Alþýðublaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 1
Insulin Senilent MC 40 Seint i gærdag kom upp grunur á göngudeild sykurs jiikra á Landsspitalanum um, að insulin lyf það, sem þar var i notkun, væri óvirkt. Þar sem þetta er lifs- nauðsynlegt lyf var strax haft samband við heil- brigðisráðuneytið, sem gerði ráðstafanir til að aövara þá sjúklinga utan göngudeildarinnar, sem nota þetta lyf. Lyfið heitir ÞETTA LYF? NOTAR ÞU Insulin Senilent MC 40 einingar, og framleiðslu- kvóti er 506X3. Heilbrigðisráðuneytið gerði jafnframt ráð- stafanir til þess að láta rannsaka lyfið nákvæm- lega, og með kvóta- númerinu má rekja, hversu viðtækur gallinn er. Að sögn Almars Grimssonar er lyfið afar viðkvæmt, og þarf ekki annað en það hafi verið rangt með- höndlað við geymslu. Hann sagði jafnframt, að ekki séu margir sjúkling- ar með þetta lyf, en þó hafi ekki náðst til þeirra allra i gær. Þeir sem nota lyfið geta skipt yfir i aðra tegund insulins undir handleiðslu læknis. alþýðu aðið LOÐNUMJÖLI SELD Fyrir helgina var gengið frá sölu- samningum á tæp- lega 10.000 tonnum af loðnumjöli, þar af 7000 tonnum fyrirfram. Aukþess er þessa dagana verið að selja minni farma af loðnu- mjöli, líklega í allt FYRSTI AÐSTODAR- um 1500 tonn, að sögn Sigurðar G. Sigurðssonar hjá Ölafi Gisiasyni & Co., sem sá um þessa sölu. — Það er ekki hægt að segja að verðið sé gott, sagði Sigurður frétta- manni blaðsins í gær. — Verðið á próteineininguáþví mjöli, sem til var í landinu, er 4,30 doll- arar og 4.50 á fyrir- frammjölið. Hæst varð það 10.20 doll- arar um sl. áramót og fátt eitt bendir til þess, að verðið hækki í bráð, þótt alltaf sé erfitt að spá um slíkt. um Alitið er að það bil 20.000 tonn af loðnumjöli séu til í landinu. Loðnumjölið, sem selt var nú, kom frá fjórum verksmiðj- um: Ólafi Gíslasyni, Fiskimjölsverk- smiðjunni í Vest- mannaeyjum, Síld- ar- og fiskimjöls- verksmiðjunni hf., og Síldarverksmiðj- um rikisins. Um það bil helmingur 3000- tonnanna fer til Finnlands en hitt skiptist á Bretland, Þýskaland og Dan- mörku. Fyrirfram- sölurnar fara til sömu landa að Þýskalandi undan- skildu. RAÐHERRAHN NIA MATTHÍASI SJÁVAR- ÚTVEG SR ÁDHERRA NÝR BAKKA- FOSS Sjöunda nýja skip Eimskipafélags Islands á þessu ári, Bakkafoss, kom til Reykjavikur i gær. Bakkafoss er 2724 brúttólestir og stærsta skipið af þeim sjö, sem bæst hafa við i flota E.í. að undanförnu. Bakkafoss nýi var af- hentur i Hollandi 20. september sl. Skipstjóri er Magnús Þorsteins- son. * ... Matthias Bjarnason, sjávarútvegs-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur ráðið Einar B. Ingvarsson, fyrrverandi útibússtjóra Landsbanka tslands á tsafirði, „aðstoðarmann ráðherra”. Matthias er eini ráðherrann I núverandi rikisstjórn, sem enn hefur notfært sér heimild i lögunum um Stjórnarráð tslands til að ráða sér aðstoðarmann. Ráðherrann sagði i samtaii viö Alþýðublaðið i gær, að bæði ráðuneytin, sem hann færi með, væru erfið. ,,0g kemst ég varla yfir að anna viðtölum i þeim báðum, þó að vinnudagurinn sé langur”, sagði Matthias. — Það er víst óhætt að segja það, að það er búið að selja fyrirfram dá- lítið af loðnulýsi, sagði Gunnar Peter- sen, framkvæmda- stjóri Bernharð Petersen h/f, í sam- tali við fréttamann NÝ , LAXA Hafskip hf. hefur fest kaup á sjö ára gömlu flutningaskipi i Hollandi, og fær það afhent á tima- bilinu 15. nóvember til 15. desember i ár. Kaupverð skipsins er 2,9 milljónir hollenskra flórina, eða um 127 millj. isl. króna, og tekur skipafélagið lán hjá breskum banka fyrir 80% andvirðisins, eða um 800 þús. dollara. Skipið er 500 brúttólest- ir eða 114 þúsund rúmfet ,,bale", að sögn Guð- mundar Ásgeirssonar. fulltrúa hjá Hafskip, og smiðaárið er 1967. Að öll- um likindum verður það nefnt Laxá eftir skipi Hafskips með þvi nafni, sem selt var til islenskra aðila fyrir nokkru og sigl- ir nú undir heitinu Vega. Alþýðublaðsins í gærkvöldi. Sagði Gunnar fyrirtæki sitt hafa selt nokkur þúsund tonn af lýsi á 500 dollara tonnið, en vildi ekki nefna töL ur um magn, þar sem ekki væri endanlega búið að ganga frá öllum hnútum. Allt lýsið fer til Evrópu. I fyrra voru fyrirf ramsölur á 360-450 dollara tonn- ið. Afgreiðsla þessa lýsis fer fram á loðnuvertíðinni í febrúar-apríl 1975 og er í samningun- um klásúla um veiðar og fram- leiðslu, þannig að ef ekkert veiðist falla samningarnir úr gildi. FRUMSÝNINGARGESTUR ALÞÝDUBLAÐSINS Alþýðublaðið mun i vetur ekki hafa fastan mann i leikhúsferðum, heldur verður sá hátturinn á hafður, að fá til þeirra ýmsa menn: „Frumsýningargesti Alþýðublaðsins”, sem siðan munu skrifa i blaðið um viðkomandi leikrit. Fyrsta frumsýning vetrarins var i Þjóðleikhúsinu á laugardagskvöldið. Gestur Þorgrimsson fór fyrir Alþýðublaðið að sjá ,,Hvað varstu að gera i nótt?” eftir Feydau og á siðu 2 birtast skrif hans um leik- ritið.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.