Alþýðublaðið - 19.07.1974, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 19.07.1974, Blaðsíða 12
„Sl :órl lættv ileg tf( ird æmi og stí irlega VÍtí ive rt al hæl íla i gai nefm dar KSÍ 191 Já/ glæsileg er nú fyrir- sögnin# en glæsilegri skal hún verða næst. Tilefni greinar þessarar er það/ að þann 22. júní fór fram leikur i 3ju deild islands- mótsins í knattspyrnu milli Leiknis Fáskrúðsfirði og Þróttar Neskaupstað, og var sá leikur allsögulegur eins og nú mun vikið að. Leikmaður nr. 8 hjá Leikni skorar mark hjá Þrótti, en verður það á að fella markmanninn um leið. Dómari leiksins en hann dæmdi Pétur Óskarsson, dæmdi umsvifalaust markiö af og þar með á hinn brotlega um leiö. En við það að heyra i flautunni þá umhverfðist leikmaðurinn gersamlega, og réðst á einn varnarmann Þróttar og uröu þar stimpingar all snarpar. Dómarinn hugðist þá áminna hinn brotlega, en á meðan ég er aö bauka við að ná gula kortinu upp úr pússi minu, þá kemur hinn seki leikmaður og segir. „Fyrir hvern andskotann” (þ.e. fyrir hvað ég ætlaði að áminna hann.) Þetta var ekki óviturlega spurt, ný kominn frá þvi að gera sig sekan um stórvægilegt brot... og það sem meira var að hann lét ekki sitja við orðin tóm heldur hrinti hann mér, dómaranum þannig að hann féll við. Þá fór nú að kárna gamaniö og að sjálfsögðu rauða kortið á Ioft, en þá kórónaði hinn seki þetta alveg, og reif kortiö i tvennt. Dómarinn gaf honum 3 mín. til aö yfirgefa leikvöllinn, en það tók alls 5 min. að koma honum útaf. Þetta gæti kallast iþróttamanns- leg framkoma, en hinn seki er vist meö dómararéttindi sjálfur????? Leikurinn hófst aftur og endaði 2-2. Dómari leiksins sendi öllum viðkomandi aðilum hér austan- lands skeyti svo og aganefnd um leiö og hægt var að póstleggja skýrsluna. Jæja svo skeöur það stórkostlegasta, I þessu öllu og jafnframt þaö rosalegasta. Aganefnd KSÍ sem m.a. er skipuö þeim Jóni Magnússyni, Vilberg Skarphéðinssyni og Þór- halli Einarssyni, sá sér ekki fært annað en að dæma umræddan leikmann í „þyngstu” refsingu, „sem varlLEIKUR.” Dómurinn hljóöaði upp á einn leik, llkt og byrjendur hefðu veriö I Aganefnd, eða öllu heldur með brjósk i nefinu I stað beina Þetta sýnir hvað, já hvað sýnir þetta? Þetta sýnir að, aganefnd KSI hefur gefið þaö uggvæn- legasta fordæmi til handa islenskri knattspyrnu sem um getur. Mér er spurn, um hvað voruð þið að hugsa þegar þið fellduö þennan dóm? Hvað lögðuð þiö til grundvallar? Nei, ég held að þið ættuð að labba i næsta leik I fyrstu deild, með skottiö á milli fótanna á Laugardalsvellinum einn hring og segja formlega skilið við aga- nefnd, þið eruö greinilega ekki fullharðnaðir enn. Verði þessi úrskurður ekki tekinn til gaumgæfilegrar endur- skoöunar strax, þá vil ég bara segja ykkur eitt. Það kann aö fara svo að allir leikir innan vébanda KSI fari aldrei fram, nema þá með reykviskum dómurum. Það byggist einfaldlega á þvi, að það er ekki hægt að starfa sem dómari ef leikmenn sem þessi fá