Alþýðublaðið - 25.05.1973, Blaðsíða 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmálaritstjori Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson. Ristjórnarfulltrúi Bjarni Sig-
tryggsson. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Freysteinn Jóhannsson. Aðset-
ur ritstjórnar Hverfisgötu 8—10. Sími 86666. Blaðaprent hf.
HVÍ LÆÐAST ÞEIR BURT AF LANDINU?
t gær kom utanrikisráðherra,
Einar Agústsson, heim úr opin-
berri heimsókn austur fyrir
tjaid og hafði hann flýtt heim-
förinni vegna siðustu atburða i
landhelgismálinu. Nokkrum
dögum áður hafði Lúðvik
Jósepsson, sjávarútvegsráð-
herra, einnig komið úr heim-
sókn á svipaðar slóðir og hafði
hann einnig snúið áieiðis heim
nokkru eftir, að hann frétti, að
brezki fiotinn hefði gert innrás i
fiskveiðilandhelgi tslands og
ógnaði nú islenzkum löggæzlu-
mönnum á miðunum með gap-
andi fallbyssukjöftum.
Aö sjáifsögðu er þaö ekkert
tiltökumái þótt isienzku ráð-
herrarnir hafi afráðið að koma
nú heim undir slikum kringum-
stæðum. Væntaniega hefur eng-
inn vænzt þess, að íslenzkir
ráðamenn héldu áfram
skemmti- og kurteisisreisum
sinum við slikar aöstæður. Það
hefði vissulega verið mikil frétt
ef þeir hefðu gert það. Hitt er
aftur á móti litil frétt, að þeir
skuli hafa ákveðið aö koma
heim til lands sins, þegar þvi er
ógnað með vopnavaldi. Það
hefði meira að segja verið hægt
að segja sem svo, aö sumir
hefðu nú getað brugðiö snöggar
við til þess að snúa för sinni
heim á leið, cn Alþýöublaðið
ætlar ekkert að fara aö rekast i
þvi.
En það er annaö mál i þessu
sambandi, sem ber að vekja
sérstaka athygli á. Islenzku
ráðherrarnir eru farnir að tfðka
það nokkuð oft aö hverfa úr
landi i kynnis- og skemmtireis-
ur án þess að vera að hafa fyrir
þvi að iáta landsmenn af þvi
vita. Það hefur borið við oftar
en einu sinni og oftar en tvsivar
nú upp á siökastið, aö islenzkir
ráðherrar hafa farið I utan-
landsreisur án þess að fólk hér
heima hafi haft um það minnstu
hugmynd, hvorki þegar þeir
fóru nú þegar þeir komu aftur.
An þess að Alþýðublaðið sé þar
aö átelja einn öðrum fremur, þá
hefur menntamálaráðherra,
Magnús Torfi ólafsson, meðai
annars gert þetta. Þaö er ekki
svo ýkja langt siðan hann brá
sér úr landi i opinberum erinda-
gjörðum og á rikisins kostnað
án þess þó að út væri gefin um
það tilkynning af hálfu ráðu-
neytisins eins og venjan hefur
þó yfirleitt veriö fram til þessa.
Ifvers vegna er allt i einu hætt
að segja frá utanlandsheim-
sóknum ráðherranna?
Og Lúðvik Jósepsson sneri nú
heim úr opinberu feröalagi, sem
almenningur á tslandi hafði
ekki hugmynd um, aö hefði ver-
ið farin. Menn héldu. að sjávar-
útvegsráðherrann sæti I skrif-
stofu sinni niöursokkinn i við-
fangsefni sins mikilvæga
embættis þegar Morgunblaðið
fékk allt i einu senda erlenda
fréttamynd, sem sýndi Lúðvik
heilsa rússneskum kollega sin-
um með handabandi úti I
Moskvu og sagt var i hinni er-
lendu fréttaklausu með mynd-
inni, að islenzki ráðherrann,
Jósepsson, væri kominn I opin-
bera heimsókn til Rðastjórnar-
rikjanna.
Alþýðublaðinu þykir þetta of
langt gengið. Alþýðubiaöinu
þykir vera komið einum of mik-
ið af þvi góða, þegar almenning-
ur getur ekki vitað nema menn i
iykilstöðum í rikisstjórninni séu
komnir á þveiting út um heim
án þess að hafa látið þjóðina af
fcrðum sinum vita. Alþýöublaö-
ið mótmælir þvi harðlega, að
það sér verkefni erlendra
fréttastofa að segja islenzku
þjóðinni, að ráðamenn hennar
hafi farið til mikilvægra við-
ræðna viö ráðamenn I útlönd-
um.
Ef islenzku ráðherrarnir
þurfa aö fara úr iandi I opinber-
um erindum, þá ber þeim að
skýra þjóð sinni frá þvi. Þeim cr
ckki ætlaö að læðast burt af
landinu eins og þjófar á nóttu.
