Alþýðublaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 9
Lokaleikurinn verður á milli Fram og Vals Eftir handknattleiksleikina i Reykjavíkurmótinu i fyrra- kvöld er ljóst að Fram og Valur keppi um Reykjavikurmeist- aratitilinn að þessu sinni, en þessi lið hafa áður keppt um hann. Þetta kvöld sigraði Valur ÍR með 21 marki gegn 19. Jón Jóns- son og Jón Karlsson voru markahæstir leikmanna Vals, og skoruðu meirihluta mark- anna og tryggðu liðinu þannig sigur i siðasta leik B-riðils. Síðar um kvöldið léku Fram og Vikingur, og sigraði Fram þar með 20 mörkum gegn 16, eftir fremur jafnan leik allan timann. Pálmi Pálmason var markahæstur Framara i þess- um leik með fimm mörk, en Vikingurinn Einar Magnússon skoraði flest mörk fyrir sitt lið, eða sjö. Þar með sigraði Fram siðasta leik A-riðils, og mun þvi keppa við Val um Reykjavíkur- meistaratitilinn.— 17 ára gamall norskur skiðahlaupari hefur fundið upp aðferð til að æfa sig d skiðum án þess að þurfa snjó, þannig að skiðamenn eiga að geta þjálfað allt árið. Áður höfðu reyndar svip- aðar tilraunir verið gerðar i Noregi, en þær brautir, sem áður höfðu verið gerðar, voru allar á malbiki og kvörtuðu skiðamenn yfir að fá verki i fæturna á þeim. Braut Norvald Hagfors er hinsvegar lögð á gras, og eru þrjú hjól undir skiðunum, tvö að aftan og eitt að framan, sem rennur eftir afmarkaðri braut. Þekktir skiðamenn hafa þegar reynt þessa nýjung Nor- vaids og iokið iofsorði á hana. Golfárið verður kvatt um næstu helgi, en á laugardaginn verða háð siðustu mót sumarsins hjá flestum golfklúbb- um landsins. Lokamótin eru gjarn- an nefnd bændaglíma, og taka allir klúbbmeð- limir þátt í henni. Golf- klúbbarnir í Reykjavík og nágrenni halda sam- eiginlegt lokahóf á Hótel Sögu þá um kvöldið. — Yfir 60 keppendur mættu á Max Factor golfmótið á Grafarholtsvelli um helgina, en það var siðasta opna mótið i nágrenni Reykjavikur i ár. Keppnisveður var mjög gott, eins og blaðið skýrði frá i fyrri viku voru 18 holur i forgjöf og keppt i fjórum karlaflokkum og einum kvennaflokki. Sigurvegari i meistaraflokki karla varð Óskar Sæmundsson GR með 76 högg, i 1. flokki karla Ólafur Gunnarsson GR með 84 högg i 2. flokki karla Guðmundur Ingvi Sigurðsson GR með 86 högg. 1 3. flokki karla Gisli Ólafsson GR með 93 högg og Hanna Gabriels sigraði i kvennaflokki með 107 högg. Hún er lika i GR. Spá AB fyrir næstu helgi Leikir 5. október 1974 Birmingham - Covent Cariisle - Liverpool Everton - Newcastle l.eeds - Arsennl Leicester - Luion Manch. City - Chelsí Mlddlesbro - Wolves O.P.R. - Ipcwich Stoke - Sheft. Utd. Tottenham - Eurnloy West Ham - Derby Fulham • Manch. Ittd. Ensku úrslitin um helgina: 1. deild Birmingham — Arsenal 3-1 Burnley — West Ham 3-5 Chelsea— Wolves 0-1 Everton — Leeds 3-2 Leicester — Coventry 0-1 Luton — Carlisle 3-1 Manch.City — QPR 1-0 Newcastle — Ipswich 1-0 Sheff.Utd. — Liverpool 1-0 Stoke — Derby County 1-1 Tottenham—Middlesbro 1-2 2. deild Bolton — Notts County 1-1 Bristol Rov. — Blackpool 1 -3 Cardiff — Hull City 1-2 Millvall — Bristol City 1-0 Norwich — Manch.Utd. 2-0 Nottm. For. — Sunderland 1-1 Oldham — Fulham 1-0 Orient — Sheff.Wed. 1-0 Southampton — A.Villa 0-0 WBA —Oxford 3-0 York City — Portsmouth 3-0 Staðan i 1. deiid er nú þannig: Ipswich 10 8 0 2 18 6 16 Manch. City 10 6 2 2 14 11 14 Liverpool 10 6 1 3. 17 8 13 Everton 10 4 5 1 14 11 13 Sheff.Utd. 10 5 3 2 14 14 13 Newcastle 9 5 2 2 16 13 12 Middlesbro 9 4 3 2 12 7 11 Derby 10 3 5 2 16 13 11 Stoke 10 4 3 3 13 11 11 Wolves 10 3 5 2 12 11 11 Carlisle 10 4 2 4 8 8 10 West Ham 10 4 1 5 20 18 9 Burnley 10 4 1 5 17 18 9 Birmingham 10 4 1 5 17 18 8 Coventry 10 2 4 4 11 17 8 Leicester 9 2 3 4 13 17 7 Lúton 10 1 5 4 11 16 7 Chelsea 10 2 3 5 10 18 7 Arsenal 9 2 2 5 9 12 6 Leed^ 9 2 2 5 9 12 6 Tottenham 9 3 0 6 11 15 6 Q.P.R. 10 1 4 5 8 13 6 I 2. deild er staðan þannig Manch. Utd. 10 7 2 1 18-6 16 Norwich 10 3 5 1 11-8 13 Blackpool 10 4 4 2 13-7 12 Sunderland 8 4 3 1 14-5 11 Fulham 10 4 3 3 13-6 11 York City 10 3 5 2 12-9 11 Aston Villa 