Alþýðublaðið - 21.09.1974, Síða 5
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm.)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Aðsetur ritstjórnar: Skipholti 19, simi 28R00
Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, simi 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, sími 14900
Prentun: Blaðaprent
VÍXILLINN FELLUR
Það er skammt stórra högga á milli hjá i-
haldsstjórninni. Skömmu eftir valdatöku sina
lækkaði hún gengi isl. krónunnar gagnvart er-
lendum gjaldmiðlum um rösk 17%, hækkaði
söluskatt um 2 stig, hækkaði bensingjald veru-
lega og lagði nýjan skatt á raforku. 1 fyrrakvöld
tilkynnti hún svo um griðarlegar hækkanir á
landbúnaðarvörum. Nema þær hækkanir allt
frá 14,8% og upp i 134,4%. Og enn hefur ekkert
heyrst frá rikisstjórninni um aðgerðir til þess að
bæta láglaunafólkinu i landinu upp verðhækkun-
arskriðuna.
Auðvitað má það til sanns vegar færa, að við-
bótarniðurgreiðslurnar, sem ákveðnar voru s.l.
vor, voru óraunhæfar að þvi leytinu til, að ekki
var til fé i rikissjóði til þess að kosta þær. Með
þeim tók ólafur Jóhannesson sér kosningavixil,
sem hann hefur nú fengið Geir Hallgrimsson i
lið með sér til þess að innheimta hjá islenskum
neytendumEn jafnvel þótt það sé rétt, að það
verð, sem islenskir ney tendur voru látnir greiða
fyrir landbúnaðarafurðirnar i sköttunum sinum
hafi verið orðið óhóflega hátt og gersamlega úr
sambandi við „eðlilegt” verðsamhengi á afurð-
unum, þá gefur það auga leið að svo mikill
niðurskurður á niðurgreiðslunum á einu bretti
kemur eins og hnefahögg i andlit launafólks.
Enn þyngra hefði þó það högg orðið ef rikis-
stjórnin hefði fengið að vera alveg einráð um
málið, en eins og kunnugt er hugðist hún hækka
útsöluverð landbúnaðarafurða miklu meira, en
Alþýðusambandi íslands tókst að fá hana til
þess að hnika hækkuninni nokkuð niður.
Núverandi stjórnarflokkar — Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokkurinn — eru
tveir stærstu stjórnmálaflokkar landsins. Þeir
eru það aðeins vegna þess, að stórir hópar
launafólks i landinu hafa glæpst á þvi að greiða
þeim atkvæði. Nú ætti þetta fólk að sjá afleið-
ingar þeirra gerða sinna og væntanlega verða
reynslunni rikara. Fyrstu verk rikisstjórnarinn-
ar voru þau að „rétta við” suma auðugustu at-
vinnurekendur landsins með þvi að leggja
hverja byrðina á fætur annarri á bak launafólks.
En þessi sama rikisstjórn, sem fjölmargir laun-
þegar hafa stutt til valda, hefur ekki enn gefið
sér tima til þess að huga að þó ekki væri nema
þeim allra lægstlaunuðu i þjóðfélaginu.
FRÁLEITT KERFI
Hin mikla verðhækkun á landbúnaðarafurð-
unum kennir okkur enn einu sinni þá lexiu,
hversu gersamlega fráleitt hið sjálfvirka verð-
ákvörðunarkerfi landbúnaðarvaranna er og hve
hættulegt það er að nota verðákvörðun á land-
búnaðarafurðum sem hagstjórnartæki i svo
miklum mæli sem gert hefur verið. Sennilega er
epginn almennur neytandi á Islandi, sem gerir
sér fulla grein fyrir þvi, hvað þessar afurðir i
raun og veru kosta eða hversu mikið fé neytend-
ur þurfa að greiða i auknum sköttum vegna hins
tvöfalda verðlagningarkerfis á landbúnaðaraf-
urðunum.
