Alþýðublaðið - 25.05.1973, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 25.05.1973, Blaðsíða 9
Iþro 1 > « ! BADMINTON UNNU 9:1 í FÆREYJUM 10 íslenzkir badmintonmenn hafa að undanförnu dvalið við keppni i Færeyjum. Nú i vikunni kepptu þeir eins konar bæjar- keppni við Þórshöfn, og fóru fram 10 leikir. Úrslitin urðu þau, að ís- lendingarnir unnu 9:lk Ekki er nánar vitað um gang einstakra leikja, nema hvað þrir þeirra unnust i oddaleik, og þurfti m.a. Haraldur Korneliusson TBR oddaleik við færeyska meistar- ann. Bendir þetta til þess að Færeyingar séu i framför. Islenzku badmintonmennirnir koma heim á sunnudaginn. VÍKINGUR - ÁRMANN 1 kvöld fer fram einn leikur i 2. deild tslandsmótsins I knatt- spyrnu. Þá eigast við lið Vikings og Ármanns. Leikurinn hefst á Melavellinum klukkan 20.00. í fyrstu umferð mótsins vann Víkingur Selfoss 5:0 og Ármann gerði jafntefli við Hauka 1:1. Þess má geta til gamans, að þjálfari Armanns er Eggert Jóhannesson sem um langt árabil hefur veriö þjálfari hjá Vikingi. VIUA VlKIA MAGNÚSI! Vegna þeirra ummæla, sem höfð hafa verið eftir Magnúsi v. Péturssyni dómara, um atvik það er skeði að loknum leik IBK og 1A s.l. sunnudag vil ég taka fram eftirfarandi: Fullyrðingar hans i dagblöðun- um, að undanförnu, eru alrangar og staðfesta aöeins, að hann hvorki vissi hvað hann sagði eða gerði inni i búningsherbergi okk- ar. Ég hef 13 vitni að þvi er þar gerðist og hef fyrir mina hönd og Knattspyrnuráðs Akraness kært hann til Dómstóls og Aganefndar KSl og krafizt þess, að hann verði dæmdur frá dómarastörfum. Að öðru leyti tjái ég linig ekki um þetta mál að sinni. Rikarður Jónsson s*r (íuðjón Ingi Sverrisson hefur vakið niikla athygli i Alpagrein- um i velur. Aslaug Sigurðardóttir er i fremstu röö skiðakvenna I Reykjavik. ARMANN Á UPPLEIÐ Nýlokið keppnistimabil Skiðadeildar Armanns var eitt það árangursrikasta i sögu félagsins. Armannsunglingarnir hafa auk- ið verðlaunahlutfall sitt í innanhéraðsmótum úr um 30% I um 70% og þeir fullorðnu hafa ekki látiö sitt eftir liggja; hjá þeim var aukning úr 60% i 80%. Þessi árangur ætti að vera öðrum Reykja- vikurfélögum viðvörun, Ármann er að verða stórveldi I þessari iþróttagrein i höfuðborginni. Það er ungur Bandarikja- maður, James Major, sem hef- ur þjálfað Armenninga.og kom hann gagngert hingað til lands þeirra erindagerða. Ármenningar hafa unnið mik- ið við skíðasvæði sitt i Bláfjöll- um, byggt litinn skála, komið upp þremur skýlum fyrir kepp- endur.lagtsimakerfi um svæðið og rekið fjórar skiðalyftur. Þær eru að visu nokkuð fornbýlisleg- ar, en Ármenningar hafa fullan hug á, að byggja varanlegri og afkastameiri lyftu i framtiðinni. Armenningar hafa þegar lagt fram yfir 5000 vinnustundir i sjálfboðavinnu við að koma upp núverandi aðstöðu sinni i Blá- fjöllum. Keppnistimabilinu hjá Skiða- deild Armanns lauk með innan- félagsmóti i Bláfjöllum 1. og 13. mai s.l. Þátttakendur voru alls 60,15 fullorðnir og 45 unglingar. Sigurvegarar á mótinu urðu þessir: A. Stórsvig: Kvennaflokkur: Aslaug Sigurðardóttir 164,4 sek Karlaflokkur: James Major 134,8 sek Stúlkur 13—15 ára: Guðrún Harðardóttir 69,0 sek^ Drengir 15-16 ára: Stefán Sæmundsson 62,9 sek Drengir 13—14 ára: Björn Ingólfsson 60,1 sek Stúlkur 11—12 ára: Steinunn Sæmundsd. 61,1 sek Drengir 11—12 ára: Jónas ölafsson 63,9 sek Stúlkur 10 ára og yngri: Asa Hrönn Sæmundsd. 