ekki nema einn leik fyrir svona brot. Þaö er skemmtilegt fyrir verðandi dómara að eiga von á svona nokkru. Ég held þvl aö það verði ofaná að ég muni senda skírteini mitt inn og vona að aðrir austfirskir dómarar komi á eftir, og látum leikmennina sjálfa um að dæma sina leiki. Það hæfir best leikmanni sem þessum að dæma hjá sjálfum sér svona dónaskap, en hann heitir vist Eirikur Stefánsson, og aö eigin sögn, lifir hann fyrir knatt- spyrnu. Ef það þurfa aö vera eitthvað sérstaklega orðaðar skýrslurnar, þá get ég vel málað skrattann á vegginn og þá mun ég eftir að ég hef störf að nýju gera þannig skýrslur að það fari ekkert á milli mála hvort það var dómarinn eða leikmaðurinn sem braut af sér. Það heyrir ekki undir iþrótta- mannslega framkomu að senda inn skýrslu fyrir samherja sinn sem gerst hefur brotlegur viö lögin, og reyna að sverta dómarann I augum aganefndar, held frekar að þú ættir að kenna þinum leikmönnum almennar umgengnisvenjur á knattspyrnu- vellinum Helgi Númason. Virðingafyllst/ með þökk fyrir birtinguna og óska starf sbræðrum mínum góðs gengis í samstarfi við AGANEFND. Pétur óskarsson P.S. til aganefndar munið að innramma //RAUÐA KORTIÐ". Meistaramot íslands í frjálsum íþróttum hefst á sunnudaginn og stendur í þrjá daga þá 18 út A sunnudaginn hefst keppnin sem fer fram á Laugardalsvell- ínum kl. 15:00, en á mánudag og þriðjudag kl. 20:00. Allir okkar bestu frjálsíþrótta-' menn verða með i mótinu og má þvi búast við spennandi keppni i mörgum greinum. Flesta keppendur á IR 22, Ármann sem sendir keppendur. Þannig Htur timaseöillinn fyrir dagana þrjá. Sunnudagur 21. júli Kl. 15.00 400 m grindarhl. kúluvarp karla hástökk kv. spjótkast kv. 15.15 200 m hlaup karla, 15.25 200 m hlaup kvenna, 15.40 5000 m hlaup, spjótkast karla, kúluvarp kvenna. 15.50 hástökk karla, 16.00 langstökk karla 16.15 100 m grindarhlaup kv. 16.30 800 m hlaup karla 16.40 800 m hlaup kvenna 16.50 4x100 m boðhlaup karla 17.00 4x100 m boöhlaup kvenna. Mánudagur 22. júii Kl. 20.00 100 m hlaup kvenna a-riðill undanrás, stangarstökk, þrist. kringlukast karla. 20.05 100 m hlaup kv B-riðill undanrás 20.10 100 m hl. kv. c-riðill undanrás, 20.20 100 m hl. karla, a-riöill undanrás, 20.25 100 m hl. karla, b-riðill undanrás, 20.40 1500 m hlaup kvenna 20.50 100 m hlaup kv., úrslit 21.00 lOOmhl.karla úrslitlangst. kv. 21.10 1500 m hlaup karla 21.35 400 m hl kv. sleggjul kringluk. kv. 21.40 400 m hlaup karla 22.00 110 m grindarhlaup 22.15 4x400 m boðhl. kvenna 22.25 4x400 m boðhl. karla. Þriðjudagur 23. júli Kl. 20.00 3000 m híndrunarhlaup fimmtarþraut karla. og Friðrik Þór Óskarsson hefur náð ágætis árangri I langstökki og þristökki I sumar. Hann veröur meöal keppenda i Meistarmótinu um helgina. Um næstu helgi verður hann i landsiiðshópnum sem heldur til Sviþjóöar I Kalott keppnina, en i þeirri keppni eigum viö mikla möguleika á aö sigra 0 Föstudaguif 19. júlf 1974

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.