KAUPMANNAHAFNARFERÐ FJÖLSKYLDUNNAR
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur
minnir á fjölskylduferðina, sem farin
verður til Kaupmannahafnar á vegum
ferðaskrifstofunnar SUNNU þann 8.
ágúst n.k. Ferðin er ætluð flokksbundnu
Alþýðuflokksfólki, mökum þeirra og
börnum, og er fargjaldið sérlega hag-
stætt. Þá er einnig hægt að útvega ódýrt
gistihúsnæði á Kaupmannahöfn fyrir
þá, sem þess óska. Frá Kaupmanna-
höfn verða farnar skemmtiferðir yfir til
Sviþjóðar og skoðunarferðir um borg-
ina. Heim verður komið þann 15. ágúst.
Það fólk, sem áhuga hefði á ferð þess-
ari, getur leitað frekari upplýsinga ann-
að hvort hjá skrifstofu Alþýðuflokksins,
simar 15020 og 16724, eða ferðaskrifstof-
unni SUNNU, simar 16400 og 12070.
Stjórn og ferðanefnd
Alþýðuflokksféiags Reykjavikur.
ÖFLUGT FELAGSSTARF
í KVENFÉLAGI ALÞVDU-
FLOKKSINS REYKIAVlK
Félagsstarf Kvenfélags Al-
þýðuflokksins i Reykjavik hefur
verið með blómlegasta hætti i
vetur. A vegum félagsins hefur
margvisleg starfsemi verið rek-
in; sum með svipuðu sniði og
undanfarin ár, en annað nýmæli.
Af nokkrum siðustu starfsþátt-
um félagsins má m.a. nefna, að
eins og vanalega efndi félagið til
kaffisölu i Iðnó á baráttu- og há-
tiðisdegi verkalýðssins 1. mai. Að
vanda var mjög vel til veiting-
anna vandað og komu fjölmargir
gestir til kaffidrykkjunnar.
Þá var það að frumkvæði Kven-
félags Alþýðuflokksins i Reykja-
vik og Kvenfélags Alþ.flokksins i
Hafnarfirði, að fyrir einu ári var
efnt til stofnfundar Landssam-
taka Alþýðuflokkskvenna, þar
sem samtökunum voru sett lög og
kosin stjórn. Hafa kvenfélögin tvö
löngum haft samvinnu sin á milli
um félagsstörf, og er svo enn.
Einnig hefur Kvenfélag Al-
þýðuflokksins i Reykjavik hafið
útgáfu timarits á þessu starfsári.
Timaritið nefnist LOFN og fjallar
það um félags- og stjórnmál.
Hafa komið út nokkur tölublöð af
blaðinu.og eru þar ýmsar merkar
greinar — m.a. ágrip af sögu
Kvenfélagsins, sem þær hafa rit
að frú Soffia Ingvarsdóttir, sem
lengst allra hefur verið formaður
i félaginu, og frú Kristin Guð
mundsdóttir, sem er núverandi
félagsformaður.
Senn liður nú að lokum vetrar-
starfs Kvenfélagsins. Af þvi til-
efni m.a. efndu félagskonur til
hópferðar i bjóðleikhúsið s.l
föstudagskvöld. Um það bil sextiu
félagskonur tóku þátt i leikhús-
ferð þessari, og að leiksýningu
lokinni fóru konurnar allflestar i
kaffi i bjóðleikhússkjallaranum
Rikti mjög mikil ánægja með
leikhúsferðina hjá félagskonun-
um. Myndirnar hér á siðunni eru
teknar i kaffisamsætinu að leik-
sýningunni lokinni, en þær tók
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
1 gærkvöldi var svo haldinn sið-
asti félagsfundurinn á vetrinum
Fundurinn var haldinn i Alþýðu
húsinu á kvöldfundartima og voru
þar ýmis mál til umræðu.
Með sumri breytist starf Kven
félagsins eins og flestra annarra
félaga. Fundahöld liggja þá mikið
til niðri, en félagið hefur að sjálf-
sögðu samstarf við önnur flokks-
félög i Reykjavik um sumarstarf.
m.a. sumarferðir. Einnig hafa
konurnar i Kvenfélagi Alþýðu-
flokksins i Reykjavik oft efnt til
eigin sumarferðalags og þá eink-
um og sér i lagi þau sumur, sem
engar slikar ferðir hafa verið
farnar af Alþýðuflokksfélagi
Reykjavikur, sem er stærsta A1
þýðuflokksfélagið á landinu og
forystufélag bæði i Reykjavik og
flokksstarfinu i heild.
EFST: Tvær alþekktar Alþýðuflokkskonur, sem lengi
hafa verið í forystusveit félags og flokks.
NEÐST: Séðyfirsalinn i Þjóðleikhúskjallaranum þar
sem konurnar í Kvenfélagi Alþýðuflokksins söfnuðust
saman til kaffisrykkju að lokinni leikhúsferð.
o
Föstudagur 25. mai 1973