með af-
rakstri vinnu eða með fram-
leiðslu, gætir i verðlagi á
neyzluvarningi eftir skamman
tima, hennar gætir i húsaleigu
og öllu þvi, sem við þurfum okk-
ur til viðurværis og viðhalds og
launahrjáð mannshönd kemur
nærri.
Þetta er ekki lengur að verða
spurning um að vilja draga úr
verðbólgunni. Þetta er orðin
spurning um að verða að draga
úr henni. Sagan um milljónina
bendir á, hvar hægt er að byrja
á einum þætti slikra aðgeröa.
Það er ekkert vit að láta það lið-
ast að fólk sem vantar húsnæði,
sé að eyða mörgum árum ævi
sinnar i að vinna fyrir milljón,
sem einhver maður tekur upp
hjá sér að leggja á ibúð, sem
hann hefur fengið á næstum
kostnaðarverði hjá hálfopinber-
um aðilum. Það er heldur ekk-
ert vit i þvi, að þessi milljón sé
látin iþyngja öllum öðrum, sem
m.a. vegna hennar verða að
greiða hækkandi verð fyrir
neyzluvörur og allan annan við-
urgjörning.
Það er rétt, að seint mun
ganga fyrir okkur að kveða
verðbólguna niður, og óvist
hvort það væri æskilegt að beita
þeim harkalegu aðgerðum, sem
til þarf. Það er nú svo, að verð-
bólga að vissu marki hjálpar til
við þá miklu uppbyggingu, sem
hér hefur átt sér stað, en það er
óþarfi og linkind að láta hana
fara alveg úr böndunum, eins og
raun ber vitni um nú. Þær eru
margar milljónir, sem gripnar
eru úr lausu lofti i skjóli þess að
allt sé leyfilegt i þessum efnum,
og við erum siðan látin borga i
aukinni verðbólgu. Við höfum
nú snúizt hart til varnar land-
helginni. Við ættum að snúast af
sömu hörku til varnar landhelgi
efnahags okkar, og kippa þess-
um ónauösynlegu milljónum úr
umferð.
VITUS
FRÁ SJÚKRASAMLAGI
REYKJAVÍKUR
Ölafur Jóhann
Jónsson, læknir
hættir störfum sem heimilislæknir hinn 1.
júni 1973. Samlagsmenn sem hafa hann
sem heimilislækni, snúi sér til afgreiðslu
samlagsins, hafi með sér samlagsskirteini
sin og velji sér lækni i hans stað.
SJUKRASAMLAG REYKJAVÍKUR
LAUS STADA
Staða forstjóra Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins er laus til umsóknar. Laun
samkv. hinu almenna launakerfi starfs-
manna rikisins.
Umsóknarfrestur er til 30. mai 1973.
Landbúnaðarráðuneytið.
Mismunandi frjalslyndir
1 Reykjavik eru nú starfandi
bæði Samtök frjálslyndra og
vinstri manna og Samtök frjáls-
lyndra. Þeir frjálslyndu sem
hugsaö hafa sér að gerast félags-
bundnir ættu þvi að hugsa sig vel
um hvert þeir senda umsóknina
svo hún lendi nú ekki hjá röngu fé-
lagi.
Til þess að koma i veg fyrir að
einhver Bjarnasinni lendi óvart
inn hjá Hannibalsinnum eða
öfugt, skal þess getið til frekari
skýringar, að það er Bjarni
Guönason sem ræður yfir Sam-
tökum frjálslyndra en Hannibals-
menn ráða yfir Samtökum frjálís-
lyndra og vinstrimanna.
Hannibalsmenn voru raunar að
stofna sin samtök 19. mai s.l. og
er Guðmundur Bergsson formaö-
ur þeirra.
Flugfélagið
opnar nýja
söluskrif-
stofu
Flugfélag Islands hefur opnað
nýja sölu- og afgreiðsluskrifstofu
i gestamóttökusal Hótel Esju.
Hefur Flugfélagið nú þrjár sölu-
skrifstofur i Reykjavik auk flug-
afgreiðslunnar á Reykjavikur-
flugvelli. Þær eru i Lækjargötu 2,
i móttökusal Hótel Sögu og svo sú,
sem nú hefur verið opnuð i Hótel
Esju. •
Alþýðublaðið hafði i gær sam-
band við örn Johnson, forstjóra
Flugfélags tslands og innti hann
eftir þvi hvort opnun þessarar
skrifstofu i Hótel Esju væri i
einhverju sambandi við sögu-
sagnir sem ganga um að Flugfé-
lagið sé að yfirtaka rekstur hó-
telsins.
BROS
— Þorsteinn fIugstjóri hér. Tilkynnið um seinkun
á brottför LL-220 til íslands vegna umferðatruf lana.
— Spaghettíið sæmilega seigt, eða hvað?
„Nei, það er af og frá, það er
ekki fótur fyrir þvi” sagði örn
Johnson. „Okkur bauðst þessi að-
staða og tókum hana á sömu for-
sendum og er við á sinum tima
opnuðum afgreiðsluna á Hótel
Sögu”.
AHtkonar
prentun
HAGPRENT HF.
Drautarholti 26 — Reykjavik
URUGSKAKIGCIPIR
KCRNFLÍUS
JONSSON
skúlavOrðusiigs
BANKASIR4 TI6
• 18G00
— Já, þér voruð að nefna þetta með megrunarkúr-
inn . . .
Fjölmennasta söngför sem
farin hefur verið frá íslandi
Þann 6. júni n.k. leggur Pólý-
fónkórinn upp i fjölmennustu
söngferð, sem farin hefur veriö
frá Islandi. 120 manns verða i för-
inni, þar af 90 kórfélagar, en tón-
leikahald verður i Stokkhólmi og
Kaupmannahöfn. Einnig mun
kórinn syngja i útvarp á Norður-
löndunum og hljóðrita eina eöa
tvær hljómplötur.
Reiknaö er með, að ferðalagið,
sem mun standa i 11 daga, muni
kosta kórinn um 3 millj. króna og
hefur sérstök fjáröflunarnefnd
verið starfandi til þess að afla
fjár til að standa straum af þess-
um mikla kostnaði. Þess má geta,
að kórinn hefur hlotið mjög
myndarlegan styrk frá Norræna
menningarsjóðnum, að upphæð d.
kr. 60 þús., um 900 þús. isl. kr.
Fólki mun gefast kostur á að
heyra þá tónlist, sem flutt verður
i utanförinni á tónleikum i Krists-
kirkju hinn 31. mai og 2. júni og i
Austurbæjarbiói 5. júni.
0
Föstudagur 25. maí 1973