Alþýðublaðið - 21.09.1974, Síða 12
alþýðu
U nTllTll
Bókhaldsaðstoð
með tékka-
færslum
BÚNAÐAR
BANKINN
KÓPAYOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 12
30
ÁRAHÚMOR
Helena: „Hverskonar eigin-
mann ætti ég að fá mér?”
Helga: „Fáðu þér ein-
hleypan mann og láftu eigin-
mennina i friði.”
■ ■ ■
Jóna: „Ég játaðist honum
Harry ekki i fyrsta skipti, sem
hann bar upp bónorðið.”
Hanna: „Ég veit það. Þú
varst ekki viðstödd þá.”
■ ■ ■
Bina: „Hefurðu heyrt það?
Hún Lina er gift honum
Stjána.”
Stina: „Hvað er að heyra!
Og þau, sem voru trúlofuð.”
iVIagga: „Kærastinn minn
segir öllum á Akureyri, að
hann ætli hingað til Reykja-
vikur til að kvænast fallegustu
stúlkunni hér.”
Maja: „En hvað það er
leiðinlegt, þegar þið eruð búin
að vera trúlofuð svona lengi.”
■ ■ ■
„Ég segi þér það satt, að
maðurinn minn er sá eini, sem
hefur kysst mig.”
„Ertu að gorta eða
kvarta?”
■ ■ ■
„Fólk segir, að eg yngist
með degi hverjum.”
„Það er lika satt. Fyrir
mörgum árum varstu þritug
og nú ertu aðeins 25 .”
■ ■ ■
„Þarna er kona, sem liður
fyrir trú sina.”
„Hvernig þá?”
„Hún heldur, að hún geti
notað skó númer 37 á fót
númer 39.”
■ ■ ■
„Sæl,Sigga. Það er afmælið
mitt i dag.”
„Er það, Jóna? Hvað ertu
ekki gömuí?”
■ ■ ■
Siggi: „Hversvegna kyssast
konur en ekki karlar?”
Sigga: „Af þvi að karlar
geta fengið betra að kyssa en
konur ekki.”
■ ■ ■
Tóta: „Ég hryggbraut hann
fyrir tveim mánuðum og siðan
hefur ekki runnið af honum.”
Lalla:,, Það finnast mér nú
of löng hátiðahöld.”
■ ■ ■
„Ég veit að hann er rikur,
en er hann ekki of gamall til að
teljast boðlegur?”
„Hann er of boðlegur til að
teljast gamall.”
(H)RÓS í
HNAPPA-
GATIÐ
(H)rós-hafi okkar að þessu
sinni er okkur enn óþekktur, en
það sem hann gerði sér t:l
hróssins á eftir að snerta
marga. (H)rós okkarfer sem sé
til þess, sem varð til að vekja
athygli félagsmálaráðuneytis-
ins á þvi, að i ein sex ár hefur
sparimerkjafé fólks verið end-
urgreitt með hálfri kaupvisi-
tölu, en ekki fullri, eins og lög
kveða á um.
Alþýðublaðið spurði i gær
Hallgrim Dalberg, ráðuneytis-
stjóra, hver hefði orðið til að
vekja athygli hans á málinu.
Sagði Hallgrimur, að „nokkrir
aðilar” hefðu bent ráðuneytinu
á þetta, og einn maður talaði við
ráðuneytisstjórann persónu-
lega. Ráðuneytisstjórinn vildi
ekki skýra frá þvi, hver eða
hverjir hefðu þarna verið að
verki, svo við verðum bara að
láta okkur nægja að rétta fram
(H)rós okkar i dag i von um, að
fulltrúi þeirra, sem til þess hafa
unnið, komi og sæki viðurkenn-
inguna.
Kaktusinn okkar verður að
þessu sinni tvöfaldur og eins
og (H)rós okkar hér annars
staðar á siðunni til kominn i
gegn um mistúlkunina á lög-
unum um endurgreiðslu spari-
merkjafjárins.
Akvörðunin, sem mistúlk-
unin felst i, var tekin af stjórn
Húsnæðismálastofnunar rikis-
ins og fyrir það má formaður
hennar, Sigurður Guðgeirs-
son, sækja hennar kaktus á
ritstjórnina til okkar.
Enda þótt ráðuneytisstjóri
félagsmálaráðuneytisins,
Hallgrimur Dalberg, segi
ráðuneytið ekki hafa gefið
nein fyrirmæli um túlkun lag-
anna, hlýtur ráðuneytið að
teljast vel kaktushæft fyrir
það að láta þessa vitleysu við-
gangast i ein sex ár, með þeim
afleiðingum, að stórfé hefur
verið haft af fólki.
Hallgrimur Dalberg fær þvi
annan kaktus þessarar veit-
ingar og má eins og Sigurður
vitja hans á ritstjórn Alþýðu-
blaðsins, Skipholti 19, 3ju hæð.
Apakynið
Sú kenning er uppi að ætt okkar megi rekja
til apakyns og máski er þvi þannig varið,
en þvilikt mætti marga spurningu vekja
og meðal annars um blessað stjórnarfarið.
Og ýmsum verður á að láta sig gruna,
að ekki sé kannski tilhæfulaus fréttin,
þvi það þykir stórum styðja kenninguna
hvað stjórnin okkar er höll undir frumskógaréttinn.
Og mönnum og öpum svipar reyndar saman
sem sannast hefur bæði á lifandi og dánum.
Og þvi verður mikið um dýrðir og déskoti gaman
þann dag sem stjórnin kemur niður úr trjánum.
PIMM á fförnum vegi
...... ^
ÁTT ÞÚ SPARIFÉ?
Jón Arason, „altmuligmand”:
A ég? Sextugur maðurinn?
Skárri væri það nú andskotinn,
ef maður æatti ekki eitthvað i
bók. En það er sko ekki eftir
átta timana. Ég er búinn að
vinna eins og vitlaus maður allt
mitt lif.
Lára Jóhannsdóttir: Nei, það
hef ég aldrei átt. Ég er öryrki og
aldrei haft neitt til að leggja til
hliðar.
Runólfur Þorláksson, útvarps-
virki: Maður reynir nú að eiga
eins litiö af þvi og hægt er af
skiljanlegum ástæðum.
Gunnar Eirfksson, iðnverka-
maður: Sparifé? Já, en ekki er
það þó sérlega mikið. Nóg er
það þó til þess, að ég er ekki
skuldugur maður.
örvar Möller, slmvirki: Já,
slatta. Það kann að vera dálitiö
óraunhæft að eiga peninga I
banka — en hvað á maður að
gera?
mmmmmmmmimm^mmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmm
s