Alþýðublaðið - 21.09.1974, Síða 2
Kópavogur og nágrenni
Óskum að ráða menn til eftirtalinna
starfa:
2 menn i framleiðsludeild, 1 mann til lag-
erstarfa.
Upplýsingar veittar á staðnum hjá verk-
stjóra, ekki i sima.
Málning h.f.
Kársnesbraut 32, Kópavogi.
Tæknistörf
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða tækni-
menn til starfa við ýmiss konar fram-
kvæmdaeftirlit, mælingar og hönnunar-
störf. Einhvers konar tæknimenntun er á-
skilin og nokkur starfsreynsla æskileg.
Nánari upplýsingar gefur bæjarverkfræð-
ingur, Strandgötu 6, simi 53444. Við um-
sóknum verður tekið á sama stað.
Bæjarverkfræðingur.
Reykjavíkurmót í 4
j HANDKNATTLEIK*
hefst í dag kl. 14 - Þd leika
S FRAM — ÁRMANN
Kl. 15,15 leika
VALUR — FYLKIR
Húseign til söiu á Akureyri
Kauptilboð óskast I útihúsbyggingar að Galtaiæk við
Eyjafjarðarbraut, Akureyri, ásamt 3,8 hektara erfða-
festulandi.
Brunabótamat eignarinnar er kr. 5.868.900,00. Eignin
verður til sýnis væntanlegum bjóðendum kl. 3—6 e.h.,
fimmtudaginn 26. sept. 1974, og tilboðseyðublöð afhent á
staðnum. Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir
kl. 11:00 f.h., 3. október 1974.
INNK AUPASTOFNUN RÍKISINS
BOHGARTÚNI 7 SÍMl 26844
Tilboð óskast i að reisa og fuilgera læknismóttökur á
Breiðadalsvlk og Stöðvarfirði.
Hvor bygging um sig er sjálfstætt Utboö. Otboðsgögn eru
afhent á skrifstofu vorri og hjá oddvitanum á Breiðadals-
vik og Stöðvarfirði.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri 8. október 1974, kl.
11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
- N
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
STJÓRNMÁL
Varnarmál
í deiglu
Fyrir nokkrum dögum lýsti
Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra, þvi yfir i viðtali við
Aiþýðublaðið, að hann myndi i
viðræðum við Sisco, varautan-
rikisráðherra Bandarikjanna,
og aðra fulltrúa Bandarikja-
stjórnar i Washington, „taka
upp þráðinn, þar sem frá var
horfiö”. Þetta loðna svar
utanrikisráðherra við spurn-
ingu Alþýðublaðsins um það,
hvernig staöið yrði að viðræð-
um við Bandarikjamenn um
varnarmálin og endurskoöun
varnarsamningsins og hvort
viðræöugrundvöllurinn, sem
vinstri stjórnin sendi banda-
riskum stjórnvöldum snemma
i vor, yrði nú dreginn til baka,
hefur vakið athygli á þeirri
staðreynd, að skoðanir
st jórnarflokkanna eru að
verulegu leyti ólikar.
Nú hefur komið á daginn, að
Einar Agústsson telur Fram-
sóknarflokkinn bundinn af
umræddum viðræðugrundvelli
frá I vor. Hins vegar hafa tals-
menn Sjálfstæöisflokksins
alltaf lýst andstöðu sinni við
þennan viðræðugrundvöll og
talið, að hann byði heim hættu
um, að allar varnir yrðu af-
lagöar, yrði hann látinn liggja
til grundvallar viðræðunum
við Bandarikjamenn.
i Alþýðublaðinu I dag segir
Geir Hallgrimsson, forsætis-
ráðherra, að viðræðugrund-
völlur vinstri stjórnarinnar
frá I vor sé ekki lengur á dag-
skrá, heldur tillögur þær, sem
Bandaríkjamenn lögðu fram i
nóvember I fyrra. Þetta er
einkar atbyglisvert þegar haft
er i huga, aö Einar Agústsson,
utanrikisráðherra, taldi þess-
ar tillögur, meðan hann átti
sæti i „vinstristjórn”, óviðun-
andi. Nú er Einar Agústsson,
utanrikisráðherra i „hægri-
stjórn”, að skoða bandarisku
tillögurnar, sem áður voru ó-
viðunandi, meö nýjum gler-
augum. Þetta er dæmigert um
það, hvernig framsóknar-
menn geta hagað seglum eftir
vindi. Gæti verið eins konar
siðgæðisvottorð fyrir Fram-
sóknarflokkinn.
Vonandi leikur núverandi
rikisstjórn ekki sams konar
skripaleik i varnarmálum og
rikisstjórn Ólafs Jóhannes-
sonar lék á þriggja ára valda-
tima sinum.
Geir Hallgrimsson hefur nú
lýst þvi yfir, að allar meiri-
háttar breytingar á skipan
varnarmálanna verði með-
höndlaðar af rikisstjórninni i
heild. Með öðrum orðum virð-
ist Sjálfstæðisflokkurinn ekki
ætla að leika sama leikinn og
Alþýðubandalagið I siðustu
stjórn, að takmarka völd
utanrikisráöherra með þvi að
skipa sérstakt varðliö til að
fylgjast með gerðum utan-
ríkisráðherrans i varnarmál-
um.
