Alþýðublaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 2
 I>1 STJÚRNMÁL Ólafur enn á ferðinni Möðruvallahreyfingin er nú smátt og smátt að leysast upp. Hluti hennar, undir for- ystu Ólafs Ragnars, hefur skriðið undir feld Magnúsar Torfa. Aörir úr þessum merkilega félagsskap eru aö laumast inn um bakdyr Fram- sóknarflokksins aftur. Tilgangur ólafs Ragnars Grimssonar með samstarfinu við Magnús Torfa var m.a. sá að tryggja sér þingsæti. Hefðu tveir frambjóðendur F-listans náð kjöri i stað eins hefði Ólaf- ur lika náð inn á þing sem uppbótarmaður. En svo varð ekki — og varð hann að láta sér nægja varamannssæti fyrir Magnús Torfa. En Ólafur Ragnar er samt ekki af baki dottinn. Hugur hans stefnir enn fram og leit- ast hann nú við að ná undir- tökunum i Samtökum frjáls- lyndra og vinstri manna. Sjálfsagt mun hann þar enn eiga vist liðsinni Jóns Bald- vins Hannibalssonar, en þeir félagar hafa lengi lagt sin plön saman. Ólafur Ragnar lætur sér samt ekki nægja að verða helsti hugmyndafræðingur SFV á bak við tjöldin. Þvi hefur hann nú komið þvi svo fyrir, að Magnús Torfi Ólafsson byrjar feril sinn sem óbreyttur þingmaður á þvi að sækja fund Allsherjarþings S.Þ. sem fulltrúi i isl, sendi- nefndinni. Verður Magnús væntanlega ytra hluta af starfstima Alþingis fyrir ára- mótin og mun Ólafur Ragnar Grimsson þá sitja á þingbekk i stað Magnúsar. Er eins lik- legt, að Ólafi sé mikið i mun aö Magnús Torfi sitji ekki mikið lengur en óhjákvæmilegt er á Alþingi og gæti þvi margt ósennilegra gerst en það, að skammt yröi til þess að Magnús Torfi léti af þing- mennsku og Ólafur Ragnar kæmi i staðinn. Eftir atvikum ,,Eg er ánægður eftir atvik- um”, segir Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, i viðtali við Timann s.l. laugardag um samningana i Washington. Þetta „eftir atvikum” getur verið býsna gott orðasamband til þess aö nota, þegar menn vilja slá bæði úr og i. Þannig fer það ekkert á milli mála, að Geir Hallgrims- son gæti sagst verið ánægður með Einar Agústsson „eftir atvikum”. Ólafur Jóhannes- son gæti sagst verið ánægður með að eftirláta Geir forsætis- ráðherraembættið „eftir at- vikum”. Lúðvik Jósefsson gæti sagst vera ánægður með Ragnar Arnalds „eftir atvik- um”. Jafnvel Kristinn Finn- bogason gæti lýst mikilli ánægju með Ólaf Ragnar Grimsson „eftir atvikum”. Og Einar Agústsson kemst bara vel frá viðtaiinu við Tim- ann um Washingtonsamning- ana — „eftir atvikum”. SB Frumsýningargestur Alþýðublaðsins Gestur Þorgrímsson Að fara i leikhús er eins og að endurfæðast, — laumast burt frá hversdagsleikanum og eign- ast hlutdeild i nýju lifi. Svona hugsa ég, þegar ég fer i leikhús. Ég hlakka alltaf til að fara að skemmta mér. Alltaf þessi sami undirbúningur — bað, — gaman að sjá þetta leikrit. Það rakstur, — hvar er slaufan min, — burstaðir skór, erma- hnappar. A frumsýningu hittir maður glæsilega búna karlmenn og fagurlega klæddar frúr, og allt i einu vaknar spurning. Finnst þessu alvarlega, prúðbúna fólki gaman að farsa? Undirtektir i þetta sinn bentu varla til þess að allir væru ánægðir, og sannast að segja var ég það ekki heldur. Aður en ég fer I leikhús reyni ég að stýra eftirvæntingunni inn á vissar brautir, og nú hugsa ég sem svo: — Ansi verður gaman að sjá þetta leikrit. Það er eftir Feydau, sama höfund og skrifaði „Fló á skinni”, sem mér er sagt að sé sprenghlægi- legt frá upphafi til enda. Ekki er leikstjórinn af verri endanum, Christian Lund, sá sem stjórn- aði „Þjófar, lik og falar konur” eftir Dario Fo. Eða leikararnir ' hver öðrum betri. Þetta getur ekki brugðist. En af hverju brást það? Vist var Margrét indæl i korselettinu sinu og Sigriður hreint afbragð i hnésiðum nærbuxum, og upp úr aldamótunum siðustu hefur það sjálfsagt þótt geysilega djarft og fyndið að hoppa fáklæddur um sviðið og vera ýmist uppi I rúmi eða undir þvi. En nú bregður enginn svip þótt leikari sprangi um leiksviðið allsnak- inn svo að þessi gamla, góða nærbuxnafyndni dugir ekki lengur. Farsi þarfað vera hraður og sprenghlægilegur frá upphafi til enda, svo að áhorfandinn fái aldrei tima til þess að átta sig á þvi að hverju hann er að hlæja. Ég hafði alltof mikinn tima og verð þvi að segja, eins og drottningin: „Oss er ekki skemmt” („We are not amused”) Ekki verður annað sagt en að leikararnir hafi skilað sinum hlutverkum vel eftir efnum og ástæðum, en ég vildi gjarnan koma þvi á framfæri við ráða- menn Þjóðleikhússins, hvort ekki hefði mátt finna þessum ágætu leikurum og fyrsta flokks leikstjóra verðugra verkefni. Og næst þegar ég leita að erma- hnöppunum og bursta svörtu skóna mina, vona ég að ég verði ekki fyrir vonbrigðum i Þjóð- leikhúsinu. Oss er ekki skemmt Gunnar Eyjólfsson og Margrét Guömundsdóttir f hiutverkum sfnum Gunnar Eyjólfsson og Sigrfður Þorvaldsdóttir I „Hvað varstu að i „Hvað varstu að gera i nótt?” gera i nótt?” Hafnarijarðar Apótek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. BLÖMABÚÐIN ALFHEIMUM 6 SIMI: 33978 — 82532 BLQMASKREYTIN&flR ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KRON DUÍIA í ClfEflDflE /ími 84900 Þriðjudagur 1. október 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.