49,8 sek Drengir 10 ára og yngri: RikharðSigurðsson 45,8 sek B. Svig: Kvennaflokkur: Aslaug Sigurðardóttir 81,3 sek Karlaflokkur: Guðjón Ingi Sverrisson 70,0 sek Stúlkur 13—15 ára: Guðbjörg Árnadóttir 87,7 sek Drengir 15—16 ára: Stefán Sæmundsson 76,2 sek Drengir 13—14 ára: Björn Ingólfsson 73,2 sek Stúlkur 11—12 ára: Steinunn Sæmundsd. 85,8 sek Drengir 11—12 ára: Kristinn Sigurðsson 75,2 sek Stúlkur 10 ára og yngri: Asa H. Sæmundsd: 65,0 sek Drengir lOára ogyngri: Rikharð Siguröss. 62,5 sek C. Alpatvíkeppni: Kvennaflokkur: Aslaug Sigurðardóttir Jamcs Major þjálfari, hefur náö góðum árangri með Armenn- inga i vctur. Karlaflokkur: Guðjón Ingi Sverrisson. Stúlkur 13—15 ára: Guðrún Harðardóttir. Drengir 15—16 ára: Stefán Sæmundsson. Drengir 13—14 ára: Björn Ingólfsson. Stúlkur 11—12 ára: Steinunn Sæmundsdóttir. Drengir 11—12 ára: Kristinn Sigurðsson. Stúlkur 10 ára og yngri: Asa H. Sæmundsdóttir. Drengir 10 ára og yngri: Rikharð Sigurðsson Á ÆFINGUM UNGLIHGALIDS 27 KVLFINGAR LANDSLIÐS Ot Golfsamband Islands boðaði iþróttafréttamenn á sinn fund i vikunni, til að kynna þeim það helzta sem framundan er á vegum sambandsins. Kom þar fram aö 27 kylfingar æfa fyrir Evrópumót karla og unglinga sem haldin verða i sumar. Einar Guðnason hefur gert þessum mótum skil i þætti sinum, og verður það ekki gert nánar hér. Þá kom það fram, að sambandið hefur látið gera myndarlega kappleikjaskrá. A siðasta ársþingi Golf- sambandsins var ákveðið að gefa út kappleikjaskrá á vegum sambandsins, þar sem væri að finna allar þær upplýsingar sem golfmenn þurfa að hafa við hend- ina. Er bókin mikil að vöxtum, og hafa þeir Kjartan L. Pálsson, hinn kraftmikli blaðafulltrúi sambandsins, og Konráð Bjarnason, stjórnarmaður i GSl, ◄ ◄ ◄ Loftur Ólafsson, islandsmeistar- inn 1972, Verður liklega bæði i landsliði og unglingalandsliði. séð um útgáfuna. Bókin fæst hjá öllum golfklúbbum landsins. Páll Asgeir Tryggvason er for- maður GSt, en aðrir i stjórn eru Konráð Bjarnason, Kristján R. Bjarnason, Ragnar Magnússon og Hermann Magnússon. KARLALANDSLIÐIÐ æfir einu sinni i viku undir stjórn Þorvaldar Ásgeirssonar golf- kennara. úr þessum hóp verður valið lið, sem tekur þátt i Evrópu- meistaramóti karla, sem fram fer i Portugal i lok júni. Liðið hóf æfingar 1. april. Þorbjörn Kjærbo, GS Einar Guðnason, GR Gunnlaugur Ragnarsson, GR Jón Haukur Guðlaugsson, GV Loftur Ólafsson, NK Björgvin Þorsteinsson, GA Óttar Yngvason, GR Haraidur Júliusson Hallgrimur Júliusson Július R. Júliusson, GK Jóhann Benediktsson, GS Atli Aðalsteinsson, GV Óskar Sæmundsson, GR Jóhann Ó. Guðmundsson, GR Sigurður Héðinsson, GK Jóhann Ejólfsson, GR Hannes Þorsteinsson, GL Allir úr þessum hóp nema Hannes Þorsteinsson og Björgvin Þorsteinsson hafa mætt á æfing- arnar, en þeir eru báðir á Akur- eyri, þar sem annar er búsettur en hinn er kennari. GOLFIÐ UNGLINGALANDSLIÐIÐ, sem einnig æfir undir stjórn Þor- valdar mun taka þátt i Evrópu- meistaramóti unglinga, sem fram fer i Silkeborg i Danmörku i lok júli. Það æfir einu sinni i viku og eru æfingarnar hafnar fyrir nokkru. 1 liðinu eru: Arsæll Sveinsson, GV Loftur ólafsson, NK Björgvin Þorsteinsson, GA Hannes Þorsteinsson, GL Hallur Þórmundsson, GS Ólafur Skúlason, GR Atli Arason, GR Gunnar Þórðarson, GA Þórhallur Hólmgeirsson, GS Óskar Sæmundsson, GR Sigurður Thorarensen, GK Ragnar ólafsson, GR Sigurður Hafsteinsson, GR Sigurður Sigurðsson, GR Jóhann Ó. Guðmundsson, GR Fimm af þeim piltum sem æfa með unglingalandsliðinu a t'a einnig með karlalandsliðinu o Föstudagur 25. maí 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.