Kaflinn um varnarmálin i
stef n uy f ir lý sing u rikis-
stjórnarinnar viröist kveða
skýrt á um stefnu hennar i
þessu viðkvæma máli.
H.E.H.
Umbúöasamkeppnin
haldin í 4. sinn
Umbúðasamkeppni Félags isl.
iðnrekenda, sem haldin hefur
verið annað hvert ár, veröur nú
haldin i fjórða sinn. Tilgangurinn
með samkeppninni er að kanna
hvað gert hefur verið af nýjum
umbú um og veita þeim bestu
þeirra viðurkenningu. Með þessu
er ætlunin að auka skilning og á-
huga á gildi hagkvæmra og fall-
egra umbúða i sölustarfsemi.
Samkeppnin er fyrir allar gerð-
ir umbúða, svo sem flutningsum-
búðir, sýningarumbúðir og neyt-
endaumbúðir. Verða þær að vera
hannaðar á íslandi og hafa komið
á markaðhér og erlendis. Allir is-
lenskir umbúðaframleiöendur og
umbúðanotendur geta tekið þátt i
samkeppninni, svo og aðrir þeir
sem hafa með höndum gerð og
hönnun umbúða.
Að þessu sinni verður sýning á
umbúðum i Umbúðasamkeppn-
inni sameinuð finnskri umbúða-
sýningu, sem opnuð verður I Nor-
ræna húsinu 8. október. Munu
tveir finnskir sérfræðingar i um-
búðamálum starfa með dóm-
nefndinni að vali þeirra umbúða,
sem viðurkenningar hljóta. Þá
verða viðurkenningar afhentar
um leið og finnska sýningin verð-
ur opnuð.
Þá gangast finnarnir fyrir
tveggja daga seminar um um-
búðir dagana 9. og 10. október,
þar sem fjallað verður um marg-
visleg efni. Má nefna umræðuefni
eins og verndun vörunnar, um-
búðir á heimilunum, stöðlun um-
búða, hlutverk umbúða i sölu-
starfseminni, prófun á söluhæfni
umbúða, prentun umbúða, papp-
irs og pappategundir, pappirs-
pokar, plastumbúðir, pökkun til
útflutnings og margt fleira.
Dómnefndin veitir viðurkenn-
ingu þeim umbúðum, sem hún
telur til þess hæfar og eru veittar
viðurkenningar fyrir mismuna-
ndi gerðir umbúða.
Allar umbúðir sem eru sendar
til þátttöku, á að afhenda i þrem-
ur eintökum, og skulu, ef unnt er,
tvö þeirra vera með innihaldi en
eitt án innihalds. Fyrir sérstakar
gerðir umbúða má þó veita und-
anþágu frá þessu skilyrði. Um-
búðirnar ásamt upplýsingum um
nafn og heimilisfang þátttak-
anda, umbúðaframleiðandann,
umbúðanotandann og þann, sem
hefur séð um hönnun umbúðanna,
skal senda til Félags islenskra
iðnrekenda fyrir 28. september
nk.
Eins og fyrr segir er þetta
fjórða umbúðasamkeppnin, sem
haldin er á íslandi. Var sú fyrsta
haldin i tengslum við iðnkynning-
una árið 1968. A þessu timabili
hafa oröið stórstigar framfarir i
hönnun og framleiðslu umbúða
hér á landi og má vafalaust rekja
hluta þessara framfara til áhrifa
Umbúðasamkeppninar.
70 ára er á morgun sunnud.
22. sept. Frú Lina Dalrós
Gisladóttir, Skólastig 23,
Bolungarvik. Hún tekur á móti
gestum i félagsheimilinu á
morgun milli kl. 3 og 6. —
Dagur
fatlaðra
Fjáröflunardagur fatlaðs fólks er á
morgun, en þá verða seld merki
Sjálfsbjargar og ársrit samtakanna,
Sjálfsbjörg.
Merki Sjálfsbjargar sýnir mann,
sem leggur til atlögu við ókleif hamra-
björg. Er það mjög táknrænt fyrir bar-
áttu fatlaðra manna fyrir lifi sinu.
Annars er i blaðinu Sjálfsbjörg að
finna margan þann fróöleik um starfs-
semi og samhjálp fatlaðra, sem
annars er flestum ókunnur.
Það þarf að styðja viö bakið á þess-
um fámenna hópi, sem hjálparlausu er
fyrirmunaö að lifa nokkru þolanlegu
llfi.
Með hjálp hinna heilbrigðu getur
fatlaö fólk klifið björg, og ætti það að
vera metnaöarmál hvers einasta
manns að bera á morgun merki Sjálfs-
bjargar I barminum , og helst fleiri en
eitt. Blað samtakanna er hverjum
manni til fróöleiks, sem ekki verður
aflað á ódýrari og auðveldari hátt.
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
0
Laugardagur 21. september 1974.