9 3 4 2 15-7 10 WBA 9 3 4 2 10-6 10 Oldham 8 4 2 2 8-5 10 Orient 10 2 6 2 6-8 10 Notts Co. 10 2 6 2 9-13 10 Hull City 11 2 6 3 11-21 10 Bristol City 8 3 3 2 5-4 9 Nottm. For. 10 3 3 4 14-15 9 Oxford 9 3 3 3 9-13 9 Southampton 10 2 4 4 14-15 8 Bristol Rov. 9 2 4 3 8-12 8 Millvall 11 3 2 6 9-16 8 Portsmouth 10 2 3 5 11-18 7 Bolton 8 2 2 4 7-9 6 Sheff.Wed. 9 1 4 4 8-11 6 Cardiff 9 1 2 6 6-17 4 Efstasund 2 — 80 Kleppsvegur 120 — 136 Skipasund 7 — 79 Sæviðarsund 13 — 102 Barðavogur 18 Eikjuvogur 4 Blaðburðarfalk óskast til að bera blaðið út í eftirtaldar götur Hlunnavogur 6 Njörvasund 26 — 37 Sigluvogur 11 — 16 Snekkjuvogur 7 — 21 Súðavogur 7 Hafið samband við afgreiðslu blaðsins. Sími 14900 Samkeppni um gæðamerki fyrir íslenskar iðnaðarvörur Otflutningsmiðstöð iðnaðarins boðar til samkeppni um gæðamerki fyrir islenskar iðnaðarvörur. Merkinu er ætl- að að vera sameignlegt gæðatákn fyrir útfluttar islenskar iðnaðarvörur, þó að einnig megi nota merkið á vörur ,sem seldar verða á tslandi. Stjórn Útflutningsmiðstöðvarinnar mun skipa til þess sérstaka nefnd, að ákveða á hvaða vör- um megi nota merkið. Er ætlunin að sú nefnd fylgist með þvi, að gæði vörunnar haldist þau sömu og þegar leyft var að nota merkið. Nefndin getur bar af leiðandi svipt fram- leiðendur leyfi til að nota merkið, ef gæði vörunnar reynist ekki fullnægjandi. Merkið á að vera til almennra nota i tengslum við þær vör- ur, sem leyft verður að nota það, svo sem á prentföng, i auglýsingar, sem barmmerki, á umbúðir og viðhengi, á vöruna sjálfa, o.s.frv. Tillögum að merki i einum lit skal skila i stærð 10 — 15 cm. iþvermálá pappirsstærð DIN A4 (21x29,7 cm). Keppend- ur skulu gera grein fyrir merkinu i linu og litum. Einnig skal fylgja stuttorð lýsing á efnisvali. Tillögurnar skal einkenna með sérstöku kjörorði og skal nafn höfundar og heimilisfang fylgja með i lokuðu ógagnsæju umslagi, merktu eins og tillögurnar. Skilafrestur tillagna er til kl. 17.00 föstudaginn 25. október 1974. Skal skila þeim i póst eða skrifstofu Útflutningsmið- stöðvar iðnaðarins merktum: Útflutningsmiöstöð iðnaðarins, Samkeppni, c/o Birgir Harðarson, Haliveigarstig 1, lleykjavik. Birgir Harðarson er ritari nefndarinnar og jafnframt trúnaðarmaður keppenda og geta keppendur snúið sér til hans i sima 24473, varðandi frekari upplýsingar um sam- keppnina. Sú nýbrevtni verður við samkeppni þessa, að almenningi gefst kostur á að taka þátt i vali merkisins. Dómnefnd hef- ur verið skipuð og mun hún velja úr bestu merkin. Verða þau siðan kynnt i fjölmiðlum og almenningi gefinn kostur á að greiða atkvæði um merkin. Veitt verða þrenn verðlaun, þeim þremur merkjum, sem flest atkvæði fá. Fyrstu verðlaun verða að upphæð kr. 110.000.00 og önnur og þriðju verðlaun verða kr. 25.000.00 hvort. 1 dómnefnd eru Helga B. Sveinbjörnsdóttir, auglýsinga- teiknari, Gisli B. Björnsson, skólastjóri Myndlista- og handiðaskólans, Gunnar Arnason, fulltrúi i Kassagerð Reykjavikur, Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Islensks markaðar og Orri Vigfússon, framkvæmdastjóri Glits h.f. Samkeppnin er haldin i samráði við Félag islenskra aug- lýsingateiknara, sem skipaði tvo fulltrúa i dómnefndina. Rétt til þátttöku hafa allir, sem hafa starfsréttindi á ts- landi. Vei'ðlaunumim verður öllum úthlutað. Þaðskal sérlega brýnt fyrir tillöguhöfundum, að Út- flutningsmiðstöð iðnaðarins áksilur sér frjálsan og algjör- an einkarétt til notkunar þeirrar tillögu sem fær 1. verð- laun til afnota fyrir stofnunina sjálfa eða með framsali til annarra, án endurgjalds til höfundar en greiðslu i eitt skipti fyrir öll að fjárhæð kr. 150.000,00. Ennfremur áskilur stofnunin sér sama rétt gagnvart hverri annarri tillögu, sem berast kann, með fullum höfundarrétti samkv. framansögðu., með endurgjaldi til höfundar i eitt skipti fyrir öll að fjárhæð kr. 150.000.00. ÚTFLUTNINGSMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS Hallveigarstíg 1, Reykjavik. Þriðjudagur 1. október 1974. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.