Það er löngu orðið sameiginlegt hagsmuna-
mál neytenda og bænda, að verðlagsmál land-
búnaðarins verði tekin upp til heildarendur-
skoðunar. En enn sem komið er virðist Alþýðu-
flokkurinn vera eini stjórnmálaflokkurinn, sem
þorir að orða þá nauðsyn —- þótt öllum sé það
jafn vel ljóst hve hún er brýn.
[alþýduj
inftiTíii
ERLENDIS FRÁ
Oldungadeildin vill
yfirheyra Kissinger
Sérfræðingar í
lögvísindum í öldunga-
deild Bandaríkjaþings
hafa gert það að tillögu
sinni, að hafnar verði
rannsóknir á því, hvort
fyrrum yfirmaður bandar-
ísku leyniþjónustunnar,
Richard Helms, sé sekur
um meinsæri og þeir ákæra
utanríkisráðherrann
Henry Kissinger fyrir að
hafa vitandi vits gefið
utanríkismálanefnd
Bandaríkjaþings villandi
upplýsingar þegar hann
undir eiði gaf skýrslu um
starfsemi CIA í Chile á
tímabilinu fram til falls
Allende forseta.
Eins og komið hefur
fram i freftum upplýstist
nýlega, að núverandi yfir-
maður CIA, William Colby,
hafi skýrt frá því í leyni-
skýrslu, að CIA haf i varið 8
milljónum dollara í tíð
Nixons til þess að grafa
undan löglegri stjórn
Allendes í Chile. Þessar
aðgerðir hlutu samþykki
undirnef ndar
öryggismálanef ndarinnar,
þar sem Kissinger sat í
forseti. Áður hefur hann
neitað því undir eiði við
utanríkismálanef nd
Bandaríkjaþings, að CIA
hafi nokkur afskipti af
stjórnarbyltingunni.
I' nýrri skyrslu, sem
unnin hefur verið af
lögfræðingum undir stjórn
Jerome Levinson, sem er
aðal-lögf ræðiráðunautur
þeirrar undirnefndar utan-
ríkismálanef ndarinnar
sem fjallar um
f jölþjóðlegar fyrirtækja-
samsteypur, er á það bent,
að Kissinger hafi viljandi
villt um fyrir utanríkis-
málanefndinni og að allar
likur bendi til þess, að
Helms og fleiri hafi gerst
sekir um meinsæri með því
að afneita með öllu hlut-
verki CIA í valdaráninu í
Chile. Auk Helms beinist
grunurinn að Charles
Mayer, fyrrum aðstoðar-
utanríkisráðherrra,
Edward Korry, fyrrum
ambassador í Chile og
William Broe, fyrrum
yfirmanni Suður-
Ameríkudeildar CIA.
Lögf ræðingarnir leggja
til, að yf irheyrslurnar yfir
Kissinger í sambandi við
samþykki þingsins á
honum sem utanríkis-
ráðherra, verði teknar upp
að nýju. Þessi sjónarmið
hafa áður komið fram — í
sambandi við grun um
aðild hans að
fyrirskipunum um sima-
hleranir.
Framhald á b\s. 4
Barnaflokkar - Unglingaflokkar - Flokkar fyrir fullorðna
einstaklinga - Flokkar fyrir hjón - Byrjendur og framhald
Innritun daglega
frá kl. 10-12 og
1- 7
Reykjavik:
Símar 2-03-45 og
2- 52-24
Breiðholt:
Kennt verður í
nýju húsnæði að
Drafnarfelli 2-4.
Sími 2-75-24
Kópavogur:
Sími 3-81-26
Hafnarf jörður:
Sími 8-48-29
Seltjarnarnes:
Sími 8-48-29
Keflavik:
Tjarnarlundur.
Sími 1690 kl. 5-7.
Unglingar!
Allir nýjustu táningadansarnir --svo sem: Suzie Q. Junes, Funky,
Bogo Rock, Macky Messer, Football, Spider, Pelican, Street Walk o. fl.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
Laugardagur 21. september 1974.